Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Skaðaðu ekkí börnin okkar Opið bréf til Guðrúnar Helgadóttur barnabókahöfundar, alþingismanns og fyrrverandi forseta sameinaðs Alþingis í UPPHAFI sumars kom alþing- ismaðurinn Guðrún Helgadóttir fram í sjónvarpsþættinum Dags- ljósi ásamt Halldóru Bjarnadóttur formanni Tóbaksvarnanefndar. Umræðuefnið var tóbaksvarnir og frumvarp til laga þar að lútandi, sem nú liggur fyrir Alþingi. í þætt- inum gerði Guðrún lítið úr skað- semi tóbaksreykinga. Líkti hún tóbaksvörnum við ofsóknir og lét hún eins og um kappræðu væri að ræða. Þannig hindraði Guðrún málefnalega umfjöliun með órök- studdum staðhæfingum og at- hugasemdum þegar Halldóra reyndi að koma sjónarmiðum sín- um á framfæri. Ég horfði á þennan þátt ásamt syni mínum sjö ára, sem greinilega áleit að um keppni væri að ræða, enda lýsti hann því yfir í lok umræðunar að hann héldi með Guðrúnu höfundi bókanna um Jón Odd og Jón Bjarna. í fyrstu fannst mér athugasemd sonar míns brosleg, en þegar ég hugleiddi málið frekar varð mér ljósari en fyrr ábyrgð forsvars- manna þjóðarinnar gagnvart börn- um. Auglýsingabrellur tóbaks- framleiðinda höfða gjarna til barna og unglinga með óbeinum hætti, í blöðum og kvikmyndum, þar sem fyrirmyndir þeirra eru oft sýndar með sígarettu í hendi. Guðrúnu hélt því blákalt fram í þættinum að reykingafólk sé oft skemtilegra en annað fólk. Er það ekki með ólíkindum að kona með hennar ábyrgð láti slíka sleggjudóma falla? Guðrún er með þessu að taka und- ir og festa í sessi jákvæða ímynd sem tóbaksframleiðendur vilja gjarnan tengja reykingum saman- ber margfræg ímynd Marlboro- kúrekans. En færri vita að Marlboro- kúrekinn dó langt fyrir aldur fram af völdum reykinga. Eru heilbrigðisyfirvöld með rangar áherslur í heilbrigðismálum? Fyrir fimm árum varð mikil umræða um áherslur í heilbrigðis- málum í Frakklandi. Umræðuna leiddu fimm læknar (Dubois, Got, Grémy, Hirch og Tubiana), allir komnir á eftirlauna- aldur, en höfðu áður verið ráðgjaf- ar frönsku ríkisstjórnarinnar á vissum sviðum heilbrigðismála. Þeirra niðurstaða var að áherslur heilbrigðisyfirvalda væru oft rang- ar. Faraldsrannsóknir sýna nefni- lega að helstu heilsuvandamál þeirra og annarra Evrópuþjóða eru af félagslegum toga og byggja á misskiptingu auðs og afleiðingum hennar eins og fátækt og fáfræði. Þeir bentu á að dánartölur sýna að væntanleg lífslengd fólks í þess- um löndum er mun lægri hjá fá- tækum og öðrum sem minna mega sín. Einnig bentu þeir á að þennan mun í lífslengd mætti skýra að stórum hluta út frá tóbaksreykingum og misnotkun áfengis. Mennta- og hátekju- fólk í þessum löndum hefur minnkað tób- aks- og áfengisneyslu, á sama tíma og neysl- an hefur aukist í hin- um svo kölluðum lág- stéttum. Þeir lögðu áherslu á að ódýrustu- leiðirnar til framfara í heilbrigðismálum byggjast ekki á há- tæknivæðingu sjúkra- húsa, dýrum lyljum, eða almennri heilsu- gæslu heldur á aðgerðum til að draga úr tóbaks- og áfengisneyslu og jafnframt slysavörnum til dæm- is gegn umferðaslysum. Þeir voru hins vegar svartsýnir á að stjórn- málamenn myndu komast að sömu niðurstöðu, þar sem vandamál fá- tæks eða illa upplýsts fólks höfði síður til þeirra. Þeir bentu á að þingmenn þjóðþinga séu álíka full- trúar fyrir hinn venjulega mann í þessu sambandi og kappakstursbíl- stjórar séu fyrir almenna öku- menn. í þessu sambandi er athygl- isvert að Guðrún Helgadóttir hefur reynt að höfða til þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu og litið á sig sem málsvara þeirrra í ýmsum Minnst þriðjung allra dauðsfalla af völdum krabbameins má rekja til reykinga, segir Helgi Sigurðsson, og að auki ófá dauðsföll af völdum hjarta-, æða- og lungnasjúkdóma. málum. Afstaða hennar til tóbak- svarna eykur ekki trúverðuleika hennar. Hún lætur eigin hagsmuni sem reykingamanneskja ráða meiru en umhyggju sína fyrir öðr- um. Ofsóknir og rangfærslur Því hefur verið haldið fram að þeir sem berjast gegn tóbaksneyslu séu öfgamenn. Að hjá þeim helgi tilgangurinn meðalið. Þeir séu reiðubúnir að falsa niðurstöður rannsókna og beita einstaklinga ofsóknum til að koma sínu máli á framfæri. Þetta er greinilega skoð- un Guðrúnar Helgadóttur því í umræddum þætti dró hún í efa fullyrðingar lækna og annarra um skaðsemi tóbaksreykinga og niður- stöður vísindalega rannsókna. Einnig hélt hún því fram að dauð- vona sjúklingar væru ofsóttir með tóbaksvarnaraðgerðum á sjúkra; húsum eins og Landspítalanum. I byrjun þessarar aldar var sýnt fram á með vísindalegum aðferð- um að ákveðinn vatnsból Reykvík- inga væru uppspretta sýkinga eins og taugaveiki. Þetta mál varð póli- tískt þrætuepli sem lyktaði þó þannig að skaðleg vatnsból voru tekin úr umferð. Islendingar hafa æ síðan gert sér það ljóst að hreint vatn er einn lykilinn að velferð okkar. Nú hefur komið í ljós að reykingar eru hinn mesti heilsu- skaðvaldur og síst minni skaðvald- ur en sýkt vatnsból voru á sínum tíma. Afram býr þjóðin við mis- vitra stjórnmálamenn, sumir þeirra beijast gegn eðlilegum framförum, eins og í upphafi aldarinnar með vatnsbólin, og nú með því að vinna gegn takmörkun tóbaksneyslu. Eða er það ekki jafn sjálfsagður réttur hvers manns að anda að sér hreinu lofti eins og að drekka ómengað vatn? Skaðsemi tóbaksreykinga Margar gerðir krabbameins má rekja til tóbaksreykinga. Minnst þriðjung allra dauðsfalla af völdum kraþbameina má rekja til reyk- Styttra líf í kjölfar reykinga (áætlað) Líkur á Styttra líf Reykingamanneskj a að reyki % árafjöldi 100 6,0 Barn, báðir foreldrar reykja 80 4,8 Bam, annað foreldri reykir 50 3,0 Barn, hvorugt foreldri reykir 20 1,2 LANCYL Cellulite burt! Sjáanlegur árangur eftir 15 daga Byrjaðu strax! Helgi Sigurðsson inga, en auk þess mörg dauðsföll af völdum hjarta-, æða- og lungna- sjúkdóma. Meir en 300 einstakling- ar látast árlega fyrir aldur fram á íslandi af völdum reykinga. Þá er ekki talinn með annar ómældur skaði eins og eyrnabólgur hjá börn- um, sem eiga foreldri eða foreldra sem reykja, langvinnir lugnasjúk- dómar, æðaþrengsli og ófijósemi. í tóbaksreyk eru ótal skaðvaldar, sumir hveijir eru krabbameins- valdandi, en aðrir, eins og nikótín- ið, skaða æðakerfið. Reykingar urðu almennar hér á landi hjá körl- um upp úr fyrri heimsstyijöldinni og hjá konum nokkru fyrir þá seinni. Reykingar kvenna hér á landi hafa verið almennari en hjá konum annars staðar á Norður- löndunum og jafnframt eru krabbamein sem tengjast tóbaks- reykingum algengari meðal kvenna hér. Svo sterk eru tengsl- inn á milli tóbaksreykinga og lugnakrabbameins að faraldsfræð- ingar geta áætlað tóbaksnotkun í ýmsum löndum með því að fá upp- gefnar tíðnitölur lungnakrabba- meins í viðkomandi löndum. Ábyrgð reykingafólks og foreldraábyrgð Reykingafólk má búast við því að lifa að meðaltali um 6 árum skemur en þeir sem ekki hafa reykt. Ekki er óalgengt að heyra reykingafólk segjast ekki hafa áhuga á því að verða langlíft. Þessi afstaða sýnir algert ábyrgðarleysi, því ef málið er skoðað nánar kem- ur í ljós að afleiðingar tóbaksreyk- inga koma mun víðar fram. Ein- staklingur sem ekki reykir er í um 30% meiri áhættu að fá lungna- krabbamein ef makinn er stóreyk- ingamanneskja. Öll viljum við börnum okkar vel, en með því að reykja erum við að koma í veg fyrir að börn okkar hafí sambæri- lega möguleika í lífinu og börn foreldra sem ekki reykja. Það hef- ur nefnilega verið sýnt fram á að reykingar foreldris eða foreldra geta dregið úr þroska barna, úr námsárangri og einnig eru barna- sjúkdómar eins og eyrnabólgur og öndunarfærasjúkdómar algengari hjá börnum reykingafólks. Krabbameinsvaldar eru mælanleg- ir í þvagi barna sem verða fyrir miklum tóbaksreyk frá öðrum eins og til dæmis þegar fólk reykir inni á heimilum svo ekki sé minnst á reykingar í bifreiðum. Auk þess eru meiri líkur á því að börn reyk- ingafólks bytji að reykja, en börn fólks sem ekki reykir. Það má því segja að reykingar eru dauðans alvara, ekki bara fyrir þá sem reykja heldur einnig fyrir fólk sem umgengst þá og einkum þeirra nánustu, enda má færa fyrir því rök að foreldri eða foreldrar sem reykja taki þá áhættu að stytta líf barna sinna. Höfundur er dósent í Krabbameinsfélaginu og vinnurá krabbameinslækningadeild Landspítalans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.