Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 28

Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Leigjendur eiga leikinn NAUÐSYNLEGT er að gera nokkrar athugasemdir vegna skrifa Björns Bjarnasonar alþingismanns í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, ásamt því að koma að ábendingu til leigjenda. Björn lætur að því liggja að ekk- ert samráð hafí verið haft við sveitarfélögin um undirbúning málsins og að ég hafí krafist þess að frumvarpið yrði samþykkt at- hugasemdalaust án nokkurra breytinga. Síðan staðhæfír Björn að í yfirlýsingu sem ég gaf um málið í lok þingsins hafí falist viður- kenning á réttmæti þeirrar gagn- rýni sem fram hafí komið. Staðreyndirnar Ekki gekk þrautalaust að ná málinu fram á Alþingi. í lok þings- ins var málið í uppnámi og sá möguleiki fyrir hendi að frumvarp i 12, sími 44433. um húsaleigubætur yrði annaðhvort fellt með atbeina nokkurra þingmanna Sjálfstæð- isflokksins eða vísað frá eins og fulltrúi Al- þýðubandalagsins í fé- lagsmálanefnd Alþing- is lagði til. Þessari neikvæðu afstöðu réð fyrst og fremst umsögn Sam- bands íslenskra sveit- arfélaga um málið, auk umsagna 8 annarra sveitarfélaga af um 190 sveitarfélögum sem vildu að ríkið sæi bæði um fjármögnun og framkvæmd húsaleigubóta. Þessi afstaða er furðuleg í ljósi þess að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifaði fyrirvara- laust undir álit nefndarinnar, sem vann málið og skilaði niðurstöðu í febrúar 1993, en lögin byggja í öllum aðalatriðum á niðurstöðum hennar. Að loknu því nefndarstarfi var það síðan ákveðið í fullu samráði við forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga hvernig staðið yrði að vinnu við undirbúning frum- varpsins og á því stigi engin at- hugasemd gerð við að framkvæmd- in yrði í höndum sveitarfélaganna eins og nefndin lagði til. Að auki var hlutur sveitarfélaga í fjármögnun húsaleigubóta byggð- ur á útreikningi Sambands sveitar- félaga, en sveitarfélögin greiða 40% kostnaðar eða 250 milljónir en rík- ið 60% eða 400 millj- ónir. Útreikningur Sambands sveitarfé- laga byggði á því að sveitarfélögin greiða þegar 250 milljónir í húsaleigustyrki á al- mennum markaði, en sú Ijárhæð er færð sem hlutur sveitarfé- laganna inn í nýtt húsaleigubótakerfí. Lyktir málsins Þar sem ljóst var í lok þingsins, að það gæti haft alvarleg áhrif á stjórnarsam- starfíð ef með atbeina þingmanna Sjálfstæðisflokksins frumvarpið yrði annaðhvort fellt eða frávísunartilllaga fulltrúa Al- þýðubandalagsins samþykkt, sam- þykkti ríkisstjórnin tillögu sem leysti málið. / fyrsta lagi að taka upp viðræð- ur við Samband íslenskra sveitar- félaga um undirbúning að fram- kvæmd laganna, sem er sjálfsagt mál þar sem framkvæmdin er í þeirra höndum. / öðru lagi að ef í ljós kemur að gera þurfí breytingar til að fram- kvæmdin verði markvissari eins og það er orðað þá verði slíkar tillögur lagðar fram á haustþingi, en tvær breytingartillögur vegna fram- kvæmda laganna frá meiri hluta félagsmálanefndar voru samþykkt- ar á Alþingi. Staðhæfingar Björns Bjarnasonar alþingismanns í Morgunblaðinu 12. maí sl. um að Jóhanna Sigurðardóttir Leigjendur ættu að krefja frambjóðendur til sveitarstjórna, ráðlegg- ur Jóhanna Signrðar- dóttir, svara um, hver afstaða þeirra er til þess að veita fólki rétt til húsaleigubóta. ég hafi á Alþingi staðið gegn öllum breytingum varðandi framkvæmd laganna er út í hött. Áður en frum- varpið var lagt fram á Alþingi var tekið tillit til margvíslegra tillagna og sjónarmiða Sjálfstæðisflokks. Eftir því var líka ítrekað gengið af mér þegar málið var í meðferð þingsins hvort einhveijar tillögur væru uppi af hálfu Sjálfstæðis- manna um framkvæmdina eins og hún lá fyrir í frumvarpinu. Svo var ekki, ef undan er skilin ósk um að lögin yrðu aðeins í gildi tímabundið eða í tvö ár, og að því var að sjálf- sögðu ekki hægt að ganga. /þriðja lagi má af skrifum Björns Bjamasonar líka ráða, að ég hefði staðið gegn skattaívilnunum til leigusala. Staðreyndin er sú að með yfirlýsingu um að á því máli yrði tekið á haustþingi voru Sjálfstæðis- menn sjálfír að leysa sinn eigin innanbúðarvanda. Hygg ég að eng- inn hafi fagnað meira þessari niður- stöðu en félagsmálaráðherrann, sem áherslu hafði lagt á þessa lausn málsins. Vangaveltur Björns Bjamasonar alþingismanns í Morgunblaðinu um að ef ekki verði hægt að lögfesta þá framkvæmd á haustþingi kynni að þurfa að fresta málinu em óþarf- ar. Bæði er um einfalda lagabreyt- ingu að ræða og eins var frá því gengið, að það samkomulag sem í lokin var gert um húsaleigubætur og ég hef hér lýst, yrði ekki til að seinka gildistökunni um n.k. ára- mót. Ábending til leigjenda Áður en frumvarpið var lagt fram á Alþingi var að kröfu for- ystumanna Sambands íslenskra sveitarfélaga fallist á, að sveitarfé- lögin hafi sjálf valfrelsi um hvort þau greiða húsaleigubæturnar til sinna íbúa sem lögin kveða á um. Þrátt fyrir það að ég gengi að þessari kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga áður en frumvarpið var lagt fram á Alþingi, sem var mér þvert um geð, var forsvars- mönnum Sambands íslenskra sveitarfélaga nær búið að takast að koma í veg fyrir þessa kjarabót til láglaunafólks. Á því ætti hins vegar að vera lítil hætta að sveitarfélögin taki ekki upp húsaleigubætur til að bæta kjör sinna íbúa og þjónustu við þá, einkanlega þar sem ríkið greiðir 60% eða 400 millj. af kostn- aði við húsaleigubætur. En í Ijósi þess sem hér hefur verið lýst ættu leigjendur að krefja frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga svara við því hver afstaða þeirra er til þess að veita íbúum sínum rétt til húsaleigubóta samkvæmt nýju lög- unum. Höfundur er félagsmálaráðherra. (£j% efr && Grensásvegi 50 -sími 885566 !|k Bjóðum upp á alla almenna þjónustu í hári og förðun, í nýjum og glæsilegum húsakynnum við Grensásveg 50. mm 1* i pg ú Lögreglukór Reykjavíkur Kórsöngur í Fella- og Hólakirkju Sungið af list LÖGREGLUKÓR Reykjavíkur og RARIK-kórinn héldu vortón- leika í Fella- og Hólakirkju föstu- daginn 29. apríl kl. 20,00. Stjórn- andi lögreglukórsins er Guðlaugur Viktorsson en stjórnandi RARIK- kórsins er Violeta Smid. Undirleik- arar voru hjá lögreglukómum Hrönn Helgadóttir en hjá RARIK- kórnum Pavel Smid. Tónleikarnir byijuðu á því að lögreglukórinn flutti þakkarbæn, hollenskt lag við Ijóð efír Óskar Ingimarsson. Vel fór á því að hefja tónleikana á þessu fallega lagi með undirleik á orgel kirkjunnar. Þá tók RÁRIK-kórinn við og flutti sjö lög af mikilli sönggleði undir stjórn Violetu Smid, sem er mjög skemmtilegur stjórnandi, og náði kórinn góðum tengslum við áheyr- endur. Einsöngvari kórsins, Lóa Jónsdóttir, er með mikla sópran- rödd, og söng listavel lagið Summ- artime í útsetningu Pavel Smid. Síðan tók Lögreglukórinn við. Hann söng lögreglumars eftir Jón- as og Jón Múla Ámasyni með trommuslætti söngstjóra um leið og söngmenn gengu inn, undir dynjandi lófaklappi gesta. Síðan söng kórinn Ég leitaði blárra blóma eftir Gylfa Þ. Gíslason í útsetningu Magnúsar Ingimars- sonar, Seljadalsrósir, Ijóð séra Friðriks Á. Friðrikssonar og Kvöldið er fagurt, enskt lag við ljóð Ingólfs Þorsteinssonar, fyrrv. yfirlögregluþjóns, í útsetningu Páls Kr. Pálssonar, sem lengi var söngstjóri kórsins. Einsöng söng Geir Jón Þórisson, lögregluvarð- stjóri, og skilaði vel. Síðan söng kórinn Svaninn eftir Jennefeld og var það hressilegt. Eftir hlé söng Lögreglukórinn fjögur lög eftir Oddgeir Kristjáns- son og lauk svo söngskránni með Lögreglukórinn og RARIK-kórinn sungu af list, að mati Þorleifs P. Jónssonar, í Fella- og Hólakirkju á dögunum. laginu Sextán tonn eftir M. Tra- vis. Kórinn varð að syngja auka- lag, Þú álfu vorrar..., sem er mjög hressilegt og þróttmikið lag. Guðlaugur Viktorsson, sá menntaði og hæfi söngstjóri, má vel við una með árangurinn — og ekki síður Lögreglukórinn. Að síðustu sungu kórarnir þijú lög saman og var jiað vel þegið. Eitt af þeim var Island er land þitt eftir Magnús Þór Sigmunds- son við ljóð Margrétar Jónsdóttur. Ljóð og lag mjög vinsælt. Ég óska báðum kórunum til hamingu með þetta framtak og þakka góða skemmtun. Höfundur er fyrrverandi lögregluþjpnn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.