Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 53
BRÉF TIL BLAÐSINS
BRÉFRITARI telur ekkert réttlæta það bílastæðagjald sem lagt
er á eigendur ósamþykktra íbúða.
Söfnun til Líknar-
sjóðs Langholtskirkju
Frá sr. Flóka Kristinssyni:
ÁKVEÐIÐ hefur verð að efna til
söfnunar í Líknarsjóð Langholts-
kirkju nú í maímánuði og árlega
í framtíðinni. Framlögum verður
veitt viðtaka við lok messugjörðar
í kirkjunni á sunnudögum þennan
mánuð en einnig verður hægt að
koma þeim áleiðis til' sóknarprests
eða kirkjuvarðar á virkum dögum
á opnunartíma kirkjunnar kl.
10-12 fyrir hádegi og 2-4 síðdeg-
og fjárstyrki, einkum á aðventu
og jólum.
Það er einlæg ósk sjóðstjórnar
til safnaðarins, að hann leggi sitt
af mörkum til styrktar sjóðnum
nú í maímánuði svo hann muni í
framtíðinni geta staðið undir því
hlutverki að veita þeim lið sem
mest þurfa á að halda vegna fá-
tæktar og fjárhaglegra erfiðleika.
Við heitum á söfnuðinn að hann
sinni þessu hjálparkalli sem nú
berst frá kirkjunni og sýni þannig
trú sína í verki, en heiðri um leið
minningu hinna ágætu hjóna sem
þjónuðu söfnuðinum svo dyggilega
og af svo mikilli fórnfýsi um ára-
tuga skeið.
SR. FLÓKIKRISTINSSON,
sóknarprestur Langholtskirkju.
Burt með
bílastæðagjöldin
Frá Ólafi Grétari Kristjánssyni:
HINN 15. janúar 1987 samþykkti
borgarstjórn Reykjavíkur reglur
frá borgarverkfræðingi um inn-
heimtu sérstakra bílastæðagjalda.
Samkvæmt þeim skyldu eigendur
ósamþykktra íbúða byggðra eftir
1965 greiða til bílastæðasjóðs
hefðu íbúðirnar ekki aðgang að
bílastæði á eignarlóð. Þetta er
gert að skilyrði fyrir því að íbúðir
fáist samþykktar nú.
Væri hér um að ræða einhvers
konar málamyndagjald upp á ein-
hveija þúsundkalla myndi sá er
hér lemur á takka láta það liggja
milli hluta og taka því eins og
hveiju öðru hundsbiti. En upphæð-
in sem innheimt er getur numið
1,2 milljónum króna. Fyrir þennan
pening fær íbúðareigandinn ekk-
ert. Ekki bílastæði, ekki einu sinni
leigt, ekki sérmerkingu á bíla-
stæði. Ekkert. Jú, hann fær stimp-
il og uppáskrift frá byggingafull-
trúa, sem fyrir 15. janúar 1987
kostaði ekki neitt. Oðruvísi fást
íbúðir ekki samþykktar þessi miss-
erin.
Rétt er að geta þess að borgar-
ráð getur veitt undanþágu frá
greiðslu svo hárra gjalda, og býður
mér í grun að „undanþágan“ sé í
raun reglan, því varla er til sá
íbúðareigandi sem færi að borga
1,2 milljónir til þess að fá íbúð
samþykkta sem kostar kannski
þrefalda til fjórfalda þá upphæð.
Og vissulega kitlar það íslenska
útsöluhjartað að þurfa ekki að
borga nema 340.000 fyrir það sem
annars kostaði 1,2 milljónir.
Ég tel þessi bílastæðisgjöld ekki
réttlætanleg. Þetta er dulin skatt-
heimta á íbúðarhúsnæði, bitnar á
tiltölulega fáum einstaklingum og
upphæðin er fáránleg. Mér er tjáð
að tilgangurinn sé annars vegar
sá að fjármagna byggingu bíla-
stæðahúsa í miðbæ Reykjavíkur,
hins vegar að stemma stigu við
því að verið sé að sækja um sam-
þykkt á alls kyns kjallaraholum.
Það segir sig sjálft að innheimtan
hlýtur að vera ákaflega rýr. Á
hinn bóginn hljóta starfsmenn
byggingafulltrúa að vera því starfí
sínu vaxnir að hafna umsóknum
um samþykkt húsnæðis sem ekki
er boðlegt. Þarafleiðandi er ekkert
sem réttlætir gjaldið.
Það undarlega við málið er
hversu fáir vita af þessu bíla-
stæðagjaldi. Vitneskja um það
hefur ekki náð að seytla út fyrir
raðir æðstu embættismanna. Og
e.t.v. er það fúlasta við allt saman
að borgaryfirvöld sætta sig ekki
við neitt minna en staðgreiðslu
gjaldsins, þótt mönnum sé gefinn
kostur á að dreifa greiðslu nánast
allra annarra opinberra gjalda.
ÓLAFUR GRÉTAR
KRISTJÁNSSON,
járnsmiður og bókmenntafræðingur.
Líknarsjóður Langholtskirkju
var stofnaður til minningar um
fyrstu presthjónin við Langholts-
kirkju, þau sér Árelíus Níelsson
og Ingibjörgu Þórðardóttur. Það
var í febrúar 1993 að niðjar þess-
ara merku hjóna afhentu kirkjunni
höfuðstól sjóðsins til minningar
um þau, en meginhluti stofnfjárins
var sjóður sem séra Árelíus hafði
sjálfur stofnað til minningar um
konu sína eftir að hún lést. Kven-
félag kirkjunnar hafði varðveitt
féð og ávaxtað um nokkurra ára
skeið og aukið við það með ár-
legri söfnun.
Tilgangur Líknarsjóðs Lang-
holtskirkju er að styðja þá sem
minna mega sín í söfnuðinum með
fjárstyrkjum, eftir því sem stjórn
sjóðsins telur rétt hveiju sinni og
þörf er á. Styrkir skulu veittir til
að leggja þeim lið sem eiga um
sárt að binda vegna slysa, sjúk-
dóma eða tímabundinna fjárhags-
erfiðleika. í stjórn sjóðsins eiga
sæti sóknarprestur, fulltrúar
sóknarnefndar og kvenfélags
kirkjunnar.
Höfuðstóll sjóðsins, sem er nú
um 1.400 þúsund krónur, er bund-
inn en árlegt framlag til úthlutun-
ar er 90% af ávöxtum hans.
Þegar hefur verið úthlutað úr
sjóðnum nokkurri upphæð, en
nokkuð er jafnan um að einstakl-
ingar leiti til kirkjunnar um aðstoð
Beðizt afsökunar
Sl. laugardag birtist hér í blaðinu voru kynntir. Á myndinni er
bréf frá Þórði E. Halldórssyni, Helga Guðrún Johnson, sem þá
þar sem fjallað var um spila- var kynningarfulltrúi Háskóla
kassa Happdrættis Háskóla ís- íslands og var á fundinum starfs
lands. Með bréfinu birtist mynd síns vegna.
með svohljóðandi. myndatextaó Birting þessarar myndar með
„Margir hafa gerzt þrælar spila- þeim inyndatexta og efni, sem
fíknarinnar“. fylgdi er að sjálfsögðu óviðeig-
Mynd þessi var tekin á kynn- andi með öllu og biður Morgun-
ingarfundi, sem Háskólahapp- blaðið Helgu Guðrúnu afsökunar
drættið efndi til fyrir nokkrum á þessum mistökum.
mánuðum, þegar spilakassarnir
DUX-þaðbestu
semþú geturgert
Bakið er ekki að drepa þig - það er líklega dýnan!
DUX rúmdýnan - einstök og frábær hönnun.
DUX dýnan er mjúk og lagar sig fullkomlega
að líkama þínum.
Þú liggur ekki á henni - hún umvefúr þig.
Það er stundum dýru verði keypt að kaupa ódýrt.
Á harðri dýnu liggur
hryggsúlan í sveig
Á DUX-dýnu liggur
hryggsúlan bein
DUX )
GEGNUMGLERIÐ
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími: 689950
Gagnasafn
Morgunblaösins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylg-
ir fyrirvari Kér að lútandi.
Simo kerruvagninn
í miklu litaúrvali.
Kr. 42.000,-
(39.900,- stgr.)
ALLT FYRIR BÖRNIN
Klapparstíg 27,
sími 19910
Nýkomið
BOBOB COMFORT
Sérlega vandaður og
rúmgóður bílstóll, 9-18 kg.
Kr. 17.900,-
BOBOB4
kr. 15.300,-
Nýkomið
Regnhlífakerrur frá Simo.
Kr. 4.500,- og 5.900,-
ALLT FYRIR BORNIN
Klapparstíg 27,
sími 19910
Afsláttur
úr kr. 10.900,-
í kr. 7.900,-
FERÐARÚM
MEÐ DÝNU
Hægt að ieggja það
saman með
einu handtaki.
Einnig hægt að
nota sem leikgrind.
Stærð 60x120 cm.