Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM FOLK Kvikmyndin „The Wolf * með Jack Nicholson er hrollvekjandi furðusaga WÍ 41.10. UB40 Teknir með eitur- ■ lyf í fórum sínum ►HLJÓMSVEITIN UB40 fær að Ijúka tónleikaferðalagi um Nýja Sjáland þrátt fyrir að tveir meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið teknir með eiturlyf í fórum sínum á þriðjudag. Þeir tveir sem um ræðir voru ónafngreind- ir, en lögreglan sagði þá hafa borið á sér kannabis-efni. Þeir voru aðvaraðir opinberlega en ekki ákærðir. Isabella Rosselini látin hætta ►LEIKKON- UNNI og fyrir- sætunnilsa- . bellu Rosselini hefur verið sagt upp samn- ingi við snyrti- vörufyrirtækið Lancome, fyrir aljlurs sakir. Leikkonan er orðin 41 árs gömul. Banda- rísk kvennahreyfing mótmælti ákvörðun fyrirtækisins: „Með þessari ákvörðun voru öllum konum sem komnar eru yfir fertugt send þau skilaboð að þær væru gagnslausar." Lynn Barbers pistlahöfund- ur The Sunday Times segir mótmælin sjálf vera móðgun við konur sem komnar eru yfir fertugt: „Ef eina gagnið, sem konur yfir fertugu geta gert heiminum, er að sýna snyrtivörur er það rétt. Þá er Isabella Rosselini gagnslaus, vafalaust ég og líklega, kæri lesandi, einnig þú. En kannski getum við unnið heiminum gagn á einhvern annan hátt?“ MIKE Nichols á vinnustofu sinni, á sjónvarpsskjánum má sjá glyrnur úlfsins. Annaðbarn Stefaníu prinsessu STEFANÍA prinsessa af Mónakó og Stephane Ducruet stilla sér upp ásamt nýfæddri dóttur sinni, Pauline Grace Maguy. Pauline er annað barn þeirra og fæddist klukkan 11.22 4. maí síðastliðinn. Hún vó 2,8 kíló við fæðingu. Á ferli sínum hefur IMichols leikstýrt fimmtán kvik- myndum. JACK Nicholson er ófrýnilegur í hlutverki sínu í kvikmyndinni „The Wolf“. Vildu ekki velgju- legan boðskap í anda Greenpeace MIKE Nichols leikstýrir nýrri kvikmynd, „The Wolf“, með Jack Nicholson í aðalhlutverki. Það er óvenjuleg og hroll- vekjandi furðusaga þar sem yfirnáttúrulegir hlutir henda bóklært og veraldarvíst fólk. Nichols segir sjálfur um var- úlfinn í þessari nýjustu kvikmynd sinni: „Það er óhugnan- leg tilhugsun að þegar breytingin verður til hins illa hverf- ur mannlegi þátturinn. Við vildum ekki að kvikmyndin hefði velgjulegan boðskap í anda Greenpeace, að það væri svo yndislegt að vera dýr.“ Á ferli sínum hefur Nichols leikstýrt fimmtán kvikmyndum, meðal annars „The Gradu- ate“ sem hann hlaut óskarsverðlaun fyrir, „Carnal Knowledge" og „Working Girl’. Nichols átti erfiða æsku. Hann var gyðingur í Þýska- landi nasismans, þar til fjölskylda hans flúði til Bandaríkj- anna á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Hann sagði sjálfur í viðtali árið 1968: „Sumt fólk lifir góðu lífi fyrri hluta æviskeiðs síns, Kennedy-fjölskyldan er talandi dæmi um þetta, en hægt og hægt hrannast óveðursskýin upp og ógæfan verður ekki umflúin. Annað fólk gengur í gegn- um miklar hörmungar snemma æviskeiðs síns en síðan verður lífið betra og betra, þar til allt er orðið gott. Hæng- ur málsins er sá að líf þess fólk verður alltaf eitrað af þeim hörmungum sem gengu yfir það í upphafi." Drífðu þig og nýttu þér frábært tilboð! H jr 3 S k JT o Við gefum pakka meö 2 Upperdeck körfuboltamyndum meðan birgðir endast. Bíómiðinn giidir sem 15% afsláttur af SHAQ-bolum í Frístund, Laugavegi 6. Verðlaunagetraun - Reebok SHAQ-skór í verðlaun! Nýr sendiherra í Frakklandi SVERRIR Haukur Gunnlaugsson afhenti Francois Mitterrand forseta Frakklands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Frakklandi 25. maí síðastliðinn. Á myndinni eru, frá vinstri: Alain Juppé utanríkisráðherra, Francois Mitterrand forseti og Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.