Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ1994 23
LISTIR
Kaupskapurínn í Firðinum
BOKMENNTIR
Sagnfræði
HÖFUÐSTAÐUR
VERSLUNAR
Saga verslunar og kaup-
mennsku í Hafnarfirði í sex
hundruð ár. Lúðvík Geirsson
skráði. 375 bls. Verslunar-
mannafélag Hafnarfjarðar.
Hafnarfjörður 1994. Verð kr.
5.900.
HUGMYNDIN var í fyrstunni að
skrá sögu Verslunarmannafélags
Hafnarfjarðar. Að athuguðu máli
þótti réttara að stíga skrefið til
fulls og taka saman sögu verslunar
í Firðinum frá upphafi. Nú er sagan
komin út og er mikil að umfangi.
Og raunar einnig að inntaki^Efninu
er fyrir komið með tvennum hætti:
Annars vegar í samfelldum meg-
intexta sem skiptist í átta kafla,
hins vegar í stökum innskotsgrein-
um sem tengjast söguefninu mis-
munandi mikið, stundum aðeins
lauslega.
Verslunin er snar þáttur í íslands-
sögunni og kemur hvarvetna inn á
önnur svið þjóðlífsins með einum eða
öðrum hætti. Því er síst
að undra þótt sagn-
fræðingar hafi beint
þangað sjónum sínum.
Merkustu grunnrann-
sóknir, sem unnið hefur
verið að í íslenskri
sagnfræði á þessari öld,
tengjast langflestar
verslunarsögu.
í bók þessari er svo
ítarlega sem verða má
rakin verslunarsaga
Hafnarfjarðar á fyrri
öldum. Þar mun höf-
undur byggja á annarra
rannsóknum, mest-
megnis eða alveg.
Bærilega tekst honum að tengja það
saman. Meðal annars vitnar hann
til Björns Þorsteinssonar en meira
til Gísla Gunnarssonar. Víða styðst
hann líka við Sögu Hafnarfjarðar
eftir Sigurð Skúlason sem út kom
1933.
Fyrstu aldirnar eru móðu og
mistri huldar, einkum enska öldin
sem svo er kölluð. Viðskipti við Þjóð-
veija og Englendinga skópu íslend-
ingum meiri hagsæld en þeir nutu
síðar. En heimiidirnar eru stopular;
íslenskir sagnaritarar voru ekki
komnir svo langt að
telja verslunarsögu frá-
sagnarverða ef við-
skiptin gengu snurðu-
laust. »Til að fá frekari
lýsingu á sjálfum versl-
unarstaðnum, viðskipt-
unum og mannlífinu er
lítið að græða á þeim
heimildum sem þekktar
eru. Því verður að geta
í eyðurnar . . . « segir
höfundur.
Slíkar eyðugetgátur
geta verið skemmtileg-
ar. Þær hljóta þó að
teljast hæpin sagn-
fræði; skyldu fremur
falla í verkahring skálda, enda gefur
höfundur getspeki sinni hóflega
lausan tauminn.
Meira er farið ofan í einokunar-
tímabilið. Þar er líka við haldbærari
heimildir að styðjast. Réttilega bend-
ir höfundur á að einokunin hafí verið
aðferð ríkisvaldsins danska til að
stórauka skatttekjur af landinu
vegna síendurtekins stríðsrekstrar
við svenska. Einokunin er einhver
dekksti kapítuli íslandssögunnar
hvernig sem á er litið. Þegar því fargi
léttir taka íslendingar fyrst að rétta
úr kútnum. Rakin er saga Bjarna
riddara sem er ævintýri líkust.
Á síðari hluta 19. aldar gekk á
ýmsu og koma þá fleiri við sögu.
Höfundur upplýsir að þá hafi jafnan
verið fímm til sex verslanir í bænum.
Það hefur verið hreint ekki svo lítið
ef hliðsjón er höfð af að íbúar i Hafn-
arfirði voru þá aðeins fáein hundruð
og verslunarsvæðið hvorki víðlent né
fjölmennt. Hagur kaupmanna var þá
— eins og reyndar bæði fyrr og síðar
— árferði háður, einkum sjávarafla.
í góðæri gátu þeir hagnast svo um
munaði. Þegar afli brást og skuldir
innheimtust illa fór allt á verri veg
og gat þá allt eins blasað við gjald-
þrot. Upp úr aldamótum rennur svo
upp bjartari tíð með stóraukinni
fólksíjölgun og framförum í útgerð.
íslendingar voru að taka verslunina
í sínar hendur og fjölgaði þá kaup-
mönnum að sama skapi. Viðskipta-
hættir, sem löngum voru frumstæðir
mjög, færðust þá nær því sem síðan
hefur tíðkast.
Höfuðstaður verslunar er læsileg
bók og fróðleg. Textinn er víðast
hvar lipur þó varla geti hann talist
vera með neinum glæsibrag. Vegna
lengdar og umfangs hefur ekki allt-
af tekist að sneiða hjá endurtekn-
Lúðvík Geirsson
ingum. Þó fyrir komi orðalag eins
og »að versla sokka« sem málkennd
undirritaðs getur hreint ekki með-
tekið er heildin í stórum dráttum
hnökralítil. Prentviliur eru þónokk-
uð margar, líkast til of margar ef
höfð er í huga sú mikla vinna sem
hlýtur að hafa verið lögð í verkið
að öðru leyti. Kaflar eru tölusettir
í efnisyfirliti en ekki með fyrirsögn-
um og má hugsanlega kenna það
gáleysi.
Þó svö geti virst sem verslun
byggist á töflum og talnaspeki er
þetta engin þurr lesning heldur þvert
á móti. Lífsins gangur markast svo
mikið af því sem maður getur veitt
sér eða með öðrum órðum því sem
maður getur — keypt! Vörurnar í
búðarhillunum lýsa því betur en ann-
að hvernig fólkið lifir frá degi til
dags. Og mörg sérkennileg og minn-
isstæð manngerðin kemur þarna við
sögu. Höfundurinn, sem er blaða-
maður, gerir sér ljóst hvað frétt-
næmt gat taiist á hveijum tíma.
Þar sem þetta er í raun afmælis-
rit sem notið hefur styrks úr ýmsum
áttum sýnist fátt hafa verið sparað
til útgáfunnar. Þarna er t.d. birtur
fjöldi mynda, sumar teknar í árdaga
ljósmyndunar á íslandi. Þetta er
blaðamannasagnfræði af viðameira
taginu. Tíma þeim, sem varið er til
að lesa þessa bók, er því hvergi á
glæ kastað.
Erlendur Jónsson
FULL BÚÐ
FYRSRU 5flAR
AF AHUGAVERÐUM
BÚNAÐI
VIÐ ALLRA HÆFI:
■ Nýjar tölvur
■ Nýir prentarar
■ Margmiölun
■ Rekstrarvörur
Miðvikudag, fimmtudag og föstudag
kl. 13:30 og 16:00
■ Netvæðing fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki
■ Nýir möguleikar í hugbúnaði
fyrir vinnuhópa
Micmsoft
Wordlbrfect
Velkomin í EJS búbina
»:/isr 3j
mtnm
DAEWOO
TEXAs
Instruments
EINAR J. SKÚLASON HF
Grensásvegi 10 • Sími 63 3000
í ,■)')(!í‘V . íi.-.—1)4 v