Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Tap Borgeyjar hf. af reglulegri starfsemi 114 millj. á síðasta ári Endurfjár- mögnun lokið TAP Borgeyjar hf. á Höfn í Hornafirði af reglulegri starfsemi nam alls um 114 milljónum króna á sl. ári. Söluhagnaður fastafjármuna, áhrif dótturfélags á reksturinn og niðurfærsla skulda í nauðasamningi bætti rekstrarniðurstöðu félagsins um 143 milljónir. Að teknu tilliti til þessara liða varð endanlegur hagnaður 29 milljónir. Síðasta ár ein- kenndist af mikilli óvissu um framtíð félagsins en mikil umskipti urðu á efnahag þess eftir að ráðist var í nauðasamninga og endurfjármögnun. Rekstur Borgeyjar var kominn í þrot í byrjun ársins 1993. Eigið fé var komið niður í 29 milljónir í árslok 1992 en eftir fyrstu þrjá mánuði ársins 1993 var eigið fé orðið neikvætt um 1(5 milljónir og ljóst að reksturinn gat ekki staðið undir sínum skuldbinding- um. Var ráðist í að undirbúa fjár- hagslega endurskipulagningu sem miðaði að því að afskrifa hlutafé félagsins, selja eignir, auka hlutafé og fá skuldir felldar niður að verulegu leyti. Fyrirtæk- ið var síðan í greiðslustöðvun í sex mánuði eða fram til 17. nóv- ember og mótuð áætlun um lausn á fjárhagsvandanum og endurfj- ármögnun. Var nauðasamningur samþykktur á fundi kröfuhafa 14. janúar sl. I skýrslu stjórnar og fram- kvæmdastjóra Borgeyjar hf. sem lögð var fyrir á aðalfundi fyrir- tækisins sl. laugardag kemur fram að eignir hafa nú verið seldar fyr- ir 345 milljónir, skuldir í nauða- samningi færðar niður um 130 milljónir, skuldum að upphæð 230 milljónir breytt í hlutafé og aflað bindandi hlutafjárloforða fyrir 100 milljónir. Endurfjármögnunin hef- ur því leitt til þess að efnahagur félagsins hefur verið styrktur um 805 milljónir. Þá gera áætlanir ráð fyrir að ráðist verði í sölu skipa og veiðiheimilda fyrir 100 milljón- ir til viðbótar. í ár var gert ráð fyrir að hagnaður yrði um 5 milljónir en skv. milliuppgjöri fyrir fyrstu þijá mánuði ársins varð hagnaðurinn hins vegar 90 milljónir. Missti tæplega 4 þúsund þorskígildistonn Borgey var með tvo togara og þijá báta í rekstri á fyrri hluta árs 1992 en þar af var einn í sér- stöku dótturfélagi. Báðir togar- arnir hafa nú verið seldir, útgerð eins báts, Lyngeyjar SF61, hefur verið hætt og dótturfélagið um Hrísey SF 48 varð gjaldþrota. Félagið gerir því út einn bát, Hvanney SF 51. Eftir sölu afla- heimilda og niðurskurð undanfar- inna tveggja ára hafa aflaheimild- ir minnkað um tæplega þijú þús- und þorskígildistonn auk þess sem félagið missti tök á 886 þorskígild- istonnum við gjaldþrot Hríseyjar. Leitað verður eftir samstarfi við aðrar útgerðir um hráefnisöflun auk þess sem fiskur verður keypt- ur á uppboðsmörkuðum. Eftir fjárhagslega endurskipu- lagningu fyrirtækisins og að teknu tilliti til hlutalj'árloforða eru stærstu hluthafar Borgeyjar Kaupfélag Austur-Skaftfellinga með 38,5%, Landsbanki íslands með 22,2%, Bæjarfélagið Höfn með 11,7%, Olíufélagið með 9,6%, Lífeyrissjóður Austurlands með 6,9% og VÍS með 5%. Eigið fé var í árslok 386,9 milljónir og heildar- eignir 1.063,2 milljónir. Kaupmenn athugið! Forritið Tryggur prentar út raðgreiðslusamningana frá VISA og EURO. Ef þú selur vöru eða þjónustu gegn afborgunum þá þarft þú á Trygg að halda. Menn og mýs hf., sími 91-694938. Fæst einnig hjá: EJS, sími 91 -633050, Örtölvutækni, sími 91 -687220. Greiðslumiðlun Nýfyrirtækjakort hjá Olíufélaginu OLÍUFÉLAGIÐ tekur á næstunni í gagnið nýtt viðskiptamannakort fyrir fyrirtæki þar sem greiðslu- miðlunin mun fara fram á rafræn- an hátt í stað þess að nótur séu handþrykktar. Með hinu nýja kerfi er ætlunin að auka öryggi og bæta bókhald viðskiptavina, Olíufélagsins og umboðsaðila þess. Kortið hefur fengið heitið Fyrirtækjakort og kemur í stað eldra korts, Viðskiptakortsins. Boðið er upp á fjórar tegundir korta og eru þau ýmist skráð á viðkomandi ökutæki, bílstjóra, fyrirtæki eða kennitölu. Hægt er að fá kort með leyninúmeri til úttektar í sjálfsala. Ný deild hjá Olíufélaginu, kortadeild, mun framvegis annast öll mál varðandi kortaviðskipti í samvinnu við inn- heimtudeild. Samgöngur Strætó tækni- væðist HJÁ Strætisvögnum Reykjavíkur er nú verið að kanna möguleikana á því að setja upp sérstakt upplýs- ingakerfi. Um er að ræða sjálfvirkt eftirlits- og stýrikerfi sem hefur verið þróað af Linné Trafiksystemer í Svíþjóð og byggir á notkun GSM- símakerfisins, staðsetningartölvum (GPS) og rafstýrðum upplýsinga- skiltum eða skjám á völdum stöð- um. Hugmyndin með breytingunum er að sögn Sverris Arngrímssonar, aðstoðarforstjóra SVR hf., að á til- teknum aðalskiptistöðvum, í Mjódd, Grensás, á Hlemmi og Lækjartorgi, verði settar upp móttökustöðvar fyrir upplýsingar um ferðir vagn- anna. Stöðvarnar er hægt að tengja textavarpi og einföld einmennings- tölva á staðnum sér um að upplýs- ingar séu réttar á hveijum tíma. Á skiptistöðinni má því lesa á skjá eða flettiskilti um brottfarir næstu 60-90 mínúturnar. Boð berast reglulega frá vögnunum Upplýsingakerfið felur í sér að boð berast reglulega frá vögnunum um staðsetningu og hugsanlegar tafir. Þá má einnig koma á fram- færi upplýsingum um umferðartafir og aukaferðir eða ef ferðir eru felld- ar niður af einhveijum ástæðum. Kerfið gefur einnig kost á sjálfvirk- um breytingum á leiðaskiltum vagnanna, tilkynningu til farþega um næsta viðkomustað og fleira. Stjórnstöð SVR hf. fylgist með bún- aðinum og kemur sérupplýsingum á framfæri, en að öðru leyti er hann fullkomlega sjálfvirkur. Almenningsvögnum veittur forgangur í umferðinni Hjá SVR er nú unnið að öflun upplýsinga um kostnað við upplýs- ingakerfið en hann er breytilegur eftir umfangi og ýmsum sérbúnaði. Eins er mögulegt að lækka kostnað- inn með því að koma fyrir auglýs- ingaskyggnum inn á milli upplýs- inga en stýribúnaður tölvunnar gæti séð um birtingar þeirra. Sverrir sagði að víða erlendis hefði svipaður búnaður einnig gert mögulegt að veita almenningsvögn- um forgang í umferðinni með því að senda merki til götuvita sem skiptu yfir í grænt ljós ef almenn- ingsvagn nálgast. Framleiðendur vandaðra bifreiða nota SACHS kúplingar og höggdeyfa sem upprunalega hluta í bifreiðar sínar. Það borgar sig að nota það besta! Þekking Reynsla Þjónusta® FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8-108 REYKJAVlK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKAi SACHS SACHS KUPLINGAR í EVRÓPSKA OG JAPANSKA BÍLA 'FARAR- 8RODDI jm • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • Aðalfundur ALPAIM hf. Boðað er til aðalfundar ALPAN hf. fyrir starfsár- ið 1993. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 31. maí í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka. Fundurinn hefst kl. 17.00 stundvíslega. Dagskrá fundarins er sem hér segir: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13 gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um aukningu hlutafjár. Ársreikningur félagsins ásamt tillögum frá stjórn liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrif- stofu félagsins á Búðarstíg 22, Eyrarbakka, og þangað skulu berast í síðasta lagi 24. maí nk. þær tillögur sem hluthafar kunna að vilja leggja fyrir aðalfundinn. Reykjavík, 16. maí 1994 Stjórn ALPAIM hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.