Morgunblaðið - 17.05.1994, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Luke Perry og Minnie.
Luke Perry ást-
fanginn upp
fyrir haus
►LIJKE Perry sem íslenskir
sjónvarpsáhorfendur þekkja úr
þáttunum „Beverly Hills 90210“
ér ástfanginn af stúlku sem heit-
ir Minnie. Þegar hún lenti í bíl-
slysi nú nýverið tók Luke sér frí
frá tökum alla þá viku.
Hann sat við sjúkrabeð Minnie-
ar og hvenær sem hún fann til
svengdar pantaði hann mat frá
fínustu matsölustöðunum í
grenndinni. Sjálfur kreisti hann
handa henni appelsínusafa ef
hún fann til þorsta og þegar
hann þurfti að bregða sér frá
réði hann lífvörð til að vaka yfir
áinni heittelskuðu. Vinir parsins
létu hafa eftir sér af þessu til-
efni að þeir væru mjög hrærðir
af hugulsemi hans.
Anna Mjöll í
Kringlukránni
►SÖNGKON-
AN Anna Mjöll,
sem hér er
stödd í nokk-
urra vikna leyfi
frá tónlistarná-
mi í Bandaríkj-
unum, ætlar að
taka lagið á
Kringlukránni
á miðvikudags-
kvöldið og synja nokkur jazzlög.
Með henni leika að þessu sinni
þeir Reynir Sigurðsson á víbra-
fón, Gunnar Hrafnsson á bassa,
Gunnlaugur Briem á trommur
og Olafur Gaukur á gítar.
Anna MjöII
Ólafsdóttir
Dægurtónlist
Fimmti
„strandpilturinn“
kemur í leitirnar
HÖRÐUSTU aðdáendur hljómsveitarinnar Beach Boys muna ef
til vill eftir grannvöxnum pilti sem lék með hljómsveitinni á
uppgangsárum hennar. David Marks gekk í hljómsveitina árið
1962 en á næstu tveimur árum átti hún sjö lög sem slógu í gegn
á vinsældalistum í Bandaríkjunum. Frægðin steig David Marks
til höfuðs, eftir því sem hann sjálfur segir, og hann yfirgaf hljóm-
sveitina til að hefja eigin sólóferil. David Marks er 45 ára í dag,
býr heima hjá móður sinni í tveggja herbergja íbúð í Burbank.
Eftir skrykkjótt gengi með mörgum hljómsveitum og sukklífemi
er David Marks kominn úr meðferð. Hann segist hafa gefíð frægð-
ina upp á bátinn og lifa fyrir dóttur sína og góða tónlist.
TIA
stendur í
stórræðum
DAVID Marks er enn að dútla við tónlist, þó ekki fari
miklum sögum af árangrinum.
ALLT gengur upp hjá Tiu Carrere í augnablikinu. Hún sló eins
og kunnugt er í gegn í myndinni „Wayne’s world“ sem kynþokka-
full söngkona í rokkhljómsveit og lék síðan aðalkvenhlutverkið í
kvikmynd Philips Kaufmans „Rising Sun“.
Tia er nýbúin að gifta sig og er afar hamingjusöm. Hún hefur eng-
ar áhyggjur af framtíðinni. Hún
er mjög vel efnuð, ung og
metnaðargjörn. Ekki að-
eins er hún góð leikkona, Hin fallega og
heldur getur hún líka m- efmlegaTia
sungið. „Fólk hefur fyrir-
fram mótaðar hugmynd-
ir um leikkonur sem
reyna að syngja. Ég
held að hvenær sem ég
syng fyrir einhvern, sé
hann undrandi á því
að ég geti í reynd
sungið. Ég lít á
það sem hrós.“
Tia Carr-
hefur
nog a smm
könnu en
þegar um
hægist
stefnir hún
á að gefa
sér tíma til
að eignast
bam.
Carrere
ere
Tia Carrere í
hlutverki sínu
í „Wayne’s
World".
"| Qí?Q Hljómsveitin Beach Boys árið
A t/ULl 1962, DavidMarkserfyrirmiðju.
Ef þú ert ekki einn hinna 16.000 sem barið hafa
augum eitt merkilegasta verk kvikmyndasögunnar,
hvernig væri þá að skella sér vestur á Mela áður
en það verður of seint.
HÁSKOLABIO
SfMI 22140
Háskólabíó
Snilldarverk Spielbergs með 7 Óskara
LISTI SCHINDLERS
Leikstjóri
Steven Spielberg
5 76«
<r: Vi,
Þúsund pylsur á grillið
DAGUR fjölskyldunnar var haldinn í Keflavík á
sunnudaginn og hefur verið ákveðið að gera hann
að árvissum viðburði.
Dagskrá fjölskyldudagsins var með ýmsu sniði,
bæjarbúum gafst kostur á að skoða bæjarskrifstof-
urnar, félagsmiðstöðina „Z“ og byggðarsafnið.
Þá var farið í gönguferð undir sljórn bæjarfull-
trúa um nýja gönguleið á Hólmsbergi sem lauk
með uppákomum á Tjarnargötutorgi. Þar var
meðal annars boðið upp á grillveislu og ekki var
annað að sjá en að ungir sem aldnir kynnu vel
að meta það, því 1.000 pylsur fóru á grillið við
þetta tækifæri.