Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ NÓATIJN VERÐHRUN á Folaldakjöti VERÐHRUN á Folaldakjöti NOATUN Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456, Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062, Þverholti 6, Mos. - S 666656, JL-húsinu vestur i bæ - S. 28511, Kleifarseli 18 - S. 670900 Hún snýst nú Seinni grein Þrír hornsteinar Á lýðveldistímanum hafa hornsteinar ís- lenskrar utanríkis- Stefnu verið þrír: ' 1. Aðildin að Atlants- hafsbandalaginu og vamarsamning- urinn við Bandarík- in. 2. Aðildin að Norður- landaráði og sam- starf Norðurlanda- þjóðanna á alþjóðavettvangi. 3. Samningar EFTA-ríkjanna við Evrópusambandið um gagn- kvæma viðskiptahagsmuni. Allar hafa þessar meginforsend- ar ýmist breyst nú þegar eða munu 'yrirsjáanlega breytast í náinni ’ramtíð. Atlantshafsbandalagið er smám sarnan að breytast í tvíhliða sam- ikipti Bandaríkjanna og Kanada innars vegar og Evrópusambands- ns hins vegar. Vestur-Evrópusam- >andið mun í framtíðinni gegna luknu hlutverki sem varnararmur Evrópuþjóðanna. Sú hugsun veldur nörgum leiðtogum Vestur-Evrópu- ríkjanna andvöku að þess sé skammt að bíða að Bandaríkin iverfi fyrirvaralítið með leifarnar af herjum sínum frá Vestur-Evr- ópu. Þar með hætti risaveldið í vestri að ábyrgjast í verki öryggi Vestur-Evrópu með þeim skilaboð- um að tími sé til kominn að Evrópu- menn standi á eigin fótum. Hernaðarlegt mikilvægi íslands innan Atlantshafssamstarfsins fer þverrandi. Varnarsamstarf íslands og Bandaríkjanna verður tekið til endurskoðunar að tveimur árum liðnum. Mikilvægi íslands innan Atlantshafssamstarfsins gerði ís- lendingum fyrr á tíð kleift að hafa áhrif á lausn ágreiningsmála (t.d. lífshagsmunamál okkar — land- helgismálið) umfram það sem ella hefði verið. Því ber að treysta var- lega ef við þurfum á því að halda í framtíðinni. Norrænt samstarf: Ekki svipur hjá sjón Ef niðurstöður þjóð- aratkvæðis í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi síðar á þessu ári staðfesta að fjögur Norðurlanda (að Danmörku meðtal- inni, sem átt hefur að- ild að ESB í rúma tvo áratugi) verði aðilar að Evópusambandinu í byijun árs 1995, verð- ur þátttaka íslands í Norðurlandasamstarf- inu naumast svipur hjá sjón. Samstarf Norður- landanna ijögurra inn- an Evrópusambandsins verður yfir- gnæfandi forgangsverkefni þess- ara þjóða, ekki aðeins á sviði við- skiptamálefna, heldur einnig varð- andi utanríkis- og varnarmál, sem og samstarf á sviði vísinda, rann- sókna og menningar. íslendingar munu því í vaxandi mæli verða viðskila við kjarnann í norrænu samstarfi. Hið raunveru- lega Norðurlandasamstarf verður hér eftir samstarf fjögurra Norður- landaþjóða innan Evrópusam- bandsins, sem íslendingar verða að óbreyttu útilokaðir frá. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Fríverslunarsamtökin EFTA munu væntanlega líða undir lok á næsta ári. Þar með verða íslending- ar viðskila við bandalagsþjóðir, sem styrktu mjög stöðu okkar í samn- irigum við Evrópusambandið. Frá því að vera sameiginlegur samning- ur sjö þróaðra smáþjóða (að með- töldu Liechtenstein) við tólf ESB- ríki breytist EES-samningurinn að formi til í tvíhliða samning íslands við sextán ESB-ríki. Varla er við því að búast að ísland eitt og sér geti haft sömu áhrif á framtíðar- þróun og framkvæmd EES-samn- ingsins og verið hefur meðan það nýtur tilstyrks hinna EFTA-þjóð- anna. Það er því fyrirsjáanlegt að ísland mun tapa áhrifum sem það áður hafði. Úrsögn fyrrum bandalagsþjóða úr EFTA og innganga þeirra í ESB þýðir því ekki að Islendingar búi Jón Baldvin Hannibalsson Royal súrmjólk meö óvoxtabrogöi bragöast sem besta jógúrt! Prófib líka vanillu- og karamellubrag&! Hræriö saman 1 I af súrmjólk, 1/2 pk. af Royal jarðarberja- e&a sítrónubúðingsdufti og 3 msk. af sykri. Kælið vel. Mjög frískandi eftirréttur. Súrmjólk llítri samt Við búum ekki við óbreytt ástand heldur þverrandi áhrif og vax- andi einangrun, segir Jón Baldvín Hanni- balsson, og verðum við- skila við kjamann í nor- rænu samstarfi ef og þegar bandalagsþjóðir okkar í EFTA ganga í ESB. við óbreytt ástand. Við verðum við- skila við kjarnann í norrænu sam- starfí í framtíðinni. Og við höfum ekki lengur við að styðjast þann tilstyrk sem sameiginleg samnings- staða EFTA-landanna veitti okkur í samskiptum við Evrópusamband- ið. Það var einmitt samstaða EFTA-þjóðanna sem gerði þeim kleift að ná svo hagstæðum samn- ingum um Evrópska efnahags- svæðið sem raun ber vitni. Við búum því ekki við óbreytt ástand, heldur þverrandi áhrif og vaxandi einangrun. Áhrif smáþjóða Með Norðurlandasamstarfið að bakhjarli hefur ísland meiri áhrif en ella hefði verið í ýmsum alþjóða- stofnunum, eins og Sameinuðu þjóðunum, OECD, GATT, RÖSE o.s.frv. Framkvæmd EES-samn- ingsins sjálfs mun hvíla á veikari grunni. Loks kunna íslendingar að standa frammi fyrir þeirri spurn- ingu, hvort þeir treysti sér til að sjá þjóðarhagsmunum sínum borg- ið sem eina Evrópuþjóðin, utan alls- herjarsamtaka Evrópuþjóða (ESB). Það er einmitt þetta áhrifaleysi á pólitíska ákvarðanatöku og fram- tíðarþróun í Evrópu sem er megin- ástæðan fyrir því að hin EFTA-rík- in telja að EES-samningurinn dugi þeim ekki lengur, við gerbreyttar pólitískar aðstæður. Ríkisstjórnum þessara landa er ljóst að ákvarðanir ESB í framtíð- inni geta á mörgum sviðum haft úrslitaáhrif á þróun þeirra eigin málefna, hvort sem þau eru með- limir eða ekki. Sameiginleg aðild Norðurlandanna mun hins vegar færa þeim áhrif á mótun ákvarðana og framtíðarþróun og þannig styrkja fullveldi þeirra frá því sem ella hefði verið. Reynslan sýnir að smáþjóðir eru engan veginn áhrifalausar innan ESB. Reynsla Dana og Lúxem- borgara sannar þetta ótvírætt. Ekki leikur vafí á þvf að sameigin- lega munu Norðurlandaþjóðimar hafa umtalsverð áhrif, ef þau beita sér t.d. varðandi mótun auðlindá- og sjávarútvegsstefnu, sameigin- legar aðgerðir gegn atvinnuleysi, lög og reglur varðandi félagsleg réttindi launafólks og aðgerðir gegn félagslegum undirboðum, sem gætu aukið atvinnuleysið heima fyrir. Utan Evrópusambandsins mundu Norðurlandaþjóðirnar hins vegar vera áhrifalausar með öllu á þróun þessara mála. Hvert einstakt þjóðríki er því að tapa áhrifum yfír málum, sem þó geta haft úrslita- áhrif á þróun þessara þjóðfélaga. Með því að sameina hluta af full- veldi þjóðríkjanna í hendur sam- þjóðlegum stofnunum eru þessar þjóðir því að endurheimta völd og áhrif, sem þau hafa verið að glata smám saman á undanfömum árum og áratugum. Höfundur er formaður Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands, og utanríkisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.