Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ1994 29 JltofgiiiiÞlirittfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SlMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasöiu 125 kr. eintakið. MORGUNBLAÐIÐ OG STJÓRNMÁLABARÁTTAN IVIÐTALI við dagblaðið Tímann í gær, segir Sigrún Magnúsdótt- ir, borgarfulltrúi, sem skipar efsta sæti R-listans í komandi borg- arstjórnarkosningum: „Nú um helgina kastaði Morgunblaðið, „blað allra landsmanna", grímunni, svo ekki verður um villst, þar sem blaðið lýsir yfir ótvíræðum stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn." í forystugrein Tímans sama dag segir m.a.: „Morgunblaðið hefur löngum notað það slagorð, að það sé blað allra landsmanna og það hefur náð þeim árangri, að þegar er verið að tala um flokksblöðin á Islandi er það ekki talið með. Nú um helgina gefur Morgunblaðið yfirlýsingu um „eindreginn stuðning" við D-listann í Reykjavík í Reykjavíkurbréfi. Þar með er staðfest, að Morgunblaðið er ávallt flokksblað, þegar mikið liggur við fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sú stað- reynd er auðvitað mörgum kunn, en það er eigi að síður gott að fá þessa afstöðu á hreint. Hins vegar mega fjölmiðlamenn ekki gleyma henni næst, þegar umræða hefst um pólitíska pressu á Islandi." Sá tími er löngu liðinn, að hægt sé að líta svo á, að ritstjórnar- greinar Morgunblaðsins lýsi stefnu Sjálfstæðisflokksins utan eða innan ríkisstjórnar. Þótt Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn að- hyllist sömu grundvallarhugsjónir í þjóðmálum hefur það komið hvað eftir annað í ljós á undanförnum árum, að Morgunblaðið tekur aðra afstöðu til þeirra mála, sem efst eru á baugi hverju sinni, en forystu- menn Sjálfstæðisflokksins gera. Morgunblaðið hefur sýnt í verki, að blaðið er blað allra lands- manna. Landsmenn, hvar í flokki sem þeir standa, eiga greiðan aðgang að síðum Morgunblaðsins til þess að koma skoðunum sínum á framfæri, þ. á m. Sigrún Magnúsdóttir. Morgunblaðið hefur sýnt í verki, að blaðið flytur traustar og rétt- ar fréttir algerlega óháð, því, hvort þær fréttir koma sér vel eða illa t.d. fyrir Sjálfstæðisflokkinn eða forystumenn hans eða ein- hveija þá hagsmuni, sem Sjálfstæðisflokkurinn kann að veija hverju sinni. Þeir einu, sem síðustu ár hafa haldið því fram eða gefið í skyn, að fréttaflutningur Morgunblaðsins sé litaður af skoðunum blaðsins, eru einstaka talsmenn útgerðarmanna, sem þola illa stefnu blaðsins í fiskveiðistjórnunarmálum og jafnvel einstaka talsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem hafa með óbeinum hætti haldið hinu sama fram. Blað, sem er opinn vettvangur fyrir skoðanaskipti manna, hvar í flokki sem þeir standa, er ekki flokksblað. Blað, sem hefur sýnt og sannað að það er traust og áreiðanlegt fréttablað, sem tekur ekkert tillit til stjórnmálaskoðana í meðferð á fréttum, er ekki flokksblað. En það er fáránlegt að halda því fram, að dagblað megi ekki hafa skoðun og að fari skoðun blaðs saman við skoðun stjórnmála- flokks sé blaðið þar með orðið að flokksblaði. Á öllum Vesturlöndum tíðkast það, að dagblöð taka afstöðu í kosningum og lýsa fylgi við stjórnmálaflokka eða einstaka stjórnmálamenn. Engum dettur í hug að halda því fram, áð dagblöð á borð við Times í London, eða Daily Telegraph, svo að dæmi séu nefnd, séu flokksblöð, þótt þau hafi hvað eftir annað lýst stuðningi við brezka íhaldsflokkinn í kosning- um en haldi upp harðri gagnrýni á flokkinn og forystumenn hans, ef þeim sýnist svo. Hið sama á við um Morgunblaðið. Því hefur aldr- ei verið lýst yfir, að Morgunblaðið mundi verða hlutlaus áhorfandi í stjórnmálaátökum líðandi stundar. Þeir, sem halda því fram, að Morgunblaðið sé flokksblað Sjálfstæð- isflokksins vegna þess, að blaðið hefur lýst stuðningi við Sjálfstæðis- flokkinn í borgarstjórnarkosningum, ættu að velta því fyrir sér, hvort stefna blaðsins í fiskveiðistjórnunarmálum sé þóknanleg for- ystusveit Sjálfstæðisflokksins. Þeir, sem halda því fram, að Morgun- blaðið sé flokksblað Sjálfstæðisflokksins, ættu að spyrja, hvort and- staða Morgunblaðsins og gagnrýni á kjarasamninga, sem gerðir voru fyrirtæpu ári, hafi verið þóknanleg forystumönnum Sjálfstæðis- flokksins, svo að tvö mikilvæg dæmi séu nefnd um ágreiningsmál Morgunblaðsins og forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Forráðamenn Morgunblaðsins hafa metnað og vilja til að byggja markvisst upp dagblað á íslandi, sem stendur undir nafni. Dagblað, sem er í senn vettvangur almennra skoðanaskipta landsmanna, dag- blað, sem er traustur og áreiðanlegur fréttamiðill, sem lætur enga hagsmuni, hvorki pólitíska, viðskiptalega né aðra hagsmuni ráða fréttaflutningi sínum og umfjöllun um málefni lands og þjóðar en jafnframt dagblað, sem þorir að hafa skoðun, þótt þær skoðanir kalli yfir blaðið harkalega gagnrýni úr einni átt í dag og annarri á morgun. Rökin fyrir því, að Morgunblaðið hefur lýst eindregnum stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum, eru augljós. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur staðið sig vel á vettvangi borgarmála nú sem fyrr. Hinn sameinaði framboðslisti vinstri manna í Reykjavík hefur hvorki lagt fram ferskar hugmyndir um málefni, sem listinn ætlar að beita sér fyrir, né sýnt fram á nokkur meiri háttar mistök í stjórn Sjálfstæðisflokksins á Reykjavíkurborg. R-listinn minnir þvert á móti á samstarf vinstri flokkanna eftir kosningaósigur Sjálfstæðis- flokksins 1978 og sá sem man eftir þeim glundroða tekur ekki nýja áhættu af slíku samstarfi. Vegna verka sinna hafa sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur unnið til trausts borgarbúa. SKOÐANAKAIMNANIR Samanburður á niðurstöðum skoðanakannanna og niðurstöðum alþingiskosninga 1991 o ^ ^ ^ ^ o oj o CD => oT cd* ocT 30 •»- t- p—| t- V V V V* o>- £>• 4?- «0- £ s? iý A # $ c? # íS 85 «o co Co íS # S 3 OJ o O) O co co —mn Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Alþýðubandalag Kvennalisti Greining á niðurstöðum kannanna fyrir alþingis- kosningarnar 1991 Frávik 5 stærstu flokkanna Stærsta einstaka frávik Skáís, 5.-9. apríl 12,6% DV, 16.-17. april 11,5% Gallup, 17.-19. apríl Félagsv.stofn., 13.-15. apríl _______ 8,7% 3,4% HVAÐ ER MÆLT? Skoðanakannanir eru orðnar ríkur þáttur í daglegu lífi landsmanna. Þó þær geti gefíð sterkar vísbending- ar eru þær ýmsum takmörkunum háðar sem nauðsynlegt er að hafa í huga eins og Hjálmar Jónsson kemst að raun um. Niðurstaðan er að skoðanakannanir um fylgi í kosningum séu þeim mun áreiðanlegri sem þær eru framkvæmdar nær kjördegi. AF c INNLENDUM VETTVANGI Það er að mörgu að hyggja þegar framkvæma á skoð- anakönnun enda eru kann- anir af þessum toga og aðferðafræðin í kringum þær sér- grein innan þjóðfélagsvísinda. Þó svo að menn vandi öll vinnubrögð og hafi gætt hinna formlegu skilyrða með fullnægjandi hætti geta niður- stöðumar orðið talsvert mismunandi. Gott dæmi um það eru nýjustu skoð- anakannanir Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið og ÍM Gallup fyrir Ríkisútvarpið á fylgi flokkanna á landsvísu. Kannanirnar mæla nokkuð svipað fylgi Sjálfstæðis- flokks, Alþýðubandalags og Kvenna- lista, en niðurstöður vegna Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks eru æði misvísandi og munar 4,4-5,5 pró- sentustigum á flokkunum hvað Al- þýðuflokkur fær meira og Framsókn- arflokkur minna í könnun ÍM-Gallups en í könnun Félagsvísindastofnunar. Úrtak í skoðanakönnun þarf að gefa rétt mynd af þeim hópi sem ætlunin er að skoða viðhorfin hjá og því þarf við val úrtaks að taka mið af aldurs- og kynjasam- ___________ setningu, auk annarra at- riða sem máli skipta. Kannanir hér á landi eru oftast slembiúrtök úr þjóð- skrá og þess er gætt að þau endurspegli þjóðina rétt hvað aldur, kyn og búsetu varðar. Úrtak Félagsvísindastofnunar er 1.500 manns yfirleitt en 1.200 hjá ÍM-Gall- up. Skáís hefur hins vegar aðeins annan hátt á. Úrtakið er slembiúrtak úr símanúmeraskrá Landsímans og tekur til 800 til 1.200 manns eftir því hvað mikið er undir að sögn Braga Jósepssonar hjá Skáís. Ef könnunin tekur til landsins alls er hópnum þrískipt á milli Reykjavíkur, Reykjanesskjördæmis og lands- byggðarinnar. Reynt er allt að þrisv- ar við hvert símanúmer og leiðrétt er vegna kyns, þar sem konur eru yfírleitt fleiri svarendur, og aldurs en hópnum er skipt í þijá aldurs- hópa. Úrtak í skoðanakönnunum DV Samanburður á niðurstöðum skoðanakannanna Gallup jan. til maí 1994 og skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar í maí 1994 o> SR oo J F M A M M Alþýðuflokkur J F M A M M Framsóknarflokkur J F M A M M Sjálfstæðisflokkur J F M A M M Alþýðubandalag F M A M M Kvennalisti Slembiúrtak almennt talið traustast er af enn einni tegundinni eða svo- nefnt kvótaúrtak. Úrtakið er oftast 600 manns og valið úr símaskrá. Ef eitt númer svarar ekki er hringt í annað þar til 600 svarenda kvóta náð. Jafnt er skipt milli kynja en án tillits til aldursdreifingar. Slembiúrtak úr þjóðskrá er al- mennt talið traustast og minnst hætta á einhverri úrtaksskekkju. Það er á nafn en ekki símanúmer og -------- byggist því á að ná í við- komandi einstakling en ekki nóg að ná í einhvern fullorðinn í viðkomandi símanúmeri. Hin úrtökin eru einfaldari í sniðum. Svörum skiptir líka mjög miklu máli og hversu hátt hlutfall aðspurðra er óákveðið. Algengt er að nettósvörun sé á bilinu 70-80% en mjög er mis- munandi hversu hátt hlutfall að- spurðra er óákveðið. Reynt er að minnka það ems og kostur er. Til dæmis spyr Félagsvísindastofnun og einnig ÍM-Gallup þá óákveðnu áfram til að reyna að fækka þeim óráðnu. Stefán Ólafsson, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar segir að könnun á fylgi flokka segi fyrir um þann hljómgrunn sem viðkomandi flokkur eigi ájieim tíma sem könnun- in sé gerð. A miðju kjörtímabili sé það að vísu meiri breytingum undir- orpið heldur en reyndin sé þegar nær dragi kosningum. Að öðru jöfnu megi því búast við meiri sveiflum á fylgi flokka á milli kannana á miðju kjörtímabili en annars, jafnvel frá einni viku til annarar. I aðdraganda kosninga sé fylgið yfirleitt komið í miklu fastari skorður og gjarnan sé komin stefna í fylgisþróunina frá einni viku til annarrar. Þetta sýni til dæmis kannanir Félagsvísindastofn- unar í aðdraganda kosninganna 1987 varðandi flesta flokkana, þó undan- tekningar séu þar á. Dæmi _________ um hið gagnstæða sé út- koma Alþýðubandalagsins í kosningunum 1991, en hún hafí komið mjög á óvart. Flokkurinn hafi í Fylgið breytist f ram á síðasta dag öllum könnunum verið með í kringum 10% fylgi en í síðustu könnun Félags- vísindastofnunar viku fyrir kosning- arnar hafi flokkurinn fengið um 15% fylgi. Það hafi reynst vera mjög nærri lagi að loknum kosningunum, þó þeir hjá Félagsvísindastofnun hafi varla getað trúað því að niður- staðan væri rétt og hafi helst haldið á þeim tíma að um einhverja skekkju í könnuninni hlyti að vera að ræða. Stefán ' sagði að vegna þessa kepptust menn við að gera kannanir eins nálægt kosningum og mögulegt væri, því það væri margt sem gerð- ist í aðdraganda kosninga. Hann sagði að fylgið væri að breytast fram á síðasta dag og kosningabaráttan skipti verulegu máli í því sambandL % „Enda höfum við séð það á þessum kosningakönnunum sem við höfum gert eftir kosningar þegar fólk hefur verið spurt að því hvenær það ákveði sig endanlega, að það er umtalsverð- ur hópur sem gerir það ekki fyrr en síðustu dagana, jafnvel á kjördag,“ sagði Stefán. „Þegar landslagið er einfaldlega þannig að fylgið er að breytast fram á síðustu stundu er alls ekki hægt að reikna með því að nein ein könnun gefi ná- kvæmlega kosningaúrslit- in fyrirfram en þær geta farið skikkanlega nálægt því og það er ekki hægt að gera kröfu um meira. Menn verða að taka niðurstöðu skoð- anakannana með hóflegum fyrirvör- um,“ sagði hann ennfremur. Annað dæmi um miklar breytingar á fylgi flokka á skömmum tíma er frá kosningunum 1979. Þá stóðu all- ar kannanir sem gerðar voru á þeim tíma til þess að Sjálfstæðisflokkurinn ynni stórsigur. í könnun tæpum tveimur mánuðum fyrir kosningar fékk flokkurinn meira en 55% fylgi, en í könnunum sem gerðar voru eft- ir það minnkaði fylgið jafnt og þétt og í könnun sem gerð var viku fyrir kosningarnar fékk flokkurinn tæp 42%. Niðurstaða kosninganna varð síðan sú að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 35,4% atkvæða. Hinni löngu göngu Nelsons Mandela lauk í gær er hann sór embættiseið forseta hinnar nýju Suður-Afríku Þáttaskil NELSON Mandela (t.v.) stendur við hlið F. W. de Klerk eftir að sá síðarnefndi hafði afsalað sér völdum í Suður-Afríku. Ur fangelsi í forsetastól Þroski, agi og yfirvegun forsetans nýja hefur vakið athygli heimsbyggðarinnar og vonir hafa vaknað um að umskiptin reynist friðsamleg. egar Nelson Mandela, leið- togi Afríska þjóðarráðsins (ANC), stóð á fætur undir hrifningarópum og fagnaðarlátum þingmanna sem hinn réttkjörni forseti hinnar nýju Suður- Afríku lauk áratuga langri baráttu hans í nafni frelsisins. Nú þegar húmar að kveldi í réttindabaráttu blökkumanna í Suður-Afríku eru gríðarlegar vonir bundnar við þenn- an roskna forseta þjóðarinnar sem loks eygir morgunskímu lýðræðis og jafnréttis kynþátta. Mandela eyddi 27 árum, um þriðjungi ævi sinnar, innan fangelsismúra, og engu er lík- ara en hann hafí þar búið sig undir það sögulega hlutverk sem hann hefur nú tekið að sér. Nú mun reyna á þá yfirvegun og þann þroska sem einkennt hefur alla framgöngu Mandela frá því F. W. de Klerk, sem sór í gær embættiseið varaforseta, veitti honum frelsi fyrir ijórum árum. Nelson Rolihlala Mandela var á þriðjudag kjörinn forseti Suður-Afr- íku er völdin voru formlega fengin blökkumönnum í hendur í Höfðaborg þar sem kynþáttaaðskilnaðarstefnan átti upptök sín og þar sem hún var borin til grafar. Er Mandela ávarp- aði tugþúsundir stuðningsmanna horfði hann í átt til Table-flóa en þar er Robben-eyja, fyrrum saka- mannanýlenda hvíta minnihlutans, þar sem Mandela eyddi 18 árum ævi sinnar. Siðfræði hins þjáða Þótt Mandela hafi verið líkt við þjóðhetjur á borð við Martin Luther King og Mahatma Gandhi undrast þeir sem við hann ræða jafnan hversu öldungis laus hann er við biturleika í garð þeirra sem sviptu hann frelsinu. Boðskapur hans um „þjóðarsátt“ allra þeirra kynþátta sem Suður-Afríku byggja hefur vak- ið vonir um að þessi gríðarlegu umskipti í sögu landsins geti farið fram með friðsamlegum hætti. Sú siðfræðilega afstaða hans að óvinur- inn hafi fyrst sigrað þegar hann hefur náð að sá fræjum haturs í hjarta fórnarlamba sinna hefur vak- ið athygli allrar heimsbyggðarinnar. Mandela fæddist 18. júlí 1918 og leiðtogahlutverkið var honum í blóð borið enda var faðir hans foringi Thembu-ættbálksins í Transkei. Mandela kaus hins vegar að gerast leiðtogi frelsisbaráttu blökkumanna og tók ungur að tjá sig um mis- mununina sem einkenndi þjóðlífið og lyktaði með því að stjórn hvíta minnihlutans tók upp kynþáttastefn- una illræmdu. Mandela var rekinn úr háskóla árið 1940 eftir að hafa tekið þátt í stúdentamótmælum. Fjórum árum síðar tók hann þátt í stofnun ungliðahreyfingar Afríska þjóðarráðsins. Hann var í fyrsta skipti handtekinn árið 1952 en árið 1963 reið áfallið mikla yfir. í ill- ræmdum réttarhöldum sem jafnan eru kennd við Rivonia var hann fund- inn sekur um að vera hryðjuverka- maður og kommúnisti og dæmdur til lífstíðar fangelsisvistar. í frægri yfirlýsingu sem Mandela birti þá og átti eftir að reynast hugmyndafræði- legur kjarni þeirrar baráttu sem hann hefur nú leitt til lykta sagði m.a: „Ég hef helgað líf mitt frelsis- baráttu Afríkubúa. Ég hefi barist gegn yfirráðum hvítra og ég hef barist gegn yfírráðum svartra. Ég hefi haft að leiðarljósi þá hugsjón að upp megi rísa lýðræðislegt og frjálst samfélag þar sem menn lifa saman í sátt og samlyndi og allir hafa sömu tækifæri. Ég vona að þessi framtíðarsýn mín verði að veruleika og ég vona að ég lifi þann dag. En ef þörf krefur er ég tilbúinn til að láta lífið fyrir þessa hugsjón.“ Mandela las heimspeki og önnur mannleg fræði í fangelsinu en leið miklar þjáningar í einveru sinni. Öldruð móðir hans gaf upp öndina á meðan hann taldist til sakamanna og hið sama gerði elsti sonur hans. Honum var neitað um leyfi til að fylgja þeim til grafar. Kröftugur reglumaður Með tilvísun til þess að Nelson Mandela er 75 ára gamall maður hafa margir lýst yfir undrun sinni á þreki hans. Hann hefur ávallt lifað heilsusamlegu lífi. Á yngri árum var hann hnefaleikakappi og tók þá upp lífshætti sem hann hefur fylgt síðan. Hann rís úr rekkju á milli fjögur og fimm á morgni hveijum og stígur þrekhjól sitt. Hann vinnur oft fram yfir miðnætti. Hann neytir áfengis í hófi, snæðir heilsusamlegan mat og leggur mikla áherslu á að neyta ávaxta. Margir vina hans óttast að hann leggi of hart að sér en sjálfur sagði hann einhveiju sinni að ekkert hefði reynt á líkamann í heil 27 ár þannig að forðabúrið væri mikið. Þótt hinn nýi forseti Suður-Afríku hafi yfir sér yfirbragð nánast ofur- mannlegs þroska og glæsileika þykir sýnt að hann verði harður í horn að taka. Hann gerir sér ljóst að sýnileg breyting þarf að verða á kjörum blökkumanna hið fyrsta til að unnt reynist að tryggja friðinn. Jafnframt forðast hann að beita blekkingum sem viðurkenndar eru á vettvangi stjórnmála enda telur hann að leið- toginn sé sameiningartákn og mið- stöð ferlis sem lyktar með ákvarð- anatöku sem sátt ríkir um. Sam- starfsmenn hans kalla hann „Tata“ (pabbi) og víst má telja að full þörf verður á aga og yfirvegun þessa föður hins nýja lýðræðisríkis á suð- urodda Afríku. Helgi Hálfdanarson Lag og ljóð FYRIR skömmu fann ég að því í Morgunblaðinu, að Ríkisútvarpið væri aftur og aftur að rifja upp kvæði Steins Steinars um Jón heit- inn Pálsson frá Hlíð; en til þess væri notað lag eftir Jórunni Viðar, sem samið væri og sungið sérstak- lega við þetta ljóð. Ástæða kvört- unar minnar var sú, að mér blöskr- ar, að klifað sé á þessum kveð- skap, sem ég hef kallað napurt háðkvæði um látinn t öðlingsmann og hörmuleg örlög hans. Nú er ekki eins og ég sé þar einn á ferð, og satt að segja hef ég haldið, að nöturlegur hálfkær- ingurinn í ljóði þessu væri svo aug- ljós, að þar þyrfti enginn að velkj- ast í vafa. Þó hef ég þurft að færa að því rök, sem ég kann ekki við að endurtaka hér, en vitna til greina minna 19. og 27. f.m. Einn af fremstu listamönnum þjóðarinnar, Þuríður Pálsdóttir, skrifar í Morgunblaðið 6. þ.m. góða grein af þessu tilefni. Því miður gætir þar nokkurs misskilnings. Grein hennar fjallar að verulegu leyti um ótvlræða tónlistarhæfi- leika Jórunnar Viðar; og hún kallar svo, að fyrri grein mín hafi verið „köld kveðja“ til hennar sem tón- skálds, og þar hafí ég lítilsvirt gullfallegt sönglag hennar. Þetta er makalaus misskilning- ur. í grein minni kallaði ég Jór- unni Viðar „prýðilegan listamann“, og mætti vel hugsa sér kaldari kveðju en það. Á þetta lag hennar lagði ég alls ekkert mat, hvað þá að ég segði um það eitt einasta orð til lítilsvirðingar. Hins vegar harmaði ég og harma enn, að svo ágætt tónskáld skyldi ekki í það sinn velja sér annað viðfangsefni en þetta kvæði, sem í mínum aug- um er hneykslanlegt. Ég hélt að engum gæti dulizt, að það sem ég var að amast við var flutningur á kvæðinu en ekki tónsmíðar Jórunn- ar Viðar -nema hvað flutningur þessa lags hlaut að vera um leið flutningur á kvæði Steins. í greinarlok spyr Þuríður Páls- dóttir hvers vegna ég sé „núna fyrst að geðvonskast yfir ljóði sem Steinn Steinarr orti fyrir meira en hálfri öld“. Þó má þetta ljóst vera af fyrri greinum mínum. Bæði vegna skáldsins sjálfs og vegna þess góða drengs, sem um var ort, hefði ég kosið, að á þetta kvæði yrði sem sjaldnast minnzt. En Jór- unn Viðar og þeir ágætu söngvar- ar, sem flutt hafa lag hennar, hafa valdið því, að mjög hefur verið stagazt á þessum kveðskap í út- varpi. Enda segir Þuríður Pálsdótt- ir, að söngvarar sækist eftir að syngja þetta. Og þar kom, að ég gat ekki lengur orða bundizt, og skoraði á Ríkisútvarpið að hætta þessari ósvinnu en velja heldur til flutnings eitthvað af þeim ljóðperl- um, sem Steinn Steinarr orti þegar hann var í sínum bezta ham. Þar er af nógu að taka, sem sjaldan eða aldrei er flutt. Þuríði Pálsdóttur þykir ástæða til að geta þess sérstaklega, að Jórunn Viðar hafi ekki notað titil kvæðisins, „Til minningar um mis- heppnaðan tónsnilling“. Og þá er mér spurn: Hvers vegna ekki? Var það ef til vill vegna þess, að sá titill þætti styðja of hressilega þann skilning sem ég legg í kvæðið og, að ég hygg, flestir aðrir? Var þetta ljóð kannski á mörkunum að vera boðlegur söngtexti, þegar til kom, þó að svo væri látið heita? í grein minni vék ég að ljóðlín- unum: „Svo gall við hæðnishlát- ur: / Hvað hefði Friedman sagt?“ Um þær hefur Þuríður Pálsdóttir komið sér upp hugmynd, sem mér þykir nokkuð furðuleg. Hún segir: „Það er öruggt, að „hæðnishlátur- inn“ var ekki að list Jóns Pálsson- ar eins og Helgi Hálfdanarson heldur fram, heldur er miklu frem- ur átt við hæðnishlátur Jóns sjálfs að svo ójöfnum samanburði." Mig langar til að biðja Þuríði Pálsdóttur að endurmeta þessa skoðun sína. Ég er einn þeirra sem telja það deginum ljósara, sem þarna er sagt: Skáldið heyrir þenn- an hæðnishlátur úr börkum þeirra, sem á hlýða, um leið og þeim kem- ur í hug, hvað raunverulegur tón- snillingur hefði sagt um frammi- stöðu hins misheppnaða tónsnill- ings. Þessar vægðarlausu ljóðlínur kallast á við ólíkindatóninn í niður- lagi kvæðisins: Kærðu þig kollótt- an, vinskapur; þú átt áreiðanlega eftir að sigra Ignaz Friedman fyrir dómstóli eilífðarinnar, svo bráð- músíkalskur sem þú ert. Þar skipt- ir það nefnilega engu máli, að þú getur ekkert; bara að þú hafir nógu músíkalskt hjartalag! Meginefnið í grein Þuríðar Páls- dóttur er hins vegar mikið og mak- legt lof um tónskáldið Jórunni Við- ar. Vissulega fer vel á því. En engin „köld kveðja“ frá mér gat verið tilefni þess. Einhvern veginn hefur það farið fram hjá mér, að Þuríður Pálsdótt- ir er meðal þeirra söngvara, sem flutt hafa þetta lag-og-ljóð. Ef ég hefði vitað það, þá hefði ég áreið- anlega bætt því við, að ég harm- aði, að slíkt skyldi henda svo prýði- legan listamann sem Þuríði Páls- dóttur. Og ekki hefði mér þótt það svo „köld kveðja“, að Jórunn Viðar þyrfti af þeim sökum að skrifa grein um ótvíræða listamannshæfi- leika Þuríðar Pálsdóttur, og snupra mig fyrir að sýna tónlistargáfu hennar lítilsvirðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.