Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 7

Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 7 Fáðu rétta sýn á málefni Reykjavíkur r Sjónvarpsþættir á SYN um Reykjavík með sérstakri áherslu á þitt hverfi. Næstu daga verða sýndir þættir á sjónvarpsrásinni SÝN þar sem Arni Sigfússon fer yfir hvað hefur áunnist í borgarmálum á síðustu árum og að hverju er stefnt. Þættirnir eru sjö talsins og í hverjum þeirra fær einn ákveðinn bæjarhluti sérstaka athygli. Laugardagur 21. maí í Háaleitis- Smáíbúða-, Bústaða og Fossvogshverfi með borgarstjóra Sunnudagur 22. maí í Grafarvogi með borgarstjóra Mánudagur 23. maí í Árbæ, Selás og Ártúnsholti með borgarstjóra Þriðjudagur 24. maí í Breiðholti með borgarstjóra Miðvikudagur 25. maí í Langholts-og Laugarneshverfi með borgarstjóra Föstudagur 27. maí i Vesturbæ og Miðbæ með borgarstjóra Þættirnir eru sýndir þrisvar sinnum á kvöldi, kl. 21:00, 21:40 og 22:20. „Það er von mín að Reykvíkingar, hvar í flokki sem þeir standa, gefi sér tíma til að horfa á þáttinn um sitt hverfi. Þannig geta þeir betur gert sér grein fyrir hinum viðamiklu framkvæmdum og blómlega mannlífi sem einkennir borgina okkar. Við sjálfstæðismenn göngum óhræddir til kosninga - vitandi að styrkur okkar liggur í verkum okkar." Óskir þú leiðbeininga um hvernig á að ná útsendingum SÝNAR getur þú haft samband við kosningaskrifstofu sjálfstæðismanna í þínu hverfi eða , í síma 682900. >77 /7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.