Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SULAN EA siglir inn Eyjafjörðinn eftir endurbætur í Færeyjum. Færeyingarnir unnu verkið fyrir mun lægra verð en bauðst á íslandi.
Endurbætt Súla
komin til heimahafnar
Einkarekinn leikskóli innsiglaður
Börnumboðin
vistun hjá bænum
FORELDRUM barna sem dvöldu á
leikskóla við Dvergagil hefur verið
boðið að vista börn sín á leikskóla
Akureyrarbæjar eftir að leikskólinn
var innsiglaður vegna vanskila.
Jón Björnsson félagsmálastjóri
Akureyrarbæjar sagði að tillaga að
lausn á bráðavanda foreldra eftir að
leikskólanum var lokað hefði verið
kynnt fulltrúum foreldra og myndi
hún verða kynnt á fundi í kvöld,
þriðjudagskvöld. Foreldrum barn-
anna verður boðið að vista börn sín
á einhveijum af leikskólum Akur-
eyrarbæjar. Jón sagði að um viðbót-
arpláss á leikskólunum yrði að ræða.
Leikskólinn var opnaður síðastliðið
haust en um er að ræða einkarekinn
leikskóla þar sem um 40 börn hafa
verið. Á fundi í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarbæjar á sunnudagskvöld var
staða mála kynnt og var á fundinum
samþykkt að skora á bæjaryfirvöld
að leysa fjármál varðandi húsnæði
leikskólans þannig að starfsemi hans
megi halda áfram.
Glanna-
akstur í
• •
Oxnadal
ÖKUMAÐUR var tekinn á 163
kílómetra hraða í Öxnadal um
helgina og var umsvifalaust
sviptur réttindum til að aka bif-
reið.
Lögreglan á Akureyri var við
hraðamælingar í Öxnadal um
helgina og tók þá allmarga öku-
menn sem fóru of geyst, en
Gunnar Randversson varðstjóri
sagði ekki óalgengt að menn
keyrðu um á þessum slóðum á
120 til 130 kílómetra hraða.
Alls voru 14 ökumenn stöðv-
aðir vegna hraðaaksturs, flestir
í Öxnadal. Þá voru þrír teknir
fyrir ölvun við akstur og tveir
sem ekki höfðu tilskilin leyfi til
aksturs.
Þrennt á
sjúkrahús
eftir veltu
ÞRENNT var flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri snemma
á sunnudagsmorgun eftir bíl-
veltu í Öxnadal. Tilkynnt var
um slysið til lögreglu á Akur-
eyri kl. 5.15 aðfaranótt sunnu-
dags, en bíll hafði oltið á móts
við bæinn Þverá í Öxnadal og
brann hann til kaldra kola þann-
ig að hann er gjörónýtur. Allir
sem í bílnum voru, tvær konur
og einn karl voru flutt á sjúkra-
hús.
Skólaslit í
Kjarnaskógi
SKÓLASLIT Tónlistarskóla
Eyjafjarðar verða á morgun,
miðvikudaginn 18. maí, kl. 20.
Að þessu sinni er brugðið út af
vananum og fara skólaslitin
fram í Kjarnaskógi við Akur-
eyri. Verður þar flutt tónlist og
efnt til grillveislu auk þess sem
einkunnaafhending fer fram.
Skólinn er nú að ljúka sínu sjötta
starfsári og eru nemendur um
160 og kennarar 11. Allir nem-
endur og velunnarar skólans eru
velkomnir.
SÚLAN EA kom til Akureyrar
fyrir helgi eftir að hafa verið í
slipp í Færeyjuih þar sem unnið
var að ýmsum viðhaldsverkefn-
um m.a. var sandblásin aftasta
lest skipsins.
Sverrir Leósson útgerðarmað-
ur Súlunnar sagði að verkið hefði
verið boðið út í sjö íslenskum
skipasmíðastöðvum og einni í
Færeyjum. Færeyska tilboðið var
langlægst og munaði að sögn
Sverris um 60% á þvi og boði
Slippstöðvarinnar-Odda á Akur-
eyri sem var í hærri kantinum.
„Það voru allir verkþættir vel
unnir, svo að sómi er að fyrir
hina færeysku stöð, ég er mjög
ánægður og alveg ljóst að hugur-
inn mun leita til Færeyja næst
þegar huga þarf að viðhaldi skips-
ins,“ sagði Sverrir.„Þeir vinna
mjög skipulega og gætum við Is-
lendingar margt af þeim Iært í
þeim efnum og þeir eru líka afar
vandvirkir og vinnusamir.“
ÚTGERÐARMAÐURINN, Sverrir Leósson, bíður á bryggjunni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
f Háskólinn á
a^kureybi Akureyri auglýsir
Nám í uppeldis- og kennslufræðum til kennslurétt-
inda fyrir starfandi leiðbeinendur hefst á hausti kom-
anda verði þátttaka næg. Um er að ræða 30 eininga
nám sem stendur í tvö ár.
Umsóknarfrestur er til 1. júní. Umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu skólans.
Nánari upplýsingar veitir fulltrúi kennaradeildar í
síma 30931 eða forstöðumaður kennaradeildar í
síma 30910.
Stjörnu-
dagurí
Síðuskóla
STJÖRNUDAGUR var haldinn í
Síðuskóla og fögnuðu nemendur,
foreldrar og kennarar 10 ára af-
mæli skólans. Dagana á undan
höfðu allir lagt hart að sér við
undirhúning hátíðarinnar. Hópur-
inn fór í skrúðgöngu um hverfið
með tilheyrandi hljóðfæraleik en
siðan var boðið upp á fjölmörg
atriði á skólalóðinni sem eflaust
verða viðstöddum minnisstæð.
Þátttaka í héraðs-
nefnd endurskoðuð
ÞÁTTTAKA Akureyrarbæjar í
héraðsnefnd Eyjafjarðar verður tekin
til endurmats fái Alþýðuflokkurinn
einhverju ráðið eftir kosningar, en
þetta er eitt af þeim stefnumálum
sem flokkurinn hyggst beita sér fyrir.
Gísli Bragi Hjartarson efsti maður
á lista flokksins fyrir bæjarstjómar-
kosningar sagði að héraðsnefndin
væri þung í vöfum, margir þyrftu að
koma að málum og gerði það af-
greiðslu þeirra seinvirkari en þyrfti að
vera. Nefndi hann sem dæmi um
þunglamaháttinn að verkefni við Verk-
menntaskólann á Akureyri hefði tafíst
um hálft ár á meðan bullandi atvinnu-
leysi var í byggingariðnaði vegna þess
hve þungt kerfið væri í vöfum.
Hreinn Pálsson sem skipar annað
sæti á lista flokksins sagði að vissu-
lega vildu menn að sem best sam-
skipti yrðu við nágrannasveitarfélög-
in. Starfsemi Héraðsnefnda hefði hins
vegar verið hugsuð sem nokkurs kon-
ar brúarbygging á samvinnu sveitar-
félga áður en til sameiningar þeirra
kæmi. Nú væri Ijóst að fólk vildi ekki
sameiningu og þá væri tímabært að
skoða hvert framtíðarhlutverk Hér-
aðsnefnda væri.