Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR - OG SVEITARSTJORNARKOSNIIMGARNAR 28. MAI
Hreinasta borgin!
ÍSLENDINGAR
stæra sig gjaman af
því hve landið sé
hreint og fagurt. Og
svo sannarlega er
náttúran hér kynngi-
mögnuð að sjá. En
það sem við sjáum er
ekki nema yfirborðið.
Ef við skoðum fram-
ferði okkar örlítið
nánar kemur í ljós að
víða er pottur brotinn.
Á þetta sérstaklega
við um skolpfráveitu,
sorplosun g notkun
olíu til samgangna
hér á landi.
Óskar Dýrmundur
Ólafsson
Andlit þjóðarinnar
Reykjavík er höfuðborgin og
með réttu má segja að hún sé
andlit þjóðarinnar og sá staður
sem flestir ferðamenn og aðrir
erlendir viðskiptavinir okkar kynn-
ast. Því skiptir miklu máli að
umhverfismál borgarinnar séu í
takt við erlendar kröfur. Og ekki
virðist skorta viljann. Sjálfstæðis-
menn hafa lýst því yfir að Reykja-
vík eigi að vera orðin hreinasta
höfuðborg Vesturlanda árið 2000.
Borgin er aðili að umhverfísmála-
samþykkt sem gerð var í heims-
þingi sveitarfélaga í Ósló 1991 og
svo tók borgin þátt í stofnun „Car
free cities club“ í
Amsterdam í mars
síðastliðnum. Enn-
fremur er Reykjavík-
urborg skuldbundin
af umhverfislögum
ESB (Evrópusam-
bandsins) vegna að-
ildar íslands að EES-
samningnum. Því
miður hefur ekki ræst
eins vel úr og ætla
mætti.
Þrátt fyrir yfírlýs-
ingagleði forráða-
manna borgarinnar á
alþjóðavettvangi er
reyndin sú að borgin
undir forystu sjálf-
stæðismanna hefur ekki staðið
undir þeim lágmarks alþjóðlegu
væntingum sem gerðar eru.
Umferð einkabíla er alltaf því
þrefalt meiri en hjá sambærilegum
borgum í nágrannalöndum okkar,
ástand sem stangast á við áður-
nefndar samþykktir. Skolpdæling
út í hafíð er ekki einungis mikil
óprýði fyrir helstu fiskveiðiþjóð
heims heldur brjóta þessar aðgerð-
ir hreinlega í bága við umhverfis-
lög ESB. Sorphirða borgarinnar
er sömuleiðis algerlega úr takt við
stefnu vestrænna ríkja. I stað þess
að hugsa um sorp sem endur-
vinnanleg verðmæti er það að
Um hvað kjósa
Reykvíkingar?
UNDARLEGIR eru
straumar í íslenskri
pólitík. Hvemig má
það vera að Reykavík-
ingar ætli að kjósa
yfir sig samsteypu-
stjóm 4-6 ólíkra
flokka og flokksbrota
með gerólíkar stefnur
og áherslur án þess að
kosið sé um nokkur
málefni sem máli
skipta.
Er það af því að
Reykavíkurborg hafí
verið svo illa stjómað?
Ég neita alveg að trúa
því, þó að ein og ein
bygging eða fram-
kvæmd hafí verið umdeild. „Allt
orkar tvímælis, þá gert er“, segir
spakmælið og „það er svo bágt að
standa í stað,“ sagði Jónas.
Er það af því að embættismenn
borgarinnar séu illa valdir eða van-
hæfír? Það er fjarstæða; þvert á
móti held ég að þar sé nærri því
valinn maður í hverju rúmi.
Borgarstjóraefni vinstri manna
Ætla Reykvíkingar að
kjósa yfír sig sam-
steypustjóm margra
ólíkra flokka og flokks-
brota með gerólíka
stefnu, spyr Björn
Dagbjartsson, án þess
að kosið sé um nokkur
málefni, sem máli
skipta.
hefur gefíð í skyn að núverandi
yfirmenn borgarkerfisins verði að
víkja til að „opna kerfíð“. Hún
ætti að líta til Afríkuríkja, sem
slíkt hafa gert.
Er það svo líklegt, að borgar-
stjóri reynist vel, sem aldrei hefur
Bjöm Dagbjartsson
þurft að bera ábyrgð
á þjóðfélagsmálum,
aðeins staðið í að rífa
niður og gagnrýna
það sem gert er? Það
er þó nokkuð annað
að fara hnyttnum nið-
urlægingarorðum um
þá sem stjórna en að
axla ábyrgðina sjálf.
Fortíð, fjölskylda og
nánir vinir rifjast
fljótt upp, þegar emb-
ættisverk verða
gagnrýnd.
Hyggjast Reykvík-
ingar klekkja á ríkis-
stjórninni með því að
kjósa þetta yfír sig?
Helmingur ríkisstjórnarinnar styð-
ur vinstri listann í Reykjavík. Að
vísu styðja líklega 3 ráðherrar
frambjóðendur Alþýðuflokks, 1
frambjóðandi Vettvangsins og 1
Kvennalistans. Ekkert sérstakt
bendir til þess að ríkisstjómin segi
af sér, þó að Reykjavík falli. Þvert
á móti má leiða að því líkur, að
kratar verði mjög ragir við það,
minnugir taps síns eftir tvær ríkis-
stjómarsprengingar.
Er framboðslisti vinstra fram-
boðsins svona aðlaðandi? Mér er
það gersamlega hulið að fólk, sem
hvað eftir annað hefur verið hafn-
að af Reykvíkingum, hafi allt í
einu svona mikið aðdráttarafl.
Sumt af þessu fólki fékk að spreyta
sig, baksviðs eða í forystu, fyrir
vini og stuðningsmenn, til álits-
gerða, sem enginn tók mark á, sem
betur fer.
Eftir þessar vangaveltur er mér
þaðjafn óskiljanlegt, ef þessi verð-
ur niðurstaða Reykvíkinga 28. maí
nk. Kannski verðum við að búa við
herleiðingu í 4 næstu ár, en fyrir
því eru engin skynsamleg rök
fremur en múgsefjunum yfírleitt.
„Þegar alþjóð einum spáir óláns,
rætist það,“ segir Stephan G.
Ætla Reykvíkingar virkilega að
láta fara svona með sig?
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaöur.
í stað þess að hugsa um
sorp sem endurvinnan-
leg verðmæti, segir
Oskar Dýrmundur
---3i----------------
Olafsson, er það að
mestum hluta urðað.
mestum hluta urðað með miklum
tilkostnaði og ófyrirsjáanlegum
afleiðingum vegna grunnvatns-
mengunar.
Burt með fúskið
Við komandi borgarstjórnar-
kosningar hinn 28. maí mun borg-
arbúum gefast kostur á því að
beina þessum málum til betri veg-
ar. Reykjavíkurlistinn hyggst færa
inn í borgina aukna áherslu á
umhverfísmálin: auka endur-
vinnslu, stuðla að minni mengun
og taka þátt í því að uppfylla þær
lágmarkskröfur sem vestræn ríki
gera til íslands í umhverfísmálum.
Meðal markmiða okkar á Reykja-
víkurlistanum er:
* Endurvinnsla lífræns úrgangs
(breytt í jarðveg).
* Stórbættar almenningssam-
göngur.
* 2. stigs hreinsun á skolpi.
* Örugg aðstaða fyrir óvarða veg-
farendur.
* Búið verði til stofnbrautarkerfi
reiðhjólagatna.
* Minni umbúðanotkun — minna
sorp.
* Að Reykjavík verði í raun hin
vistvæna höfuðborg norðursins.
Reykjavíkurlistinn vill koma
þessum málum á hreint og sýna
þannig í verki en ekki bara í orði,
að við séum í takt við alþjóðleg
lög og samþykktir. AUt tal um að
ísland geti orðíð hreinasta land
Evrópu verður orðin tóm meðan
við tökum ekki til hendinni og
skilum börnum okkar sjálfbæru
umhverfí.
Höfundur er leiðbeinandi og
skipar 19. sæti R-listans.
Tímamótavor í
sögu borgarinnar
EFTIR nokkrar
vikur verða sveit-
arstjórnarkosningar.
Kosningar sem kunna
að marka tímamót hjá
Reykvíkingum. Nú
gefst einstakt tæki-
færi til að hefja nýja
sókn í borginni, sókn
gegn atvinnuleysi, úr-
ræðaleysi í félagsmál-
um, ij ármálaóreiðu og
klíkuskap. Sameigin-
legur listi, Reykjavík-
urlistinn, býður fram
glæsilega fulltrúa til
borgarstjómar, full-
trúa sem allir hafa
víðtæka reynslu og þekkingu
Lára V. Júlíusdóttir
og
margir áður unnið mikið starf að
borgarmálefnum í minnihlutanum.
Konur skipa þar veglegan sess og
borgarstjóraefni listans, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, er bæði hæfí-
leikaríkur leiðtogi og hefur þá
reynslu af borgarstjómarmálum
sem til þarf.
Þegar veldi sjálfstæðismanna í
Reykjavíkurborg er ógnað með
þeim hætti sem hér er gert er
kannski ekki að furða að þeir ótt-
ist um sinn hag. En hvílík skelfíng
hefur gripið urp sig í þeirra röðum
að undrun sætir. Þeir vita ekki
sitt ijúkandi ráð og virðast hafa
misst alla stjórn á sér. Eftir glæsi-
lega útkomu í prófkjöri lýsir borg-
arstjóri því yfír að hann sé hættur
við að leiða flokkinn og segir af
sér aðeins rúmum tveimur mánuð-
um fyrir kosningar. Nýr borgar-
stjóri tekur við og reynir allt hvað
hann getur að breyta stefnu
flokksins um 180 gráður. Nú á
flokkurinn að beita sér fyrir öllu
því sem hann hefur barist gegn
undanfarna áratugi. Undarlegar
uppákomur eins og að kæra nafn-
gift Reykjavíkurlistans til yfirkjör-
stjómar eiga sér stað. Meira að
segja heyrir maður greinda og
hæfa frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins halda langar ræður um
það á vinnustaðafundum hvað
vinstri meirihlutanum hafí gengið
illa að vinna saman á árunum
1978 til 1982. Sagðar
era kjaftasögur um
samstarfsörðugleik-
ana sem lifað hafa
góðu lífí í sauma-
klúbbum sjálfstæðis-
kvenna í nær tvo ára-
tugi. Þeim er ætlað
að sanna það eitt að
því fólki sem nú sé í
framboði fyrir R-list-
ann muni aldrei ganga
að vinna saman. Er
þetta aðferðin til að
breiða .yfír sundr-
unguna sem verið hef-
ur í borgarstjómar-
flokki Sjálfstæðis-
allt síðasta kjörtímabil?
flokksins
Maður líttu þér nær.
Reykvíkingar þurfa
ekki
Reykvíkingar þurfa
ekki á draugasögum að
halda, segir Lára V.
Júlíusdóttir, heldur
styrkri stjórn.
draugasögum að halda. Þeir þurfa
styrka stjórn í málefnum borgar-
innar, stjórn sem lítur til framtíð-
ar, sem tekur mið af velferð okkar
sem hér búum, barna, foreldra,
aldraðra, sjúkra, öryrkja, vinnandi
fólks og fólks sem nú gengur at-
vinnulaust. Stjórn sem er óhrædd
að takast á við vandamálin sem
hvarvetna blasa við. Okkur þykir
vænt um borgina okkar og viljum
henni aðeins það besta. Það þarf
að losa borgina úr því hafti sem
hún er komin í. Látum þetta vor
verða tímamótavor í sögu borgar-
innar. Vorið þegar byijað var að
breyta. Vorið sem Reykjavíkurlist-
inn komst til valda.
Höfundur er lögmaður í
Reykjavík, formaður
Jafnréttisráðs og fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Islands.
Rauði listinn III
Öreykvískastur allra...
BLÍTT lét veröldin
í Borgarfirði á dögun-
um. Það var sól og
hiti eins og á Ítalíu.
Aldrei var Borgarnes-
ið og umhverfi þess
fegurra en þá á mesta
góðviðrisdegi vorsins.
Og þegar litið var út
um gluggann á hótel-
inu hans Don Pedro,
sem hefur glætt gisi-
húsið nærvera og
varma (borgfirzki vet-
urinn er gæddur
kímnikennd), þá
brosti veröldin til
manns. Sjórinn var
spegilsléttur og lónin
tindraðu í litbrigðum eftir rign
ingu.
Þetta var langt frá pólitíska
darraðadansinum - R-listanum,
sem leyfír sér að kenna sig við
Reykjavík, enda þótt listinn sá og
frambjóðendur hans séu óreykvísk-
astir allra og villi því á sér heimild-
ir - heiftarlega.
Nú er verið að kjósa um það
hvort Reykjavík haldi áfram að
vera til, haldi áfram að vera fögur
og heillandi - svo sjarmerandi, að
smekklegir útlendingar, túristar,
geti ekki orða bundizt og bendi
Steingrímur St.Th.
Sigurðsson
og skerin
bæði á Ráðhúsið og
Perluna og lýsi hrifni
sinni í blöðum og
tímaritum og fjölmiðl-
um þegar þeir koma
til síns heimalands.
Þarna í yndislega
veðrinu í Borgarfirði
var manni hugsað til
þess óhugnaðar ef
ókynningarhæft fólk
- rauðlistafólk -
fengi völd yfir gömlu
Reykjavík sem á sér
reykvískar hefðir,
léttleik og lífsgleði og
góðleik i garð vina og
fjölskyldu. Þegar sá,
er þetta ritar, kom að
norðan fyrir 34 árum var hann svo
lánsamur að kynnast gamal-reyk-
vískum fíölskyldum og heimilum.
Þetta var fólk sem gladdist yfír
velgengni vina, en hryggðist ef illa
fór fyrir þeim. Það laug ekki upp
á aðra eins og rauðlistafólkið hefur
gert sig sekt um. Hið síðargreinda
er að því leyti dæmigert fyrir nýja
lenzku í íslenzku samfélagi.
Kommar og fylgifískar þeirra eru
lýsandi dæmi fyrir þetta hvimleiða
hugarfar, að tala neikvætt um
menn og málefni.
Um hvað er kosið hér í Reykja-
Kommar og fylgifiskar
þeirra eru lýsandi dæmi
um það það hvimleiða
hugarfar, segir Stein-
grímur St.Th. Sig-
urðsson, að tala nei-
kvætt um menn og
málefni.
vík? Um völd og aðstöðu til að leiða
þessa borg, sem hefur yfír að ráða
vissum töfrum og hefðum margra
kynslóða.
Ingibjörg Sólrún frá Haugi í
Gaulveijabæ lýsti því nýlega yfír
í grein í Morgunblaðinu, að hún
ætlaði að stjórna þessari borg með
heiðarleika. Heiðarleg manneskja
talar aldrei um heiðarleik sinn
fremur en duglegur alvöramaður
talar aldrei um að hann sé dugleg-
ur. Þetta er skrifað til íhugunar
eins og fleira.
Að Hæðardragi.
Höfundur er listmálari og
ritliöfundur.