Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 19 Islenski dansflokkurinn Lýðveldisdansar í Borgarleikhúsinu ÍSLENSKI dansflokkurinn fi-um- sýnir um næstu helgi á Listahátíð í Reykjavík þrjá nýja íslenska ball- etta eftir þær Hlíf Svavarsdóttur, Nönnu Ólafsdóttur og Maríu Gísla- dóttur. Þá koma gestir frá San Francisco-ballettinum, tveir aðal- dansarar, þau Anthony Randazzo og Elisabeth Loscavio sem sýna tví- dansa úr Þymirósu og Rómeó og Júlíu eftir Helga Tómasson. Sýning- arnar verða í Borgarleikhúsinu laugardaginn 11. júní og sunnudag- inn 12. júní. Dansarnir eftir þær Maríu, Hlíf og Nönnu eru allir samdir sérstak- lega fyrir dansara íslenska dans- flokksins. Hlíf Svavarsdóttir nefnir sitt verk Fram, aftur til hliðar — og heim og er það samið við tónlist eft- ir Snorra Sigfús Birgisson og Jón Leifs. Verk Nönnu Ölafsdóttur er samið við ljóðabálkinn Tímann og vatnið eftir Stein Steinar. Þar fléttar hún saman dansi og upplestri Hjalta Rögnvaldssonar leikara á ljóðinu. María Gísladóttir nefnir verk sitt Sumarmyndir er það samið við tón- list sænska tónskáldsins Lars Erik Larsson.. Allir dansarar íslenska da.nsflokkssin taka þátt í sýningunni nú í vor. Leikmynd og búningar eru í höndum Guðrúnar Svövu Svavars- dóttir og Karls Aspelund. Sýningar- stjóri er Kristín Hauksdóttir, ljósa- hönun annast Björn B. Guðmundsson og aðstoð við æfingar er í höndum Lauren Hauser. Nýjar bækur ■ Út er komin Heilsubókin, fjöl- skylduhandbók um hollustu og heil- brigði eftir breska lækninn Stephen Cairoll. I formála bókarinnar segir m.a.: „Læknar fást nú ekki eingöngu við að lækna þá sem sjúkir eru, heldur nýta vaxandi þekkingu til að vara fólki við hættum og hjálpa því til að breyta lifnaðarháttum sínum. Á þann hátt er ekki einasta hægt að lengja líf fólks, heldur einnig að gera því kleift að njóta þess betur. I þessari bók er reynt með hjálp nýjustu upplýsinga að setja fram staðreyndir og hollráð, sem eiga að geta nýst öllum í fjölskyldunni til að temja sér heilbrigðari lifnaðar- hætti og um leið bæta útlit og líðan.“ Bókin er í handbókarformi og er ríkulega myndskreytt. Henni er skipt niður í átta meginkafla þar sem flallað er um ýmsar hliðar hollustu og heilbrigðis frá bamæsku til ell- iára. Útgefandi er Mál og menning. Bók- in er hönnuð af breska fyrirtækinu Dorling Kindersley sem er þekkt fyrir vönduð fræðslurit fyrir almenn- ing. Guðrún Svavarsdóttir líffræð- ingur þýddi. Heilsubókin er 319 bls., prentuð í Englandi og kostar 4.950 krónur. Kvennakórinn Dzintars frá Lettlandi Á efnisskránni eru lettnesk og íslensk lög ásamt kirkjulegri tónlist eftir m. a. Schubert, Kodaly, Brahms og Holst Víðistaðakirkja, sunnudaginn 12. júní kl. 17.00 Fella- og Hólakirkja, þriðjudaginn 14. júní kl. 20.00 Miðasala í Islensku óperunni sími 11475 -.U i-. I -—— M ! > <\ i\ % r? *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.