Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 . MORGUNBLAÐIÐ BREF HL BLAÐSINS Dýraglens Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Siðbót eða meira afþví sama Frá Hirti Hjartarsyni BORGARSTJÓRNARKOSNING- ARNAR snúast ekki um lista eða stjórnmálaflokka heldur „móral“ - getu borgarbúa til að koma á siðuð- um stjórnarháttum í Reykjavík. Borg Flokksins Tólf ára stjórnartíð núverandi meirihluta var tími mikilla skatta- tekna og skuldasöfnunar; meirihlut- anum hefur tékist að fjórfalda skuld- ir borgarsjóðs, þrátt fyrir alla skatt- ana. Hvaða verkefni höfðu forgang og í hvað fóru peningarnir? Perlan og Ráðhús blasa við og galtómir bílageymslukumbaldar. En eftir all- an þennan tíma, allan íjárausturinn, er helsta áhyggjuefni barnafjöl- skyldna hvar eigi að koma börnunum fyrir - hvar þau séu að þvælast eft- ir skóla - meðan baslað er við að hafa ofan í sig og á. Halda vinn- unni. - Enginn minnist þess að meintir „fjölskylduvinir" á D-listan- um hafi æmt eða skræmt meðan þessi steinsteypuástríða valtaði yfir borgarbúa. Þarfir borgarbúa koma flokknum einfaldlega ekki við. Flokkurinn á borgina. Þess vegna getur hann ráðskast með SVR að vild. Þess vegna getur flokkurinn hafnað einu handriti ólesnu og keypt sér nýtt; borgarsjóður er sjóður D-listans. Þess vegna er hægt að greiða flokks- systur miljónir fyrir „munnlega ráð- gjöf“ (nútímaleg vinnubrögð heitir það á máli flokksins). Þess vegna getur Árni Sigfússon ákveðið að starfsmenn Borgarspítala skuli sækja námskeið hjá fyrirtæki sínu... En bíðum við, það eru að koma kosn- ingar. Allt er nú sem orðið nýtt... í Dúfnaveislu Halldórs Laxness slagar drukkinn gestur að sögu- manni og vill samræður: „Ég er ís- lenski lögreglustjórinn sem týndi passanum sínum í New York og vissi ekki lengur hvað hann hét“. Sögu- maður færist undan og segir: „Leitt að ég skuli ekki vera nógu drukkinn til að geta rætt við yður að gagni...“. Er D-listinn í Reykjavík drukkinn eða er runnið af honum eftir 12 ára fyllerí? Er hann að byija túrinn eða enda? Nýuppdubbaður borgarstjóri, stofnandi og fyrrverandi leiðtogi Félags ftjálshyggjumanna, segir hægri og vinstri ekki skipta máli í pólitík; einkavæðing borgarfyrir- tækja? Nei takk! Þúsundir barna á biðlistum? Hvað er að heyra - við kippum þessu í liðinn strax eftir kosningar! Gamlar tillögur minni- hlutans? Við erum í óða önn að fram- kvæma þær... D-listinn þekkir eflaust sína sauði, en maður spyr sig samt: Hveijum er þessi fíflasirkus ætlaður? Tækifæri til siðbótar Gengi stjómmálamanna hefur fallið. Almenningur skynjar hinn falska tón. Stjórnmál eru að verða vettvangur sérhagsmunagæslu og framapotara; hugsjónalaust gutl. Þess vegna hefur Ingibjörg Sólrún orðið áberandi. Hún hefur áunnið sér traust almennings - ekki með smjaðri og aulafyndni - heldur heið- arlegri framkomu sinni; með því að tala af virðingu til fólks. Ingibjörg Sólrún hefur boðið Reykvíkingum að leiða stjórn borgarinnar. Ef því boði verður hafnað er jafnframt ver- ið að hafna því að heiðarlegt fólk eigi erindi í íslensk stjórnmál yfirhöf- uð. Sigur D-listans fæli í sér staðfest- ingu á og skilaboð um, að engu skipti hvernig farið sé með umboð kjós- enda: þeir muna ekki tvo mánuði aftur í tímann, gleypa við loforða- glamri og smjaðri sem dregið er upp fáeinum vikum fyrir kosningar og eru ófærir um að kjósa nokkuð ann- að en það sem þeir hafa alltaf kosið. HJÖRTUR HJARTARSON, Freyjugötu 36, Reykjavík. TELL MY TEACHER T0 BR1N6 ‘HE CLA55 T0 OUR H0U5E TOOAY AND U)E CAN STUDY 5HE 5AID 15 IT ALL RIGHT T0 BR.IN6 TI4E PRINCIPAL.TOO, AND ALL THE MEMBER5 0F THE 5CH00L dOARP ? 'IT LOOULP HAVE BEEN PRETTY CROUJDED.. O Segðu kennaranum mínum að koma með bekkinn heim til mín í dag, og við getum lært í her- berginu mínu. Sagði hún að það væri í lagi Það hefði orðið býsna að koma með skólastjórann þröngt á þingi... líka, og alla skólastjórnina? Nýting og verndun við Þingvallavatn Frá Helga Þórssyni: í GREIN í Morgunblaðinu miðviku- daginn 20. apríl sl. segir Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, það viðurkennda venju á skipulagsvinnu og bera saman ítrustu nýtingarsjón- armið og ítrustu verndurnarsjón- armið. Á grundvelli þeirra kosta og áhrifa þeirra á umhverfið sé fundin tiltekin málamiðlun og reynt að ná um hana sem víðtækastri samstöðu (bls. 13). Ógæfan sem skipulagsmál við Þingvallavatn hafa ratað í stafar að hluta til af þessum vinnubrögð- um. Fagmennirnir sem til starfsins voru ráðnir völdu að boða vemdun- arsjónarmiðin og fengu til liðs við sig áhugamann sama sinnis. En ítrus.tu nýtingarsjónarmið eiga eng- an talsmann sem betur fer, enginn hefur sett þau fram. Grundvöllinn að málamiðluninni vantar, þessi skipulagsaðferð á ekki við, hún pr ónothæf hér. Undanfarnar vikur hafa sveitar- stjómir dregið að heimila samvinnu- nefnd að senda skipulagsstjórn til- lögu um svæðisskipulag og óskað ýmissa breytinga. Ástæða þeirrar rekistefnu er væntanlega sú að engin trygging er fyrir því að tekið verði tillit til athugasemda sem gerðar verða eftir að tillagan er auglýst opinberlega. Umhverfis Þingvallavatn geta nýting og verndun náttúrunnar hæglega farið saman, en varla ver- ið andstæður. Skipulagssérfræðing- arnir ættu að beina kröftum sínum að starfsumhverfi þeirra sem við vatnið eru, hvort sem er við atvinnu eða tómstundastörf. Skipulagsfólk- ið þarf að hlusta á það sem íbúar, landeigendur og sumarbústaðafólk hafa til málanna að leggja, skilja það og taka mark á því. HELGI ÞÓRSSON, Neðstaleiti 6, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.