Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ1994 41 BREF TIL BLAÐSIIMS Er leikskólakennarastarf- ið metið að verðleikum ? í LEIKSKÓLANUM lærir barnið hin fyrstu lögmál náttúrunn- ar, félagsleg tengsl og hegðunarmynstur. Siglingamálastofnun Stofnun mistaka og mismununar Frá Garðari Björgvinssyni: SIGLINGAMÁLASTOFNUN kostar skattborgarann eitt hundrað milljónir á ári, auk ómældra erfíðleika fyrir þá er við hana skipta. Það er þjóðar- hagur að leggja þessa stofnun niður. Það er einnig hagur og léttir fyrir þá er þurfa á slíkri stofnun að halda að geta átt kost á að skipta við manneksjulegra „apparat" á þessu sviði sem gerir Jón og séra Jón hníf- jafna. Ég hefi rætt við ráðamann hjá Norsk Veritas og okkur sýnist að með aðstoð skoðunarstofu og í sam- ráði við báta- og skipasmíði mætti búa til ódýrt, lipurt kerfí án fjárhags- legra afskipta ríkis og skattborgara. Slíkt kerfí mundi þjóna betur hags- munum báta og skipaeigenda og tryggja þá á öruggan hátt gegn mannlegum mistökum, því hægt væri að taka tryggingu hjá Loyds. Það hefír sýnt sig og sannað að það tekur mánuði og áraraðir að ná al- mennum rétti þegar um mistök eða misferli er að ræða af hendi þessarar stofnunar, eflaust gildir það sama um aðrar ríkisstofnanir. Ríkið hefír á háum launum dragbíta svo sem ríkislögmann, auk þess standa uppúr hjólförunum fleiri nibbur á háum launum hjá skattborgaranum. Starf þessa fólks virðist í því fólgið að tefja fyrir framgöngu róttækisins og þess- ir menn virðat hafa afsalað sér allri réttlætis- og siðferðiskennd sem ann- ars er nú svo nauðsynleg í mannleg- um samskiptum. Sem bátasmiður veit ég að í beinu framhaldi af því sem ég hefí hér sagt um breytingar við eftirlit báta og skipa, væri auðvelt að lækka til muna byggingarkostnað báta án þess að slaka hið minnsta á gæða- og öryggiskröfum. Það þarf einfaldlega að staðla alla þá hluti sem þurfa að vera í hvetjum bát svo sem barka, dælur.lagnir allar og frágangsað- ferðir. Þetta auðveldar eftirlit, sópar burt öllum átökum og ágreiningi þeim er siglingamálastofnun fslands er heimsfræg fyrir, og síðast en ekki síst mætti lækka kostnað á aðföng- um um helming með hagstæðum samningum um kaup á þessum stöðl- uðu hlutum. Hvaða glóra er í því t.d. að vera að borga 1.300.00 kr. fyrir vél sem kostar 770.000 kr. hjá framieiðanda. Sannieikurinn er sá að bátar eru allt of dýrir en samt verður of lítið eftir hjá bátasmiðnum fyrir hans erfiða og ábyrgðamikla starf. Sá sem smíðar bát er að smíða utan um líf sjómannsins. Til að sanna mitt mál varðandi mismunun og mistök Siglingamála- stofnunar þá legg ég fram álit um- boðsmanns Alþingis ásamt sönnun fyrir lífshættulegum framleiðslugöll- um í Nýsmíði 15 sem voru gerðir undir eftirliti eins ákveðins manns frá stofnuninni. Þessi bátur, Nýsmíði 15, er aðeins einn af mörgum sem komnir eru í notkun. Næsti bátur, stimplaður í lagi eftir þennan sama mann, klæddi sig úr ytra byrðinu í reynslusiglingu utan við Þorlákshöfn. Nýsmíði 15 var bátur no. 4 af sömu gerð frá mér, en hinir þrír voru einn- ig með marga galla. Alla þessa lífs- hættulegu galla hefí ég þurft að laga á eigin reikning þrátt fyrir gæðast- impil þessarar þjóð- og heimsfrægu stofnunar. Þarna á þessari stofnun eru starf- andi fleiri gallablindir menn, sem þó hafa talfærin á réttum stað. Hjá stofnuninni starfa þó hinir ágætustu einstalingar sem eru færir á sínu sviði og gætu komið að góðum notum á nýrri skoðunarstofu. Spuming dagsins er sú, hver gæt- ir hagsmuna þeirra kaupenda sem kaupa þessi gripi með ferðapassa og gæðastimpil þessarar ríkisreknu heiðursstofnunar. Auðvitað liggur það ljóst fyrir að Siglingamálastofn- un ér ábyrg fyrir mistökum sinna manna, þess vegna væri það hið besta mál fýrir skattborgarann að losna við af sínum herðum að taka ábyrgð á mistökum vitleysinga. Eins og ríkislögmaður vill túlka málið, þá er það víst á ábyrgð ein- staklingsins sem kaupir gripinn í góðri trú á gæðastimpilinn að borga brúsann, þótt það setji fyölskyldu hans út á gaddinn. GARÐAR BJÖRGVINSSON, útgerðarmaður og bátasmiður. Frá Tatiönu K. Dimitrovu: FYRIR tveimur vikum síðan sótti vinkona mín sem er leikskólakenn- ari um skrifstofustarf. Henni líkaði vel við leikskólakennarastarfíð en vildi fá betri laun. Hún hélt að hún ætti góða möguleika á að fá vinn- una þegar hún fór í viðtalið og talaði við vinnuveitandann. Eftir á var hún ekki jafn viss um að fá starfið því að forstöðumaðurinn sagði við hana orðrétt: „Að gæta barna er eitt en að vinna á skrif- stofu er eitthvað allt annað. Það er miklu meira krefjandi og ábyrgð- armeira að vinna á skrifstofu.“ Þegar vinkona mín sagði mér frá þessu fékk það mig til þess að velta þessu máli fyrir mér. Er ekki krefj- andi að sjá um börn?! Allir leiða hugann annað slagið að því hver sé tilgangurinn og mikilvægi þess að eignast börn. Börnin okkar eru mikil auðæfí og þau eru erfíngjar okkar. Þau eru fólk framtíðarinnar. Þau eru einstaklingar sem eru ekki síður mikilvægari en við. í framtíð- inni munu þau meta að verðleikum það sem við foreldrar þeirra og kennarar hafa búið þeim í haginn. Þau munu byggja upp framtíðina og erfa landið og þau koma til með að verða foreldrar og kennarar þeirra eigin komandi kynslóðar, eigin afkomenda. Framtíðin er mikilvæg, því eins og hið forkveðna segir: „Eins og þú sáir, þannig mun þú og uppskera." Þegar börnin vaxa úr grasi munu þau koma mörgu í framkvæmd. Þá hefur erf- iði okkar borið ávöxt. Því er mikil- vægt að grundvöllurinn sé lagður strax. Hvert er hlutverk leikskólakenn- ara í okkar nútímasamfélagi? Leik- skólakennarar hafa áhrif á þróun persónuleika barnsins í frum- bernsku. Fyrstu sex árin eru mikil- vægasti tími í lífí einstaklingsins. Skiðaskálinn Hveradölum Ykkarfólk t fjöllunum Opið öll kvöld Nýr ogfjölbreyttur matseðill. Matar- og kaffi- hlaðborð ú sunnudögum. Sími 672020 Fax 682337 Harmonikuunnendur ■; -x -. ■. , <> Hljómsveit Guðjóns Matthíassonar leikur og syngur gömlu og nýju dansana íkvöld íÁrseli, Hótel íslandi. Barnið lærir um sjálft sig, náttúr- una, allt sitt nánasta umhverfí og annað fólk. í leikskólanum lærir barnið hin fyrstu grundvallarlög- mál náttúrunnar, félagsleg tengsl og hegðunarmynstur. I leikskólan- um tekur barnið ekki eingöngu á móti utanaðkomandi áreyti, heldur er lagður grundvöllur að persónu- leikanum á þessu tímabili í lífi barnsins. Leikskólakennari er fyrir- mynd barnsins á fyrstu sex árum í lífí þess. Leikskólakennarinn er uppalandi - kennir muninn á réttu og röngu, kennir mikilvægi vináttu, samstarfs og að vinna í hóp; leik- skólakennarinn er leiðbeinandi - kennir barninu móðurmálið, reikn- ing, skapandi list og leikfimi; leik- skólakennarinn er einnig vinur - barnið trúir honum fyrir sínum dýpstu leyndarmálum; leikskóla- kennarinn er jafnframt yfirvald - verndar barnið og sér um að rétt- læti og jafnrétti á leikskólanum sé fylgt. Leikskólinn í sinni mynd er sem smækkuð mynd af samfélag- inu. Leikskólakennarinn er mann- eskja sem er elskuð, honum er treyst og börnin og hinir fullorðnu muna eftir honum. Umhyggjusam- ur og vel menntaður leikskólakenn- ari skilur eftir sterk áhrif á barnið. Við, fullorðna fólkið, fjárfestum í afkomendum okkar. Vonir okkar og drauma eigum við marga bundn- ar börnunum. Það er oft leikskóla- kennarinn sem ber ábyrgð á fjár- festingu okkar. Á sama hátt og við berum umhyggju fyrir börnunum okkar, þannig eigum við að bera virðingu fyrir leikskólakennara- starfínu. Það er rétt meir en að segja það, að hugsa um börn. TATIANA K. DIMITROVA, leikskólakefSíiari og bókmennta- fræðingur. Gagnasafn Morgnnblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Hid sívinsæla KLAKA- leikur fðstudags- ug laugardags- kvöld. Matargestír fá frítt inn. BONAPARTE Grensásvegi 7, sími 33311. (Áður Dansbarinn) ■iiiUjiH VAGNHÖFÐA 1 1, REYKJAVIK, SIMI 685090 Gömlu dansa veisla Hljómsveitin ÞÖLL leikur fyrir dansi frá 10 - 03 Miðaverð kr. 800 I Miða- og borðapantanir í símum 685090 og 670051. I~- ..................................................................................................................................................'v":...................................................................................................................................t..................................................................: Þorvaldi Gunn ná upp Ojö dórsson vason emmningu Þcegilegt umfiverfi - ögrandi vinningar! OPIÐ FRÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00 I....'..........Y —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.