Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR VINKLAR A TRÉ Crilspy waíer Svo stökkf • SÆTRE KJEKS • SÆJRE KJEK5 • SÆJRE KJEK5 • SÆJRE KJEKS • SÆIRE KJEK5 • SÆIRE KJEKS • SÆJRE KJEKS • SÆJRE KJEK5 • ,11 4 v^. -í/r-PÍS S* «r«r «r 5 f • (v#®« kÆmMF' Hannes Lárus- son: Áletraðar vangamyndir. Vangasvipur menningarlí fsins MYNPLIST Gerðuberg INNSETNING Hannes Lárusson 1. til 29. mai Sýningarskrá og aðgangur ókeypis. HANNES Lárusson hefur verið duglegur við að velta upp ýmsum hugleiðingum um menningarlífíð á sýningum sínum og gjarna fjallað um tengsl þess og þeirra sem vald- ið hafa í þjóðfélaginu; á stundum hefur þessi umræða hitt ágætlega í mark, en í öðrum tilvikum hefur hún verið yfírkeyrð af alvörunni og þannig orðið þreytandi, eins og stundum vil! fara fyrir ágætum málstað. En listamaðurinn heldur ótrauður áfram að fjalla um menn- ingarlífið á breiðum grundvelli og nú með mun almennari tilvísunum en áður. Á sýningunni má í upphafí sjá tvo þætti, sem vissulega tengja hana við fyrri sýningar Hannesar, og þá áherslu á handverkið, sem þar hefur komið fram í gegnum tíð- ina; hinn fyrri er mikilúðleg manns- mynd, útskorin í tré, en máluð með þeim íjönjgii litreitum, sem hafa orðið einkennismerki listamannsins, og m.a. má fínna í merki sýningar- staðarins Gallerí einn einn, sem Hannes rekur. Síðari þátturinn er öllu fínlegri og um leið gott dæmi um hversu fáguð vinnubrögð lista- maðurinn hefur tamið sér á stund- um; einföld form, svart og hvítt, er allt sem þarf til að skapa ímynd allra þeirra sundfugla, sem prýða umhverfíð. Þessir þættir eru fyrst og fremst til áminningar um verksvið lista- mannsins og tengsl hans við hand- verkið. Aðalefni sýningarinnar felst í vangamynd konu, sem hefur verið klippt út og margfölduð í öllum til- brigðum og tónum litrófsins, þannig að leitun er að tveimur sem virðast eins, þótt fjöldi þeirra sé hátt á sjötta hundraðið. Þessar vanga- myndir eru festar á veggina í helsta sýningarskoti staðarins og mynda þannig reglubundið, taktfast um- hverfí sem kallast á við steinflísar gólfsins. Hér hefur listamanninum tekist með einföldum hætti að skapa sjónrænt athyglisverða innsetningu, sem tekur mið af eiginleikum rýmis- ins og gæti því tæpast gengið upp með sama hætti annars staðar. Þar með er ekki allt komið; á hveija vangamynd hefur verið ritað eitt nafn og við fyrstu skoðun virð- ast þessi nöfn koma úr öllum áttum og ekki eiga mikið sameiginlegt. En þar sem listsköpun Hannesar er sjaldnast tilviljunum háð, er rétt að kanna nöfnin nánar og þá kemur í ljós að þarna er nefnt fólk úr menningarlífínu, fjölmiðlum, stjóm- málum og stjórnsýslu; nöfnin munu fengin af boðslista Gerðubergs. Þama hefur Hannes hitt á nýjan og skemmtilegan flöt á menningar- umræðunni, sem vert er að veita athygli. Hveijir eru á slíkum boðs- listum og hvers vegna? Ef til vill er þama fyrst og fremst áhugafólk um listir, og þó. Eða em þama fleiri taldir í krafti embættis eða pólití- skrar stöðu, þó viðkomandi hafí nær engan áhuga á menningarmálum og komi aldrei á sýningar nema af þeim hégómaskap að sýna sig og sjá aðra? Stærstu boðslistar sem eru í gangi, t.d. hjá Listasafni íslands og Kjarvalsstöðum, hljóta að vera athyglisverð lesning í þessum skiln- ingi. Vafalaust er nokkuð stór kjami fólks á öllum slíkum listum og er vonandi að þar sé áhugafólk- ið í meirihluta, en það er þó engan veginn víst og lestur þeirra rúmlega fímm hundruð nafa sem hér er að fínna nær ekki að skera úr um það. Utan á sýningarskrá em ljós- myndir af ýmsum gjömingum Hannesar á síðustu ámm og er það efni f undarlega litlum tengslum við efni sýningarinnar. I stuttum texta er sýningin að þessu sinni sögð sú þriðja í samhangandi röð sýninga listamannsins undanfarið og m.a. vísað til sýningar hans í Mokka í febrúar sl. í því sambandi. Ekki rekur undirritaðan minni til að þar hafí neitt komið fram um slíkt sam- hengi og er í hæsta lagi vafasamt að kynna það fyrst nú; slíkt kallast að vera vitur eftir á. Því ber fyrst og fremst að skoða þessa sýningu sem sjálfstæða ein- ingu, enda stendur hún ágætlega undir því. Hér er á ferðinni vel heppnuð innsetning af vangasvip menningarlífsins, þar sem sam- virkni rýmisins er notuð á skemmti- legan hátt og um leið er haldið áfram þeirri listpólitísku umræðu, sem listamaðurinn hefur helgað krafta sína um nokkurt skeið. Eiríkur Þorláksson Flísan - úti ot C ÁLFABORG " KNARRARVOGI 4 • * 686755 „Rennur blóð eftir slóð...“ KVIKMYNPIR Regnboginn KALIFORNIA ★ Leikstjóri Dominic Sena. Tónlist Carter Burwell. Aðalleikendur Brad Pitt, Juliette Lewis, David Duc- hnovy, Michelle Forbes. Bandarisk. Polygram 1993. KALIFORNIA státar af tveimur úr hópi athyglisverðustu yngri leik- ara Hollywoodborgar og verður hin forvitnilegasta fyrir vikið. En því miður eru þau Juliette Lewis og Brad Pitt nánast það eina sem er athyglisvert við myndina sem segir af blóðugu ferðalagi þvert yfír Bandaríkin. Brian (David Duc- hovny) er að vinna að bók um fjöldamorðingja er hann fær þá hugmynd að leggja upp í langferð og sjá með eigin augum sögustaði viðfangsefnisins, jafn geðslegt og það er. Enda síðan ferðalagið á vesturströndinni. Kærustunni, ljós- myndaranum Carrie (Michelle Forbes), líst vel á, einkum og sér í lagi áfangastaðinn. Hin sólríka Kalifornía lokkar. Eitt ljón er á veginum, bensín- hákurinn bíllinn þeirra, og efnin takmörkuð. Þjóðráð að fá fleiri með í púkkið til að skipta kostnaðinum. Þá koma til sögunnar Early (Brad Pitt), fangelsislimur á skilorði, og Adele (Juliette Lewis), sem jaðrar við að vera þroskaheft. Þau boða vandræði. Eftirleikurinn er með ólíkindum. Að vísu er verið að gera grín í aðra röndina að manngerðunum Brian og Carrie (að manni skilst, ætli það hafi verið meiningin?), einkum þeim fyrrnefnda, uppum sem hafa kannski meiri trú á sjálf- um s’ér en nokkrum er hollt. Þó á Brian að vera menntamaður sem veit lengra en nef hans nær, samt sem áður varast hann ekki ómenn- ið Early. Hvaða meðaljón mundi forða sér á braut eftir fímm mín- útna orðastað við slíkan skálk, flaggandi ógæfunni utaná sér. En áfram heldur vesturförin og tekur að roðna. Upparnir fyrr en varir komnir í bráða lífshættu í miðju morðkófi kolbijálaðs samferða- manns. Þvílík dauðans endaleysa. Engan tilgang er að fínna með öll- um djöfulskapnum, ef hann hefur átt að vera til staðar hefur hann kafnað í subbulegu ofbeldinu sem hefst um leið og Early kemur til sögunnar. Brian er einnig sögu- maður og grípur inn í framvinduna af og til, það segir manni strax að kauði lifír þessa heljarreisu af og dregur það óneitanlega úr spenn- unni. Kemst hann helst að þeirri hávísindalegu niðurstöðu í lokin að fjöldamorðingja þjaki ekki sektar- kenndin og enn síður nagi þá sam- viskan. Þá vitum við það. Sæbjörn Valdimarsson Smoibndkjeks uten avsukkerog HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI __ EINKAUMBOÐ &Þ.Þ0RGRIMSS0N&C0 Ármúla 29 - Reykjavík - simi 38640 - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.