Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ1994 23 lagsvist eða söngstund, svo stiklað sé á stóru. Fólk velur sér nám- skeið og greiðir 300 krónur á mánuði fyrir, en finnur sér síðan eitthvað annað að sýsla að þeim tíma liðnum. „Við erum stöðugt að leita eftir ábendingum til að auka fjölbreytni og hvetjum fólkið til að miðla okk- ur þekkingu sinni, lífreynslu og hugmyndum til að bæta starfið. Við viljum t.d. fá hingað tungu- málakennara, leikara með upp- lestra, smiði sem kenna útskurð o.s.frv., þannig að ýmislegt er í bígerð. Það er raun leitt að starf- semin hér sé kölluð félags- og þjón- ustmiðstöð aldraðra, því sannleik- urinn er sá að við bjóðum alla elli- lífeyrisþega velkomna. Fyrrnefnd eyrnamerking virkar illa á marga. Ég held að betra væri að kalla þetta eingöngu félags- og þjón- ustumiðstöð heldri borgara eða sleppa því alveg að tiltaka að starf- ið sé ætlað öldruðum,“ segir Edda. „Hérna við hliðina á okkur eru skemmtistaðir sem valda íbúum miklum óþægindum. Krakkarnir koma hingað um helgar og leggja ýmis verðmæti í rúst, bijóta rúður o.fl. og þá höfum við haft öryggis- verðina til taks og þeir síðan kallað til lögreglu. Þessi góða gæsla eyk- ur öryggi íbúanna til muna,“ segir Edda. Brunabjöllur og handboðar eru á öllum göngum og reykskynj- ari í hverri íbúð. Neyðarkallkerfi, þrír bjölluhnappar, er í hverri ein- ustu íbúð. Vitatorg er hvítmálað að innan en flest húsgögn í bláum og fjólubláum litum í anda Faxa- flóa og íjallahringsins sem við íbú- um blasir. Engir óyfirstígan- legir vankantar Hvarvetna getur að líta íbúa og gesti við leiki og störf; kona situr undir hárþurrku á hárgreiðslustof- unni og blaðar í tímariti, stallsyst- ir hennar er langt komin með 5.000 bita raðgátu, tvær vinkonur sitja og reykja við glugga sem veit að hafinu og inni í matsal sitja nokkr- ir karlar og spila einbeittir. „íbúar og gestir eru afskaplega stoltir af aðstæðum héma og finnst synd að fjölmiðlar hafí ekki sinnt þess- um vel heppnuðu húsakynnum og starfseminni betur en raun ber vitni,“ segir Edda og kveðst sam- mála íbúum um að vel hafi tekist til. „Húsið fellur vel að þörfum íbúanna og starfseminnar hér. Ennþá hef ég ekki fundið neina óyfirstíganlega vankanta á því og held raunar að hugsað hafi verið fyrir öllu. Yfir því hvílir þokki án þess að nokkurs staðar sé um bruðl að ræða.“ öllu. Við erum að reyna að koma af stað uppákomum og fleiru, þó að hérna sé nóg að gera og rúm- lega það, mér býðst að taka þátt í svo mörgu að það jaðrar við að vera ofgnótt. Ég er afar mikill dansmaður og þykir gaman að snúa fólki í dansi og á því sviði ' er nóg að gera. Ég segi fyrir sjálfan mig, sem er orðinn ekkjumaður, að maður endurnærist á því að vera kringum fólk, dansa við það, spila við það eða syngja saman.“ Oryggið mikilvægt Kristinn segir að þjónustan í húsinu sé mjög nauðsynleg og öryggið mikilvægt. „Við erum allt- af undir vernd og vitum af því. Ef að maður fer í lengri ferðalög er æskilegra að tilkynna öryggis- vörðunum það, því að þeir geta orðið áhyggjufullir ef við hverfum af vettvangi um lengri tíma. Starfsfólkið er iíka einstaklega elskulegt, boðið og búið til að leysa úr öllum vanda, hlýtt og brosandi. Manni líður eins og að vera á þriggja stjörnu hóteli, stutt að fara í bæinn og útsýnið fallegt hvert sem litið er,“segir Kristinn. Evrópuborgir gegn eiturlyfjum RÁÐSTEFNAN „Evrópuborgir gegn eiturlyfjum" var hald- in í Stokkhólmi 28. apríl sl. Tilgangur ráð- stefnunnar var að skiptast á upplýsing- um um eiturlyfjavand- ann og að mótmæla öllum hugmyndum um lögleiðingu fíkniefna. Ráðstefnuna sóttu borgarstjórar, eða fulltrúar þeirra, frá tuttugu og fjórum borgum í Evrópu. Af hálfu borgarstjórnar Reykjavíkur sat greinarhöfundur fundinn ásamt Snjólaugu Stefánsdóttur, yfír- manni unglingadeildar Félags- málastofnunar. I lok ráðstefnunnar var undirrituð yfirlýsing, þar sem vísað er á bug öllum hugmyndum um lögleiðingu fíkniefna, og lögð áhersla á að leita annarra leiða til að draga úr þeim miklu vandamál- um, sem tengjast misnotkun fíkni- efna. Á undanförnum árum hefur ver- ið aukinn áróður víða um heim fyrir lögleiðingu eiturlyfja, eða a.m.k. hinna svokölluðu veikari tegunda þeirra svo sem hassi og marihuana. Árið 1990 sameinuð- ust fjórar borgir í Evrópu um svo- kallaða „Frankfurt yfirlýsingu". Þessar borgir eru auk Frankfurt, Zúrich, Amsterdam og Hamborg. í Frankfurt-yfirlýsingunni er þess krafist að neysla og sala á hassi og kannabis verði gerð lögleg og auk þess að notkun annarra eitur- lyfja verði ekki refsi- verð. Nú hafa fjórtán borgir í Evrópu skrifað undir þessa yfirlýs- ingu. Ymis rök eru færð fyrir þessari stefnu, svo sem að með lögleiðingu megi hafa betri stjórn á og betra eftirlit með notk- un og dreifingu efn- anna. Margir líta þó svo á að með lögleiðingu sé verið að gefast upp fyrir þessum vanda. Til þess að beijast gegn þessari uppgjaf- arstefnu hefur borgarstjórn Stokk- hólms haft frumkvæði að því að aðrar Evrópuborgir sameinist um yfírlýsinguna „Evrópuborgir gegn eiturlyfjum". Það er óhætt að segja að undirtektir hafi verið mjög góð- ar. Eins og áður sagði sendu tutt- ugu og fjórar borgir fulltrúa á ráð- stefnuna, Meðal þeirra voru allar höfuðborgir Norðurlandanna að Kaupmannahöfn undanskilinni, London, París, Berlín, Moskva, St. —.—,---------_____—.— Piwm CaacL-l flisar íimÍH 1? il! ’á Stórhöfða 17, við GuUinbrö, sími 67 48 44 Guðrún Zoega Atvinnurekendur og skólastjórar ath. Fataskápamir, töskuskáparnir og nemenda- skáparnir fást hjá okkur. íslenskt handverk - einstök gæði m Fa^me-nnsía Í60 ár HF.OFNASMIBJAIU Háteigsvegi 7 sími 21220. EQ EQ EQ 0] EQ Eö EQ EQ K! EQ EQ EG EQ 0] EQ ryksugur B3 EQ íEQ EQ H Efl EC Efl Efl Efl Efl Efl Hljóðlát hörkutól Heimasiftiðjan híisasmiðjan EQffl „'Evrópuborgir gegn eit- urlyff um“ er samheiti baráttu gegn uppgjafar- stefnu, segir Guðrún Zoega, það er gegn lög- leiðingu „veikari teg- unda“ eiturlyfja. Pétursborg, Varsjá, Prag, Madrid, Dublin og Búdapest. Allmargar borgir sendu kveðju óg lýstu áhuga á að taka þátt í þessu samstarfi, en fyrirhugað er að halda því áfram og miðla reynslu og skiptast á Upplýsingum um þessi mál. Þeirri hreyfíngu sem berst fýrir lögleiðingu hefur orðið nokkuð ágengt á undanförnum árum og sér þess víða merki, m.a. í Amst- erdam og í Kristjaníu í Kaup- mannahöfn, þar sem verslun með fíkniefni er látin óátalin. í Stokk- hólmi voru hins vegar samankomn- ir fulltrúar „hins þögla meiri- hluta“, þeirra sem vilja byrgja brunninn áður en bamið dettur ofan í hann. Hér á landi eru margir sem vinna mikið og merkilegt starf bæði til þess að koma í veg fyrir innflutning og notkun eiturlyfja, svo og til að endurhæfa þá sem ánetjast hafa þessum vágesti. Yfir- lýsingin „Evrópuborgir gegn eitur- lyflum" verður vonandi til að styrkja þá í sínum daglegu störf- um. Höfundur er borgarfulltrúi og formuður Félagsmálaráðs Reykjavíkur. PageMaker námskeíð og verkfræðiþjónustan i/uskóli Halldórs Kristjánssonar 94042 Tölvu-' Töívuskóli Halldórs Kristjá Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 Ráðstefna á vegum Stjórnunarfélags íslands og Nýherja Samkeppnisstaða og hópvinnuverkef Á ráöstefnunni munu innlendir og erlendir sérfræö- ingar fjalla um nýjar hugmyndir í stefnumótun og endurskipulagningu fyrirtækja og notkun upplýs- ingatækninnar í formi hópvinnuverkefna til aö ná settum markmiöum á þessu sviði. Þetta eru mál sem stjórnend- ur þurfa aö gefa verulegan gaum á þess-um tímum vaxandi samkeppni og alþjóðaviðskipta. Dagskrá 09.00 Setning 09.10 Hópvinnukerfi, (Groupware) hugmyndafr. og notkun Stefán Hrafnkelsson, Eimskip 09.35 Breyta eöa endurskipuleggja? Changing versus Rearranglng) Henrik Andersen, Price Waterhouse/IKO 10.20 Kaffihlé 10.40 Hversvegna hópvinnuverkefni? Stephanie Eriksson, Lotus Development 11.15 Reynsla af hópvinnuverkefni hjá Eimskip Georg Birgisson, Eimskip 11.40 „ViöskiptamannaTengiir Verkefnahópur TVÍ 12.15 Hádegisveröur í Ársal 13.15 Hópvinnuverkefni hjá Price Waterhouse Henrik Andersen, Price/Waterhouse 13.45 Hópvinnuverkefni hjá Marel Frosti Sigurjónsson, Marel 14.05 Hópvinnuverkefni hjá Pósti og síma Magnús Hauksson, Pósti og síma 14.30 Kaffihié 15.00 Framtíö hópvinnukerfa Stephanie Eriksson, Lotus Development Ráöstefnan veröur haldin á Hótel Sögu, Þingsal A, föstudaginn 20. maí 1994 kl. 9.00-16.00. Aö ráöstefnunni lokinni og í tilefni hennar veröur sýning á hópvinnuverkefnum í Þingsal B, þar sem léttar veitingar veröa einnig á boöstólum. Þátttaka tilkynnist Stjórnunarfélagi íslands í síma 621066 eöa Nviieria í síma 697700 í síöasta lagi 16. maí. Stjórnundrfélag íslands NÝHERJI - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.