Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ » 6 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 BORGARSTJÓRNARKOSNINGARNAR i Borgarstjóri bankar upp á ÁRNI Sigfússon borgarstjóri hefur undanfarna daga heimsótt vinnustaði, stofnanir og heimili í hverfum Reykjavíkur, til dæmis í vesturbæ, Grafarvogi og Breið- holti. Aðrir frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins eru einnig á ferð- inni um borgarhverfin og heim- sækja heimili, vinnustaði og stofnanir. Árni borgarstjóri hef- ur sett sér að fara í öll hverfi borgarinnar og hitta sem flesta að máli. Svo virðist einnig sem borgarbúar vilji tala við borgar- stjórann og hefur þurft að fjölga viðtalstímum hans í Ráðhúsi Reykjavíkur vegna margra óska um viðtöl. í dag mun borgarstjór- inn ætla að fara í verslanir og hús í nýja miðbænum. í gær var Árni Sigfússon í Árbæjarhverfi og kom þar bæði á vinnustaði í iðnaðarhverfinu, í verslanir og bankaði upp á í nokkrum heimilum. Fæstir þeirra, sem Árni heimsótti, höfðu áður rætt við borgar- stjóra Reykjavíkur í eigin per- sónu. Fólki kom þessi heimsókn þægilega á óvart og var ekki annað að sjá og heyra en að þetta framtak mæltist vel fyrir, eða eins og ein frúin sagði: „Það var virkilega sætt af honum að líta við!“ Blaðamaður og yós- myndari fylgdust með þegar borgarsljóri vísiteraði nokkur heimili í Álakvísl á sjöunda tím- anum í gær. Það var ekki laust við að fólk yrði undrandi þegar það lauk upp dyrum og sá hver var kom- inn í heimsókn. Til dyra komu mæður með börn á handleggn- um, unglingar, eldri og yngra kjósendur og margir sem enn hafa ekki náð þeim eftirsótta aldri. Árni kynnti sig og sagðist vera kominn í þeim tilgangi að minna á sig fyrir komandi kosn- ingar. Hann afhendi lítinn pésa um málefni hverfisins og barm- merki. Þar sem enginn var heima skildi hann eftir bréf. Sumir notuðu tækifærið og ræddu borgarmálefni við Árna. Hjá íbúum í Álakvísl voru ofar- lega á baugi skólamál hverfis- ins, einsetning skóla og ýmis aðstaða fyrir íbúana, til dæmis bætt íþróttaaðstaða í Ártúns- holtinu. Alakvísl 62 Helga Sigurðardóttir, húsmóðir í Álaþvísl 62, kom til dyra ásamt fjórum dætrum sínum. Hafdís Gunnarsdóttir heldur á Sædísi Evu Oðinsdóttur og fynr aftan er Hildur Gunnarsdóttir með Lindu Hrönn Óðinsdóttur. Það fór vel á með þeim Helga og Árna, þau ræddu um börnin og skólann í hverfinu. „Mér fannst gott að fá Árna hingað í gættina. Þetta er mjög persónuleg kynning og gaman að sjá borgarstjórann," sagði Helga. Morgunblaðið/Kristinn Alakvísl. 34 „Mér finnst hann nú vera búinn að koma í heimsókn, eftir að hafa séð hann í sjónvarpinu," sagði Bjarn- ey Guðmundsdóttir í Álakvísl 34. „Ég vona að hann sé bara venjulegur maður, eins og mér virðist hann vera. Ég.vildi koma því á framfæri að við fengjum körfuboltavöll hér í Ártúnsholt- ið, svo strákarnir þurfi ekki að fara alla leið upp í Árbæ.“ i í i I I I I i I Alakvísl 52 í Álakvísl 52 komu til dyra, þau Guðný Nanna Þórsdóttir og Helgi Stefán Ingibjörnsson. „Ég varð svo- lítið hissa, maður er ekki vanur að sjá borgarstjórann í dyrun- um,“ sagði Helgi Stefán. Guðný Nanna er ekki búin að fá kosn- ingarétt en Helgi Stefán kýs í fyrsta sinn í vor. Hann sagðist hafa velt kosningunum talsvert fyrir sér og vera búinn að gera upp hug sinn. Atvinnumál sett á oddinn í stefnuskrá R-listans ásamt skólamálum og ábyrgð borgarstjóra Afl borgarinnar nýtt til að skapa ný störf og eigi þau að tengjast lang- tímastefnumörk- un í atvinnumál- um. Þá stefnir R-listinn að því að útvega rúm- lega helmingi þeirra skóla- nema sem koma út á vinnumark- aðinn í sumar störf, eða um 5-6.000 nem- um. í stefnu- skránni er gert ráð fyrir því að stofnaður verði atvinnuþróunar- sjóður til að skapa framtíðar- störf og að sett verði á laggirnar „útungunarstöð" Morgunblaðið/Sverrir INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir og R-listinn selja atvinnumálin á oddinn í stefnuskrá listans í borgarsijórnarkosningunum. R-listinn hyggst setja reglur um fram- kvæmdir á veg- um borgarinnar þar sem skýrt verði kveðið á um það hvernig staðið skuli að - frumathugun, áætlanagerð, verklegum fram- kvæmdum og mati á þeim framkvæmdum. Þá verði settar ákveðnar reglur um útboð og inn- kaup á vegum stofnana og fyrirtækja borg- arinnar, fjármál borgarsjóðs end- urskoðuð og í framhaldi af því INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni R-listans, kynnti stefnuskrá listans fyrir borgar- stjórnarkosningarnar á fundi með blaðamönnum í gær. R-listinn setur atvinnumálin á oddinn og ætlar að knýja fram umskipti í þeim með því að nýta afl borgar- innar til þess að skapa störf. Önnur meginmál eru og skólamál og ábyrgð borgarstjómar. Stefnuskráin er afrakstur funda- raðar og málefnahópavinnu sem staðið hefur í nokkrar vikur og fjöl- margir hafa komið að, að því er fram kom á fundinum í gær. Stefnuskráin fjallar um atvinnu- mál, félagslega þjónustu, skóla- og dagvistarmál, stjórnkerfi og lýð- ræði, um fjármál borgarinnar, menningarmál, umhverfis- skipu- lags og umferðarmál, og æskulýðs- og íþróttamál og er það plagg sem R-lstinn mun vinna eftir á komandi kjörtímabili, að sögn Ingibjargar. 6-700 störf í sumar Ingibjörg segir að atvinnumálin hljóti að vera sett á oddinn, þó ekki sé vegna annars en þeirrar staðreyndar að nú séu 3.400 manns atvinnulaus í Reykjavík. R-listinn ætlar strax í sumar að vera með sérstök átaksverkefni og skapa 6-700 störf fyrir þá sem lengst hafa verið atvinnulausir. Verkefnin muni hafa innihald, ekki verði um neina atvinnubótavinnu að ræða, fyrir ný smáfyrirtæki. Þá verði húsnæði, ráðgjöf og aðstaða látin í té frumkvöðlum sem vilji spreyta sig við atvinnusköpun. Þá verði viðhaldsverkefni á vegum borgar- innar aukin og jafnvel stofnaður viðhaldssjóður fyrir borgarbúa sem þeir geta sótt um lán fil. fjárhagsáætlun borgarinnar einmg. Markmið R-listans í dagvistar- málum miðast að því að taka á þeim vanda sem við blasir í dag- vistarmálum en nú eru um 2.300 { börn á biðlistum, að sögn Ingi- bjargar. R-listinn vill byija á því . að gera heildarúttekt á dagvistar- þörfínni vegna þess hve erfitt sé að átta sig á henni eins og ástand- ið er í dag. Grunnskólar einsetnir Biðlistum þessum hyggst R-list- inn eyða í þremur áföngum: Öll börn þriggja ára og eldri fái þá I dagvistun sem foreldrar óáka fyrir haustið 1995, öll börn tveggja ára fyrir haustið 1996 og að fyrir lok | kjörtímabilsins fái börn eldri en eins árs þá dagvistun sem foreldrar óska. Grunnskólar borgarinnar verði einsetnir á 4-6 árum og í því skyni verði á hveiju ári teknar í notkun 25-30 kennslustofur. Félagsmálastofnun Ingibjörg nefndi einnig málefni I Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar, endurskoða þyrfti skipulag j hennar og starfshætti. „Ekki síst ' vegna þess að biðlistar eru þar langir eftir fyrsta viðtali. Við vitum að sporin eru oft mjög þung hjá fólki sem leitar á náðir Félagsmála- stofnunar og það gerir það ekki fyrr en í algert óefni er komið. Að þurfa síðan að bíða í þijár vikur , til viðbótar eftir fyrsta viðtali við I félagsráðgjafa er algjörlega ófull- ' nægjandi og það verður algjört forgangsverkefni að afnema þenn- I an biðlista,“ sagði Ingibjörg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.