Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Brátt á loft eftir 50 ár í „ísskáp“ MARGIR muna eflaust eftir eftir- minnilegri endurheimt banda- rískrar orrustuflugvélar, Lockhe- ed P-38 Lightning, djúpt úr iðrum Grænlandsjökuls árið 1992 en þar brotlentu nokkrar vélar í síðari heimsstyrjöldinni árið 1942. Fáfn- ir Frostason atvinnuflugmaður var einn í stórum hópi flugáhuga- manna sem tók þátt í þessum björgunarleiðangri. Hann segir að endursmíði vélarinnar sé komin vel á veg í Bandaríkjunum og að vonast sé til þess að hún geti flog- ið á ný þegar á næsta ári. „Það væri svo sannarlega þess virði að sjá hana taka sig á loft á ný eftir 50 ára veru í ísskáp," sagði Fáfn- ir. Hann sagði að til hafi staðið að hún tæki þátt í alþjóðlegri flug- sýningu í Oshkosh i Wisconsin- fylki í Bandaríkjunum á þessu ári. Af því verði þó ekki þar sem flugvélasmiðirnir fari sér hægt og vandi mjög til verka. Samkvæmt grein í aprílhefti bandaríska flug- tímaritsins Southem Aviator hafa smiðirnir kortlagt hvert einasta stykki úr vélinni. í ljós hefur kom- ið að allir hlutar vélarinnar, stórir jafnt sem smáir, hafi varðveist utan að neflyólalokan kom aldrei í leitirnar á Grænlandi. Ef áætlun gengur eftir er talið líklegt að hægt verði að fljúga vélinni á næsta ári og er miðað við það til- efni að sýna hana á alþjóðlegri flugsýningu í Lakeland í Florída- fylki. Á myndinni sést hvernig aðkoman var á jöklinum, en orr- ustuflugvélin fannst á mjög miklu dýpi, eða sem samsvarar hæð Hallgrímskirkju. Halldór Ásgrímsson hittir Bangeman og Christophersen í Brussel Ræða möguleika á áheyrnaraðild íslands hjá ESB HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, hittir Martin Bangemann, varaforseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), og Henning Christophersen, sem fer með efnahagsmál í fram- kvæmdastjórninni, að máli í Brussel 20.-21. júní. Halldór mun meðal annars ræða möguleika á að íslendingar fái áheymaraðild að nefnd- um og ráðum hjá sambandinu. „Tilgangur þessarar ferðar er fyrst og fremst undirbúningur undir það sem koma skal,“ sagði Halldór. „í fyrsta lagi gegni ég formennsku í íslandsdeild Norður- landaráðs og er formaður í miðju- hópnum í ráðinu. Það er ljóst að það sem er að gerast, hvað varðar Norðurlöndin, mun hafa veruleg áhrif á norrænt samstarf. Ég hef hugsað mér að kynna mér það betur. Síðan erum við í Fram- sóknarflokknum að undirbúa okk- ur fyrir þær umræður og viðræður sem hljóta að verða við Evrópu- sambandið á næstunni. Við rædd- um þessi mál á sameiginlegum fundi þingflokks og landstjómar nýlega og ég tel nauðsynlegt, vegna þess undirbúnings, að ræða beint við menn í Brussel og tel ekki nægilegt að fá upplýsingar í gegnum ráðuneyti núverandi ríkis- stjórnar," sagði Halldór. í ræðu sem Halldór flutti þegar hann tók við formennsku í Fram- sóknarflokknum í lok apríl sagði hann að íslendingar ættu að reyna að fá áheyrnaraðild og tillögurétt í þeim nefndum og ráðum Evrópu- sambandsins sem skipta ísland mestu máli. Hann sagði aðspurður að hann myndi ræða þetta við framkvæmdastjómarmennina. Allt er mögulegt „Ég hafði rætt þetta áður við aðila sem þekkja vel til. Ég bendi á að 1996 er svokölluð ríkjaráð- stefna Evrópusambandsins þar sem rætt verður um framtíð þess. Sambandið er í mótun og þar eiga eftir að verða verulegar breytingar og mínar upplýsingar segja að allt geti verið mögulegt í því sam- bandi. Ég tel að samningsstaða okkar sé tiltölulega góð og ef vilji er fyrir hendi af hálfu Evrópusam- bandsins finnst mér út í hött að útiloka þetta fyrirfram. Þeir sem það gera ná því að sjálfsögðu aldr- ei fram,“ sagði Halldór. Félagsvísindastofnun kannar fylgi við sljórnmálaflokkana RÍKISSTJÓRNARFLOKKARN- IR hafa bætt við sig fylgi frá því í maí, aðallega á kostnað Fram- sóknarflokksins, samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvís- indastofnun hefur gert. Meirihluti kjósenda styður nú ríkisstjómina samkvæmt könnuninni. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 40,7% í könnuninni og hefur flokkurinn bætt við sig 2,5 prósentustigum frá síðustu könnun Félagsvísindastofnun- ar sem gerð var í maí. Þá hef- ur flokkurinn bætt við sig 15 prósentustigum frá skoðana- könnun Félagsvísindastofnun- ar fyrir réttu ári. Fylgi Alþýðuflokksins mæl- ist 10,4% í könnuninni og er það 3,6 prósentustiga aukning frá síðustu könnun en svipað fylgi og flokkurinn naut í skoð- anakönnun fyrir ári. Saman- lagt hafa ríkisstjómarflokk- arnir nú 51% fylgi. Framsóknarflokkurinn tap- ar 5,6 prósentustigum frá í maí og mælist nú með 19,4% fylgi. Fyrir ári mældist fylgi flokksins 27,5% í könnun Fé- lagsvísindastofnunar. Alþýðu- bandalag er með 14% fylgi sem er það sama og í maí en fyrir ári mældist fylgi flokksins 17,7%. Kvennalisti er með 14,5% fylgi samkvæmt könnuninni nú sem er 0,9 prósentustigum minna en í maí og 3,5 prósentu- stigum minna en fyrir ári. Sjálfstæðisflokkur stærstur Sjálfstæðisflokkurinn er lang- stærsti flokkurinn á höfuð- borgarsvæðinu samkvæmt könn- uninni og nýtur fylgis 48,3% kjósenda í Reykjavík og 42,9% á Reykjanesi. Kvennalistinn nýtur 19% fylgis í Reykjavík og er næststærsti flokkurinn þar en Ríkisstjórnar- flokkarnir bæta við fylgi sitt Afstaðan til ríkisstjórnarinnar og samanburður við fyrri kannanir ioo%______________ ■— ...... HStuðningsmenn- ■ ... — Andstæðingar - 60%; 1991 1991 1991 1992 1992 1993 1993 1993 1994 nú Fjöldi Hlutf. nú Vik- mörk Maí 1994 Nóv. 1993 Maí 1993 Feb. 1993 Kosn. 1991 Alþýðuflokkur 93 10,4 ±1,7 6,8 8,3 10,2 6,8 15,5 Framsóknarflokkur 174 19,4 ±3,0 25,0 23,7 27,5 23,9 18,9 Sj álfstæðisflokkur 365 40,7 ±3,4 38,2 33,8 25,7 33,3 38,6 Alþýðubandalag 126 14,0 ±2,4 13,9 13,6 17,7 21,2 14,4 Kvennalisti 130 14,5 ±2,5 15,4 19,9 18,0 13,1 8,3 Þjóðarfl./Fl.mannsins 1 0,1 ±0,2 0 0,5 0,2 0,5 1,8 Grænt framboð 0 0 0 0 0,2 0,5 0,3 Heimastj.samtökin 0 0 0 0 0 0 0,6 V erkamannaflokkur 0 0 0 0 > 0 0 0,1 Ffíálsiyndir 0 0 0 0 0 0 1,2 Öfgas. jafnaðarmenn 0 0 0 0 0 0 0,3 Annað nefnt 9 0,7 ±0,5 0,6 0,3 0,4 0,5 0 Samtals 898 100% 100% 100% 100% 100% 100% hinir flokkarnir þrír em með rúmlega 10% fylgi hver. Á Reykjanesi er Alþýðuflokkurinn með 16,5% fylgi og Kvennalist- inn með 14,3% en Alþýðubanda- lag og Framsóknarflokkur eru með í kringum 13%. Framsóknarflokkur stærstur á landsbyggðinni Á landsbyggðinni er Fram- sóknarflokkur stærsti flokkurinn með 33,6% fylgi. Sjálfstæðis- flokkur er með 30,9% fylgi, Alþýðubandalag með 18,1% fylgi, Kvennalisti með 10% og Alþýðuflokkur með 6,3%. Svör fengust frá tæplega 1.100 manns Könnunin var gerð dagana 31. maí til 4. júní og var úrtak- ið 1.600 manns um allt land á aldrinum 18-75 ára. Svörfeng- ust frá 1.075 manns. Spurt var: Ef alþingiskosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú mynd- ir kjósa? Þeir sem svöruðu veit ekki voru spurðir áfram hvaða flokk eða lista líklegast væri að þeir kysu. Segðu menn enn veit ekki voru þeir spurðir hvort þeir teldu líklegra að þeir kysu Sjálfstæðisflokk eða einhvern annan flokk eða lista. Þannig fækkaði hlutfalli óráð- inna úr 14,8% í 4,4% en 8,6% neituðu að svara. Talsvert dró úr fylgi Sjálf- stæðisflokksins eftir því sem þeir óákveðnu voru spurðir frek- ar. Eftir fyrstu spurninguna var Sjálfstæðisflokkurinn með 46,3% fylgi þeirra sem tóku afstöðu. Eftir aðra spuminguna var flokkurinn með 44% fylgi og eft- ir þriðju spurninguna var hlut- fallið komið í 40,7% þeirra sem tóku afstöðu. Aldrei svo margir í fangelsum FANGELSI landsins voru fullnýtt á síðasta ári og á seinni hluta árs- ins lengdist bið dómþola eftir af- plánun en biðtíminn hafði styst ár frá ári og verið nær enginn um hríð. Ein helsta skýring þessa er sú, að því er fram kemur í skýrslu Fangelsismálastofnunar, að refsi- dómar hafa þyngst, skilyrði fyrir reynslulausn þrengst og vaxandi hópur erfiðra fanga þarf strangari gæslu en tíðkast hefur. Á síðasta ári voru 27 dæmdir til fangavistar fyrir kynferðisafbrot, fleiri en nokkru sinni á starfstíma Fangelsismálastofnunar. Ekki hafa áður verið jafnmargir fangar í af- plánun og í lok árs 1993. í inngangi Haralds Johannessen fangelsismálastjóra að ársskýrslu stofnunarinnar kemur fram að eitt helsta markmið hennar hafi frá upphafí verið að auka skilvirkm refsifullnustu og hefur verið mark- visst stefnt að þvi að fækka á bið- lista refsidæmdra manna og stytta biðtíma eftir afplánun. Á fjórum árum tókst að fækka á biðlistanum og stytta biðtímann verulega og frá fyrri hluta árs 1992 fékk helmingur dómþola engan frest á afplánun og þeir sem eru dæmdir fyrir stórfelld eða gróf afbrot fá enga eða mun styttri fresti en aðrir. Þetta hafi snúist við á síðari hluta árs 1993. Fjölgun kynferðisafbrota í skýrslunni kemur fram að fjöldi óskilorðsbundinna refsidóma hafi lítið breyst en þó hafi samanlagður óskilorðsbundinn refsitími aldrei verið lengri en í fyrra. Aukningm sé einkum í lengstu dómunum, með 1-3 ára refsitíma og eigi sér líklega þá skýringu helsta að dómum vegna kynferðisafbrota hafí fjölgað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.