Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 39

Morgunblaðið - 11.05.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 39 ___________________MIMMINGAR VALGEIR ÁGÚST EINARSSON + Valgeir Ágúst Einarsson fæddist í Reykja- vík 21. ágúst 1913. Hann lést í Reykja- vík 5. maí 1994. Foreldrar hans voru Jóhanna Magnúsdóttir frá Eyrarbakka, d. 1925, og Einar G. Einarsson frá Urr- iðafossi, d. 1940. Einar átti fjögur systkini: Katrínu, Magneu Guðrúnu, Andrés og Magneu Guð- mundu. Hann kvæntist 1943 Guðríði Tómasdóttur húsmóð- ur, f. 1916, d. 1987. Börn þeirra eru Jóhanna, f. 1945, gift Benedikt Axelssyni, og Guðrún Jóna, f. 1953, gift Hirti Guðnasyni. Barnabörnin eru sex. Valgeir Ágúst vann í rúm fjörutíu ár hjá Tollsljór- anum í Reykjavík og í Austur- bæjarbíói í rúmlega tuttugu ár. Jarðarförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag. MINN elskulegi afi er dáinn. Það er erfitt að sætta sig við það en samt er gott að vita að hann er kominn til ömmu sem dó fyrir tæglega sjö árum. Ég hef alltaf verið mikil ömmu- og afa- stelpa og hefur það verið mjög erfitt að missa þau. Eitt það skemmtilegasta sem ég gerði er ég var lítil var að lúlla hjá ömmu og afa um helgar. Það var alltaf eitthvað gott á boðstólum og svo gat afi auðvitað sagt endalausar sögur af Labbakút, og aldrei þá sömu. Þau áttu plötu með Vilhjálmi Vilhjálmssyni sem ég hlustaði mik- ið á, en þau hugguðu mig alltaf eftir þá hlustun, mér fannst platan svo óskaplega sorgleg. Ég er mjög myrkfælin, og er amma og afi komu í heimsókn sátu þau alltaf hjá mér, héldu í höndina á mér og sögðu mér sögu eða sungu fyrir mig þar til ég sofnaði. Þolinmæði þeirra virtist ótakmörkuð. Þær stundir sem ég sakna einna mest eru jólin með þeim. Við fórum allt- af öll til þeirra á aðfangadags- kvöld og var það alltaf jafn gaman og sérstakt. Elsku amma og afi. Þó ég sakni ykkar mikið er gott að vita að þið eruð saman núna. Ástarþakkir fyr- ir allt. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. Horfið er nú sumarið og sólin í sálu minni hefur gríma völd. í æsku léttu ís og myrkur jólin nú einmana ég sit um vetrarkvöld. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Harpa Guðríður Hjartardóttir. PÁLL SIG URÐSSON + Páll Sigurðsson, fyrrver- andi tollvörður, fæddist í Vík í Mýrdal 11. janúar 1918. Hann lést í Borgarspítalanum hinn 3. maí 1994, 76 ára að aldri. Útför hans fór fram frá Bústaðakirkju í gær. Á ÁRUM áður hefði það talist nokkuð hár aldur að verða 76 ára gamall, en okkur, sem vorum hon- um nákomin, Páli tengdaföður mínum, finnst hann hafa farið fyrir aldur fram. Þetta er ekki síst svo í ljósi þess að það eru aðeins tveir mánuðir síðan vart varð við þá meinsemd sem dró hann til dauða. Fram að þeim tíma hafði hann verið líkamlega mjög vel á sig kominn, stundaði sund og göngu á hvetjum degi. Það er okkur þó ákveðin huggun að hann var við nægilega góða heilsu að- eins rúmum tveimur vikum fyrir dauða sinn til þess að komast í fermingarveislu yngri dóttursonar síns og nafna. Páll var yngstur þriggja barna Sigurðar söðlasmiðs Einarssonar og Valgerðar Pálsdóttur sem bjuggu mestöll fullorðinsár sín í Vík í Mýrdal. Þar var Páll fæddur og uppalinn ásamt Ingibjörgu systur sinni en Þuríður, elsta barn þeirra Sigurðar og Valgerðar, dó rúmlega ársgömul. Sigurður Einarsson var hálf- bróðir Siguijóns bónda og smiðs í Hvammi undir Eyjafjöllum, Magnússonar. Þeir bræður voru listasmiðir og hagleiksmenn frá náttúrunnar hendi og þessi eigin- leiki hefur að einhveiju leyti geng- ið í erfðir því að Páll Sigurðsson var smiður góður og á yngri árum stundaði hann ljósmyndun og teikningu í frístundum. Ingibjörg systir hans hefur heldur ekki farið varhluta af þessum hæfileikum því að hún hefur á síðari árum tekið til hendinni við vantslitun og náð frábærum árangri. Árið 1947 kvæntist Páll eftirlif- andi konu sinni, Ragnhildi Geirs- dóttur frá Vilmundarstöðum í Reykholtsdal. Mestallt hjónaband þeirra vann hún úti sem ekki var ýkja algengt meðal giftra kvenna á 5. og 6. áratugnum. Ragnhildur er sannkölluð kjarnorkukona og vinnur enn úti þótt komin sé fyrir nokkrum árum á hefðbundinn eft- irlaunaaldur. Hún ber harm sinn vel. Þeirra dóttir er Ástríður sam- eindaerfðafræðingur sem er gift Páli Hersteinssyni og eiga þau tvo syni, Herstein og Pál Ragnar. Páll Sigurðsson var í eðli sínu mikill ræktunarmaður og undan- farin 14 ár varði hann miklum tíma í tijárækt við sumarbústað þeirra hjóna í landi Vilmundar- staða. Þar átti hann án efa marg- ar bestu stundir sínar hin síðari ár við gróðursetningu og viðhald bústaðarins, að ekki séu nefnd kyrrlát sumarkvöld þegar ættingj- ar og vinir voru saman komnir þar sem Eiríksjökull rís fyrir enda dalsins, ijóður í kvöldsólinni. Með- al síðustu orða hans við mig voru á þá leið hve feginn hann væri að við Ásta hefðum nú fengið sama áhuga og hann á tijáræktinni og tækjum við þar sem hann hyrfi frá. Ég kveð Pál Sigurðsson með söknuði en í þeirri vissu að hann nýtur þeirrar hvíldar nú sem hann fékk ekki síðustu vikurnar sem hann lifði. Eiginkonu hans, dóttur og systur votta ég innilegustu samúð. Páll Hersteinsson. HALLGRÍMUR OSKAR L UÐ VIKSSON + Hallgrímur Óskar Lúð- víksson var fæddur í Kefla- vík 17. febrúar 1962 og lést í Kaupmannahöfn 30. apríl 1994. Útför hans fór fram frá Keflavíkurkirkju 7. maí. SÚ harmafregn barst þann 1. maí að Halli, þessi elskulegi maður, hefði látist í Kaupmannahöfn, þar sem hann ætlaði aðeins að dvelja eina til tvær nætur á leiðinni til vinar síns sem hann ætlaði að búa hjá í tvær vikur í Helsingör. Það hafði ekki hvarflað að nein- um að eitthvað meira væri að en þær þjáningar sem á hann höfðu verið lagðar vegna slyss sem hann lenti í við vinnu hjá Sól hf. Það kom í ljós eftir andlátið að um alvarlegan hjartagalla hafði verið að ræða sem ekki hafði uppgötv- ast. Það hefur verið þannig í okkar ijölskyldum, sem tengjast Litla- bænum í Keflavík, að farsæld og lán hefur verið okkur nærri og sjaldan hefur sorgin hvatt dyra. Við áttum okkur ef til vill ekki á því hvað við höfum sneitt fram hjá þessum óijúfanlega þætti til- verunnar og að það er ekkert líf án dauða og enginn dauði án lífs. Ekki alls fyrir löngu var hann Gummi í Litlabæ að gera ráð- stafanir sem við vitum öll um í fjölskyldunni; hann var svo viss um að ferð væri fyrir höndum sem væri honum ætluð, en það kom í ljós að svo var ekki. Þess er getið hér að þau hjónin bera sáran harm í brjósti við fráfall kærs barna- barns sem hafði til að bera ljúf- mennsku, kurteisi og hlýju í þeirra garð, það viðmót, sem hvað best má prýða hvern mann. Það er svo ótrúlegt að rifja það upp að samvera okkar hjóna er nú jafnlöng og hin skamma við- vera Halla í okkar mannlega heimi. Við ásamt öllum í fjölskyld- unni á okkar aldri munum þann tíma allt frá bernsku til fullorðins- ára er Halli varð fullvaxinn stór og glæsilegur ungur maður. Okkur er fullvel ljóst að Halli hafði hugs- að sér að gera marga hluti þegar hann yfii-ynni afleiðingar slyssins sem fyrr er um getið, við vitum að hvar sem hann vann og hveija sem hann umgekkst eignaðist hann vini og gaf af sér. Það er ekki unnt að skilja til- gang skaparans og oft örðugt að sætta sig við það sem maður skil- ur ekki. En um leið og við vottum ykkur kæru vinir Baddý, Lúlla, Sigga, Hanna, Hafdís og Bryndís okkar dýpstu samúð þá viljum við trúa því að Halli hafí fengið nýtt hlutverk hjá almættinu og hann muni líta til okkar og fylgjast með því sem við í mannheimum erum að gera. Þessi minningargrein er rituð eftir þá fögru stund sem útförin var frá Keflavíkurkirkju. Fyrir þann tíma var eins og það væri ekki unnt að rita orð á blað, og ekki væri unnt að segja það sem ber. Útförin, söngur og tón- list ásamt sérlega vei framsettu prestverki og útfararstjórn mun lifa í minningu allra þeirra sem í kirkjunni voru. Samverustundin að Háteigi 3 mun lifa og þeirri útgeislun sem gefin var þar er ekki unnt að lýsa. Kæra ijölskylda. Treystum bet- ur þau bönd sem tengja okkur, við þekkjum ekki okkar vitjunar- tíma. Fyrir hönd allra í stórfjölskyldu Litlabæjar í Keflavík. Gísli og Edda Akranesi. + Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, RAGNAR HJÁLMAR RAGNARSSON, Hjallabraut 6, Hafnarfirði, andaðist 8. maí. Birkir Freyr Ragnarsson, Sindri Rafn Ragnarsson, Ása Hjálmarsdóttir, Ragnar Konráðsson og systkini. Móðir okkar, KRISTÍN SALVÖR INGÓLFSDÓTTIR, Silfurtúni 18b, Garði, sem lést 6. maí, verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 13. maí kl. 14.00. Börn hinnar látnu. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKTINGVARSSON, Álmholti 9, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Lágafellskirkju. Hjördís Þorkelsdóttir, Hólmfríður Erla Benediktsdóttir, Ingvar Björnsson, Ingvar Benediktsson, Anna Bjarney Eyjólfsdóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir, Ágúst Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR frá Lómatjörn, Grenimel 14, Reykjavik, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. maí kl. 15.00. Ingunn Jensdóttir, Friðjón Guðröðarson, Guðrún Helga Svansdóttir, Ingileif Hrönn Friðjónsdóttir, Jens Þór Svansson, Hanna Þorgerður Vilhjálmsdóttir, Auður Perla Svansdóttir, Kjartan Ásmundsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mfns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS RÖGNVALDSSONAR bifreiðastjóra, Hverfisgötu 6, Siglufirði. Guð blessi ykkur öll. Erna Rósmundsdóttir, Rósmarý Vilhjálmsdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Þorsteinn Jóhannsson, Skúli Jóhannsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Örn Jóhannsson, Þór Jóhannsson, Aðalheiður Jóhannsdóttir, Óðinn Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þórir Sveinbjörnsson, Bjarni Árnason, I. Jósefína Benediktsdóttir, Sigriður Jóhannesdóttir, Hjörtur Snorrason, Guðný Hauksdóttir, G. Ævar Guðmundsson, Erla Baldursdóttir, + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR frá Eyri i'Vestmannaeyjum, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Sigmundur Bjarnason, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.