Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 V I K I N G A m t Vinningstölur , miövikudaginn: 8. júni 1994 VINNINGAR n6afe B| 5 af 6 MH+bónus R1 5 af 6 ÉJ 4 af 6 0 3 af 6 +bónus FJÖLDi VINNINGA 2 0 6 249 827 UPPHÆÐ Á HVERN VINNING 18.850.000 1.459.633 47.597 1.824 236 Aðaltölur: Heildarupphæð þessa viku: 40.094.563 áísi : 2.394.563 UPPLYSINGAR, SlMSVARI 91- 66 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 . TEXTAVARP 451 ÐIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR Uinningur fór til: Danmerkur og Finnlands Miðnæturskemmtun föstudags- og laugardagskvöld. KoKKTEIUAÍ SKEMMTIKRÖFTUM Defina (KONGAS), Dúettinn „Kavíar" og Battu dansfeokkurinn. Ccfn íuc,n\ tA \ a W»«« / O) ' ...^ „ Y 0\» PoPocþ'íljmcnCo / /T Q k~r\\ -atii^ f r ó * ftamcnc° IDAG Farsi LEIÐRÉTT Eina DC-3 vélin úr stríðinu í FRÉTT i gær um flug upprunalegrar Douglas C-47 Dakota (DC-3) vélar með aldna fallhlífahermenn yfír Normandíströnd var fullyrt að um væri að ræða einu vélina sinnar tegundar sem enn væri flughæf. Rétt er að þessi tiltekni þristur er eina flughæfa vélin sinnar tegundar sem jafn- framt var notuð í síðari heimsstyijöldinni og meðal annars í innrás banda- manna í Frakkland á D-deg- inum. Vélin var ein 500 flugvéla sömu gerðar sem Bandaríkjamenn smíðuðu 1943 og sendu Bretum. Flugfélag íslands eignaðist nokkrar þessara véla og ein þeirra, Gljáfaxi, heitir nú Páll Sveinsson og flýgur enn fyrir Landgræðsluna eins og alþjóð veit. Sýning Svavars til 6.júlí I frétt um sýningu á verkum Svavars Guðna- sonar í Galleri Profilen í Árhúsum var ranglega haft eftir Pétri Þór Gunnarssyni hjá Gallerí Borg að sýning- unni hefði lokið í byrjun júní. Sýningin stendur til 6. júlí nk. og geta því íslend- ingar sem leggja leið sína til Danmerkur í júní og hafa áhuga á verkum Svavars skoðað sýninguna í Árhús- um. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. Nafn féll niður Nafn verðlaunahafans Vilhjálms Geirs Kristjáns- sonar féll niður í frétt af útskrift Vélskóla íslands sem birt var í blaðinu 1. júní síðastliðinn. Hann út- skrifaðist af tjórða stigi sem vélfræðingur og hlaut verð- laun í íslensku. Hlutaðeig- andi eru beðnir velvirðingar. BSÍ við Vatns- mýrarveg í frétt af umferð til Þing- valla á 17. júní í blaðinu í gær var sagt að Umferð- armiðstöðin væri við Kalk- ofnsveg en hið rétta er að hún er við Vatnsmýrarveg. VSÓ er í Litháen í umflöllun um verk- fræðistofur í viðskiptablaði í gær var Stefán Pétur Egg- ertsson sagður fram- kvæmdastjóri VST sem er að vinna að verkefnaút- flutningi í Litháen. Hið rétta er að Stefán Pétur er fram- kvæmdastjóri VSÓ sem er í þreifingum með verkefni í Litháen. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. VELVAKANDI svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Þakkir VIÐ SENDUM Þóri og Eyju í Haukadal III í Biskupstungum hjartan- legar þakklætiskveðjur fyrir frábærar móttökur um hvítasunnuhelgina. Húsbílaunnendur Tapað/fundið Úr fundust EITT karlmannsúr og eitt ólarlaust kvenúr fundust á lóð Hvassaleit- isskóla, karlmannsúrið fyrir u.þ.b. viku en kven- úrið fyrir u.þ.b. ári síðan. Eigendur geta haft sam- band í síma 30247. SKÁK IJmsjón Mnrgcir Pctursson Þessi staða kom upp á Unibank mótinu í Kaup- mannahöfn í maí í viðureign alþjóðlegu meistaranna Laszlo Hazai (2.465), Ungveijalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Hen- riks Danielsens (2.480), Danmörku. Svartur var að enda við að drepa biskup á f6 með riddara sem stóð á d7. Þar með féll hann í gildru sem smellur nú aftur: Sjá stöðumynd 15. Bxe6! - fxe6, 16. Dxe6+ - Kh8 (16. - Hf7?, 17. Rg5 var ennþá verra). 17. Dxe7 - Bxf3, 18. gxf3 - Dxd4, 19. Rb5! - Df4, Týnt hjól DÖKKRAUTT fjallahjól af gerðinni Muddy Fox hvarf frá Melgerði 20 í Reykjavík aðfaranótt sl. laugardags. Hafi einhver orðið var við hjólið er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 813139. Gæludýr Kettlingur GULLFALLEGUR lítill kettlingur fæst gefins, kassavanur og þrifaleg- ur. Upplýsingar í síma 46538. 20. Hxc8 - Hxc8, 21. Rd6 - Dxf3 (Hrein örvænting, svartur hefði mátt reyna 21. - Ha8, því við 22. Rf7+ - Kg8, 23. De6 á hann svarið 23. - He8), 22. Rxc8 (Auðvitað. Hvítur sleppur auðveldlega út úr skákum svörtu drottningarinnar.) 22. - Dg4+, 23. Kfl - Dh3+,24. Ke2 - Dxc8, 25. Kd2 - h5, 26. Hgl og með skiptamun yfír vann hvítur auðveldlega. Pénnavinir TÆPLEGA fertuga finnska konu með margvísleg áhugamál langar að eignast íslenska pennavini: Eeva Hyvönen, Puutarhatie 10 c 8, 81100 Kontiolaliti, Finland. ÞÝSK kona sem getur ekki um aldur en hefur áhuga á- íslenskum bók- menntum, Skrifar á þýsku: Sonja Sommer, Langgasse 16, D-56357 Mielilen, Germany. Víkverji skrifar... Orð eru vandmeðfarin og já- kvæð merking orða getur orð- ið neikvæð undir ákveðnum kringumstæðum. Þetta hugsaði Víkveiji með sér þegar hann las bréf Árna Finnssonar, starfs- manns grænfriðunga í Svíþjóð, til Morgunblaðsins fyrir nokkrum dögum. Þar kvartaði Árni yfir rangri þýðingu blaðsins á ummæl- um Clif Curtis, talsmanns græn- friðunga, eftir að Alþjóðahvalveið- iráðið samþykkti griðasvæði fyrir hvali í Suðurhöfum. í frétt frá Reuters-fréttastof- unni var haft eftir Curtis: „What this decision reflects is an indicati- on that this forum has been con- verted from a whaling convention to a whaleprotection convention.“ í frétt Morgunblaðsins var þetta þýtt með þeim hætti, að Curtis teldi samþykktina sýna að ráðið hefði breyst úr hvalveiðiráði í hval- friðunarráð. Við þetta gerði Árni Finnsson athugasemd og sagði ranglega þýtt úr ensku. Enska orðið „protection" þýddi verndun á ís- lensku en ekki friðun og því þýddu orðin „whaleprotection conventi- on“ hvalverndunarráð. Á þessu tvennu væri mikilvægur munur því í verndun hvala fælist ekki alger friðun þeirra. Árni sagði að hvalfriðunarráð hefði um árabil verið skammaryrði íslenskra stjórnvalda yfir Álþjóðahvalveiði- ráðið en stefna grænfriðunga væri ekki alger friðun hvala þó að þeir væru á móti hvalveiðum í ábata- skyrii. Þeir teldu eðlilegt að leyfa takmarkaðar veiðar í sjálfs- þurftarskyni og veiðikvóta undir vísindalegu eftirliti. Hins vegar væri griðasvæðið í Suðurhöfum mikilvægur áfangi í starfi græn- friðunga fyrir vernd hvala og í því ljósi ætti að skilja orð Curtis. xxx Istofnsáttmála Alþjóðahval- veiðiráðsins er víða talað um verndun og viðhald * hvalastofna og þá er ávallt notað enska orðið „conservation". Þar er einnig talað um að ráðið geti friðað ákveðna hvalastofna og þá er notað orðið „protection.“ Samkvæmt ensk-íslenskri orða- bók þýðir conservation varðveisla eða verndun náttúrugæða frá sóun. Orðið protection er þýtt með verndun, það að vernda. I íslensk- enskri orðabók er orðið friðun hins vegar sagt það sama og protection á ensku. Og í Oxford English Dictionary er orðið „protect“ sagt þýða: Að reyna að varðveita [jurta eða dýrategund í útrýmingar- hættu] með því að koma í veg fyrir veiðar o.s.frv. Á hvalagriðasvæðinu í Suður- höfum verður bannað að veiða hvali, hvort sem um er að ræða hvalategundir í útrýmingarhættu, eins og steypireiði, eða hvalateg- undir sem ættu að þola veiðar, eins og hrefnu. Þarna hlýtur þá að vera á ferðinni hvalfriðun en ekki hvalverndun og því er erfitt að áiykta annað en Clif Curtis hafi sagt og meint hvalfriðunarráð í viðtalinu við fréttamann Reuters og talið það orð jákvætt þótt orðið hljómi eins og skammaryrði í eyr- um Árna Finnssonar. xxx Fyrst Víkveiji er farinn að ræða um hvali getur hann ekki stillt sig um að minnast á bók sem Alþjóðastofnun háskólans hefur gefið út um þróun hvalamálsins síðasta áratug. Þar er vísað til 443 tölusettra heimilda og er Morgun- blaðið tilgreint sem heimild í 229 skipti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.