Morgunblaðið - 17.05.1994, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 17.05.1994, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ INGIBJORGINGI- MUNDARDÓTTIR tlngibjörg Ingi- mundardóttir var fædd 11. febr- úar 1923 að Hala í Djúpárhreppi. Hún lést í Landspítalan- um 9. maí sl. eftir stutta sjúkrahús- legu. Hún fluttist ung til Keflavíkur með foreldrum sín- um, þeim Ingi- mundi Jónssyni kaupmanni og Sig- ríði Þórðardóttur húsfrú. Eignuðust þau átta börn en þrjár dætur komust til fullorð- insára: Kristín, fædd 11. maí 1916 gift Þorsteini Jóhannes- syni útgerðamanni í Garði, Ingunn fædd 15. febrúar 1920, maður hennar var W.H. Risner sem er látinn en hún býr í Ameríku, og Ingibjörgu. Ingi- björg giftist Jakobi Indriða- syni frá Asatúni sumardaginn fyrsta 1948, hann lést 29. mars 1991. Saman áttu þau sjö börn. Þau eru: Sigríður Gróa, mat- ráðskona, f. 25. september 1947; Ingunn Kristín, kennari, f. 3. október 1948, maður henn- ar er Guðmundur Páll Ólafs- son, dætur þeirra eru Ingi- björg Snædal og Halla; Guðný, f. 8. apríl 1950, d. 16. apríl 1950; Kristinn, starfsmaður Síldarvinnslunnar á Norðfirði, f. 16. janúar 1953; Elín Jónína hjúkrunarfræðingur, f. 28. jan- úar 1954, börn hennar eru Jakob Snævar og Jóna Marín; Ingimundur, kjötiðnaðarmað- ur, f. 26. maí 1957; og Helga, gjaldkeri, f. 19. júní 1962, maður hennar er Olafur Ingi Jónsson, börn þeirra eru Jón Gunnar og Hjördís. Utför Ingibjargar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag. STÚLKA var skírð Ingibjörg eins og föðuramman og föðursystir hétu. Og Ingibjargirnar urðu fleiri. Þtjú bamaböm ömmunnar vom Ingibjargir og með næstu kynslóð fjölgaði þeim enn. Þetta er eins konar ætt Ingibjarga og fram á þennan dag hafa stúlkur erft gæfuríka nafnið. Ingibjörg Ingimundardóttir ólst upp í Hala til 10 ára aldurs ásamt tveimur eldri systrum sínum er upp komust. Elst þeirra er Kristín sem gift er Þorsteini Jóhannessyni út- gerðarmanni í Garði en í miðið var Ingunn Jóna Risner sem er ekkja búsett í Bandaríkjunum. Búskapnum í Hala lauk árið 1933. Þá vom erfiðir tímar til Blómastofa Friöfinns Suöuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öfl kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. m sveita; kreppa og al- menn fátækt. Hjónin höfðu misst drengina sína tvo, föðurarfleifð Sigríðar var seld. Brýr vom brotnar. Leiðin lá til Keflavíkur og þar kom búfræðings- og lýðháskólamennt- un Ingimundi til góða við að stofna verslun. Þá var Keflavík lítið sjávarþorp og Ingi- mundarbúð einnig lítil matvöra- og allra- handa-verslun. Kefla- vík óx hratt og varð allstór bær iðandi af vinnandi mannfólki og umsvif í Ingimundar- búð jukust — einkum þó eftir að þangað var ráðinn glaðvær dugn- aðarforkur, Jakob Indriðason, frá Asatúni í Hrunamannahreppi. Jakob var hvers manns hugljúfi; grandvar til orðs og æðis og hrók- ur í vinahópi. Hann kynntist kaup: mannsdótturinni Ingibjörgu. í lundemi var hún í mörgu ólík hon- um, fremur ómannblendin en ljúf og rólynd. Hún fór dult með tilfinn- ingar sínar; en mannkostir hennar vom í mannlegum gæðum. Þau Ingibjörg og Jakob stofnuðu eigin verslun, Brekkubúð, eftir að Jakob hafði unnið hjá tengdaföður sínum í 18 ár. Þau byijuðu smátt, versluðu fyrst í bílskúr við heimili sitt sem varð hluti vinnustaðarins. Jafnhliða því sem börnin uxu úr grasi og tóku til hendinni stækk- aði Brekkubúð, viðbygging á við- byggingu. En allt fram streym- ir ... Börnin urðu fullorðin. Hjónin hættu búðarrekstri og skyndilega kvöldaði þegar Jakob dó árið 1991. Þrátt fyrir allar dyggðir Jakobs var Ingibjörg kjölfestan í sambúð þeirra. Hún var staðföst og bjó yfir ró og hugarþeli sem brást aldr- ei. Ég man ekki eftir að hafa kynnst rólyndari konu. Hún virkaði sem högghlíf á hamagang og læti, á áhyggjur og streitu og það var ekki lítils virði í endalausu striti. Ingibjörg var seintekin og tók ekki öllum. Við fyrstu kynni okkar kom ég óvænt á heimili þeirra. Það var á matmálstíma og hún bauð mér upp á verkamannasteik með þeim orðum að ef ég gæti borðað þennan mat með ánægju þá væri ég velkominn til borðs með þeim. í loftinu lá — annars ekki. Þessi öndvegis kona var ekki gefin fyrir hégóma og duttlunga. Hún var raunagóð og ávallt boðin og búin ef hjálpar var þörf. Þótt mér sé ljúft að viðurkenna að Jakob væri mér meiri félagi en Ingibjörg þá geri ég ekki upp á milli vináttu þeirra og hlýju í minn garð. Ingibjörg fór bara svo fínlega með tilfinningarnar. Á seinni árum var þó áberandi að hún kiökknaði í miðri setningu þegar eitthvað gladdi hana eða syrgði. Þá var Erfídrykkjiir Glæsileg kaííi- hlaðborð íiillegir sítlir og mjög gpð jijómista. Upplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR HÚTEL LOnLEIBIft MINNINGAR auðsærra en áður að innan við skynsamlegt fálæti hennar var hjartarík gæðakona. Barnabörnin fóra nærri um það. Ingibjörg átti barnaláni að fagna og á ævikvöldinu naut hún ein- stakrar umhyggju. Hennar blessun var að búa hjá Helgu, Ólafi Inga og börnunum. Örlæti þeirra og natni er fágæt nú til dags en alveg í anda Ingibjargar og Jakobs. Blessuð veri minning Ingibjarg- ar Ingimundardóttur. _ Guðmundur Páll Ólafsson. Okkur langar sambýlisfólkinu á Norðurgarði 7 síðastliðin þijú ár, að minnast móður, tengdamóður og ömmu, Ingibjargar Ingimundar- dóttur. Þegar pabbi, tengdafaðir og afi dó fluttum við til ömmu, því heilsu hennar var aðeins farið að hraka. Sambýli okkar gekk alger- lega áfallalaust. Amma var barnabörnum sínum góð og þau glöddu hana með nær- veru sinni, henni fannst lífið auð- veldara með svolítin eril í kringum sig. Oft gerði hún okkur foreldmn- um kleift að bregða okkur frá stund og stund, eins eftir að móðir- in fór að vinna var alveg sjálfsagt að brúa bilið milli leikskólatíma og þar til vinnudegi lauk. Allt gekk upp, allir fengu sitt og voru ánægð- ir. Börnin sakna ömmu sinnar og skilja ekki vel hvernig lífið endar. Húsið er svo tómt án hennar. Við fengum þó smá aðlögun á meðan hún dvaldi þessa fáu daga á sjúkra- húsinu. Þau sættast helst á það að nú eru amma og afi komin sam- an aftur, heilbrigð og hamingjusöm hjá Guði. Margt gerðum við saman þessi ár og eru minningarnar góðar. Vinir okkar voru hennar vinir og vinir hennar okkar vinir. Alltaf ef við fórum eitthvað komu Ella og fjölskylda hennar eins og sjálfgefið og voru hjá ömmu eða eitthvert hinna systkinanna. Alltaf vora lausnir, okkur fannst við aldrei bundin eða þvinguð af sambýlinu og amma ánægð að vera okkur ekki til byrði. Núna þegar hún fékk þetta áfall og fahn að ekki var afturkvæmt heim var eins og eilífð- in kallaði. Elsku mamma, tengdamóðir og amma, okkur langar að þakka þér samveruna og við eigum eftir að sakna þín. Góður Guð býður þér ból í eilífðinni. Takk fyrir allt. Helga, Óli, Jón Gunnar og Hjördís. Elsku amma. ' Ég sakna samveru þinnar, ég þakka þér fyrir allar okkar góðu stundir í Norðurgarðinum. Þú sagðir mér frá gömlu dögun- um þegar þú varst stelpa. Það var svo notálegt að vera með þér á morgnana að læra, þú varst líka svo þolinmóð og dugleg að spila við mig. Elsku amma mín, ég vona að þú hafir það gott hjá afa. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. frá Presthólum) Þín, Jóna Marín. MARGRÉT ÁSMUNDSDÓTTIR + Margrét Valdís Ásmundsdóttir húsmóðir fæddist 20. júní 1925 á Akranesi. Hún iést á Vífilsstaðaspítala 11. maí 1994. For- eldrar hennar voru Ásmundur Bjarna- son frá Bæjarstæði á Akranesi og Hall- dóra Gunnarsdóttir frá Fellsaxiarkoti í Skilamannahreppi. Eftirlifandi eigin- maður Margrétar er Þórir Haralds- son vörubílstjóri sem hún gift- ist 1948. Margrét eignaðist eina dóttur, Hallfríði, f. 1945, með Skúla Sigurðssyni. Börn henn- ar og Þóris eru: Hafberg, f. 1949; Ásmundur Ingimar, f. 1951; Halldóra, f. 1952; Sigurð- ur Helgi, f. 1953; Þórir, f. 1955; Benedikt, f. 1960 og Bjarni, f. 1962. Útför Margrétar verður gerð frá Langholtskirkju í dag. GAKK þú hjóður um garð náung- ans, aldrei er að vita hvað tíminn ber í skauti sínu, enginn veit hve- nær kveður hinsta sinni vini og venslaða. Við hittumst og kveðjumst, en vitum ekki hvort finnumst aftur, þannig var það er við hjónin fundum mágkonu mína Margréti Ásmunds- dóttur á Vífilsstöðum, en hún var búin að liggja þar langa sjúkdóms- legu og beijast við erfiðan lungna- sjúkdóm sinni hetjulegu baráttu, sem þó er alltaf vonlaus, því alltaf er það dauðinn sem að lokum sigr- ar hversu hetjulega sem er barist og svo fer fyrir okkur öllum, þetta er leiðin okkar allra, en samt bjugg- umst við, og vonuðum að geta hitt hana einu sinni enn, því þó mikið væri af henni dregið og dauðinn hefði bersýnilega tekið hana frá og ákveðið hennar aldurtila, þá vorum við ekki svo spök að við sæjum þann dag fyrir okkur, þegar hún sagði með glöðum rómi en brostnu þreki þó: Eg er svosem ekkert að fara að deyja, þið megið ekki taka það svoleiðis, þá tókum við undir það með henni og sögðum að við værum heldur ekki að hugsa um það og vikum talinu að öðru, hún var furðu hress þó sýnilega væri nokkuð af henni dregið og hún dott- aði eða mókti öðrahvora, - hún var örmagna og þreytt og féll í stutt mók milli þess að hún talaði af full- um skýrleik og gamansemi, - hún virtist vera með fullri rænu og reyndi að láta sem minnst á því bera sem þjáði hana mest. Þó það færi ekki milli mála að farið væri að styttast í fyrir henni, bjuggumst við ekki við að svona væri það langt komið, en þetta sýn- ir okkur best hvað við eram lítils vitandi um líðan’annara, því næst er við komum í heimsókn urðum við slegin flemtri og nokkuri furðu þegar við sáum að búið var að setja miða á hurðina hennar, sem ekki gat þýtt nema það eitt: Hún var búin að kveðja. Það var ekkert annað en fara og skilja eftir kveðju, sem við báðum hjúkrunarkonuna að skila, svo sner- um við heim á leið, en margar hugs- anir leituðu á hugann. Ung voru þ_au Þórir bróðir minn og Margrét Ásmundsdóttir þegar þau reistu sér heimili í sárri fátækt og við erfiðar aðstæður; féleysi og húsnæðisvanda, sem margir urðu að stríða við á þeim árum, en með samheidni og dugnaði tókst þeim að byggja sér draumahúsið við Langholtsveg 169a og yndislegan garð á baklóðinni, sem er stolt og unaður allrar fjölskyldunnar; þar vaxa bjarkir, greni og aspir auk runna af ýmsum tegundum og hin- um fegurstu sumarblómum, -- þar var ósjaldan boðið upp á kaffi og kræsingar í garðinum í góðu veðri að sumarlagi og var þess þá neytt í ferskri blómaangan við spjall um landsins gagn og nauðsynjar og gjarnan slegið á létta strengi. Heimili þeirra hjóna var fagurt og hlýlegt og bar vott um hagsýni og snyrtimennsku og þar voru börnin í for- eldrafaðmi örugg og ánægð og svo var einn- ig um önnur börn, sem þar bar að garði því þau hjónin vora bæði barngóð og hlý í viðmóti og það eru einmitt slík atlot sem börnin kunna að meta og þangað sækja þau, sem vel er tekið á móti þeim. Nú er skarð fyrir skildi, - hús- móðirin er horfin - og aldrei verður það skarð fyllt og í hugum manna sem eftir lifa er eitthvert tómarúm og maður leitar að einhveiju, sem mætti byggja það upp, en sú leit er árangurslaus, því bortthvarf vin- ar verður aldrei bætt og síst þegar um er að ræða eiginkonu, móður og ömmu. Sú manneskja finnst aldrei, sem kemur í hennar stað. Því biðjum við um handleiðslu forsjónarinnar að veita þeim öllum styrk í sorg þeirra og raunum og færa þeim alla guðsblessun um ókomna framtíð. Fjóla og Jón. Ómetanlegt er það, er á vegi manns verður fólk, sem hefur mannbætandi áhrif við nánari kynni og samskipti. Forlögin réðu því að svo va.rð er við kynntumst Mar- gréti Ásmundsdóttur. Það eru nú mörg ár síðan hún kom til hjálpar- starfa á heimili móður okkar, í Suðurgötu 13, á vegum Heimilis- hjálparinnar, sem hafði á hendi heimilisaðstoð við aldrað fólk, slíkr- ar aðstoðar er brýn þörf. Þegar við fyrstu kynni var öllum ljóst að hér var komin til starfa einstök mann- kostakona, eftirminnilega jákvæð, sem hafði mjög góð áhrif á annað fólk. Er ekki að orðlengja það að með Margréti og móður okkar tókst djúp og innileg vinátta, sem entist móður okkar til hinstu stunda. Margrét gæddi daglegt líf hennar, sem þá var lifað í myrkri, birtu og yl. Iðulega fóru þær saman út að ganga um Miðbæinn. Margrét var þá eins og stundum er sagt bæði eyru og augu hinnar öldruðu vin- konu sinnar. Aldursmunurinn var mikill, en þær áttu það sameigin- legt að hafa mikla ánægju af sam- skiptum við annað fólk. I einni slíkri gönguferð hér í Miðbænum, sátu þær á bekk og voru að tala saman, er kunnur ljósmyndari gekk fram á þær á bekknum, það mun hafa ver- ið Gunnar heitinn Hannesson. Ber- sýnilega taldi þær „gott mótív fyrir mannlífið“. Annaðhvort birtist þessi í mynd í blaði eða bók, síðar. Um árabil var koma Margrétar ætíð eitt mesta daglega tilhlökkunarefn- ið í Suðurgötunni. Þegar móðir okk- ar talaði um Margréti við okkur og aðra, var jafnan talað um: Mín Margrét, (að hætti danskra). Okkur var það gleðiefni að sjálfri þótti Margréti mjög vænt um þetta. Með þessu tilskrifi viljum við systkinin þakka Margréti fyrir hin ógleymanlegu kynni við hana. Þakka henni alla þá elsku, tryggð og umhyggju sem hún sýndi alla tíð móður okkar, og fyrir það sem hún var henni, fyrir þá birtú sem hún varpaði yfir ævikvöld hennar, það verður ekki fullþakkað. Þóri Haraldssyni á Langholts- vegi, bömum þeirra hjóna og öðrum ástvinum sendum við samúðar- kveðjur. Útför Margrétar fer fram í dag. Sverrir Þórðarson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.