Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 17 Leikhópurinn Leyndir draumar Magdalena á Galdraloftinu LEIKHÓPURINN Leyndir draumar frumsýnir á morgun, laugardag, kl. 21 leikverkið Magdalena — lítill naflahringur í leikstjórn Hlínar Agnarsdótt- ur. Sýnt verður á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9. Leiksýningin er byggð m.a. á nokkrum atriðum úr leikritinu „Frúin frá hafinu“ eftir Henrik Ibsen, svo og ástarsögu Gríms Thomsens og Magdalenu Kragh Thoresen. Magdalena var dönsk að uppruna, en giftist tengda- föður Ibsens og var líklega fyrirmynd hans að Ellidu Wang- el eða sjálfri Frúnni frá hafinu. í kynningu segir: „Magdalena var vel skáldmælt og mikil áhugamanneskja um bókmennt- ir og leiklist og sagt er að hún hafi haft mikil áhrif á samtíma- menn sína eins ogt.d. Ibsen, Björnsson og Brandes. Hún kom ung stúlka til náms í Kaup- mannahöfn og kynntist þar Grími Thomsen. Með þeim tók- ust ástir og eignuðust þau barn, sem þau urðu að gefa. Þessi ástarsaga hefur m.a. orðið kveikjan að þeirri sýningu sem Leyndir draumar sýna nú.“ Auk ljóða eftir Magdalenu verða fluttir textar og ljóð eftir nokkur íslensk samtímaskáld. Tónlistin í sýningunni er m.a. eftir Poulenc, Schúmann, Brahms og Mahler. Leikhópur- inn Leyndir draumar varð til á námskeiðum í Kramhúsinu, en sýnir nú í fyrsta sinn opinber- lega. Leikhópurinn saman- stendur af 12 manns á aldrinum 22-56 ára. Önnur sýning er áætluð mánudaginn 13. júní. ■yxnáf/ýl- SWIFT DOM 3ja manna kúlutjald. Innra tjald 100% bómull. Ytra tjald nælon. 4,5 kg. Verð kr. I 5% stadgreidsluarsiaiiui, elnnlg af póstkröfum grelddum Innan 7 daga mmuTiuFvm GLÆSIBÆ . SÍMI 812922 / I sambandi vib neytendur frá morgni til kvölds! - kjarni máhins! LISTIR LEIKHÓPURINN Leyndir draumar frumsýnir leikverkið Magdalena á Galdraloftinu — lítill naflahringur. Veist þú hvernig er hægt að hafa stjórn á áhættu og njóta um leið hámarks ávöxtunar? SVARIÐ STENDUR /„ VERÐBRÉF OG ÁHÆTTA Hvemig er best a<) ávaxtet peninga?“ í bókabúðum um land allt! - kjarni málsins! Nýjung fyrir þá sem vilja fá sér farsíma til að nota á kvöldin, um nætur og um helgar Lægra stofngjaldl Þeir sem vilja nota farsímann í frítíma sínum, s.s. á kvöldin og um helgar og sem öryggistæki, býðst nú að greiða lægra stofn- og ársfjórðungsgjald fyrir farsímanotkun. Mínútugjaldið er það sama og um venjulegan farsíma væri að ræða, frá kl. 18.00-08.00 alla virka daga og um helgar. Utan þessa tíma er greitt þrefalt gjald fyrir hverja mínútu. Farsíminn kemur að góðum notum í frítímanum sem öryggistæki, í sumarbústaðinn, í veiðiferðina, í hjólhýsið og fjallaferðina. kr. 2.490.- Lægra afnotagjald kr. 498.-/ársfjórðungslega FARSÍMAXERF1 PÓSTSOG SÍMA Ódýrara - öryggisins vegna! idí Þú færð nánari upplýsingar hjá Pósti og síma og hjá öðrum söluaðilum farsíma. ds&kSL- PÓSTUR OG SÍMI I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.