Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 13
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
VIÐSTODD opnun Grundarsafns voru m.a. frú Helga Björnsdótt-
ir, ekkja Gísla Sigurbjörnssonar, Sigurjón Sigurðsson, eiginmaður
listakonunnar, Sigríður Kjaran og Gísli Páll Pálsson, fram-
kvæmdasljóri Dvalarheimilisins Áss, Hveragerði.
Blær hins
liðna á
brúðusafni
Hveragerði - Brúðusafni Sigríðar
Kjaran sem margir kannast við frá
fjölsóttri sýningu í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins fyrir nokkrum árum
hefur verið fundinn staður í Hvera-
gerði.
Það er Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund sem á brúðumar og hefur
nú opnað sýningarsal að Austur-
mörk 3, gegnt Hótel Örk, þar sem
brúðusafnið verður til sýnis almenn-
ingi. Safnið hefur hlotið nafnið
Grundarsafn.
Listakonan Sigríður Kjaran sem
vann allar brúðumar á fimm ára
tímabili. í samtali sagðist hún leit-
ast við að endurskapa atvinnuhætti
og vinnubrögð frá liðinni tíð með
brúðum sínum. „Tilgangur minn er
sá að tryggja að vinnubrögð og
andi hins liðna gleymist ekki yngri
kynslóðum heldur geti þær í gegn-
um brúðurnar mínar séð hvernig
lifnaðarhættir forfeðra þeirra
voru“, sagði Sigríður.
Mikil natni er lögð jafnvel í
smæstu atriði. Vindur leikur
um pils kvennanna og örsmá
saltfiskflök liggja til þerris.
Að baki hvetju verki liggja ófá
handtökin. Listakonan hefur mótað
andlit, hendur og fætur í leir. Smá-
ar flíkurnar eru listilegar pijónaðar
og saumaðar. Safnið er opið á
þriðjudögum, fimmtudögum, laug-
ardögum og sunnudögum frá kl.
14-18. Aðgangseyrir er 100 krón-
ur.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
Stúlknakór í heimsókn
STÚLKNAKÓR frá Laugaskóla heimsótti Reykhóla á dögunum
en kórnum sljórnar Björn Guðmundsson frá Reynikeldu. Undir-
leik annaðist Halldór Þórðarson, tónlistarkennari frá Breiðabóls-
stað. Fyrst söng kórinn í Reykhólaskóla og síðar í Dvalarheimil-
inu Barmahlið. Einsöngvari var Barbara Ósk Guðbjartsdóttir.
Ekki til að
hæla sér af
að verða
100 ára
Eyrarbakka - „Það er nú svo
sem ekki merkilegt, eða til að
hæla sér af,“ sagði Páll Jónasson
á hundraðasta afmælisdegi sín-
um þann 12. maí sl. Páll dvelur
nú að Ljósheimum á Selfossi, en
var áður til heimilis í Stíghúsi á
Eyrarbakka. Hreppsnefnd Eyr-
arbakkahrepps hélt Páli samsæti
á afmælisdaginn og þar komu
bæði vinir og venslamenn að
heilsa upp á afmælisbarnið.
Fréttaritari Morgunblaðsins hitti
Pál að máli rétt sem snöggvast,
en að vonum var mikið um að
vera þjá afmælisbarninu, sem er
elsti Eyrbekkingurinn.
„Ég er fæddur í Rimakoti í
Austurlandeyjum," sagði Páll.
„Foreldrar mínir voni Jónas Þor-
valdsson og Jóhanna Jóhanns-
dóttir sem þar bjuggu. En móðir
mín dó þegar ég var bara tveggja
vikna. Faðir minn giftist síðar
Þorgerði Guðmundsdóttur, sem
varð þá stjúpa mín. Hjá þeim var
ég svo til 18 ára aldurs, síðustu
árin titlaður vinnumaður. Ég fór
18 ára til Vestmannaeyja á ver-
tíð og þar fékk ég vélstjórarétt-
indi 1920 og var vélstjóri á ýms-
um bátum. Sama ár kvæntist ég
Margréti Eyjólfsdóttur, sem Iést
1982. Við áttum saman einn son,
sem nú er látinn, hann hét Sig-
urður Húnfjörð. Ég eignaðist svo
dóttur 1932, Guðbjörg Jóhanna
heitir hún. En bíddu nú við, ég
var að segja þér frá því að ég
var mótoristi í Eyjum. Ég skal
segja þér það,“ Páll hnykkir á
og heldur áfram. „Ég skal segja
þér það, að ég fór nauðugur úr
Eyjum. Þar er sko gott að vera.
En eitt haustið fékk ég svo heift-
arlega bijósthimnubólgu, að
Kolka, sem þá var þar læknir,
sagði mér að ég gæti ekki verið
til sjós í mörg ár. Þá var ekki
um margt að gera í Eyjunum, svo
við drifum okkur til Reykjavík-
ur.“
Var ekki erfítt að fá vinnu í
Reykjavík ?
„Ég fékk nú fljótlega starf á
Korpúlfsstöðum, keyrði þar einn
þriggja vörubíla sem þar gengu.
Það var ágætis vinna. Svo lenti
ég seinna á verkstæðinu þjá
Steindóri, sem var mikill bíla-
kóngur í þá daga.“
Þú hefur ekki verið bílstjóri hjá
honum?
„Nei, ekki var það nú. Við
vorum reyndar stundum drifnir
I upp í bíla, þegar þannig stóð á,
Morgunblaðið/Óskar
PÁLL Jónasson ásamt nokkrum íbúum af Ljósheimum á Selfossi.
í verkstæðisgallanum maður.
Það vorum við nú ekki ánægðir
með og gátum að lokum stoppað
það. Ég fór stundum alla leið
austur í Fljótshlíð í þessum túr-
um.“
Hvenær fluttirðu svo á Eyrar-
bakka?
„Ég keypti Stíghúsið 1940 og
þá fluttum við hingað austur og
ég var mótoristi í nokkur ár.
Eftir að frystihúsið var byggt,
unnum við þar bæði. Ég var til
dæmis látinn brýna hnífana fyrir
kerlingarnar. Það þótti bíta held-
ur vel ef ég brýndi."
Páll brosir kankvíslega, minn-
ugur þess sem sagt er um góða
brýnslumenn.
Páll var orðhagur vel og voru
til dæmis flest „örnefni" í frysti-
húsinu frá honum komin. Nú
hafa þau horfið úr daglegri notk-
un með nýjum siðum og öðrum
eigendum. Ég vík frá Páli fyrir
öðrum gestum, en þegar ég kveð
hann að lokum og óska honum
enn á ný til hamingju með þetta
merkisafmæli segir hann:
„Blessaður vertu, þetta er nú
ekki til að gera veður út af, ekki
svo merkilegt."
FISKRETTIR LINDARINNAR
FISKMATSEÐILL HEIMILISMATSEÐILL
til dæmis: Léttsteiktar svartfugls- bringur kr. 1.250,- Pönnusteikt kolaflök kr. 1.020,- Smjörsteikt keiluflök kr. 970,- Hvítlauksristaður steinbítur kr. 950,- 3 Ijúfir smáréttir kr. 1.320,- til dæmis: Fiskbollur m/lauksósu kr. 870,- Plokkfiskur m/rúgbrauði kr. 890,- Síldardiskur kr. 780,- Súpa, heimabakað brauð og salatbar fylgja öllum réttum.
10% afsláttur af mat gegn framvísun þessa míða.
LIMVIM
Rauðarárstíg 18 - Sími 623350
ÍBiklii meira en veniule? sölarlandaferð!
Yd
tniý
4?
Samvinnuferðir - Landsýn og Atlasklubburinn bjoða til sumarveislu
Ein af mörgum
Matthildur Sveinsdóttir
veitir innsýn í dulargáfu Tarot-spiianna
Það verður eldhress
stemmning á sólarströndum
okkar í sumar á ári
fjölskyldunnar. Allt fullt af
bráðskemmtilegum gestum
og hugmyndari'kum
fararstjórum sem gefa
ferðinni allt í senn
spennandi, menningarlegan
og sprenghlægilegan blæ!
Samviiiiiiiferðir-Laiiilsj/ii
Veldu sólarlandaferð
þar sem grín, listræn
tilþrif, söngur, spenna,
slökun og spilakúnstir
tryggja þér sumar-
ævintýri í sérflokki.
EUnOCARD
(DATLAS
- nýtur sérkjara!
' 4000 kr. afsláttur í pakkaferðir
fyrir alla þá sem eru með
Atlas- eða Gullkort frá
Eurocard.
/ 5000 kr. afsláttur á mann til
BenidOrm 30. júní og til Cala
d'Or 28. júní.
/ Viðtæk tryggingavernd. Iiafi
a.m.k. helmingur ferðar
verið greiddur með kortinu.
• Möguleiki á einni af 30
bónusferðurn á 30 kr!
/ Ótal vildarkjör að auki.
t Nú er rétti tíminn til að fá
sér Eurocard!
I Atlasklúbbnum eru allir handhafar
ATLAS- eða Gullkorta frá Eurocard.
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótol Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Halnarljörður: Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 6511 55 • Simbrél 91 - 655355
Kellavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 -13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Símbréí 93 -1 11 95
Aknreyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Simbréf 96-1 10 35 Vestmannaeyjar Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Simbréf 98 -1 27 92
Q ATLAfv*