Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 22

Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 22
22 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Mun sagan endurtaka sig? ÞAÐ ER oft haft á orði að sagan endurtaki sig. Það ættu stjóm- málamenn að þekkja manna best. Þegar kristni hafði fest sig í sessi hér á landi hófust deilur milli hins veraldlega og geistlega valds um hvort guðslög, túlkuð af erkibiskupi í Niðarósi og páfanum í Róm, eða landslög ættu að ráða, þegar þau greindi á. Á síðari hluta 12. aldar gerði kirkjuvaldið kröfu Tómas til að allir kirkjustaðir son yrðu eign þess. Þegar ganga átti að Jóni Loftssyni, höfðingjanum í Odda, og taka af honum föðurleifð hans mælti hann þessi fleygu orð, sem hveiju íslensku skólabami hefur ver- ið gert að skyldu að þekkja: „Heyra má ég erkibiskups boðskap, en ráð- inn er ég í að halda hann að engu og eigi hygg ég að hann vilji betur né viti er mínir foreldrar, Sæmundur hinn fróði og synir hans.“ Það gekk eftir og málin féllu niður. Hálfri öld síðar vom dómar Al- þingis ekki lengur virtir af höfðingj- um landsins. Þeir hófu þá að skjóta málum sínum til Noregskonungs, en kirkjunnar menn til erkibiskups eða jafnvel páfa. Þar með var Alþingi orðin marklaus stofnun. Enda vom lífdagar sjálfstæðis okkar þá senn taldir. í Gamla sáttmála var ákvæði um að íslensk lög myndu gilda í landinu. Þetta var svikið, því um 20 ámm seinna kom lögbók (Jónsbók) frá Nor- egskonungi. Hún hafði verið saman þar í landi og sniðin eftir norskum lögum. Lögbókin var síðan staðfest á Alþingi þrátt fyrir mótmæli. Er fram liðu stundir hörðnuðu tök hins erlenda valds. Ömurlegast varð ástandið á 17. og 18. öld. Alþingi var aðeins nafnið tómt. Vor hvert mætti fúlltrúi konungs á Þingvöll með konungsbréf upp á vasann. Þar vora birtar tilskipanir konungs í stóm og smáu. Landsmenn urðu að kyngja þeim öllum möglunarlaust. Þegar þeim þótti úr hófi keyra voru samdar bænaskrár og sendar kon- ungi. Oftast nær virti hann innihald þeirra að vettugi. Alþingisdómum var ýmist áfrýjað til Hæstaréttar í Kaup- mannahöfn eða á konungs náð, sem átti síðasta orðið. í stuttu máli: Landsmenn höfðu glatað löggjafar- valdi, dómsvaldi og framkvæmda- valdi. Það var allt komið í hendur hins erlenda konungsvalds. Þess gjörðir vom „guðslög". Á 19. öld tóku landsmenn að krefj- ast þess að fá yfirráð sinna mála. Eftir mikla baráttu náðist það mark- mið að lokum. Stjómarskrá 1874, innlendur ráðherra 1904, fullveldi 1918, dómsvald (stofnun Hæstarétt- ar) 1920 og sjálfstæði 1944. Næstu 60 árin undi þjóðin við sitt. Hún sætti sig við þau lög, sem Al- þingi samþykkti, hún sætti sig við dóma Hæstaréttar og hún sætti sig við aðgerðir misviturra ríkisstjórna, þótt umdeildar væm. Hvernig er viðhorfið nú? I borginni Strassburg í Þýskalandi hefur Evrópudómstóllinn aðsetur. Undanfarin ár hefur það gerst að menn hafa skotið málum, sem dæmd hafa verið í Hæstarétti til þessa dóm- stóls. Dómar hans era óvefengjanleg- ir. Speki dómaranna virðist vera komin frá almættinu. Alþingi hefur því jafnan bragðið skjótt við og breytt gildandi íslensk- um lögum til samræmis við þá dóma. Með inngöngu í EES var samþykkt að gera lög og reglugerðir ESB að íslenskum og nú í vetur hefur Alþingi ver- ið önnum kafið við að breyta og laga til í laga- safni sínu. Fella út þær „vitleysur" sem þar er að finna og vom samdar Einars- af okkar virtustu lög- fræðingum fyrri ára. Nú skulu þær strikaðar út en í staðinn setja „guðslög“ frá Brassel. Síðasta dæmið eru lögin um girðingar, gaddavír og vírnet! Við eram sem Nú er „erkibiskupinn“ sestur að í Brussel og „páfínn“ í Strassburg, segir Tómas Einarsson sem hér skrifar um ís- land og Evrópumáiin. sagt að fá nýja og fullkomna „Jóns- bók“ óskeikula og innblásna. Nú er „erkibiskupinn" sestur að í Brassel og „páfínn“ í Strassburg. Það sem tók Noregskonung 20 ár að vinna gerist nú á nokkram misser- um. Þá er framkvæmdavaldið eftir. Er allt í lagi þar? Hvenær taka erlendir lánadrottnar að ókyrrast? Ef svo heldur fram sem horfir má spytja í fullri alvöra: Þegar íslenskir ríkisborgarar era famir að vísa mál- um sínum til erlends dómsvalds er þá nokkur þörf á Hæstarétti? Er hann þá ekki orðinn eins konar ann- að stjómsýslustig, sem mikið hefur verið talað um? Þegar lagabálkar, lög og reglu- gerðir samin erlendis eru send Al- þingi og þess jafnframt krafist að það breyti sínum eigin lögum til sam- ræmis, er þá nokkur þörf á Alþingi í þeirri mynd sem það er nú? Má ekki bara hafa vandað faxtæki í Alþingishúsinu, er tekur við skeytum að utan og þýðendur, sem snara efni þeirra á okkar „ástkæra, ylhýra" meðan sú tunga verður töluð á Is- landi? Era fyrmefndar setningar, eign- aðar Jóni í Odda, ekki orðnar mark- leysa ein? Má ekki fella þær burt úr sögubókunum? „Hvert er okkar starf í sex hund- rað sumur?“ spurði Jónas Hallgríms- son á sinni tíð. Hvert er okkar starf í fimmtíu ár? má spyija nú. Fyrirhugað er að efna til mikillar þjóðhátíðar á Þingvöllum 17. júní nk. vegna 50 ára afmælis lýðveldisins. Þar verða væntanlega mikil veislu- höld og mikið um dýrðir. Þangað mun stefnt öllum helstu leiðtogum þjóðarinnar, erlendum gestum og fleira stórmenni. Fróðlegt væri að vita hugsanir þeirra á þeirri stundu. Það er íslenskur siður að halda erfidrykkjur með glæsibrag. Verður erfi íslenska lýðveldisins drukkið á Þingvöllum hinn 17. júní nk.? Höfundur er kennari. Upplýsingalína Sjálfstæðismanna »120» t Hringdu núna áfram Reykjavík \ 3 Jafn réttur VERKFÖLL era allt- af slæm en þau eru hluti af réttindum laun- þega. Þau eru það afl sem beita má ef samn- ingar takst ekki innan ákveðins tíma. Það era launþegar sem leita réttar síns hjá atvinnurekendum þeg- ar þeir telja laun sín hafa dregist aftur úr öðram stéttum eða er verðhækkanir hafa orðið þannig að venju- legur launþegi getur ekki lengur lifað af launum sínum. Stefnan í launamál- um iandsmanna hefur veríð sú að ein laun duga ekki til framfæris vísitölufjölskyldunnar heldur þurfi tvær fyrirvinnur. Þjóðarsátt Samið er á þjóðarsáttarnótum við ýmis stéttarfélög með bókunum og leiðréttingum. Bókanir í síðustu samningum hjúkrunarfræðinga kostuðu ríkisspítalana 90 milljónir í fyrra eða 0,6% af þeim 15 milljörð- um sem kostar að reka spítalana á ári. Meinatæknar vilja halda hina svo- kölluðu þjóðarsátt í launum en fá svipaðar leiðréttingar og til að mynda hjúkrunarfræðingar. Þjóðarsátt ásamt bókunum, stig- hækkunum í launaflokka, námsferð- um og öðram boðuiri undir borðið teljast varla þjóðarsátt þar sem slík- ar tilslakanir kosta þjóðarbúið nokkrar milljónir. Það er ansi hart ef meinatæknar eiga að vera blórabögglar þjóðar- sáttarsamninga ríkisstjórnarinnar vegna þess eins að þeir fóru í löglegt verkfall. Ef samið er á léttu nótunum undir yfirsk- ini þjóðarsáttar við ýmis stéttarfélög er lágmark að hið sama gildi fyrir alla opinbera starfsmenn. Meðallaun Meðallaun yfir- meinatæknis með yfir- vinnu og vöktum er um ein og hálf milljón króna á ári og svarar það til dagpeninga ráð- herra án maka í 97 daga. Þjóðin veit ef til vill ekki að ferða- lög í hinum opinbera geira kosta skattborgarana 5,5 milljónir á dag eða 2 milljarða á ári sem er 13% af spítalarekstrinum. Ferðakostnaður hins opinbera í eitt ár gæti greitt laun þeirra 240 meinatækna sem eru í verkfalli í rúm 5 ár. Talið er að 60-70% af rekstrar- kostnaði spítala séu laun sem eru þá rúmlega 800 milljónir króna á mánuði. Laun 240 yfirmeinatækna era innan við 4% af þessum kostnaði. Sjúkrahúsin og sanngirni í launamálum Stefna stjómvalda í sjúkrahús- málum er á ábyrgð þingmanna og ráðherra sem annast þessi mál fyrir samfélagið. Síðastliðin ár hafa stjórnvöld lok- að deildum á spítölum í allt að 4 vikur vegna sumarleyfa. 4ra vikna lokun eða 4ra vikna verkfall kemur sér álíka illa við sjúklinga. Það er stefna stjórnvalda að spara m.a. Hvaða sanngirni er í því að meinatæknir með háskólapróf hafí 68 þús- und krónur í byrjunar- laun, spyr Kolbrún S. Ingólfsdóttir, meina- tæknir. með því að þrengja að sjúklingum og lengja biðlista. Hver rekstrarvika á spítaia kostar samfélagið um 300 milljónir eða svipaða upphæð og ætlunin er að láta til atvinnuuppbyggingar á Vest- íjörðum eða árslaun 240 yfirmeina- tækna. Bankar hafa tapað sl. 3 ár um 19 milljörðum vegna útlána eða 6 milljörðum árlega sem svarar til 40% af árlegum rekstrarkostnaði spítal- anna. Það er kominn tími til að þjóðar- sáttarsamningarnir komi heilir og óskiptir upp á borð stjórnvalda til allra á sömu nótuin og að feluleikur með bókanir og tölur hætti þannig að samsvarandi menntun skili sam- svarandi launum hvert svo sem stéttarfélagið er. Hvaða sanngimi er í því að meinatæknar með háskólapróf á sínu sviði fái 68.543 kr. í byrjunar- laun á mánuði? Yfírmeinatæknir eftir 15 ára starf fær 93.851 kr. sem með aukavinnu og 6 næturvökt- um getur farið upp í 130.000 kr. á mánuði. Algeng framkvæmda- stjóralaun í einkageiranum eru um 300-400 þúsund krónur á mánuði og bankastjórar í Landsbankanum, sem eru í opinberri þjónustu, fá 800 þúsund krónur til einnar milljónar króna á mánuði. Höfundur er meinatæknir. Kolbrún S. Ingólfsdóttir Sérhæfður leikskóli um málefni nýbúa Einar Hjörleifsson Kolbrún Vigfúsdóttir FYRIR skömmu var ákveðið á fundi borgarstjórnar að einn af fimm nýjum leikskólum borgar- innar myndi sérhæfa sig í málefnum nýbúa. Hér verður leitast við að skýra, hvað átt er við með sérhæfðum leikskóla og segja örlítið frá tildrögum þessarar ákvörðunar. Heitið „sérhæfður leikskóli um málefni nýbúa“ vekur sjálf- sagt upp ýmsar spumingar hjá þeim, sem beija það augum. Er til dæmis ætlunin að safna saman öllum böm- um, sem falla undir ákveðna skil- greiningu og veita þeim þjónustu undir sama þakinu? Er hér einfald- lega um einangrunarstefnu að ræða? Tildrög málsins eru þessi: Fyrir rúmu ári sendi borgarstjóri fyrir- spurn til dagvistar barna, um það hvaða úrræði dagvist barna hefði varðandi börn flóttamanna frá Víet- nam. Fyrirspumin kom í framhaldi af sívaxandi umræðu um vandamál nýbúabama í skólum. Til að móta stefnu í þessum mái- um var skipuð nefnd til að gera til- lögur um úrbætur í málefnum nýbúa á leikskólum í borginni. í nefndinni vora auk greinarhöfunda Jóhanna Einarsdóttir, talmeinafræðingur. Nefndin setti sér það markmið að afmarka þann hóp nýbúa sem helst þyrfti aðstoð á leikskólum borgar- innar. í grófum dráttum má segja að miðað sé við börn sem eiga er- lent foreldri og búa auk þess við málfarslega einangrun heima. Undir þessa skilgreiningu falla því bæði böm sem eiga erlenda foreldra í báðar ættir og börn sem eru mikið heima hjá erlendu foreldri sínu, en eiga líka íslenskt foreldri. Hér er með öðrum orðum fyrst og fremst tekið mið af því, hvort barnið býr við erlent málumhverfi heima. Hvaða þjónustu þarf að veita nýbúum í leikskóla? Fyrst og fremst þarf nýbúinn að læra mál þess samfélags, sem hann býr í. Þetta er nauðsynlegt til þess að hann geti orðið virkur þátttak- andi í samfélaginu geti ráðið ein- hveiju um eigin mál. Börn eru yfir- leitt afar móttækileg fyrir því að læra nýtt mál og fái þau tækifæri til að læra það strax á leikskóla- aldri er líklegt að þau nái á því góðu valdi og standi betur að vígi þegar þau byija í grunnskóla. En það er ekki nóg að sjá um góða málörvun og reyna að drífa íslenskulærdóminn af. Reynslan er- lendis frá bendir eindregið til þess að leggja þurfi mikla rækt við að viðhalda því máli sem fólk flytur með sér til nýs lands. Einnig þarf að veita nýjum Islendingum tæki- færi til þess að viðhalda sinni eigin menningu um leið og þeim býðst að laga sig að nýjum menningarheimi. Á grundvelli þessara markmiða gerði nefndin m.a. þær tillögur að komið yrði á fót sérhæfðum leik- skóla í málefnum nýbúa. Eftir umfjöllun í stjórn dagvistar Á Lindarborg er ætlunin að vinna markvisst þró- unarstarf í málefnum nýbúa, segja Einar Hjörleifsson og Kol- brún Vigfúsdóttir. barna samþykkti borgarstjórn síðan á fundi sínum 7. febrúar 1994, að leikskólanum Lindarborg við Lind- argötu yrði falið þetta verkefni. Á Lindarborg er ætlunin að vinna markvisst þróunarstarf í málefnum nýbúa. Ætlunin er að safna efni og þekkingu á þörfum nýbúabarna og hvernig hægt er að uppfylla þær sem best. Á þessum sérhæfða leikskóla verði þróaðar aðferðir við að kenna nýbúum íslensku og reynt að meta, á hvem hátt má standa að aðlögun þeirra að íslensku samfélagi og viðhalda jafn- framt tengslum þeirra við þá menn- ingu, sem þeir era sprottnir úr. Á leik- skólanum mætti til dæmis byggja upp gagnasafn um menningu annarra þjóða, með sérstakri áherslu á þá hópa, sem fjölmennastir eru á íslandi. Þeirri vinnu og þekkingu, sem aflað er á leikskólanum, verður síðan miðlað til annarra leikskóla, þeim til halds og trausts í daglegu starfi með börnum nýbúa. Rétt er að taka fram að börn nýbúa verða að sjálfsögðu áfram vistuð á leikskólum vítt og breitt um borgina eftir búsetu þeirra og óskum foreldra. íslenskt þjóðfélag hefur hingað til verið eitthvert einsleitasta þjóð- félag sem finnst á norðurhveli jarð- ar. Hlutfall aðfluttra er með því lægsta sem þekkist. Þetta er óðum að breytast og við íslendingar verð- um að takast á við það verkefni að bjóða nýjum íbúum þessa lands upp á sömu skilyrði og þau sem við, af- komendur Norðmanna og Ira, höfum búið okkur. Einar Hjöríeifsson er s&lfræðingur og Kolbrún Vigfúsdóttir er umsjónarfóstrn. Bæði starfa bjá dagvist barna í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.