Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 28. MAÍ
Já eða nei - Árni Sigfússon
Guðrún Ágústs- Steinunn V. Ósk-
dóttir arsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ
hefur boðið lesendum
að senda inn spum-
ingar til Árna Sigfús-
sonar borgarstjóra.
Hér fara nokkrar ein-
faldar spurningar sem
hægt er að svara sam-
viskusamlega með jái
eða neii. Ámi Sigfús-
son er beðinn að
svara.
1) í viðtali við viku-
blaðið Eintak segir
Inga Jóna Þórðardótt-
ir að greinargerðir
þær sem hún vann
sem sérlegur ráðgjafi
Markúsar Arnar Ant-
onssonar borgarstjóra séu í hans
vörslu og hans að meta hvort þær
verði birtar. Hefur þú séð þessar
greinargerðir? Já eða nei. Ef ekki,
munt þú leita eftir að fá að sjá
þær? Já eða nei. Ef þú sérð þær,
muntu leyfa borgarbúum að sjá
þær? Já eða nei.
2) ■ í sambandi við Ingu Jónu-
málið hefur verið riijað upp að
einmitt þegar hún var ráðin til
ráðgjafastarfa til borgarstjóra hafi
hann sagt í viðtali við Morgunblað-
ið, 16. janúar 1992, að meirihluti
borgarstjórnar hafi lagt á ráðin
um stórfellda einkavæðingu.
Markús sagði orðrétt: „Menn eru
þá fyrst og fremst með það í huga
að Rafmagnsveita Reykjavíkur
verði gerð að hlutafélagi, annað
hvort algjörlega í eigu borgarinnar
eða með það að markmiði að selja
hluta á almennum markaði. Þetta
eru stórar pólitískar ákvarðanir
og breyting í þessa átt yrði mjög
í anda þeirrar stefnu sem ríkis-
stjómin hefur mótað og stefnu-
skrár landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins.“ Þú, Árni Sigfússon,
varst í meirihluta á þessum tíma.
Mótmæltir þú þessum áformum
meirihlutans? Já eða nei.
3) Hafir þú mótmælt áformum
meirihlutans um „stórfellda einka-
væðingu“ eins og segir að til hafi
Getur Árni Sigfússon
svarað þessum einföldu
spurningum samvisku-
samlega án þess að
komast í mótsögn við
sjálfan sig, samþykktir
borgarmálaráðs Sjálf-
stæðisflokksins og
landsfund flokksins,
spyrja þær Guðrún
Ágústsdóttir og Stein-
unn V. Oskarsdóttir,
frambjóðendur á R-
lista.
staðið getur þú þá sýnt fram á
þau mótmæli? Já eða nei.
4) Mótmæltu einhveijir aðrir
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sem nú eru í framboði? Já eða
nei.
5) í viðtalinu segir borgarstjór-
inn sem nú er á biðlaunum að
þessi einkavæðingaráform séu í
anda stefnuskrár Landsfundar
Sjálfstæðisflokksins. Þú varst á
Landsfundinum. Greiddir þú at-
kvæði gegn stefnuskrá flokksins?
Já eða nei.
6) I sambandi við Ingu Jónu-
málið hefur einnig verið rifjað upp
að þegar hún lauk störfum hafi
borgarmálaráð Sjálfstæðisflokks-
ins samþykkt eftirfarandi: „Rétt
er að einkavæðing borgarfyrir-
tækja í samkeppni við einkafyrir-
tæki hafi forgang, en einnig er
hægt að einkavæða ýmsan þjón-
usturekstur borgarinnar sem ekki
er í beinni samkeppni við einkaað-
ila á markaðnum." Þetta var í
árslok 1992. Samþykktir þú þetta?
Já eða nei. Mótmæltir þú þessari
stefnu? Já eða nei. Hafír þú mót-
mælt henni hvar kemur það þá
fram?
7) Ert þú tilbúinn að koma fram
núna fyrir kosningar og segja: Ég
mótmæli stefnuskrá Landsfundar
Sjálfstæðisflokksins. Já eða nei.
Ertu tilbúinn að segja: ég mót-
mæli áformum meirihluta Sjálf-
stæðismanna í borginni um stór-
fellda einkavæðingu eins og Mark-
ús Örn lýsti þeim í upphafi árs
1992? Já eða nei. Ertu tilbúinn
að segja: Ég mótmæli samþykkt
borgarmálaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í árslok 1992? Já eða nei. Ef
þú ert ekki tilbúinn til þess, er það
þá vegna þess að þú stóðst að öll-
um þessum samþykktum sjálfur?
Já eða nei - Árni Sigfússon.
Guðrún Ágústsdóttir skipar 2.sæti
Reykjavíkurlistans og Steinunn
V. Óskarsdóttirþað 7.
Atvinnumálin verður
að taka föstum tökum
SÍÐUSTU mánuði
hefur atvinnuleysi ver-
ið mikið í Kópavogi.
Láta mun nærri að
milli 400-500 manns
hafi verið atvinnulausir
síðustu mánuði. Það
liggur við að hægt sé
að tala um stöðugt at-
vinnuleysi hjá stórum
hópi fólks. Víst hafa
verið erfiðir tímar í ís-
lensku þjóðfélagi, en
einhvenp veginn finnst
manni sem allt of lítið
sé gert til að bæta
ástandið. Fyrirtæki
hafa verið að „hag-
ræða“ hjá sér, en sú
hagræðing virðist manni fyrst og
fremst leiða til fækkunnar starfs-
fólks. Kannski er það líka megin
tilgangur hagræðingarinnar. Hvað
er til ráða, ekki geta menn látið
sem ekkert sé og einungis beðið
eftir betri tíð. Nú reynir á þá sem
stjórna, bæði þá sem stjórna land-
inu og ekki síður þá sem stjórna
sveitarfélögunum. Atvinnumálin
eru einhver mikilvægustu mál
hvers sveitarfélags og því er nauð-
synlegt fyrir hveija sveitarstjóm
að líta í eigin barm og skoða hvern-
ig mál hafa þróast á heimaslóð.
Eins og áður segir hafa milli
400-500 Kópavogsbúar verið at-
vinnulausir síðustu
mánuði. Núverandi
meirihluti framsókn-
ar- og sjálfstæðis-
manna virðist ekki
hafa miklar áhyggjur
af þeirri stöðu. Þessi
meirihluti hefur enga
atvinnustefnu nema
ef vera skyldi að telja
sjálfum sér trú um,
að hér í Kópavogi séu
svo miklar fram-
kvæmdir í gangi, að
þær hljóti að uppr-
æta atvinnuleysið.
Svo undarlegt sem
það kann að virðast,
þá minnkar ekki at-
vinnuleysið þótt lóðum sé úthlut-
að. Útþenslustefna meirihlutans
hefur ekkert minnkað atvinnuleys-
ið hjá hinum almenna bæjarbúa.
Hvers vegna? Þessi meirihluti
framsóknar- og sjálfstæðismanna
hefur sýnt hvers hann er megnug-
ur og sem betur fer er valdatími
hans senn á enda. Kópavogsbúar
þurfa stjórnendur sem taka á hlut-
unum og umfram allt hafa eitt-
hvert frumkvæði.
Margt hægt að gera
Við jafnaðarmenn lýsum stríði
á hendur því atvinnuleysi sem nú
ríkir í Kópavogi. Við munum beita
Útþenslustefna meirí-
hlutans í Kópavogi hef-
ur að mati Guðmundar
Oddssonar ekkert
minnkað atvinnuleysið í
bænum.
öllu afli bæjarfélagsins til lausnar,
því bæjaryfirvöld geta mjög víða
komið til aðstoðar. Hér skulu
nokkur atriði nefnd:
* Við verðum að auðvelda þeim
þjónustufyrirtækjum sem í bænum
eru að færa út kvíarnar til að þau
geti aflað sér aukinna viðskipta.
Til að auðvelda þetta eigum við
að stofna embætti ferðamála- og
upplýsinga- fulltrúa fyrir Kópa-
vog.
* Við eigum að bjóða fyrirtækjum
að greiða laun ráðgjafa sem skipu-
leggur og aðstoðar þau við mark-
aðssetningu.
* Við eigum að hvetja húsráðend-
ur til að endurbæta húseignir sín-
ar með því að veita þeim ívilnun
í greiðslu fasteignagjalda, t.d. í 5
ár, í ákveðnu hlutfalli við það fjár-
magn sem endurbæturnar kosta.
* Við eigum að koma á fót hús-
Guðmundur
Oddsson
næði, þar sem eldri bæjarbúar
gætu unnið að hugðarefnum sín-
um.
* Við eigum að koma á fót atvinn-
uráðgjöf fyrir atvinnulausa.
* Við eigum að leita ráða hjá
stjórnendum og starfsmönnum
fyrirtækja í bænum. Kanna hvaða
möguleikar eru á stækkun fyrir-
tækjanna. Hvað þarf að gera til
að slíkt sé mögulegt og hvað það
myndi kosta. Hve marga starfs-
menn væri þá hægt að ráða til
langframa. Síðast en ekki síst er
að fá allar þær hugmyndir sem
þessir aðilar eru með, sem aukið
gæti atvinnuna í bænum.
Verst er að gera ekki neitt
Hér að ofan hef ég nefnt nokk-
ur atriði þar sem bæjarfélagið
getur á mjög auðveldan hátt haft
frumkvæði. Þegar við jafnaðar-
menn tökum við stjórninni í Kópa-
vogi munum við ekki sitja með
hendur í skauti, eins og núverandi
meirihluti hefur gert, heldur taka
á vandanum og leysa hann. Við
samþykkt síðustu fjárhagsáætlun-
ar lögðum við til að bærinn legði
fram 20 milljónir króna til nýrrar
atvinnustarfsemi, en meirihlutinn
felldi þá tillögu snarlega, trúr
þeirri stefnu sinni að gera ekkert
í þessum málaflokki. Verst af öllu
er að sitja við stjórnvölinn og gera
ekki neitt.
Kópavogsbúar: Nú losum við
bæinn við þennan duglausa meiri-
hluta framsóknar- og sjálfstæðis-
manna og kjósum jafnaðarmenn
til forystu á ný.
Höfundur skipar 1. sæti á lista
jafnað'armanna í Kópavogi.
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 39
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
S71800
Mazda 323 F 16v Fastback ’92, rauður,
g., ek. 41 þ. km., rafm. í öllu, hiti í
sætum o.fl. V. 1080 þús.
MMC Lancer EXE '92, hlaöbakur, dökk-
blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., rafm. í öllu
.fl. V. 1160 þús., sk. á ód.
Toyota Double Cab SR5 ’92, hvítur, ek.
43 þ. Gott eintak. V. 1830 þús.
V.W. Golf Champ ’89, blár, sjálfsk., ek.
92 þ., 4ra dyra. V. 780 þús.
MMC Colt GLi '93, rauður, 5 g., ek. að-
eins 2 þ. km. Tilboðsverð kr. 980 þús.
Chevrolet Camaro RS '91, blár, sjálfsk.,
6 cyl., ek. 39 þ. km. V. 1390 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL '92, hvítur, 5 g., ek.
aðeins 18 þ. km. Sem nýr. V. 890 þús.
Einnig: Toyota Corolla GL Special Series
'91, 5 dyra, 5 g., ek. 48 þ. km., rafm. í
rúðum o.fl. V. 830 þús., sk. á ód.
MMC Pajero V-6 langur '91, sjálfsk., ek.
61 þ. km., m/öllu. V. 2350 þús., sk. á ód.
MMC Lancer hlaðbakur GLXi ’90,
sjálfsk., ke. 52 þ. V. 850 þús.
Nissan Vanette diesel sendib. '92, 5 g
ek. 107 þ., 7 manna. V. 1280 þús., sk. á ód.
Subaru Legacy 2.0 station 4x4 '93,
steingrár, sjálfsk., ek. 14 þ., álfelgur, rafm.
í öllu. V. 2.050 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX station 4x4 ’87
g., ek. 141 þ. V. 560 þús.
Ford Escort XR3i ’87, hvítur, 5 g., ek. 96
þ. km., álfelgur, samlitir stuöarar o.fl.
V. 590 þús., sk. á ód.
Nissan Sunny 1.6 SLX hlaðbakur '91
rauður, 5 g., ek. 53 þ., álfelgur, spoiler,
rafm. í rúðum o.fl. V. 890 þús.
Nissan Sunny SLX 4ra dyra '91, grásans,
sjálfsk., ek. 45 þ., rafm. í rúðum o.fl. V
890 þús.
MMC Pajero V-6 langur ’91, sjálfsk., ek
39 þ. V. 2350 þús.
Toyota Double Cab diesel m/húsi '93, 5
g., ek. aðeins 18 þ. km. V. 2050 þús.
Wagoner LTD ’86, sjálfsk., m/öllu, ek.
aðeins 81 þ. km. V. 1190 þús. Vili Cher-
okee eða Pajero '90-’92.
Subaru Legacy Sedan 2,2 ’91, sjálfsk.
ek. 55 þ. km., spoiler, rafm. í rúðum, álfelg
ur o.fl. V. 1680 þús., sk. á ód.
BMW 520 IA '90, grásans, sjálfsk., vél
nýuppt., rafm. í rúðum o.fl.
Tilboðsverö kr. 1590 þús.
Toyota Corolla Hatchback GLi '93, hvít
ur, 5 g., ek. 19 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 1250 þús.
Volkswagen Golf CL 1800 ’92, rauður,
dyra, 5 g., ek. 50 þ. km. V. 1050 þús., sk.
á ód.
MMC Lancer GLXi ’91, 5 g., ek. 69 þ.
V. 900 þús.
Ford Escort RS turbo '88, rauður, 5 g.,
ek. 80 þ. km., álflegur, ABS, spoiler o.fl.
V. 850 þús.
Fjörug bílaviðskipti
Vantar góða bfla á sýningarsvæðið.