Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 64

Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 86 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson Lífið vaknar í vorsólinni LÍFIÐ er að kvikna um leið og sólin nær að verma móður jörð. Þessi könguló varð á vegi yósmyndarans austur í Hveragerði og hafði svo sannarlega spunnið sinn vef af kostgæfni. Jón Baldvin Hannibalsson um Smugudeiluna Allai’ líkur á óbreyttu ástandi þetta árið SVARBRÉF Davíðs Oddssonar forsætisráðherra við bréfí Tsjemomyrdins, forsætisráð- herra Rússlands, vegna veiða íslenskra skipa í Smugunni verð- ur væntanlega sent í dag. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra segir að íslend- ingar, Rússar og Norðmenn eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta að því er varðar nýtingu og varðveislu fískistofna á Norð- ur-Atlantshafi. Hann segir að óformlegar viðræður hafi átt sér stað bæði við Norðmenn og Rússa um veiðar í Barentshafi. „Því miður hafa þessar við- ræður ekki leitt til neins árang- urs en við látum einfaldlega í t Ijós þá ósk, að samkomulag geti tekist um reglur byggðar á vís- indalegum forsendum að því er varðar þessar veiðar, sem og nýtingu annarra stofna, þar sem þjóðimar eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta,“ segir hann. Jón Baldvin segir litlar líkur á að niðurstaða fáist af úthafs- veiðiráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna en segist binda vonir við að málamiðlun náist á næsta ári. Hann segir að ýmislegt standi í vegi fyrir því að hægt verði að fínna lausnir í viðræðum við Norðmenn og Rússa, sem koma megi í framkvæmd á þessu ári. „Út af fyrir sig tel ég allar líkur á því að við verðum að búa við óbreytt ástand þetta árið en geri mér fastlega vonir um að tíminn verði nýttur til að und- irbúa samkomulag sem gæti kannski komið til framkvæmda á næsta ári,“ segir hann. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Vélsleða- menn í sumarskapi NOKKRIR vélsleðakappar fóru geyst á Ósnum við Bolungarvík að loknu íslandsmótinu í vél- sleðaakstri, sem fram fór á ísafirði um helgina. Hér skvetta Stefán Bjarnason og Davíð Ólafs- son á Ski-Doo vatninu í allar átt- ir. Vélsleðar virka ágætlega í vatnaakstri, þó þeir virki best á snjó. Með vatnaakstrinum kór- óna vélsleðakappar lokin á keppnistímabilinu og komast um leið í rétta sumarskapið. ■ Meistarataktar/7 OECD segir ýmislegt benda til breytinga í efnahagslífi á Islandi á næstu árum Bati mögulegur í lok þessa áratugar STJÓRNVÖLDUM hefur tekist að halda verðbólgunni í skeíjum og lækkun vaxta markaði mikilvæg tímamót í efnahagsmálum. Þrátt fyr- ir nokkur vonbrigði hvað varðar þróun þjóðartekna og horfur um kyrr- stöðu á næstu árum, hillir undir eflingu þorskstofnsins, bæði vegna ábyrgari stefnu stjórnvalda í sjávarútvegsmálum og vegna hagstæðari umhverfísskilyrða í sjónum. Gildistaka EES-samningsins, sterk staða íslands varðandi nýtingu náttúruauðlinda af ýmsu tagi og hátt menntunarstig þjóðarinnar skapa möguleika á að takast megi að snúa efnahagsþróuninni til betri vegar þegar líður á áratuginn. Þetta kemur fram í niðurstöðum ársskýrslu OECD, efnahags- og þróunarstofnunarinnar, um íslensk efnahagsmál. í skýrslunni segir, að á síðasta ári hafi landsfram- leiðslan aukist um 1%, sem hafí verið betri niðurstaða en búist hafi verið við og hagvöxtur verið vel yfír meðaltali OECD-landa í Evr- ópu. Ósennilegt sé að þessi hag- stæðu áhrif endurtaki sig á þessu ári. Þorskveiðikvótinn hafi verið skorinn niður og litlar líkur á að hann verði aukinn á árinu. Allar líkur séu á að viðskiptajöfnuðurinn snúist í lítilsháttar halla, nema til komi veruleg verðhækkun á fiski á heimsmarkaði. Tekjusamdráttur haldi aftur af eftirspurn heimilanna og atvinna gæti dregist saman. Samið hafi verið um óbreytta launataxta og skattar á einstak- linga geri varla meira en að jafna út samdráttaráhrifin. Þá sé stefnt að samdrætti í útgjöldum hins opin- bera og spáð áframhaldandi sam- drætti í ijárfestingu atvinnuveg- anna, þótt búast megi við jákvæð- um áhrifum vegna lækkandi vaxta. Þegar á allt sé Iitið megi gera ráð fyrir að landsframleiðsla drag- ist saman um 1% og atvinnuleysi haldi áfram að aukast og verði að meðaltali um 6%. Verðbólga á mælikvarða neysluvöruverðlags gæti hins vegar orðið lægri en opin- berar spár bendi til (2%) og jafnvel engin í árslok. OECD segir að langvarandi lægð í þjóðarbúskapnum sé gjaldið sem íslendingar þurfí að greiða fyrir óhjákvæmilega eflingu þorsk- stofnsins vegna ofveiði um árabil. Ef takast eigi að ná fram hámarks- nýtingu á þessari auðlind verði stjórnvöld að fylgja ráðleggingum fiskifræðinga og miða veiði við það sem þeir telja öruggt. Núverandi kvótakerfi sé prýðilegt og sann- gjarnt fyrirkomulag til að ná fram hagkvæmni. Þróunarsjóður sjáv- arútvegsins verðskuldi stuðning, sérstaklega ef hann verði fjár- magnaður með auðlindaskatti. Slíkt gjald megi réttlæta með því að benda á þá auðlindarentu sem gangi til kvótaeigenda og jafnframt sé auðlindaskattur hagkvæm tekju- öflun fyrir ríkið, segir OECD. Umbóta þörf i landbúnaði OECD segir að í landbúnaði sé frekari umbóta þörf. Stuðningur við íslenska bændur í formi verð- og framleiðslustjórnunar hafi verið með því mesta sem þekkist innan OECD. Verðmyndun, sem byggist á kostnaðarframreikningi og ákveðin sé í nefndum og ráðum, ásamt ákvæðum um hámarks- álagningu í heildsölu, dragi úr hvata til þess að nota bestu fram- leiðslutækni til að ná hámarks hag- kvæmni. Þetta fyrirkomulag beri að leggja af hið fyrsta og taka í staðinn upp kerfí þar sem markaðs- öflin ráði. Olíu var hellt í klóakið Siglufirði. Morgunblaðiö. TALSVERT hefur borið á því í vor og vetur að olíu hafi verið hellt niður í klóak í bæn- um, hvort sem ástæðan er hugsunarleysi eða prakkara- skapur. Hefur olían borist inn í hí- býli ijölda fólks, meðal annars upp um niðurföll. Annaðhvort hefur olíunni verið hellt niður um niðurföll á götum úti eða innandyra. Megna olíulykt leggur um heimili margra og hefur fólk þurft að fylla bað- ker með vatni og líma fyrir niðurföll í vöskum til þess að bregðast við þessu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.