Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 34

Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ IVAR ARNORSSON + ívar Arnórsson bifreiða- smiður fæddist í Reykjavík 2. júní 1965. Hann lést í vél- sleðaslysi- i nágrenni Skjald- breiðs 30. apríl síðastliðinn. Jarðarför hans fór fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í gær. Skjótt skipast veður í lofti. Ekki hvarflaði að okkur, samstarfsmönn- um ívars Amórssonar, er við kvödd- um hann glaðan og reifan, áður en hann lagði af stað úr bænum í helg- arfrí, að það væri í síðasta sinn sem við fengjum að sjá hann. í ívar Amórsson sem var meistari í bifreiðasmíði var verkstjóri okkar | á Bifreiðaverkstæði og Bílaleigu ALP. Við höfðum þekkt hann, bæði sem starfsfélaga og vin, sumir okkar mörg ár, aðrir skemur. Andrúmsloft- ið á vinnustað okkar var óvenju gott, og þar átti ívar stóran þátt. Sem yfirmaður var hann sanngjarn, kröfuharður um að skilað væri góðri vinnu, en kröfuharðastur var hann við sjálfan sig. Eins og gengur í starfstétt okkar var oft langur vinnudagur, og ekki ávallt spurt um kvöld og rúmhelga daga og venju- lega var vinnudagur ívars lengstur. fc- Ekki voru alltaf allir sammála frem- ur en getur orðið á stómm vinnu- stað, en misklíðarefni vom ávallt jöfnuð samdægurs, enda tók ívar vel ábendingum samstarfsmanna sinna. Þegar við hugsum til baka koma okkur í hug orð Lao Tse: „Þótt hann beri af öðmm, lætur hann menn ekki fínna til þess og þeim svíður ekki, þótt hann sé fremri.“ (Þýð. H.K.Laxn.) ívar var ákaflega opinn og skemmtilegur persónuleiki. Hann var mikill húmoristi og létti oft lund okkar með tilsvörum sínum. Mikill vinur vina sinna, stóð vel með sínu fólki og ávallt boðinn og búinn að veita aðstoð bæði vinum og kunn- ingjum. Fjölskylda Ivars er mjög samhent og náin tengsl og mikil, sérstaklega voru þeir nánir ívar og tvíburabróðir hans, Páli. Sem dæmi um samhenta fjölskyldu má geta þess, að við undirritaðir erum eina starfsfólk fyrirtækisins af mörgum sem ekki erum tengdir henni. Ivar var mikill félagsmálamaður. Hann starfaði í Sjálfstæðisflokki Kópavogs, svo og í JC í Kópavogi. Hann var virkur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og stóð vel að öllum málefnum. Við starfsfélagar ívars Arnórs- sonar söknum vinar í stað. En hugur okkar hlýtur þó fyrst og fremst að vera hjá fjölskyldu hans, eiginkonu og börnum, foreldrum og systkinum og nánum ættingjum. Þeim getum við aðeins bent á orð Kahil Gibran ái Spámanninum: Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Þýð. G.Dal.) ívar Arnórsson skilur eftir sig mikið og vandfyllt skarð. Við vitum ekki ennþá hvað framtíðin ber í skauti sér. En eitt vitum við fyrir víst. Við eigum einungis góðar og "^dýrmætar endurminningar um hann. Við sendum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Borgþór, Jóhann, Ásgeir, Grétar og Bjarni. Hluti af okkur sjálfum eru sam- ferðamenn okkar. Einhver sem lýsir upp fyrir okkur tilveruna þegar hún verður full hversdagsleg. Sumir þeirra eru jafnvel þannig, að okkur nægir aðeins lítil stund með þeim, og okkur líður miklu betur eftir á. Einn þeirra var svo sannarlega ívar Árnórsson. Þessi lífsglaði drengur skildi alltaf við mig betri mann. Það var honum eðlislægt að gleyma sjálf- um sér í þvi að gleðja aðra eða hjálpa öðrum. Það er táknrænt fyrir hann, að á sinni síðustu stundu var hann upptekinn við að hjálpa erlendum ferðaiangi sem hafði orðið viðskila v við hóp sinn. ívar bauð honum að- stoð sína við að ná hópnum, en tíminn var naumur. Sá tímaskortur kostaði báða lífið. Öll hjálpsemi er göfug. Að láta líf sitt við að hjálpa öðrum tryggir ívari háan sess þar sem hann nú er. Mikil umræða hefur skapast í kjölfar þessa hörmulega slyss. Hefur sú umræða gjaman snúist um neikvæða hluti samfara vélsleða- notkun, s.s. drykkju. Því skal það af gefnu tilefni taka fram að vín var ekki með í þessari örlagaríku ferð er ívar fór ásamt Páli bróður sínum og tveimur vin- um. Að aka vélsleða er út af fyrir sig ekki hættulegt, heldur geta aðstæður verið varasamar. Á þeim slóðum er þetta slys verður er mikið af gjótum. Hafa margar þeirra verið merktar, en ekki allar, og ekki sú er þetta slys verður í. Ókkar kynni bytja einmitt í Kópa- vogi er fjölskylda mín flyst 1970 að Digranesvegi 38. Þar bjuggu í sama húsi foreldrar ívars, þau Arnór Lár- us Pálsson og Betsy ívarsdóttir ásamt þeim bömum er þau áttu þá, tvíburunum ívari og Páli, sem tóku strax vel á móti okkur systkinunum. Seinna kom Ágúst í heiminn og síð- ar Elísabet. í þessu húsi bjuggum við í tíu ár, og þá tókst með okkur vinskapur er hefur varað æ síðan. Eins og fjöl- skyldan öll, þá vora Ívar og Páll alltaf mjög nánir, enda hefur maður ávallt hugsað til þeirra beggja sem eins. Eins og oft er um tvíbura, þá vora þeir mjög líkir, og áttu margir mjög erfitt með að þekkja þá í sund- ur. Eru til margar skondnar sögur af því er annar var tekinn fyrir hinn, og jafnvel skammaður fyrir eitthvað sem hann ekki gerði. Hugur ívars stóð ekki til verald- legra gæða. Hann var þeim mun ríkari af andlegum gæðum. Sá sem lærir að njóta þeirra, þarf ekki ann- að. Alltaf var hann boðinn og búinn að hjálpa hvernig sem á stóð. ívar lærði bifreiðasmíði og starfaði við hana, fyrst hjá Brimborg, en svo hjá fyrirtæki fjölskyldu sinnar, ALP- bílaleigunni, þar sem hann starfaði til dauðadags, og gilti þá einu hvað gera þurfti, að öllu gekk ívar og. leysti af alúð. Sagt er: „Þú ert það sem þú gef- ur.“ Þess vegna lifir ívar áfram í verkum sínum og hjálpsemi. Hann sem alltaf sá bjartar hliðar á öllum hlutum. Hann hafði einstakt lag á að umgangast fólk, enda varð hann mjög vinmargur. Tveimur dögum fyrir lát sitt heimsótti ívar mig. Eins og alltaf kom hann mér til að hlæja með góðum frásögnum af atburðum og mönnum, enda var frásagnargáfa hans mikil. Það er mikill missir að ívari. Tilvera dagsins mátti sannar- lega ekki við missi jafn göfuglynds manns. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minnar votta Jóhönnu og börnum ívars, Arnóri, Betsy og systkinum ásamt öðram aðstandendum og vin- um ívars mína dýpstu samúð. Megi guð gefa ykkur styrk í ykkar stóra sorg. Eyþór Eðvarðsson. Hví var þessi beður búinn, bamið kæra, þér svo skjótt. Svar af himni heyrir trúin hljóma gepum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Bj. Hallldórsson) Það er vor árið 1978. Á Ligniano á Ítalíu er sumarið komið, og þang- að leita íbúar norðursins sumars og sólar. Það var þar sem við kynnt- umst ívari fyrst, en þangað var hann kominn ásamt foreldram sínum, Palla tvíburabróður og yngri bróð- urnum Gústa. Það vildi svo skemmtilega til að í þessum hóp voru nokkrar fjölskyld- ur með börn sín á svipuðum aldri. Börnin kynntust fljótt og síðan tengdust foreldrarnir þessum kynn- um. Það var oft mikið fjör við sund- laugina, þar sem tvíburamir gegndu ákveðnu forastuhlut- verki, enda kraftmiklir, heilsteyptir strákar. En þarna myndaðist kunningsskapur nokk- urra fjölskyldna sem síðan hefur þróast í sanna vináttu. Við fór- um reglulega í útilegu einu sinni á sumri með börnin okkar, og höld- um enn okkar þorrablót og skötuveislu. Við höf- um fylgst að og orðið þátttakendur í uppvexti barnanna, og sorg og gleði hvert annars. Það hvarflaði aldrei að okkur, að ívar yrði sá fyrsti í hópnum til að ganga þann veg sem okkur öllum er ætlaður. Hann, þessi kraftmikli drengur, sem alltaf var svo glaðlegur og hlýr. Hann bar með sér ferskleika og atorku hvar sem hann fór. Þeir vora ekki gamlir ívar og Palli, þegar þeir fóra að vinna fyrir sér. Við fylgdumst með dugnaði þeirra þegar þeir kornungir fóra að aðstoða foreldra sína við bílaleiguna, og ef stund kom, tóku þeir að sér að bóna bíla fyrir aðra í bílskúrnum á Digranesveginum. ívar fór í iðnnám og nam bifreiða- smíði hjá Brimborg hf. Síðar starf- aði hann við fjölskyldufyrirtækið, ALP-bílaleiguna, þangað til að hann stofnaði, nú í vetur, eigið verkstæði í samstarfi við bílaleiguna. Hann vann af dugnaði og myndarskap að þessu nýja fyrirtæki sínu, enda bar það merki vöndunar og snyrti- mennsku. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til eiginkonu og dætra Ivars, því þeirra er missirinn mestur. Elsku Betsy og Amór, hug- ur okkar er hjá ykkur og fjölskyld- unni, með ósk um að Guð gefi ykk- ur styrk og trú til að sefa sorgina, en glæða með ykkur fallegar minn- ingar um góðan son. Ferðahópurinn frá 1978. Hvert er ferðinni heitið? Hver er tilgangurinn með þessu ferðalagi um tilveruna? Hver skilur þau rök? Slíkar og margar fleiri spurningar leita fast á huga manns og krefjast svara, þó engin fínnist, því okkur mönnum er það ekki ætlað. Því verð- um við svo ráðþrota og örvilnuð þegar stóru höggin dynja yfir, við biðjum guð að styrkja okkur og styðja og standa við hlið okkar og vísa þann eina veg, sem okkur er fær; það er að standa saman í bæn og trú á tilgang, þó við þekkjum hann ekki, en í einlægri trú slá öll hjörtu eins og eru samhljóma, þá er guð okkur næstur. Nú, þegar okkar einlægi og kæri vinur, sem alltaf var reiðubúinn að rétta hjálparhönd, hveijum sem ein- hvers þurfti, og létta mönnum byrð- arnar svo sem best varð á kosið hveiju sinni, langar okkur að láta í ljós okkar innilegasta þakklæti fyrir það lán að hafa fengið að kynnast og þekkja hann og hans indælu fjöl- skyldu, um leið og við vottum þeim öllum og aðstandendum okkar dýpstu samúð og hluttekningu og óskum þeim guðs blessunar um alla ævi. Ó, hvað það væri indælt ef við værum þess umkomin að geta veitt þeim einhvern styrk, þá værum við þess alvís að guð væri með okkur, við trúum því og treystum að við séum aldrei ein þegar á móti blæs. Ó, elsku Jóhanna mín, ég veit að ykkur styður æðri hönd, hún yfirgef- ur ykkur aldrei og eins verður hún með litlu telpunum ykkar og svo öllum þeim, sem ykkur elska. Við vitum það öll að á vegum ljóss- ins er náðin dýrðar og eilífs friðar. Þar, sem guðsríki er nálægt, þar verður alltaf friður og þar bregður aldrei skugga á, þar dvelur nú okkar ástkæri vinur og lítur til okkar með sömu hlýjunni og hann bjó yfir í svo miklum mæli og miðlaði svo óspart öðrum sem hann umgekkst. Hann er ennþá með okkur og víkur aldrei frá okkur, sálin er eilíf. Söngur lífs- hörpunnar hljóðnar aldrei, strengir hreinleikans titra i eilífum samhljómi og seytla um hjörtu hvers lífs, sem lífsanda dregur og hefjast á hæsta stig heilagrar trúarvissu. Hún verður aldrei frá okkur tekin. Fjóla og Jón. Það var seinnihluta laugardagsins 30. apríl að síminn hringdi og Palli tvíburabróðir ívars segir við mig: „Ingunn, ég hef hræðilegar fréttir að færa þér, ívar bróðir lést í morg- un af slysförum." Þessu gat ég ekki trúað, ekki ívar, ekki maður í blóma lífsins, en það var víst satt og mikil tómleikatilfinning greip mig. Eftir smá tíma fór ég að hugsa að ég ætti aldrei eftir að sjá hann aftur eða heyra í honum. ívar var með þeim fyrstu sem ég kynntist þegar ég fluttist í Kópavog- inn og bjó hann þá á Digranesvegin- um. Strax í gagnfræðaskóla mynd- aðist góður vinahópur ásamt þeim bræðrum ívari og Palla og vora þeir ávallt hrókar alls fagnaðar. Var margt skemmtilegt brallað á þessum unglingsárum. Þegar ívar fór að nema bifreiðasmíði við Iðnskóla Reykjavíkur kynntist hann eigin- konu sinni, Jóhönnu. Á þessu stutta lífshlaupi man ég hann ekki öðravísi en hressan og kátan, reytandi af sér hvern brand- arann á fætur öðram og lifa lífinu ánægður og hamingjusamur. Stund- um komu þau tímabil að við hitt- umst sjaldnar en ég vissi alltaf að þarna átti ég vin og mun hans verða sárt saknað. Elsku Jóhanna, Silja, Katrín, Eva Karen, Betsy, Arnór, Palli, Agúst og Elísabet. Megi Guð styrkja ykkur á þessari sorgarstundu. Ingunn Mjöll. Hvers vegna? Hvers vegna hann, svona ungur? Hvers vegna hann, sem hefur rétt aðeins séð fram úr morgni lífsins? Hvers vegna hann, sem átti svo margt ógert í lífinu? Hvers vegna hann, sem átti og þurfti að vernda og varðveita fjórar dýr- mætar perlur sem hann unni svo mjög? Hvers vegna að kalla svo vænan vinnumann heim af velli svo árla dags? Já, hvers vegna? Þær eru svo óskaplega margar spurningarn- ar sem leita á hugann, óhjákvæmi- lega, þegar önnur eins ósköp dynja yfir og fráfall ívars. Við spyijum, hátt og í hljóði, en við heyram ekki svörin en þrátt fyr- ir það hljótum við að álykta. Og þegar spurningarnar era eins áleitn- ar og nú, vegna þessa hörmulega atburðar, þá eru til, í hugskoti okk- ar, svör. Við beram fram spurning- arnar okkar í fullri auðmýkt og lotn- ingu fyrir höfundi allrar tilveru, höf- undi þeirrar tilvera sem allt byggist á. Okkur brestur skilning en í vitund okkar er vissa fyrir því að með öllu þessu er tilgangur, tilgangur sem við skiljum ekki og því eru viðbrögð okkar gjarnan í samræmi við þekk- ingarleysi okkar. Við trúum því að þegar kallið kemur svo árla dags þá liggi mikið við, þá þurfi væna menn til starfa á nýjum vettvangi, á nýju tilverustigi, tilverustigi, sem er langt ofar skilningi okkar aumra manna. ívar Arnórsson var kallaður burt í blóma lífsins og við trúum því að honum sé mikið ætlað annars staðar. Við höfum ekki í hyggju að skrifa um lífshlaup hans, okkur langar ein- ungis til að bera fram þakkir, þakk- ir fyrir að hafa fengið að kynnast góðum dreng, dreng sem var svo heill og sannur sem hann var. Jóhanna okkar elskuleg og stúlk- urnar litlu þijár og þið öll, sem haf- ið misst svo mikið, megi Guð almátt- ugur veita ykkur stuðning og styrk í sorg ykkar. Við biðjum Hinn hæsta höfuðsmið himins og jarðar að leiða ívar Arn- órsson eftir þeim brautum, sem hon- um nú er ætlað að feta. Far vel, ljúfi vinur, og hafðu þökk fyrir allt sem þú gafst okkur. Jóhanna og Arnþór. Það er erfitt að lýsa þeim tilfínn- ingum sem hellast yfir fólk þegar það fær fréttir um að góður vinur hafi látist. Við vorum ný sest við sjónvarpið til að horfa á Eurovision, þegar síminn hringdi og flutti okkur þá sorgarfregn að ívar Arnórsson hefði látist af völdum vélsleðaslyss þá um daginn. Við sátum hnípin og hrygg með tár á hvörmum og minn- ingarnar streymdu fram í hugann, Eurovision fór lönd og leið. Við kynntumst ívari þegar Gulla og Steinn, tengdaforeldrar hans, fluttu í Melbæinn við hliðina á okkur og eins og oft gerist með góða granna, vinskapur hófst og sam- gangur milli húsa líka. Jóhanna og Ivar, sem þá voru byijuð að búa, komu oft í Melbæinn og alltaf þegar þau komu þá heyrðust hlátrasköllin frá húsinu því hvar sem ívar kom var glatt á hjalla, brandararnir bók- staflega reyttust af honum. Eitt vorið giftu þau sig og sjaldan hafa sést fallegri brúðhjón. Svo fæddust stelpurnar, fyrst Katrín og síðan Eva Karen. Stóra systir þeirra hún Silja var oftast me_ð í för þegar þau komu í heimsókn. Á hveiju gamlárskvöldi kemur öll fjölskyldan saman í Melbæ 38 og skemmtir sér saman fram eftir nýársnóttu og þar sem fólk fer yfirleitt ekki langt frá ungum börn- um þá nótt, var fjölskyldunni við hliðina boðið að vera með og varð þetta fastur liður um hver áramót. Fyrir þrem áram fluttum við í Breiðhoitið og það var ekki laust við að við værum svolítið í lausu lofti næstu áramótin á eftir, það vantaði eitthvað stórt. Svo við létum okkur ekki vanta næst og þó við fydnum vel hjá Gullu og Steini hversu vel- komin við vorum þá var það ívar sem fagnaði okkur sem týndum sauðum. Ein nýársnóttin verður allt- af minnisstæðust, þá hafði Palli tví- burabróðir Ivars verið lengi í Dan- mörku og vora þeir að hittast eftir langan aðskilnað. Við sátum í stof- unni og engdumst af hlátri því þeg- ar þeir bræður komu saman þá var húmorinn á fullu og espuðu þeir hvor annan þar til kjálkarnir voru orðnir aumir og maginn með harð- sperrar af hláturskviðum. Svona þekktum við ívar, alltaf hlátur í kringum hann og alltaf til- búinn að hjálpa þar sem hjálpar var þörf. Ef eitthvað var að í sambandi við bílana á heimilinu var hringt í hann og leitað ráða hjá honum. Ótal fleiri minningar eigum við um Ivar, minningar sem við munum geyma sem dýrmætar perlur í hug- um okkar og þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þeirri perlu sem hann sjálfur var. Elsku Jóhanna, Silja, Katrín, Eva Karen, vinir í Melbænum, foreldrar og systkini: Við tökum þátt í sorg ykkar og biðjum algóðan Guð að gefa ykkur styrk til að horfa fram á veginn. Katrín og Markús. Margur einn í aldurs blóma undi sæll við glaðan hag, brátt þá fregnin heyrðist hljóma: Heill í gær, en nár í dag. - 0, hve getur undraskjótt yfir skyggt hin dimma nótt! Fyrir dyrum dauðans voða daglega þér ber að skoða. (B. Halld.) Mig langar að minnast vinar míns Ivars, er lést í svo hörmulegu slysi. Við Ivar kynntumst í Iðnskólanum þar sem hann lagði stund á bifreiða- réttingar en ég á bifvélavirkjun. Eftir námið hófum við störf saman hjá Daihatsu og hófst þá vinskapur- inn fyrir alvöru. Þá voru þau Jó- hanna þegar byijuð saman og varð hún undir eins mikill vinur minn líka. Gott dæmi um það er að þau skutu skjólhýsi yfir mig í heila þijá mán- uð) - þá nýgift. ívar var alltaf léttur og kátur og hafði einstaka hæfileika til að bijóta ísinn. Hann var alltaf reiðubúinn til að hlusta og hjálpa, byggja mann upp og hughreysta. Sannur vinur vina sinna. Maður skilur ekki af hveiju hann er tekinn frá okkur svo fljótt. Það hlýtur að vera einhver tilgangur. Þetta.er eitt af fáu sem er ekki á okkar valdi, en við verðum að sætta okkur við. Ég trúi því að hann sé í góðum höndum, vaki yfir okkur og i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.