Morgunblaðið - 06.05.1994, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
URSLIT
Víkingur-Selfoss 29:33
Víkin, íslandsmótið í handknattleik karla,
2. leikur um þriðja sætið og Evrópusæti,
fimmtudaginn 5. maí 1994.
Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:6, 7:6, 8:10,
9:11, 12:11, 12:12, 14:12, 14:15, 16:15,
17:19, 19:22, 22:23, 24:25, 24:28, 26:30,
28:32, 29:32, 29:33.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 8, Krist-
ján Ágústson 6, Gunnar Gunnarsson 5,
Bjarki Sigurðsson 5/1, Friðleifur Friðleifs-
son 3, Ingi Þór Guðmundsson 1, Árni Frið-
leifsson 1.
Varin skot: Magnús Ingi Stefánsson 18/2
og Reynir Reynisson 1.
Utan vallar: Enginn.
Mörk Selfoss: Gústaf Bjarnason 8/2, Sig-
"urður Sveinsson 7, Jón Þórir Jónsson 6,
Einar G. Sigurðson 5, Siguijón Bjarnason
4/1, Grímur Hergeirsson 1, Einar Guð-
mundsson 1, Oliver Pálmason 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjamason 19 og
Hallgrímur Jónasson 1/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: 600.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson komust ágætlega frá leiknum.
Knattspyrna
Æfingalandsleikur
Svíþjóð - Nígería.............3:1
Stefan Schwarz (3.), Henrik Larsson (42.),
Klas Ingesson (78.) - Joseph Odegbami
(75.). 19.000.
England
Oldham -Tottenham.............0:2
(Samways 37., Howells 78.). 14.283.
Íshokkí
Heimsmeistarakeppnin á Ítalíu
Átta liða úrslit:
Kanada - Tékkland.............3:2
(Brendan Shanahan 12:20, Paul Kariya
25:58, Shayne Corson 57:26) - (Martin
Straka 4:12, Jiri Kucera 27:38).
Finnland - Austurriki........10:0
Christian Ruuttu (14:22, 33:00), Mikko
Maekelae (28:48, 31:36), Janne Ojanen
(36:35), Jari Kurri (43:44), Saku Koivu
(45:36), Timo Jutila (46:17), Ville Peltonen
(54:19), Mika Strömberg (59:29).
■f undanúrslitum leika annars vegar
Kanada og Svíþjóð og hins vegar Finnland
og Bandaríkin.
NHL-deildin
Úrslitakeppnin
Undanúrslit í Vesturdeild
Toronto - San Jose.............5:1
■Staðan er 1:1, en fjóra sigra þarf til að
komast áfram.
Dallas - Vancouver.............0:3
■Vancouver er 2:0 yfir.
AFREKSMANNASJOÐUR ISI
HSÍ fær átta milljónir
vegna landsliðsins
STJÓRN Afreksmannasjóðs ÍSÍ
samþykkti einróma að leggja
til við framkvæmdastjórn ISÍ
að HSÍ fái átta milljón króna
styrk vegna undirbúnings A-
landsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik á
næsta ári og samþykkti stjórn
ÍSÍ tillöguna í gær.
Afreksmannasjóðurinn, sem
hefur um 12 til 13 milljónir
króna til ráðstöfunar á ári, leggur
ríka áherslu á að fjármagnið verði
eyrnamerkt undirbúningi landsiiðs-
ins og skilyrt fyrir það tiltekna
verkefni, en ráðstöfunin verður í
nánu samstarfi við stjórn sjóðsins.
Tvær milljónir verða greiddar í
einu, fyrst 15. maí, síðan 15. októ-
ber, þá 15. janúar 1995 og loks
15. apríl 1995.
„Það er mjög ánægjulegt að vera
ýtt úr vör á eins rausnarlegan hátt
og hér hefur verið gert,“ sagði
Ólafur B. Schram, formaður HSÍ,
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Þetta er mikið fagnaðarefni og
klapp á bak allra í hreyfingunni."
Olafur sagði að gert væri ráð
fyrir að undirbúningur liðsins kost-
aði um 28 miiljónir króna. Því
kæmi stuðningur Afreksmanna-
sjóðs sér mjög vel, en landsliðið
verður kallað saman strax eftir
úrslitakeppni íslandsmótsins og
verður hópurinn saman í sem sam-
svarar um fjóra mánuði fram að
HM. „Við ieggjum áherslu á að
undirbúningurinn verði sem bestur
og styrkurinn veitir strákunum
ekki aðeins aukinn meðbyr heldur
eflir starfsemina og eykur trú á
því sem við erum að gera,“ sagði
formaðurinn.
HANDBOLTI / 1. DEILD KARLA
Oddaleikur um bronsið
Stefán
Stefánsson
skrifar
Léttleikinn var í fyrirrúmi þegar
Selfyssingar unnu Víkinga
29:33 í Víkinni í gærkvöldi, en liðin
mætast í oddaleik
um bronsið og Evr-
ópusæti á Selfossi á
morgun. Varnar-
leikurinn er greini-
lega ekki sterkasta hlið þessara liða,
mörkin urðu fleiri en mínútumar
eins og í fyrri leik liðanna, þó að
markverðir verðu tæplega 40 skot
samtals.
Víkingar voru sprækir fyrir hlé
en gestirnir héldu í við þá. Eftir
hlé skiptu Selfyssingar upp um
nokkra gíra og með bros á vör náðu
þeir forystunni, sem þeir létu eki
af hendi.
„Okkur vantaði neistann og þetta
var bara lélegt,“ sagði Friðleifur
Friðleifsson fyrirliði Víkinga.
Magnús Ingi Stefánsson markvörð-
ur var frábær eins og reyndar flest-
ir Víkinga fyrir hlé en í síðari hálf-
leik stóð ekki steinn yfir steini. Sla-
visa Cvijovic lék ekki með vegna
ágreinings um greiðslur við stjórn
handknattleiksdeildar Víkings.
„Við höfðum meiri vilja nú enda
erfitt að rífa sig upp eftir langt
hlé. Eftir tapið á Selfossi ætluðum
við að bæta fyrir það og sýna til-
þrif, hvernig sem færi,“ sagði Gísli
Felix Bjarnason markvörður Sel-
fyssinga, sem átti frábæran leik
ásamt liði sínu.
FELAGSLIF
Thys á ráðstefnu KSÍ
Guy Thys, fyrrum landsliðsþjálfari Belgíu
í knattspymu, verður frummælandi á ráð-
stefnu, sem KSÍ heldur fyrir knattspymu-
þjálfara í dag og á morgun. Ráðstefnan
hefst kl. 18 í dag og er enn hægt að til-
kynna þátttöku hjá KSl.
Trtilbaráttan hefst í kvöld
Fyrsti leikur Hauka og Vals um íslandsmeistaratitilinn í handknatt-
leik verður í íþróttahúsinu við Kaplakrika í kvöld og hefst klukk-
an 20. Mikil aðsókn hefur verið að leilcjum Hauka og ákváðu þeir því
að ieika heimaleikina í Kaplakrika svo fleiri kæmust að. Sama er upp
á teningnum hjá Valsmönnum, sem leika sína heimaleiki í Laugardals-
höll, en annar leikur liðanna verður þar á mánudag kl. 18.
ÍSLANDSMÓTIÐ í HANDKNA TTLEIK NISSAN - DEILDIN
ÚRSLITALEIKIR
HAUKAR
VALUR
Fyrsti leikur í úrslitaviöureignum
liðanna hefst í kvöld í Kaplakrika kl. 20:00
ATH: forsala hefst í Kaplakrika kl. 12:00
Húsið opnar kl. 18:30
Mætið tímanlega
íS
SPARISJÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
%
PRENTBÆR
Síöast uröu Haukar
íslandsmeistarar 1943
og þá var notaður reimaður
bolti Þeir sem hafa meðferðis
reimaðan bolta fá frítt inn.
KORFUBOLTI
Charles Barkley
Barkley í
sérflokki
Charles Barkley gerði 56 stig
fyrir Phoenix Suns, þegar lið-
ið vann Golden State 140:133 í
úrslitakeppni NBA-deildarinnar í
fyrrinótt. Hann hefur leikið í 10 ár
í deildinni og er þetta í fyrsta sinn,
sem hann brýtur 50 stiga múrinn.
Barkley skaust upp að hlið Wilts
Chamberlains og Michaels Jordans
hvað varðar þriðja hæsta stigaskor
í úrslitakeppninni, en Jordan á
metið, 63 stig gegn Boston í fram-
lengdum leik 1986 og Elgin Baylor
er næstur með 61 stig.
Phoenix sigraði 3-0 og er komið
í átta liða úrslit, en New Jersey
Nets eygir von eftir 93:92 sigur
gegn New York Knicks í framlengd-
um leik.
Alls voru gerð 273 stig í leikjum
Phoenix og Golden State og hafði
Barkley áhyggjur af vamarleik liðs
síns. „Vörnin verður að vera betri.
Ef við bætum hana ekki verðum
við ekki meistarar, en markmiðið
er að ná titlinum."
Barkley gerði 27 stig í fyrsta
leikhluta og hefur aðeins Sleepy
Floyd skorað fleiri stig í einum leik-
hluta, en hann gerði 29 stig 1987.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
Brasilíu
fatím
FOI_K
■ TVEIMUR klukkutímum fyrir
leik Brasilíu og Islands í fyrrinótt
voru áhorfendastæðinum á leikvang-
inum orðin troðfull, 23.000 manns
voru mættir. Þar á
meðal var 70 manna
lúðrasveit fyrir aftan
annað markið sem
spilaði án mikilla
hvílda skemmtileg og fjörug samba-
lög.
■ BRASILÍUMENN léku með
sorgarbönd til minningar um kapp-
aksturshetjuna Ayrton Senna, sem
lést um síðustu helgi. Fyrir leikinn
var einnar mínútu þögn vegna frá-
falls hans og síðan var stór mynd
af Senna, sem fest var neðan í gul-
ar og grænar blöðrur, send upp í
loftið frá leikvanginu.
■ MIKILL hávaði var á leikvang-
inum fyrir leik og flugeldasýning
með sprengjum og tilheyrandi. Þá
flaug þyrla yfir vellinum, frá því
klukkutíma áður en leikurinn hófst
og meðan hann stóð yfir, með aug-
lýsingaskilti þar sem Brasilíumenn
voru hvattir til dáða.
■ ÞEGAR leikmenn Brasilíu
komu út eftir leikhléið var hver og
einn þeirra með fótbolta með sér,
sem þeir spörkuðu upp til áhorf-
enda, við mikinn fögnuð.
■ ÞJÁLFARI landsliðs Brasilíu
er greinlega ekki vinsæll í Floriana-
polis, því þegar hann var kynntur
fyrir leik var púað vel og lengi. Sem
og reyndar þegar 25 mín. voru liðn-
ar af leiknum og áhorfendur orðnir
óþolinmóðir að bíða eftir marki.
■ BRASILÍUMAÐUR, sem vant-
aði á annað fótinn fyrir neðan hné,
og studdist við hækjur, sýndi knatt-
þrautir í leikhléi. Hann hélt boltanum
á lofti með stubbnum yfir endilangan
völlinn og aftur til baka og síðan
allan hringin kringum völlinn, án
þess nokkru sinni að missa knöttinn
í jörðina.
■ FÖÐUR brasilíska framherjans
frábæra Romarios, sem leikur með
Barcelona á Spáni, var rænt í Rio
de Janeiro í fyrradag og hafa ræn-
ingjarnir farið fram á sjö milljónir
dollara í lausnargjald — það er and-
virði nærri 500 milljóna króna. Frétt-
irnar um ránið bárust inn í veislu,
sem liðunum var haldin að leiknum
loknum á flugvellinum í Floriana-
polis, og var þá umsvifalaust fjölgað
í öryggisvarðaliði kringum brasilíska
og íslenska liðið — enn hert á öllum
öryggisráðstöfunum — og hafði
mönnum þó alveg þótt nóg um.
■ EINN knöttur tapaðist í leikn-
um, og þykir það lítið í Brasilíu.
Þegar knöttur berst upp í áhorfenda-
stæði er sá sem nær að handsama
gripinn fljótur að eigna sér hann á
stundinni, og sjaldgæft að knettir
berist aftur niður á völl. Það mun
nánast vera regla.
■ SIGURÐUR Jónsson fékk gult
spjald á 45. mín., að því að talið er
fyrir mótmæli, en hann gerði ekkert
annað en klappa fyrir einum brasil-
íska leikmanninum sem lét sig detta
með tilþrifum fyrir framan Sigurð,
þó svo ekkert hefði verið brotið á
honum. En aukaspyrnu fékk hann
dæmda...
1a^%Eftir þunga sókn Brasilíumanna á 34. mín. átti Ronaldo
■ \#hinn ungi skot rétt utan vítateigs, boltinn lenti í öðrum
brasilískum sóknarmanni sem var talsvert innan við íslensku vörnina,
breytti um stefnu og fór í bláhornið vinstra megin, óverjandi fyrir
Birki sem var kominn í hitt hornið. Brasilíumenn skrá þó markið á
Ronaldo.
2:0
|A 43. mín. fengu heimamenn ódýra vítaspyrnu. Þá var
'Ronaldo við það að brjótast í gegn, var felldur en stóð upp
úr brotinu og náði góðu skoti, sem Birkir varði meistaralega en þá
dæmdi dómarinn vitaspyrnu. Zinho skoraði örugglega úr vítaspyrn-
unni, með vinstra fæti.
3B^%Eftir að Eyjólfur Sverrisson hafði nærri skorað náðu Brasil-
■ \#íumenn skyndisókn. Ronaldo fékk stungusendingu inn fyrir
vömina, Birkir hikaði í úthlaupinu og þeir mættust rétt við vítateigslín-
una. Birkir náði að verja skot Brasilíumannsins en Viola fylgdi vel á
eftir, náði knettinum við vítapunkt og „negldi“ hann upp í þaknetið.