Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 11
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Siglufjörður
lí
Isafjörður
Lækkun
skulda
eða rým-
un eigna?
Siglufirði. Morgunblaðið.
FJÁRMÁL bæjarsjóðs eru ofarlega
í huga frambjóðenda fyrir þessar
kosningar. Fulltrúar meirihlutans
vekja athygli á því að skuldir hans
hafi lækkað úr 731 milljón í 79 á
kjörtímabilinu. Fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins gerir lítið úr kraftaverkum
í fjármálastjórn, segir að meirihlut-
inn hafí lækkað skuldirnar með því
að selja það sem aðrir hefðu verið
búnir að skapa, m.a. veitur að and-
virði 600 milljónir kr.
Fimm listar eru í boði á Siglu-
fírði, A-listi Alþýðuflokks, B-listi
Framsóknarflokks, D-listi. Sjálfstæð-
isflókks, F-listi óháðra með stuðningi
Alþýðubandalags og Þ-listi venjulegs
fólks. F-listi með 3 fulltrúa og Al-
þýðuflokkur með 2 fulltrúa mynda
meirihluta í bæjarstjóm en Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokkur
sem hafa tvo fulltrúa hvor skipa
minnihlutann. Þ-listinn býður nú
fram í fyrsta skipti.
Skuldir lækkað
Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar og efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins, segir að stærsta málið
sem bæjarstjórnin hafi tekið á sé fjár-
hagsstaða bæjarsjóðs. Vegur þar
mest sala á veitum og uppgjörsmál
við ríkisstjóm. Kristján segir það
standa upp úr á kjörtímabilinu að
skuldir bæjarsjóðs hafa lækkað úr
731 milljón í 79 milljónir. Kristján
segir brýnustu máiefni fyrir komandi
kjörtímabil vera málefni sem eru
meira tengd bæjarbúum, s.s. varan-
ieg gatnagerð, umhverfismál, at-
vinnumál og hin margvíslegu málefni
fjölskyldunnar. Kristjáni finnst ró-
legheit hafa einkennt þéssa kosn-
ingabaráttu og telur það vera vegna
þess að menn eru nokkuð sammála
um það s_em gera þarf í nánustu
framtíð. Ágreiningsefnin eru hins
Kristján Björn
Möller Jónasson
vegar tengd
skuldastöðu og
þeirri fortíð.
Sigurður Örn
Baldvinsson,
kosningastjóri F-
listans segir að
endurreisn bæjar-
sjóðs standi upp
úr eftir kjörtíma-
bilið. „Helstu bar-
áttumál F-listans
fyrir komandi kosningar er að láta
fjárhaginn ráða framkvæmdunum og
halda áfram að bæta stöðu bæjar-
’sjóðs. Einnig eru atvinnumálin mjög
brýn og má þar helst nefna áfram-
haldandi starf við að fjölga störfum
í bænum og auka ijölbreytni atvinnul-
ífsins, umsvif í ferðaiðnaði, þá jafnvel
í tengslum við síldarminjasafnið og
síldarævintýrið sem nú þegar hefur
vakið heimsathygli," segir
Sigurður.
Bjöm Jónasson skipar 1. sæti á
lista Sjálfstæðisflokks. Björn telur að
það einkenni þessa kosningabaráttu
að núverandi meirihluti telji sig hafa
unnið eitthvert kraftaverk í fjármál-
um bæjarins. „Á árunum 1987-1990
þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í
oddaaðstöðu í stjóm bæjarins var gíf-
urlega mikið framkvæmt, þannig að
skuldir bæjarins voru orðnar rúmlega
700 milljónir, þar af 450 milljónir
vegna veitna. Þær vora síðan seldar
á þessu kjörtímabili fyrir u.þ.b. 600
milljónir. Núverandi meirihluti var því
að selja það sem aðrir höfðu skapað.
Framkvæmdir á þessu kjörtímabili
hafa verið mjög litlar. Það var byggð-
ur glæsilegur leikskóli sem við sjálf-
stæðismenn höfðum tekið ákvörðun
um að byggja og staðsett." Björn
segir sjálfstæðismenn á Siglufírði
leggja áherslu á það að Siglfírðingar
veiti þeim brautargengi svo ár fram-
kvæmda geti hafíst á ný á Siglufírði.
Sigurður Örn
Baldvinsson
Hveragerði
Unglingarnir hófu
kosningabaráttuna
„ÞAÐ VORU eiginlega
unglingarnir hér í bænum
sem hófu kosningabarátt-
una í bænum,“ segir Ingi-
björg Sigmundsdóttir, efsti
maður H-listans í Hvera-
gerði. „Þau hófu rekstur
útvarpsstöðvar og buðu
tveim efstu mönnum list-
anna tveggja í umræðu-
þátt.“ Tveir listar eru í
framboði til bæjarstjómar-
innar, D-listi sjálfstæðis-
manna og H-listinn, sem
er sameiginlegt framboð
Alþýðflokks, Framsóknar-
flokks, Alþýðubandalags
og óflokksbundinna kjós-
enda. Knútur Braun er efsti
maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins.
H-listinn hefur meiri-
hluta í bæjarstjórn, er með
fjóra fulltrúa á móti þremur fulltrú-
um Sjálfstæðisflokks.
Ingibjörg segir að meirihlutinn hafi
undanfarin fjögur ár unnið að því að
treysta fjárhagsgrandvöll Hveragerð-
is sem hafi verið mjög slæmur. Tek-
ist hafí að lækka skuldir bæjarins að
raungildi um 150 milljónir króna á
kjörtímabilinu, sem nemur tæpum
árstekjum bæjarfélagsins.
Gerðar hafi verið ítarlegar efna-
hagsáætlanir um fjárhag bæjarins,
því hann hefði ekki efni á fljótfærni
í peningamálum, segir hún.
Á næsta kjörtímabili verði svo
hægt að hefja framkvæmdir að nýju
og þá sé brýnasta verkefnið að
byggja við grunnskólann.
Einnig þurfi að huga að
gatnagerð, umhverfismál-
um og frárennslismálum.
Hún segir að atvinnumál
skipi einnig verulegan sess
á málefnalista flokksins,
það þurfi að laða að ný
fyrirtæki til dæmis með því
að bærinn nýti sér hagstæð
lánskjör og kaupi atvinnu-
húsnæði sem selt yrði aftur
til fyrirtækja á hagstæðum
kjöram.
Óánægðir með
f ramkvæmdaley si
Knútur segir að sjálf-
stæðismenn séu fyrst og
fremst óánægðir með fram-
kvæmdaleysi H-listans
undanfarin fjögur ár. Ekk-
ert hafi verið aðhafst í gat-
nagerðarmálum, skólamálum og hol-
ræsagerð og brýnt sé að hefja fram-
kvæmdir strax.
Hann segir að H-listinn hafí borg-
að niður skuldir í minna mæli en
íbúar Hveragerðis héldu.
Sjálfstæðismenn setja einnig at-
vinnumálin í forgang. Einkum eigi
að beina sjónum sínum að nýjum
smáiðnaði.
Knútur segir að þeir vilji að ráðinn
verði markaðs- og atvinnumálaráð-
gjafi til bæjarins. Hlutverk hans yrði
að laða að ný fyrirtæki og aðstoða
þau fyrirtæki sem fyrir eru í Hvera-
gerði.
Ingibjörg
Sigmundsd.
Knútur
Bruun
Engar persónulegar
svívirðingar eða
rætnar spurningar
ísafirði. Morgunblaðið.
TÖLUVERT fjör hefur verið hjá
bæjarstjórn ísafjarðar síðustu fjögur
árin. Meirihlutinn hefur sprangið
tvisvar og um þessar mundir er ekk-
ert meirihlutasamstarf. Þetta hefur
lítið komið fram í kosningabarátt-
unni. Framboðsfundur • sem haldinn
var í íþróttahúsinu í vikunni var held-
ur daufgerður á vestfírska vísu. Eng-
ar persónulegar svívirðingar, engar
rætnar spurningar til frambjóðenda
í fyrirspurnatíma og tvö framíköll
svo veik að fæstir tóku eftir.
lafsson
Bryndís
Friðgeirsd.
Sjálfstæðisflokkur er með þijá
fulltrúa í bæjarstjórn, I-listi sem er
klofningsframboð úr flokknum er
með tvo, Framsóknarflokkur með
einn, Alþýðubandalag einn og Al-
þýðuflokkur með tvo. Kvennalisti á
ekki fulltrúa í bæjarstjórn.
Nú bjóða sjálfstæðismenn fram
einn lista. í nýlegri skoðanakönnun
Bæjarins Besta fékk D-listinn fímm
menn, eða hreinan meirihluta, en
hinir flokkarnir einn hver.
Töluvert um gylliboð
Töluvert var um gylliboð hjá sum-
um frambjóðendum á framboðs-
fundinum, ef miðað er við að sam-
kvæmt athugun eins frambjóðanda
eru um tvær milljónir króna til fram-
kvæmda á þessu ári hjá bænum
þegar búið er að greiða lögbundinn
kostnað og afborganir og vexti af
lánum.
Sigurður R. Ólafsson af A-lista
Þorsteinn
Jóhannesson
Guðrún Stef-
ánsdóttir
fordæmdi misvísandi frásögn fyrsta
manns B-lista af skuldastöðu bæjar-
ins og benti á að annars vegar væri
talað um heildarskuldir við upphaf
kjörtímabilsins, en hins vegar teknar
út skuldir stofnana sem bærinn á
einn, á nýjum skuldalista.
Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrsti
maður á G-lista, lagði áherslu á að
bærinn keypti
skip með kvóta
og stofnaður yrði
ábyrgðarsjóður
smáfyrirtækja
og að komið yrði
upp framtíðarað-
stöðu fyrir bíla-
feiju.
Kristinn Jón
Jónsson, fyrsti
maður B-lista,
lagði áherslu á
snjóflóðavarnir og að koma orku frá
sorpeyðingarstöðinni í verð. Hann
vill að bætt verði lýsing við aðflug
að flugvellinum svo hægt væri að
fljúga hingað að kvöldlagi.
Þorsteinn Jóhannesson, fyrsti
maður af D-lista, lagði áherslu á
vandaðan undirbúning mála og að
staðið væri við gerða samninga.
Hann flutti langa kafla úr ljóði Ein-
ars Benediktsson og er það nýlunda
hér á pólitískum fundum.
Guðrún Stefánsdóttir, fyrsti mað-
ur á V-lista, varaði við skuldasöfnun
sem hún sagði að væri orðin um 131
þúsund á íbúa. Hún vildi koma upp
safni um sögu og þróun Ísaíjarðar,
loka götum fyrir bílaumferð og hag-
ræða í rekstri.
Kristinn Jón
Jónsson
Akranes
Mikið af nýju fólki
í bæjarmálunum
Akranesi. Morgunblaðid.
KOSNINGABARÁTTAN á Akranesi
fór seint af stað og hefur verið með
rólegra móti. Það sem einkennir hana
öðru fremur er mikið af nýju fólki
sem ekki Itefur áður staðið í fremstu
línu í bæjarmálastarfi flokkanna.
Miðað við stöðu flokkanna frá kosn-
ingunum 1990 myndu sjö ný nöfn
taka sæti í bæjarstjórn nú.
Alþýðuflokkur hefur nú þijá full-
trúa í bæjarstjórn og Framsóknar-
flokkur þijá og mynda núverandi
meirihluta. Sjálfstæðisflokkur hefur
tvo fulltrúa og Alþýðubandalag einn.
Sömu flokkar bjóða fram nú.
Það er skoðun flestra að atvinnu-
mál setji mark sitt á kosningabarátt-
una. Nokkurt atvinnuleysi er í bæn-
um og stór fyrirtæki hafa átt í rekstr-
arvandræðum, sem ekki er búið að
sjá fyrir endann á. Þá eru orkumál
í brennidepli og slæm skuldastaða
Hitaveitu Ákraness og Borgarfjarðar
setur svip á bæjarmálaumræðuna.
Þá virðast flestir sammála um að
fjármálastaða bæjarsjóðs sé orðin
veik og í raun sé búið að ráðstafa
Gunnar Guðmundur
Sigurðsson Vésteinsson
því fjármagni sem til reiðu er á
næsta kjörtímabili.
Skuldir á hættumörkum
Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segir að helstu bar-
áttumálin snúist um það hvernig
fólk vilji takast á við atvinnumálin,
alvarlega skuldastöðu bæjarsjóðs og
orkumálin. „Skuldir bæjarsjóðs og
Atvinnuþróunarsjóðs eru um 532
milljónir samanborið við 470 millj-
óna króna tekjur. Hættumörk
skulda sveitarfélaga eru talin á bil-
inu 60-70% af tekjum. Þannig erum
við 200-250 milljónum yfir þessu
marki. Við eigum ekki nema eitt
svar við þessu og það er að auka
tekjur bæjarsjóðs og það án þess
að hækka skatta. Við höfum bent á
leiðir til þess,“ segir Gunnar. Hann
sagði að sjálfstæðismenn vildu taka
öðruvísi á orkumálunum en hinir
flokkarnir.
Guðmundur Vésteinsson skipar
annað sæti á lista Alþýðuflokksins,
en hann var áður oddviti flokksins
til margra ára. Guðmundur segir
að skuldastaða bæjarsjóðs sé svipuð
og fyrir átta árum og þá hafi enginn
talað um hættumörk. „Við þurfum
að huga að nýjum tækifærum og
nýta hagstætt lánsfé til að auka
framkvæmdir og atvinnu," segir
Guðmundur. „Erfiðleikar í atvinnu-
málum hafa krafist mikillar varnar-
baráttu og útlit er fyrir að svo verði
enn um sinn,“ segir hann. „Við eig-
um ýmis sóknarfæri, t.d. í full-
vinnslu afla í heimahöfn, nýjum
möguleikum í ferðaþjónustu og í
öðrum þjónustugreinum og endur-
reisn gróinna iðnfyrirtækja." Segist
Guðmundur telja að það hafi átt að
vera búið að lækka gjaldskrá hita-
veitunnar því rekstrarafkoma henn-
ar hefði stórlagast frá 1990 og hún
væri undir þeim mörkum sem geng-
ið hefði verið út frá í samningum
við ríkisvaldið 1987.
FJÁRMÁL Vestmannaeyjabæjar og
átak í atvinnumálum eru verkefni
komandi kjörtímabils að mati flokk-
anna þriggja sem bjóða fram nú.
Talsverðar breytingar hafa orðið í
framboðsmálum í Vestmannaeyjum
frá síðustu kosningum. Nú eru þrír
listar í framboði en fyrir 4 árum
buðu fjórir flokkar fram, Sjálfstæðis-
flokkur, Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag og Framsóknarflokkur.
Síðastnefndu flokkarnir þrír bjóða
fram sameiginlegan lista þann 28.
maí, V-listann, D-Iisti Sjálfstæðis-
flokks er í framboði og klofnings-
framboð frá Sjálfstæðisflokki, H-list-
inn.
Elsa Valgeirsdóttir, oddviti D-list-
ans, segir að sjálfstæðismenn vilji
vinna að atvinnuuppbyggingu,
áframhaldandi styrkri fjármálastjórn
og uppbyggingu félagslegrar þjón-
ustu. Einnig verði meiri áhersla lögð
á ferðamál og aukna nýsköpun í at-
vinnulífi, sem muni leiða af sér fleiri
atvinnutækifæri.
Hún segir að skuldastaða bæjarfé-
Vestmannaeyjar
Fjármál
og vinna á
oddinum
lagsins hafi batnað á kjörtímabilinu,
skuldir á hvern íbúa hafí lækkað úr
114 þúsund krónurn í 88 þúsund og
áfram þurfí að halda á þeirri braut.
Þær framkvæmdir sem ráðist hef-
ur verið í á síðasta kjörtímabili hafa
nær eingöngu verið unnar fyrir frain-
kvæmdafé bæjarins en ekki fyrir
lánsfé.
Þarf að efla nýsköpun
Guðmundur Þ. B. Ólafsson, oddviti
V-listans, segir að mikilvægt sé að
ná niður skuldum bæjarfélagsins.
Auk þess þurfí bærinn að skipta sér
meira af atvinnumálunum. 1 þeim
tilgangi þurfi að setja upp atvinnu-
þróunarsjóð sem myndi efla nýsköp-
un, sérstaklega á sviði sjávarafurða
og í ferðamannaiðnaði.
Annað baráttumál er að nýta sem
best verktaka og fyrirtæki í Eyjum
til þess að vinna verkefni á vegum
bæjarins, of mikið sé um að leitað
sé til fyrirtækja uppi á landi.
Guðmundur segir næg verkefni
framundan, en brýnt sé að finna leið-
ir til að fjármagna þær án þess að
auka skuldir eða hækka skatta.
Allir með sömu stefnumálin
Georg Kristjánsson, efsti maður á
H-lista, segir að flokkarnir þrír hafi
í grundvallaratriðum sömu mál á
stefnuskránni. Mikilvægustu máía-
flokkarnir séu atvinnumálin og fjár-
hagsstaða Vestmannaeyjabæjar, en
á komandi kjörtímabili þurfi að ná
niður skuldum. Þá þurfi að koma upp
sjóð þar sem fyrirtæki hafi aðgang
að áhættufé til nýsköpunar.
H-listinn vill að hugða verði að
viðhaldi húseigna í eigu bæjarins,
því hafi ekki verið sinnt sem skyldi.