Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 25

Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 25 Lovísa A. Guðmundsdðttii er fegurðardrottning Suðurnesja og jafnframt ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja. Hún er 18 ára gömul frá Suðurnesjabæ og vinnur þar í tískuvöruverslun. Foreldrar hennar eru Guðmundur Reynisson og Guðrún Ágústa Jónsdóttir. Kjóll Lovísu er kóngablár úr polyesterefni, stílfærður og saumaður af Huldu Björk Georgsdóttur fatahönnuði. Lovísa er 180 sm á hæð. Margrét Skúladðttir Sigurz er fegurðardrottning Reykjavíkur. Hún er 21 árs Reykvíkingur og stundar nám i Fósturskóla íslands. Foreldrar hennar eru Skúli Eggert Sigurz og Ingunn Þóra Jónsdóttir. Kjóll Margrétar er úr svörtu silki, skreyttur gylltum pallíettum. Katrín Sighvatsdóttir saumaði kjólinn en þær Margrét hönnuðu hann í sameiningu. Margrét er 176 sm áhæð. er ljósmyndafyrirsæta Reykjavíkur. Hún er 19 ára og kemur úr Garðabæ. Hún stundaði nám í fjölbrautaskólanum þar í bæ og hefur jafnframt unnið á Hard Rock Café. Foreldrar hennar eru Guðmundur Benediktsson og Guðrún Olga Clausen. Inga Jónsdóttir saumaði kjól Söru, sem er úr bláu ottoman-efni. Þær Sara hönnuðu kjólinn í sameiningu. Sara er 174 sm á hæð. Særðs Tðmasdðttir er fegurðardrottning Vesturlands. Hún er tvítug frá Akranesi, en vinnur á Hard Rock Café. Foreldrar hennar eru Tómas Friðjónsson og Bryndís Sigurðardóttir sem er látin. Kjóll Særósar er úr beinhvítu atlassilki og blúndu. Gréta Ösp Jóhannesdóttir hannaði og saumaði kjólinn. Særós er 172 sm á hæð. Unniif Gnöný Gunnarsdðttir er 18 ára gömul frá Reykjavík. Hún vinnur hjá útgáfufyrirtækinu Framtíðarsýn hf. og starfar einnig fyrir Módelsamtökin. Foreldrar hennar eru Gunnar Þórðarson og Rannveig Viggósdóttir. Unnurer í kóngabláum pallíettukjól með slóða, sem María Auður Guðnadóttir hannaði og saumaði. Unnur er 178 sm áhæð. Valdís Svanbjðrnsdðttir er fegurðardrottning Austurlands. Hún er 18 ára og kemur frá Neskaupstað og stundar nám í Verkmenntaskóla Austurlands. Foreldrar liennar eru Svanbjörn Stefánsson og Kristín Magnea Sigurðardóttir. Valdís er í kjól úr vínrauðu satíni, skreyttum silfurlituðum p.aliíettum. Jórunn Karlsdóttir hannaði og saumaði. Valdís er 166 sm á hæð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.