Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ1994 25
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSIMINGARNAR 28. MAI
Borgarstjóri allra Reykvíkinga
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
í KOMANDI kosningum fá Reyk-
víkingar tækifæri til að velja sér
borgarstjóra sjálfir. Sameiginlegt
framboð fólks hefur óskað eftir því
að ég veiti því forystu og verði
borgarstjóri Reykvíkinga eftir
kosningar. Sem fyrrverandi borgar-
fulltrúi og núverandi þingmaður
Reykjavíkur veit ég að hverju ég
geng. Þetta er ábyrgðarmikið starf
og kröfurnar sem verða gerðar eru
miklar; fólk væntir þess að Reykja-
víkurlistinn standi fyr-
ir breytingum sem þörf
er á. Það er því eðlilegt
að spurt sé hvernig
borgarstjóri Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
verði.
Hvernig
borgarstjóri?
í fyrsta lagi verð ég
óbundin af öðru en
samvisku minni og
stefnuyfirlýsingu
Reykjavíkurlistans. Til
mín var leitað um þetta
forystuhlutverk af
fólki úr mörgum flokk-
um og líka fólki sem
hvergi er flokksbundið.
Sjálfstæði mitt er viðurkennt með
ótvíðræðum hætti. Ég er hreykin
af þessari breiðu samstöðu og tel
það mikinn styrk fyrir tilvonandi
borgarstjóra að vera ekki „eign“
tiltekins flokks,_ flokksbrots eða
hagsmunahóps. Ég hef engum gert
greiða til að komast í þetta fram-
boð. Allan minn stjórnmálaferil hef
ég kostað kapps um að halda sjálf-
stæði mínu, vera hafnað eða metin
vegna verka minna og hugmynda.
Ég hef lagt áherslu á að vera óháð
valdhöfum og öflugum hagsmuna-
hópum. Ég er ekki eign annarra.
Því geta borgarbúar treyst. Ég verð
borgarstjóri allra Reykvíkinga.
í öðru lagi er alveg skýrt hvert
hlutverk mitt verður í forystusveit
Reykjavíkurlistans. Sem borgar-
stjóri mun ég bera ábyrgð á rekstri
borgarinnar fyrir hönd þeirra sem
skipa meirihluta borgarstjórnar. Ég
verð pólitískur verkstjóri nýs meiri-
hluta. Ég verð formaður fram-
kvæmdaráðs borgarinnar, borgar-
ráðs. Það verður hlutverk mitt að
stilla saman krafta og veita nýjum
hugmyndum í réttan farveg til
framkvæmda.
í þriðja lagi er alveg skýrt að
Reykjavíkurlistinn er sjálfstæður
aðili í stjórnmálum borgarinnar. A
listanum eru fjölmargir reyndir og
hæfir frambjóðendur sem nú leggj-
ast sameiginlega á árarnar. Fram-
bjóðendur á listanum verða ekki
fulltrúar stjórnmálaflokka í borgar-
stjórn, heldur borgarfulltrúar og
varaborgarfulltrúar Reykjavíkur-
listans, kjörnir af fólkinu. Sú spurn-
ing hvort semja vei'ði um öll mál,
stór og smá, milli Ijögurra eða jafn-
vel fleiri flokka á hreinlega ekki
við. Reykjvíkurlistinn er sameining-
artákn, eitt afl, sem sækir nú um
styrk til góðra verka
hjá ölium borgarbúum,
hvar í flokki sem þeir
standa. Ákvarðanir í
borgarmálum verða
teknar í borgarstjórn-
arflokki Reykjavíkur-
listans og það er hann
sem verður ábyrgur
gagnvart kjósendum.
Hvernig mun
Reykjavíkurlistinn
starfa?
Nýkomnir léttfóðraðir
regnjakkar
flerð aðeins kr. 3.980,-
Litur: Dökkblár
5% staögreiösluafsláttur,
einnig af póstkröfum
greiddum innan 7 daga
mmúTiLíFmm
GLÆSIBÆ • SÍMI812922
Fyrst og fremst ætl-
um við okkur að starfa
saman. Meðal fram-
bjóðenda okkar eru
reyndir borgarfulltrúar
sem gjörþekkja innviði
borgarkerfisins. Efstu frambjóð-
endur eru nú þegar borgarfulltrúar
sem hafa getið sér gott orð fyrir
skelegga framgöngu sína. Sigrún
Magnúsdóttir er í efsta sæti á lista
og mun stjórna fundum borgar-
stjórnarflokks Reykjavíkurlistans.
Þar sitja allir kjörnir borgarfulltrúar
og varamenn þeirra. Hlutverk Sigr-
únar verður sambærilegt við þing-
flokksformenn á Alþingi. Guðrún
Ágústsdóttir verður forseti borgar-
stjórnar og stjórnar fundum henn-
Ef reynsla mín hefur
kennt mér eitthvað, seg-
ir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, þá er það
hve nauðsynlegt er að
starfa af heilindum og
fyrir opnum tjöldum.
ar. Aftur má grípa til samlíkingar
við Alþingi þar sem forseti stýrir
fundum og skipuleggur dagskrá
þingsins. Þær Sigrún og Guðrún
munu báðar sitja í borgarráði. Pét-
ur Jónsson verður svo þriðji fulltrúi
nýs meirihluta Reykjavíkurlistans í
borgarráði og varaformaður þess.
Reykjavíkurlistinn mun skipa full-
trúa sína í nefndir og ráð eins og
venja er til og taka sínar ákvarðan-
ir á fundum borgarstjórnarflokks-
ins. Oll verkaskipting og starfstil-
högun verður því í föstum skorðum
og frá fyrsta degi mun reynsla og
þekking borgarfulltrúa okkar skila
sér inn í borgarstjórn Reykjavíkur.
Heiðarleg og réttsýn sljórn
En formið er ekki nóg. Það þarf
að gefa starfsforminu inntak. Það
inntak er heiðarleiki og réttsýni.
Sem borgarstjóri mun ég hafa for-
ystu fyrir því að móta skýrar, rétt-
látar og sanngjarnar starfsreglur í
samskiptum borgarstjórnar og
borgarbúa. Ef reynsla mín af stjórn-
málum hefur kennt mér eitthvað,
þá er það hve nauðsynlegt er að
starfa af heilindum og fyrir opnum
tjöldum. í raun er það mitt eina
kosningaloforð.
Ég veit að það er ærið verkefni
að starfa heiðarlega í íslenskum
stjórnmálum. En ég er líka sann-
færð um að uppskeran verður sam-
kvæmt því. Fólk veit hvenær stjórn-
málamenn koma fram af heilindum.
Þess vegna horfi ég upplitsdjörf til
eþss að verða borgarstjóri Reykvík-
inga.
Breytt stjórnmál
Eitt verður ekki sagt um Sjálf-
stæðisflokkinn: að menn viti hvar
þeir hafa hann. Flokkurinn stendur
frammi fyrir því að tapa völdum.
Við þær aðstæður er honum ekkert
heilagt: hann afneitar eigin mönn-
um, eigin verkum og eigin stefnu.
Á því kjörtímabili sem nú er að líða
hafa Reykavíkingar haft þijá borg-
arstjóra, en ekki valið nema einn
sjálfir. Þessar tíðu mannabreyting-.
ar í æðstu stjórn borgarinnar eiga
sér eina ástæðu: innri vandamál
Sjálfstæðisflokksins. Hvað svo sem
Sjálfstæðisflokkurinn segir í kom-
andi kosningabaráttu getur hann
ekki sagst vera kjölfestan í íslensk-
um stjórnmálum.
Kosningarnar í vor boða nýja
tima í íslenskum stjórnmálum. Fólk-
ið er að breyta kerfinu. Á vissan
hátt erum við að kjósa um fortíð
eða framtíð. Framtíðin krefst nýrra
leiða, nýrra lausna. Fyrir mig, per-
sónulega, er það mikil áskorun að
bjóða mig fram sem borgarstjóri
Reykvíkinga. Ég hlakka til þeirra
verka.
Höfundur er borgarstjóraefni
R-listans.
Framboðs-
listar í Súða-
víkurhreppi
F-LISTI umbótasinna: Heiðar
Guðbransson, hreppsnefndar-
maður, og Helgi Bjarnason, bif-
vélavirki.
S-Listi Súðarvíkurlistinn. Sig-
ríður Hrönn Elíasdóttir, sveitar-
stjóri, Fjalar Gunnarsson, bygg-
ingamaður,
\Á, Garðar Sigur-
geirsson, húsa-
smíðameistari,
Friðgerður Bald-
vinsdóttir, hús-
9 8 M A T móðir, Hafsteinn
LO.lVlm Númason, sjó-
maður, Hulda Gunnarsdóttir,
verslunarmaður, Jónas Skúla-
son, bifreiðastjóri, Guðmundur
Halldórsson, bóndi, og Salbjörg
Þorbergsdóttir, póstafgreiðslu-
maður.
Fjórir listar
í Grindavík
FJQRIR listar eru í kjöri vegna
bæjarstjórnarkosninganna í
Grindavík í vor. í frétt Morgun-
blaðsins um framboðsmál
Grindavíkur í gær féll listi Al-
þýðubandalagsins niður en eftir-
talin skipa G-listann:
Hinrik Bergsson, Valgerður
A. Kjartansdóttir, Guðmundur
Bragason, Hörður Guðbrands-
son, Sigurður Jónsson, Unnur
Haraldsdóttir, Eyþór Björnsson,
Olga Gylfadóttir, Óðinn Hauks-
son, Élísabet Sigurðardóttir,
Kristín Gunnþórsdóttir, Guðjón
Guðlaugsson, Siguijón Sigurðs-
son og Steinþór Þorvaldsson.
opnar í dag verslun
í Faxafeni 12
I dag verður opnuð ný verslun í Faxafeni 12
þar sem boðið verður upp á öll þekktustu
vörumerki 66°N í regn,- sport- og útivistar-
fatnaði ásamt fjölbreyttu úrvali af vinnufatnaði
fyrir flestar starfsstéttir.
Opið fóstudag frá kl. 9.00 - 19.00
laugardag frá kl. 10.00 - 16.00
Stefndu á íslenskt í 66? N
mm
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF.
FAXAFENI 12, REYKJAVÍK, SÍMI: 91 - 88 66 00