Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 13 VIÐSKIPTI Vaxtalækk- im í Þýska- landí Frankfurt Reuter. ÞÝSKI seðlabankinn lækkaði í gær sérstaka endurkaupa- vexti og er búist við, að það sé aðeins undanfari almennrar vaxtalækkunar, jafnvel strax í dag. Vextir voru einnig lækk- aðir í Belgíu. Endurkaupavextirnir voru lækkaðir úr 5,41% í 5,35% en því er spáð, að forvextir verði lækkaðir úr 5% í 4,75%. Þýsku seðlabankamennirnir hafa að vísu nokkrar áhyggjur af aukningu peningamagns í umferð en talið er, að úr henni muni síðar á árinu. Vaxta- lækkunin í Belgíu kom ekki á óvart en belgíski frankinn var bundinn þýska markinu um mitt ár 1990 og síðan hafa Belgar fyrlgt peningastefnu Þjóðverja í flestu. IBM-turninn seldur IBM, International Business Maehines, sem reynir að hag- ræða og spara með öllum ráð- um, hefur ákveðið að selja skrifstofubyggingu sína á Ma- dison Avenue. Er kaupandinn fyrirtæki í eigu fasteignafyrir- tækisins Odyssey Partners LP og byggingarverktakans Edw- ards Minskofffs. IBM vildi ekki gefa upp verðið á byggingunni en The Wall Street Journal áætlar, að það sé um 14-15 milljarðar kr. IBM verður áfram í þriðjungi byggingar- innar sem leigjandi. Kaffiverð rýkur upp London.' Reuter. KAFFIVERÐ hélt áfram að hækka í gær og í fyrirfram- samningum voru greiddir 1.920 dollarar fyrir tonnið, það mesta í fimm ár. Er hækkunin rakin til ótta við minna fram- boð frá kaffiræktarlöndum í Suður-Ameríku og Asíu. Heimsmarkaðsverð á kaffi er nú 22% hærra en það varí bytjun síðustu viku og nærri 70% hærra en í byijun febr- úar. Þrátt fyrir það segja tals- menn kaffifyrirtækjanna, sem brenna og mala kaffið, að ekki sé fyrirhugað að hækka verð til neytenda, að minnsta kosti ekki að sinni. Það hafði engin áhrif á markaðinn þótt fréttir bærust um, að framleiðendur hygðust setja á markað helm- ing þess kaffis, sem þeir hafa geymt í því skyni að ýta undir verðhækkun. Risna algengt deiluefni RISNA er algengt deiluefni milli atvinnurek- enda og skattayfirvalda vegna þess að hún er á mörkum einkaútgjalda og rekstrarkostnaðar, sagði Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri á hádegisverðarfundi Kaupmannasam- takanna. Umræðuefni fundarins var eftirlitsátak embættis ríkisskatt- stjóra á síðasta ári. Kaupmenn sem tóku til máls á fundinum gagnrýndu aðferðir ríkis- skattstjóra og sögðu að oft væri lítið samræmi á milli fyrirspurna einstakra starfsmanna emb- ættisins. Skúli Jóhannsson kaupmaður gagnrýndi, að beðið væri um gögn langt aftur í tímann, í stað eins til tveggja ára. Síðan fengju kaup- menn einungis 10 daga til að svara embætt- inu, en hins vegar drægist það oft á langinn að greiða úr ágreiningsefnum. Þá séu reglur og lög oft óljós. Tryggvi Jónsson endur- skoðandi sagði, að nú væri nefnd að störfum sem ætti að kveða nánar á um hvað teldist frádráttarbær rekstrarkostnaður. Það myndi auðvelda úrlausn flestra ágreiningsmála. Garðar Valdimarsson sagði, að eftirlit hefði aukist verulega á vegum embættisins og undan- farið hefði eftirlitsmönnum verið fjölgað. Hvað varðaði deilur um risnu sagði hann, að það væri ljóst að risna ætti ætíð að beinast að aðilum utan fyrirtækjanna og væri þá til- gangurinn að afla nýrra viðskipta, viðhalda núverandi viðskiptum eða auka þau. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra benti á, að skattaeftirlit væri tiltölulega nýtt af nálinni og oft væri um óvant fólk að ræða sem sinnti því. Hann sagði, að engin skömm væri að því að lenda í reglubundnu eftirliti og í því tilfelli mætti ekki rugla saman skatteftirliti og skatt- rannsókn, sem miðaði að því að leita uppi þá sem svíkja undan skatti eða telja ekki fram. Ósamræmi í fyrirspurnum embættisins Reglubundið eftirlit engin skömm Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann m Kannanir sýna að 13 og 14 ára unglingar nota áfengi í talsverðum mæli. Neysla þess þekkist jafnvel meðal 12 ára bama. Unglingur sem neytir áfengis skemmir fyrir sjálfum sér. Áfengisneyslan tmflar félagslegan og tilfinningalegan þroska unglingsins og spillir samskiptum innan fjölskyldunnar og út á við. Við sem eldri emm bemm ábyrgð á því að snúa þessari þróun við. Ágóðinn af Álf asölunni f er til að efla forvarnarstarf fyrir unga fólkið. / / / Alfasala SAA verður um næstu helgi. HVÍTA HÚSIÐ / SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.