Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ1994 41
BJÖRN MAGNÚSSON
PRÓFESSOR
í DAG, 17. maí, er
níræður dr. theol. Björn
Magnússon, sem allt
frá árinu 1937 hefur
) komið mjög við sögu
I guðfræðideildar Há-
skóla íslands. Hann var
settur dósent veturinn
1937-1938 og skipaður
16. október 1945 og
síðan prófessor við
deildina allt þar til hann
lét af embætti fyrir ald-
urs sakir fyrir 20 árum.
Allt starf sitt við deild-
f ina vann hann af stakri
) samviskusemi og var
I hollráður í samstarfi
" okkar kennaranna. Ljúfmennska
einkenndi allt dagfar hans og þeirra
hjóna, hans og frú Charlotte Jóns-
dóttur, sem nú er látin. Okkur hefur
ætíð verið vel til vina þótt á okkur
sé 20 ára aldursmunur og þótt hann
hafi orðið stúdent í sama mánuði
og ég fæddist. Svona brúast árabilin
þegar á ævina líður og menn vinna
I saman af vinarþeli.
| Sérgrein dr. Björns er nýjatesta-
mentisfræði, en einnig kenndi hann
* siðfræði og prestslegar greinar
nokkrar. Var hann biblíufastur í
kennslu sinni í Nýja testamenti.
Samkeppnisritgerð hans um dós-
entsembættið 1937 var gefin út ný-
lega, og ber hún vitni um mikinn
lærdóm. En það sem vekur sérstaka
athygli er sá fjöldi og mikla fjöl-
breytni þeirra fræðirita sem honum
hafði tekist að leiða saman í ritgerð-
| inni, þótt einangraður væri í sveita-
. prestakalli og fjarri þeim hjálpar-
tækjum sem menn búa nú við með
fjölbreyttu háskólabókasafni og tölv-
usamskiptum við bókaskrár um heim
allan og ljósprentuðum tímarita-
greinum hvaðanæva að í veröldinni
gegnum póstinn og safnið. Dr. Björn
er sannur afreksmaður á sviði fræða
og sést það ekki síst á þeirri elju
sem það kostaði að orðtaka Nýja og
Gamla testamentið og semja orða-
lykla að báðum. Því miður kom að-
eins sá fyrri út á prenti, en sá síð-
I ari er til í einu eintaki í deildinni
og mikið notaður, eins og nærri má
geta. En það var ættfræðin sem var
sérstök einkalist hans og eftirlæti.
Hefur hann gefið út fjölda bóka um
þau efni. Svo mikil var eljusemi dr.
Björns fyrr á árum að hann mátti
vart kjurr sitja á fundum. Dræjust
umræður á langinn á deildarfundum
var hann iðulega staðinn upp og
farinn að lagfæra uppröðun bóka í
bókaskápum V. stofu, þar sem fund-
irnir voru haldnir. — Og einnig fann
hann sér verkefni fyrir hendurnar
með smíðum. Lyfti hann þakinu á
íbúð þeirra hjóna á Bergstaðastræti,
smíðaði stiga upp og
innréttaði vistlega
bókastofu og vinnusal
handa sjálfum sér þar
uppi. En kærastar hafa
honum sjálfsagt verið
sumarvikurnar við
Hreðavatn þar sem þau
hjón dvöldust hvert
sumar frá því kennslu
lauk og þar til hún hófst
á ný um haustið, er
hann kom brúnn og
sællegur í bæinn, haf-
andi smíðað þar vistleg-
an sumarbústað og
unnið að því að halda
honum við hvert sumar,
auk silungsveiða og annarra tóm-
stundastarfa, einkum smíða. En þar
efra var tímanum ekki varið til slíkra
starfa einna heldur var stúderað.
Urðu þar til bækur hans margar.
Dr. Björn er sonur séra Magnúsar
Bjarnarsonar, sem var prestur í
Kirkjubæjarklaustursprestakalli í 35
ár, sat á Prestsbakka, og konu hans
Ingibjargar Brynjólfsdóttur prests í
Vestmannaeyjum. Var séra Magnús
margvíslegum hæfileikum og dyggð-
um prýddur maður, og einkenndi það
son hans og þau hjón bæði að lifa
dyggðugu lífi, sem sést best á starfi
dr. Björns að bindindismálum og
þeim anda sem ríkti á heimili þeirra
og barnanna átta er öll bera foreldr-
um sínum fagurt vitni. A það einnig
við um Magnús þótt látinn sé, öllum
mikill harmdauði. Með hljóðlátu
trúnaðartrausti báru þau hjón sorg
sína við hið sviplega fráfall hans.
Er ég nú hylli gamlan kennara
minn og síðar samstarfsmann og
þakka honum ljúfmannlega sam-
vinnu, minnist ég þess hversu blíð-
lega hann tók öllum tillögum mínum
um starf deildarinnar er ég, þrítugur
sprellikarl, hlaut þar embætti. Var
hann meira að segja einn þátttak-
enda í frjálsu hebreskunámskeiði er
ég hélt. Sýnir það best fræðaþorsta
eljumannsins og ljúfmennsku sam-
kennarans. Það er með miklum kær-
leikum að ég hylli nú prófessor dr.
Björn Magnússon og flyt honum
þakkir sem ég á bágt með að koma
orðum að svo vel sé. Við hjónin send-
um honum hlýjar kveðjur og óskum
honum fagurra sumardaga um árs-
ins hring.
Þórir Kr. Þórðarson.
í dag, 17. maí, verður heiðursmað-
urinn Björn Magnússon níræður og
er við hæfi að minnast þeirra tíma-
móta. Dr. theol. Björn Magnússon
var kennari við guðfræðideild Há-
skóla íslands í nær þijá áratugi, frá
1945 til 1974, er hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir. Dr. Björn er fædd-
ur að Prestsbakka á Síðu þann 17.
maí 1904. Foreidrar hans voru hjón-
in séra Magnús Bjarnarson prófastur
og Ingibjörg Brynjólfsdóttir. Björn
lauk embættisprófi frá guðfræði-
deild Háskóla Islands 1928 og var
vígður sama ár aðstoðarprestur föð-
ur síns að Prestsbakka, en veitt
Borg á Mýrum árið eftir. Hann var
skipaður dósent við guðfræðideild
1945 og prófessor 1949.
Björn er hár og vörpulegur mað-
ur, hlýr í viðmóti, hógvær og öfga-
laus en gat verið fastur fyrir þegar
því var að skipta. Hann var vinsæll
kennari og virtur af öllum nemend-
um sínum. Kennslugreinar hans voru
nýjatestamentisfræði, einkum rit-
skýring Jóhannesarguðspjalls og
guðfræði Nýja testamentisins og
lengst af siðfræði og kennimannleg
guðfræði. Hann samdi nokkrar
kennslubækur og fræðirit í guð-
fræði, t.d. skýringarrit yfir Jóhann-
esarguðspjall og Jóhannesarbréfin
og rit um fermingarfræðslu, sem
hann nefndi Kenn þeim unga. Árið
1965 gaf Björn út prédikanasafnið
Frá haustnóttum til hásumars. Um
nokkur meginatriði kristinnar kenn-
ingar. Þar setur hann fram túlkun
sína á völdum köflum Nýja testa-
mentisins.
Björn hefur verið afkastamikill
fræðimaður bæði á sviði guðfræði
og ættfræði. Auk ofangreindra rita
vann hann það þrekvirki að semja
orðalykil að útgáfu íslensku Bibl-
íunnar frá 1912 en áður hafði hann
samið orðalykil að Passíusálmunum.
Árið 1951 gaf ísafoldarprentsmiðja
út orðalykil hans að Nýja testament-
inu og árið 1976 gaf Björn guðfræði-
deild vélritað handrit að orðalykli
Gamla testamentisins. Hann vann
þetta verk áður en menn voru farn-
ir að beita tölvum við slíka vinnu
og geta menn varla gert sér grein
fyrir hve mikið þolinmæðisverk það
hefur verið. Nú á þessu ári kemur
út orðalykill að útgáfu íslensku Bibl-
íunnar frá 1981 sem unninn hefur
verið með tölvutækni. Þar er Björns
getið sem brautryðjanda við samn-
ingu orðalykla á íslandi.
Björn hefur samið merk ritverk í
ættfræði og persónusögu, má þar
nefna Guðfræðingatöl og ritin Ættir
Síðupresta sem kom út 1960, Vest-
ur-Skaftfellingar 1703 - 1966, sem
kom út 1970 og Frændgarð, sem
kom út 1982. Einnig hefur hann
samið Nafnalykil að manntali á ís-
landi 1801 og 1845 og Mannanöfn
á Islandi samkvæmt manntölum
1801 og 1845, sem kom út í fyrra.
Á þessu ári kom út á vegum
Guðfræðistofnunar samkeppnisrit-
gerð sem Björn samdi er hann sótti
um dósentsembætti við guðfræði-
deild árið 1936. Nefnist hún Um
sérkenni kristindómsins. Ritgerð
þessi er verðugt dæmi um íslenska
guðfræði á þeim tíma. Það má sæta
furðu að hún skyldi ekki hafa verið
gefin út fyrr.
FRR SIMI
nýr & fullkominn j
Litla trompiðfrá Dancall erfullkomin lausn
fyrir þá sem gera kröfur um fágaða hönnun,
talgœði, lipurð og gott verð.
• Einstaklega auðveldur í notkun
• Vegur aðeins 450 grömm (m/rafhlöðu)
• Rafhlöður endast í 16 klst.
• Innbyggð símaskrá í stafrófsröð
• Flett upp eftir nafni
• Innbyggður símboði
• Verðlaunaður fyrir hönnun
Kynningarverð kemur á óvart!
radiomidun
Grandagarði 9-101 Reykjavík • Sími (91) 62 26 40
Auk frumsaminna verka hefur
Björn þýtt margar fræðibækur á
íslensku, má m.a. nefna ritin Að
vera kristinn eftir þýska guðfræð-
inginn Hans Kiing, og Launhelgar
og lokuð félög eftir sænska trúar-
bragðafræðinginn Efraim Briem.
Guðfræðideild sæmdi Björn heið-
ursdoktorsnafnbót árið 1976 fyrir
fræðistörf.
Ég hef átt því láni að fagna að
þekkja Björn allt frá því að ég hóf
nám í guðfræðideildinni og ég minn-
ist þess hve hlýlega hann bauð mig
velkominn í deildina. Sem deildarfor-
seti réð hann mig til kennslu í grísku
við lát Kristins Ármannssonar rekt-
ors og minnist ég þess hve ljúfur
og skilningsríkur samstarfsmaður
hann var. Síðan tók ég við embætti
hans er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Við störfuðum saman í þýðingar-
nefnd Nýja testamentisins um nokk-
urra ára bil. Þar kynntist ég hve
nákvæmur og vandvirkur fræðimað-
ur hann er.
Eiginkona Björns var frú Char-
lotte K. Jónsdóttir ættuð frá Stykkis-
hólmi. Hún var elskuleg kona og
gott að vera í návist hennar. Það
var mikill missir fyrir Björn þegar
hún dó árið 1977. Eftir lát frú Char-
lotte hefur Björn búið einn að Berg-
staðastræti 56. Þau áttu 8 börn og
eru afkomendur þeirra hjóna nú
komnir vel á 7. tuginn.
Fyrir hönd guðfræðideildar óska
ég dr. Birni hjartanlega til hamingju
með afmælið og þakka honum langt
og ánægjuríkt samstarf.
Björn verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Jón Sveinbjörnsson,
deildarforseti.
I
í SUMAR
EITTU BARNINU
ÞÍNU FORSKOT
í LÍFINU!
TOLVUSKOLIFYRIR10-16 ARA
í sumar býður Tölvuskóli Reykjavikur upp á 24 klst. 2 vikna
tölvunámskeið, þar sem kennt er á PC tölvur, en Reykjavikurborg
hefur nú tölvuvætt alla grunnskóla borgarinnar með PC tölvum.
Námið miðar að þvi að veita almenna tölvuþekkingu og koma
nemendum af stað við að nýta tölvuna sér til gagns og gamans við
nám.
Farið er i fingrasetningu eg vélritunaræfingar, Windows
og stýrikerfi tölvunnar, ásamt almennri tölvufræði. Með
þann grunn í farteskinu, liggur leiðin i töflureikna eg
rítvinnslu- teikni- eg leikjaforrit.
Verð námskeiðanna er vel undir almennum námskeiðsgjöldum.
Kennt er alla virka daga frá 9 -12 eða 13 - 16.
TOLVUNAM FYRIR 6-10 ARA
Skemmtilegt og gagnlegt
Á némskeiðinu er lögð éhersla á:
Wlndaws gluggakerfið eg ýmis notendaforrit sem
tengjast þvi.
Ferritunarmálið Lego - búin verða til forrit og ýmsar
teikniskipanir skoðaðar.
Litið á ýmis kennsiu- og teikniforrit.
Forrit sem þjálfa rökhugsun, t.d. Maths Dragon frá
Coombe Valley Software.
í lokin fá allir nemendur 5 diska með um 70 tölvuleikjum og
skemmtilegum kennsluforritum sem veganesti frá Tölvuskóla
Reykjavíkur, auk ílest allra forritanna sem notuð verða og
viðurkenningarskjal.
FORRITUNARNAM FYRIR UNGLINGA
30 klst. gagnlegt nám íyrir unglinga þar sem kennd verður forritun
í QBasic.
Markmiðið með náminu er að nemendur verði vel að sér
i notkun QBasic og geti sett saman einfalda leiki með
hreyflmyndum og hljéði.
í lokin fá allir þátttakendur afrit af vinnu hinna og um 1 MB af
forritunarkóðum og auðvitað viðurkenningarskjal.
Hringdu og fáðu sendan bækling
Tölvuskóli Reykiavíkur
BORCflRTÓNI 28. 105 REYRJflUÍK. SÍmi 616699. <ax 616696