Morgunblaðið - 17.05.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ1994 31
AÐSEIMDAR GREINAR
Bygginga,ríðn-
aður er sam-
keppnisiðnaður
ALLT þjóðfélag
okkar er nú á hraðri
leið inn í nýja tíma
aukinna milliríkjavið-
skipta og þar með auk-
innar samkeppni. Al-
mennur iðnaður hefur
raunar búið við óhefta
samkeppni árum sam-
an, en hingað til hafa
stjórnvöld litið svo á
að íslenskur bygging-
ariðnaður sé ekki sam-
keppnisiðnaður og því
sé óþarfi að lagfæra
starfsskilyrði hans eða
samræma þau þeim
skilyrðum sem tíðkast
í nágrannalöndunum.
Þvert á móti hafa stjórnvöld litið
svo á að heppilegt sé að skatt-
leggja sérstaklega þennan iðnað
og aðföng til hans.
Þetta er kolröng stefna sem
verður að breyta. Byggingariðnað-
ur á þegar í harðri samkeppni við
innflutta húshluta, tilbúna glugga,
hurðir, vegg- og þakeiningar. Ætl-
um við virkilega að láta það sama
gerast í byggingariðnaðinum og
gerðist í mörgum öðrum greinum
iðnaðar, nefnilega það að fella nið-
ur tolla á fullbúna vöru en halda
áfram að innheimta ijáröflunartolla
og skatta af aðföngum til okkar
eigin framleiðslu? Höfum við ekk-
ert lært af reynslunni?
Byggingariðnaður er mjög
mannaflsfrekur og launakostnaður
hans því hátt hlutfall af rekstrar-
tekjum. Byggingariðnaðurinn
greiðir tryggingargjald sem er
6,55% af launum á meðan annar
iðnaður, sjávarútvegur og landbún-
aður, greiðir 3,05% gjald. Vöru-
gjald er lagt á marga flokka bygg-
ingarefna, þó heldur hafí að undan-
förnu miðað í þá átt að lækka það
á innlendri framleiðslu. Vörugjald-
inu svipar á margan hátt til sölu-
skattsins gamla og hefur t.d. í för
með sér svipuð áhrif uppsöfnunar
og mismununar og hann hafði.
Á tímum atvinnuleysis mætti
ætla að stjórnvöld legðu á það
áherslu að bæta starfsskilyrði
byggingariðnaðar, t.d. með því að
lækka álögur á þennan iðnað og
nýta heimildir innan EES-samn-
ingsins um íslenska vöruvottun og
staðla vegna veðurfars og annarra
náttúrulegra aðstæðna. Nú væri
líka rétti tíminn til að efla innlenda
hönnun og beina þannig verkefnum
til innlendra aðila.
Vegna uppsöfnunaráhrifa sölu-
skatts, m.a. í byggingarkostnaði,
var á sínum tíma lagt
jöfnunarálag á innflutt
hús og húshluta til að
jafna samkeppnisstöðu
innlendra framleið-
enda. Að sjálfsögðu
var ekkert eðlilegra en
að endurskoða þessa
gjaldtöku eftir að virð-
isaukaskattur tók við
af söluskattinum og
var það gert og gjaldið
lækkað í 3% I septem-
ber 1993.
Nú er þetta jöfnun-
argjald hins vegar fellt
niður án skýringa, án
fyrirvara og án þess
að nokkurt skref hafi
verið stigið í þá átt að lagfæra það
misrétti í samkeppnisstöðu sem
þessi iðnaður á enn við að glíma.
Á tímum atvinnuleysis
ber stjórnvöldum að
bæta starfsskilyrði
byggingariðnaðar og
annars mannaflafreks
iðnaðar, segir Sveinn
Hannesson, t.d. með
því að lækka álögur.
Hér eru að vanda höfð endaskipti
á hlutunum. í stað þess að jafna
og lagfæra starfsskilyrði bygging-
ariðnaðarins hleypur fjármálaráðu-
neytið til og byijar á því að afnema
þessa gjaldtöku í stað þss að leið-
rétta fyrst starfsskilyrðin og af-
nema síðan gjaldið.
Það tók fjármálaráðuneytið ára-
tugi að taka upp virðisaukaskatt í
stað söluskatts og enn er ekki ljóst
hvort nothæfar reglur um undir-
boðs- og jöfnunartolla verða loks
lögfestar á Alþingi en hefðu þurft
að vera komnar fyrir tuttugu árum.
Skipaiðnaðurinn hefur allt fram að
þessu mátt þola óheft undirboð frá
ríkisstyrktum samkeppnisaðilum,
enda er þessi iðngrein nú ein ijúk-
andi rúst. En ef innflytjandi hús-
hluta kvartar yfir 3% jöfnunarálagi
þá eru viðbrögðin í góðu lagi. Þá
þarf ekki að hugsa sig um í tutt-
ugu ár í Arnarhváli.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins.
Sveinn
Hannesson
MACSEA skjámynd
Goð frétt fyrir íslenska bátseigendur.
Nú býðst MACSEA
lííca í bátinní
Nú eru 102 Macsea skipstjórnartæki í íslenskum skipum.
í tilefni af frábærum viðtökum höfum við ákveðið að gefa
bátseigendum kost á þessu frábæra tæki á verði sem
ekki hefur áður sést.
Macsea Standard kostar á þessum tímamótum I
530 þúsund og fylgir Macsea 1
geisladishurinn hverri vél, |
en hann inniheldur öll sjókort íslands
í fullum lit. Sjókortin á skjáinn og
allt veröur lifandi Ijóst!
Kýmdiomidun
Grandagaröi 9 • 101 Reykjavík • Sími (91) 62 26 40
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
SKEIFUNNI.11 • SÍMI 67 97 97
Stilling i
SKEIFUNNI 1.t ,• SIMI 67,97 97
®1 Stilling
SKEIFÚNNI 11 • SÍMI67 97 97
ívörubíla, vagna, riitur
®] Stilling
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97
f