Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ1994 51
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Sextán tilkynningar um eld
13.-16. maí
í BLÍÐVIÐRINU um helgina bar
talsvert á ölvuðu fólki utan dyra.
Svo virðist sem allt of margir
kunni ekki að umgangast áfengi
því lögreglan var kölluð 33 sinn-
um til vegna hávaða og ónæðis
utan dyra og innan. Tilkynntar
líkamsmeiðingar voru þó í færra
lagi, eða 5 talsins. Fjórar þeirrar
áttu sér stað í heimahúsum. Tals-
vert bar hins vegar á rúðubrotum
(14), skemmdarverkum (8) og
íkveikjum ýmis konar.
Lögregla og slökkvilið þurftu
að sinna 16 tilkynningum vegna
elda, ýmist íkveikjum eða af öðr-
um orsökum. Aðfaranótt laugar-
dags var t.d. kveikt í sorptunnu
húss við Miklubraut. Eldur læsti
sig í tré, sem tunnan stóð við,
en greiðlega tókst að slökkva
eldinn með nærliggjandi garð-
slöngu. Svo virðist sem einhverj-
ir ábyrgðarlausir kjánar geri sér
það að leik að kveikja í sorptunn-
um fólks án þess að gera sér
nokkra grein fyrir því hversu
alvarlegu afleiðingar það getur
haft í för með sér. Beitt verður
öllum tiltækum ráðum til þess
að hafa uppi á þessum mönnum.
Fólk er beðið um að hafa augun
hjá sér. Verði það vart grunsam-
legra mannaferða er því bent á
að hafa samband við lögregluna.
Sama á við ef einhver hefur vitn-
eskju um aðila, sem stundar
þessa miður skemmtilegu iðju.
Einnig er fólk hvatt til þess að
staðsetja sorptunnur, timbur eða
annað eldfimt efni ekki upp við
hús sín. Ef ekki verður hjá því
komist er því ráðlagt að bleyta
svolítið í sorpinu áður en gengið
er til náða.
Engir unglingar í miðbænum
Margt fólk var í miðborginni
fram undir morgun á laugardag
og sunnudag. Iþrótta- og tóm-
stundaráð og lögreglan höfðu
unglingaathvarfið opið, en þrátt
fyrir leit fundust engir unglingar
yngri en 17 ára í eða við mið-
borgina á þessum tíma. Athvarf-
ið verður opið áfram næstu helg-
ar.
Á mánudagsmorgun hafði
verið tilkynnt um 18 innbrot og
13 þjófnaði síðan á föstudag. Það
telst til tíðinda að á mánudags-
morgun voru tvær unglings-
stúlkur handteknar eftir innbrot
í söluturn við Arnarbakka. í öðr-
um tilvikum, sem vitað er um,
var um hagvana menn að ræða.
Á laugardagsmorgun valt bif-
reiðj sem ekið var um hringtorg
í Ánanaustum. Ökumaðurinn
reyndi að komast undan á hlaup-
um, en var handtekinn skömmu
síðar. Hann er grunaður um að
hafa verið undir áhrifum áfeng-
is. 13 ökumenn aðrir eru grunað-
ir um ölvunarakstur um helgina.
Þrír þeirra höfðu lent í umferðar-
óhöppum áður en til þeirra náð-
ist.
Af 29 tilkynntum umferðar-
óhöppum urðu slys á fólki í þrem-
ur tilvikum. Maður var fluttur á
slysadeild eftir að hafa hjólað á
kyrrstæða bifreið á Hverfisgötu
skömmu eftir miðnætti á föstu-
dag. Barn varð fyrir bifreið við
Hagaland í Mosfellsbæ skömmu
eftir hádegi á laugardag og
maður varð fyrir bifreið á
Hverfisgötu skömmu eftir mið-
nætti þann dag. Meiðsli reyndust
minniháttar í öllum tilvikum.
Skömmu eftir miðnætti á
föstudag var tilkynnt um tvo
menn á vélarvana báti á Viðeyj-
arsundi. Haft var samband við
hafnsögumenn og fóru þeir strax
á vettvang. Þeir tóku bátinn í
tog og drógu að landi. Mennirnir
reyndust við góða heilsu.
Hjólreiðadagur fjölskyldunnar
á sunnudag tókst mjög vel. Allf-
lest börnin í keppninni um bestu
reiðhjólasveit skólanna voru til
fyrirmyndar og erfitt var að velja
sigursveitina. Að þessu sinni bar
þó Hlíðaskóli sigur úr býtum.
Lögreglan er mjög ánægð með
hvernig til tókst hjá hlutaðeig-
andi aðilum.
42 kærðir fyrir
umferðarlagabrot
Fjörutíu og tveir ökumenn
voru kærðir fyrir ýmis umferðar-
lagabrot um helgina og auk þess
var talin ástæða til að veita 25
öðrum skriflegar áminningar af
sömu ástæðu. Öll tilvik eru færð
í ökuferilsskrá og þannig fylgst
með framferði hvers og eins.
Þeir sem ítrekað koma við sögu
umferðarlagabrota eiga það á
hættu að verða sviptir ökurétt-
indum sínum. Þó eru þeir öku-
menn, sem hafa tiltekið alkóhól-
magn í blóði, aka allt of hratt
eða sýna af sér vítaverðan akst-
ur sviptir þeim við fyrsta brot.
Lögreglan á Suðvesturlandi
er með umferðarátak þessa dag-
ana. Athyglinni er sérstaklega
beint að hjólreiðafólki, búnaði
þess og háttsemi í umferðinni.
Græna smiðjan
Breiðamörk 26, Hveragerði,
sími 98-34983.
NÁMSKEIÐ í MAÍ OG JÚNÍ 1994
SAFNHAUGAR
Tími: Lau. 21. maíkl. 10-17.
Leiðbeinandi:
Eva G. Þorvaldsdóttir.
TRJÁKLIPPINGAR
Tími: Þri. 24. maí kl. 20-23.
Leiðbeinandi:
Steinn Kárason.
KÖRFUR ÚR VIÐARTÁGUM
Tími: Lau. 28. maíkl. 10-17.
Leiðbeinandi:
Jarþrúður Jónsdóttir.
STÓR OG LÍTIL
TRÉí GÖRÐUN
Tími: Mán.6. júníkl. 20.-23.
Leiðbeinandi:
Ólafur S. Njálsson.
SUMARBLÓM
Tími: Mið. 15. júní kl. 20-23.
Leiðbeinandi:
Guðríður Helgadóttir.
Upplýsingar um
námskeið fást
í síma 98-34983
og 98-34903.
PAPPÍRSGERÐ
Tími: Mán. 30. maí og mið.
1. júní kl. 20-23 (6 tímar).
Leiðbeinandi: Svala Jónsdóttir.
KRYDOJURTIR
Tími: Lau. 11. júnf kl. 10-17.
Leiðbeinandi:
Eva G. Þorvaldsdóttir.
MEINDÝR 0G SJÚK-
DÓMAR Á GRÓÐRI
Tími: Mið. 22. júni kl. 20-23.
Leiðbeinandi:
Björn Gunnlaugsson.
GRASNYTJAR - ÆTAR
PLÖNTUR
Tími: Lau. 4. júní kl. 10-17.
Leiðbeinandi:
Hildur Hákonardóttir.
SUMARBLÓM
Timi: Mán. 13. júni kl. 20-23.
Leiðbeinandi:
Guðríður Helgadóttir.
FLÓRA [SLANDS
Tími: Lau. 25. júni kl. 10-17.
Leiðbeinandi:
Eva G. Þorvaldsdóttir.
Fyrirhuguð námskeið seinna í súmar:
Náttúruskreytingar, vistvæni matjurtagarðurinn, tejurtir, rósaræktun, blómakransar, skraut-
runnar, sveppanytjar, skógarplöntur, þörunganytjar, torfhleðsla, pappírsöskjugerð, ilmolíur,
jurtalitun, pottaplöntur, kaktuságræðsla o.fl.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGI
} VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 . 1 2.037.810
2. 0 353.208
3. 4af5 68 8.960
' 4. 3af 5 2.446 581
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.421.424 kr.
H /7
4 UPPLÝSINGAR SlMSVARI 91-681511 lukkulína991002
Fundur um
atvinnumál
FUNDUR um atvinnumál og fram-
tíðarmöguleika í Reykjavík verður
haldinn í kosningamiðstöð ungs
fólks, Hafnarstræti 7, í kvöld,
þriðjudagskvöld, kl. 20.30 á vegum
Heimdallar.
Meðal þeirra sem taka þátt í
umræðunum eru Jóna Gróa Sigurð-
ardóttir, formaður atvinnumála-
nefndar Reykjavíkur, Þorkell Sigur-
laugsson, framkvæmdastjóri þróun-
arsviðs Eimskipa, Jón Erlendsson,
yfírverkfræðingur upplýsingaþjón-
ustu Háskólans, og Kjartan Magn-
ússon.
Boðið verður upp á kaffi og veit-
ingar.
------» ♦------
■ ÚRSLIT í mælsku- og rök-
ræðukeppni III ráðs ITC fór fram
á Hótel Selfossi 12. mars sl. Þá
kepptu til úrslita ITC-deildin Stjarn-
an, Rangárþingi, og ITC-deildin
Melkorka, Reykjavík. Melkorkur
lögðu til að ITC á íslandi keypti
og ræki sjónvarpsstöð. Stjörnur
andmæltu tillögunni. Um þetta efni
urðu skemmtilegar og spennandi
umræður og stóðu allir ræðumenn
sig frábærlega vel. Tillagan var
samþykkt. Melkorkur urðu því sig-
urvegarar í þetta sinn og fengu
farandbikarinn. Ræðumaður dags-
ins varð Anna Katrín Kristmunds-
dóttir, Melkorku.
TVr. Leikur: Röðin:
Nr. Leikur:_______________Röðin:
1. Chelsea - Manch. Utd. - - 2
2. AIK - Hackcn 1 - -
3. Degerfors - Örebro - - 2
4. Landskrona - Gðteborg - - 2
5. Mabnð - Hanunarby 1 - -
6. Öster - Helsingborg 1 - -
7. I.uleá - UMEÁ 1 - -
8. Vlsby - Brage 1 - -
9. Vaster&s - Sundsvall 1 - -
10. Jonsercd - Örgryte - - 2
11. Kalmar FF - Elfsborg - X -
12. Oddevold - Gunnilse 1 - -
13. Stenungs. - Hassleholm 1
HcUdnrvinningsupplucöin:
86 milljón krónur
13 réttir: 45.590 \ kr.
12 réttir: P 1.530 kr.
11 réttir: 0 kr.
10 réttir: o 1 kr.
Kristbjörg Olafsdottir
kaupmaður
Kolbeinn Pálsson
form. Körfuknattleikssamb. íslands
Rakel Pálsdóttir
þjóðfræðinemi
Við styðjum
listann
Andri Heide
æskulýðsfulltrúi
»
mm
Sigríður Þórðardóttir
f óstra/1 e i kskó I astj ór i