Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 19

Morgunblaðið - 21.05.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEINIT LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 19 Sleppur Rost- enkowski? LÖGFRÆÐINGAR fulltrúa- deildarþingmannsins Dans Rostenkowski, sem á yfir höfði sér málshöfðun vegna spilling- ar og misnotkunar á almanna- fé, freista þess að semja við ákæruvaldið. Hefur verið boð- ið upp á að Rostenkowski gangist við hluta ákærunnar svo hann þurfi ekki að segja af sér formennsku fjárlaga- nefndar þingsins. Sé þingmað- ur ákærður fýrir brot á lögum sem leitt geta til meira en tveggja ára fangelsis verður hann sjálfkrafa að segja af sér nefndarformennsku. > * Afram Italía eflist FORZA Ital- ia, flokkur Silvios Ber- lusconis for- sætisráð- herra, nýtur langmests fylgis þar í landi og fær 25,7% at- Berlusconi kvæða í kosn- ingum til þings Evrópusam- bandsins 12. júní samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnun- ar sem birtar voru í gær. Er það 4,7% meira fylgi en í þing- kosningunum í marslok. Sömuleiðis hefur fylgi við stjórnarflokkana þijá vaxið úr 42,9% í 47,4%, einkum á kostnað miðflokka. N-Kóreu- menn skipta um eldsneyti SUÐUR-Kóreustjórn hvatti stjórnina í Pyongyang í Norð- ur-Kóreu í gær til þess að hætta að fjarlægja notað elds- neyti úr kjarnakljúfi í Yongby- on. í trássi við hótanir Samein- uðu þjóðanna (SÞ) um refsiað- gerðir hafa Norður-Kóreu- menn hafist handa við að skipta um úranstangir án þess að fulltrúar Alþjóðakjarnorku- stofnunarinnar (IAEA) væru viðstaddir. Muluzi nær ekki meiri- hluta LÍTIÐ vant- aði á að Lýð- ræðisfylking Bakilis Muluzis (UDF) næði meirihluta í þingkosning- unum í Malawi en Muluzi bráðabirgða- úrslit voru kynnt í gær. Sam- kvæmt þeim fær UDF 85 þingsæti af 177, Kongress- flokkur Kamazu Banda for- seta (MCP) 56 eða 57 sæti og Lýðræðissambandið (AFORD) 35 sæti. Eftir er að úrskurða um ágreining sem reis um úrslit í suðurhéraðinu Nsanje þar sem UDF vann fyrst tvö sæti en var síðan sagt hafa tapað þeim. Manndrápin í Rúanda „Vorum þjálfuð til að drepa“ Kabuga. Reuter. „VIÐ vorum þjálfuð til að drepa, til að útrýma öllu tútsífólki og áhangendum þeirra, það var það, sem foringjarnir í hernum kenndu okkur,“ sagði Juliana Mukanyarwa- ya, 36 ára gömul kona af hútúætt- bálknum í Rúanda. Hún er hún fangi tútsí-manna ásamt fleiri fyrr- verandi félögum í dauðasveitum stjórnarhersins. Juliana segist aðeins hafa drepið unglinga og börn og notað til þess gaddakylfu og hún hefur boðist til að benda á foringja dauðasveit- anna, Jean-Baptiste Gatete, sem hún segir nú vera í Benaco-flótta- mannabúðunum í Tansaníu. „Ég harma það, sem ég hef gert, en mér finnst ég ekki bera ábyrgð á því. Ég hlýddi bara skipunum og gat ekki annað gert,“ segir hún. Höfuðin brotin með gaddakylfum Meðal klefafélaga Juliönu er Moonigaba Mudaheranwa, 16 ára gamall drengur, sem segist hafa haft það starf í Kabuga að vísa hermönnunum á tútsífólkið. „Einn daginn komu þeir og skutu 400 manns fyrir augunum á mér,“ seg- ir hann og kveðst viss um, að. allt tútsífólkið í bænum, 4.000 manns, hafi verið drepið. „Ég sá konum nauðgað dögum saman áður en höfuð þeirra var brotið með gadda- kylfu, fyrir augun á öðrum var bundið og þær síðan skotnar að börnum sínum ásjáandi." Annar fangi, Joeph Rukwavu, nærri hálfáttræður að aldri, sagðist harmað það, sem hann hefði gert. „Ég iðrast þess frammi fyrir guði og mönnum, ég skammast mín en hvað hefðu aðrir gert í mínum spor- um. Það var ekki um neitt að velja. Annaðhvort var að taka þátt í morð- unum eða vera sjálfur drepinn ásamt fjölskyldunni." Rueter Al-Anad í höndum norðanmanna SVO virðist sem Al-Anad-herstöðin í Suður-Jemen hafi fallið í hendur hermanna frá Norður-Jemen eftir ákafa bardaga í nokkra daga. Er hún 40 km fyrir norðan hafnarborgina Aden og búast má við, að næstu stórátök í styrjöld jemensku ríkjanna muni standa um hana. Hermaðurinn á myndinni er norður-jem- enskur og herstöðin í baksýn. f.’ _ Sparaðu tilboð 3*700 fcrdalagíð byrjar! Laugardag kl. 10-16 Sunnudag lokað Annar í Hvítasunnu: Mánudagkl. 13-16 Mikið úrval af furu- húsgögnum Relex-sólstóll

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.