Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Vetjandi eins lykilvitna ákæruvalds í stóra fíkniefnamálinu Akærði nj óti sam- starfs við lögreglu Málflutn- ingilokið Verjendur í hinu umfangsmikla máli taka saman gögn sín að ioknum málflutningi, frá vinstri: Stefán Páisson, Brynjar Níels- son, Sigurður Þórodds- son, Haraidur Blöndal og Páll Arnqr Pálsson. Sumir verjendur gerðu kröfu til þess að málsvarnarlaun þeirra yrðu greidd úr ríkissjóði án end- urkröfuréttar á ákærðu í kjöl- far iögfestingar Mannréttinda sáttmála Evrópu hér á landi. SIGURBJÖRN Magnússon, veijandi 39 ára manns sem er ákærður í stóra fíkniefnamálinu fyrir aðild að innflutningi á allt áð 7 kg af hassi og 1,3 kg af amfetamíni í þremur smyglferðum og hefur játað sakar- giftir í aðalatriðum, gerði þá kröfu við málflutning í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að skjólstæðingur sinn yrði einungis dæmdur í skil- orðsbundið fangelsi vegna þess hve mikinn þátt hann hefði átt í að upplýsa málið. Sigurbjörn Magnússon kvaðst telja að menn sem hefðu játað brot sín af hreinskilni og stuðlað að því að upplýsa málið ættu að njóta þess með ótvíræðum hætti við ákvörðun refsingar. Dómur sem sendi ótvíræð skilaboð af því tagi út í þjóðfélagið væri líklegur til að hafa víðtæk vamaðaráhrif. Sigurbjörn Magnússon rakti að skjólstæðingur sinn hefði í gæslu- varðhaldi ákveðið að gera það sem í sínu valdi stæði til .að upplýsa málið, löndum sínum og öðrum til verndar. Hann hefði skýrt með greinargóðum hætti frá allri sinni vitneskju um málið og væri ákæra málsins að miklu leyti byggð á greinargóðum og stöðugum fram- burði hans hjá lögreglu og fyrir dómi. Maðurinn hefði á sínum tíma kynnst Ólafi Gunnarssyni og verið þá í mikilli óreglu, blankur og fíkinn í fjárhættuspil. Þar sem maðurinn hefði ekki komist á.skrá fíkniefna- lögreglunnar hefði Ólafur séð í hon- um tilvalið burðardýr og notfært sér bágindi hans. Maðurinn hefði séð að sér, snúið baki við fyrra líf- emi, stuðlað að uppljóstrun málsins og ætti dómurinn að láta hann njóta þess og skilorðsbinda refsingu hans að öllu leyti eða hluta. ávana- og fíkniefni á erlendu yfir- ráðasvæði. Til vara krefst lögmaðurinn sýknu af einum ákærulið en að öðru leyti vægustu refsingar sem lög leyfa, skilorðsbundinnar og ekki þyngri en hollensk lög leyfi, þar sem það á við, en flest brot mannsins hafi verið framin í Amsterdam, þar sem meðferð kannabisefna sé refsi- iaus að mestu leyti. Líkt við Geirfinnsmál Ekki á íslensku yfírráðasvæði Jón Sigfús Siguijónsson, veijandi 27 ára manns sem er ákærður fyr- ir aðild að innflutningi á allt að 11,3 kg af hassi og 2,2 kg af amfetamíni og hefur játað sakir að stærstum hluta krafðist sýknu af öllum ákærum Björgvin Þorsteinsson hrl. er veijandi 36 ára konu, sem er ákærð fyrir að hafa borið inn í landið um 1 kg af hassi og allt að 500 grömm af amfetamíni í febrúar 1992. Kon- an hefur hreint sakavottorð. Veij- andinn krafðist sýknu og líkti sakargiftum og málatilbúnaðinum gegn henni við það þegar fjórir saklausir menn hafi verið látnir sitja mánuðum saman í gæsluvarðhaldi í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Eina sem konan hefði til sakar unnið væri að vera tengd einum sakborningi í málinu og hafa komið til Lúxemborgar í febrúar 1992. ------------------- Upphaflega var konan Líkt wið með- sökuð um að fíkn>- ferð í Geir- e^n' til landsins 14. febr- úar 1992 en eftir að upp kom að farseðill með nafni nema einni á þeirri forsendu að í öðrum tilvikum hefðu brot manns- ins, sem er búsettur í Svíþjóð en íslenskur ríkisborgari, verið framin á erlendri grund og því utan ís- lensks yfirráðasvæðis. Því séu ekki lagaskilyrði til að refsa manninum fyrir brot á íslenskum lögum um finnsmáli alnöfnu hennar hafði verið lagður fram í málinu var breyting gerð á ákærunni, nýr farseðill lagður fram og því nú hald- ið fram að ferðin hafi verið farin 3. febrúar 1992. Björgvin sagði upphaf málsins gegn konunni það að einn þeirra sakborninga, sem hafa átt hvað mestan þátt í að upplýsa málið, hefði í yfirheyrslum í gæsluvarð- haldi minnst á smyglferð sem farin hefði verið í desember 1991 og hefði kona borið efni inn í landið. Lögmaðurinn kvaðst telja að lög- regla hefði síðan farið að leita í farþegaskrám Flugleiða að konu með þessu nafni sem tengdist meintum skipuleggjanda ferðarinn- ar og komist að því að mágkona hans hafi verið í Lúxemborg í febrú- ar 1992. Fyrir þrýsting frá lögreglu hefði maður- inn, sem lögreglan hefði boðið á veitingastað meðan hann var í gæslu- __________ varðhaldi, breytt fram- burði sínum í þá átt að vel gæti verið að ferðin hefði verið farin í febrúar 1992. Annar meintur aðili að brotinu hafi eftir 8 yfirheyrslur í gæsluvarðhaldi kannast við ferð- ina og þátt konunnar í því á síð- asta degi gæsluvarðhalds þegar Vill sýknu vegna afbrota erlendis krafa um framlengingu þess vofði yfir honum. Með því að nefna nafn hennar hafi hann komist undan frekari gæslu. Mennirnir hafí síðan báðir afturkallað þennan framburð og sagt hann rangan fyrir dómi. Konan hafi staðfastlega neitað nokkurri aðild að málinu frá upp- hafi, þrátt fyrir gæsluvarðhald. Fram var komið í málinu að sam- kvæmt framburði hennar og eigin- manns hennar hafí verið leitað á ------- henni í vopnahliði við brottför frá Lúxemborg og engin efni fundist. Enginn gögn lægju fyr- ir um ferðalag meintra samverkamanna konunn- ar til útlanda á þessum tíma og engin gögn staðfestu að nokkur fíkniefni hefðu verið flutt inn á vegum mannanna á þessum tíma annað en óljós framburður sem lög- regla hefði kallað fram hjá gæslu- föngum en hefði verið dreginn til VALLEY 2 2ja manna kúlutjald. 3 kg. Verð kr. 7.950 5% staðgrelðsluafsláttur, elnnlg af póstkröfum grelddum Innan 7 daga mmuTiUFmm GLÆSIBÆ. SÍMI 812922 Lýðveldisafmæli 17. júní Morgunblaðið/Kristinn baka. Þær lögregluskýrslur gætu ef til vill sakfellt þá sem þar hefðu tekið sakir á sjálfa sig en ekki þriðja aðila sem neitaði staðfastlega sal:- argiftum. Lét undan þrýstingi Gísli Gíslason hdl. er veijandi 27 ára manns, sem ákærður er fyijr innflutning á allt að 19 kg af hassi og 2,1 kg af amfetamíni í 6 smy$- ferðum. Ein þeirra er sú sem að framan greinir. Gísli krafðist sýknu af henni og þremur öðrum ákærulið- um sem varða fíkniefni þrátt fyrir að maðurinn hafí játað hluta sakar- gifta í gæsluvarðhaldi. Gísli sagði að maðurinn hefði aldrei áður kom-j ist í kast við lög og hefði látið undan; þrýstingi til að bera um hlut fyrr- greindrar konu til að losna úr haldi og komast til þungaðrar eiginkonu sinnar. Það hefði hann gert eftir að; lögreglumaður hefði ranglega fullyrt að aðild að þessari ferð væri bomar á hann af nokkmm hinna ákærðu. Smíðaði þingpall áLögbergi 1944 - >f' <■ ■•■ - /'* í 'vr,; > " < - ■ ►GUNNLAUGUR Þórðarson hæstaréttar- lögmaður var trúnaðar- maður lýðveldishá- tíðarnefndar árið 1944. Smíðaði hann palla í félagi við fjóra smiði, sem nú eru látnir, undir þingfund á Lögbergi sem Iýsti endurreisn lýðveldisins yfir það ár. Bjuggu mennirnir í vinnuskúr í Almanna- gjá og höfðu fyrir sið að baða sig í Drekkingarhyl að loknu dagsverki. Þess gerðist þó ekki þörf 16. júní. „Það sem mér er minnisstæðast er rigningin. Alit var klárt um hádegið og einungis verið að ganga frá. Svo fór að rigna um kvöldið og það skipti engum togum að brýrnar, sem við höfðum smíðað fyrir gangandi yfir áia Oxarár, stóðu skyndilega úti í miðjum vatnsflaumnum. Þurft- um við að bæta úr þessu hið bráðasta og stóðum því í vatni upp að mitti að bæta við brúarendana.“ „Einnig var tjald- borg á flötunum fyrir neðan Kastalana, sem eru til móts við svæðið þar sem nú eru bif- reiðastæði, og stóðu vatnsbunur upp í loftið milli tjaldanna líkt og gosbrunn- ar. Fólk yfirgaf tjöldin í skyndi og var fátið svo mikið á sumum að þaðgleymdi að taka föggur sínar. Eg man sérstaklega eftir drukknum manni sem fluttur var til okkar í svefnpoka. Samferða- fólkið hafði tekið fötin hans í ógáti svo hann var fluttur nakinn í pokanum í bæinn.“ Stæði fyrir þrjátíu þús- und bíla ►GERT er ráð fyrir stæðum fyr- ir 30.000 bíla á Þingvöllum 17. júní næstkomandi á sex bílastæð- um. Munu þau bera sérstök nöfn og verða greinilega merkt með fánum. Einnig verða tvö nukabíla- stæði til taks fyrir 25.000 manns til viðbótar ef nauðsyn krefur. Björgunarsveitir frá Suðurlandi og lögregla munu aðstoða öku- menn og farþega á bílastæðunum og strætisvagnar munu aka end- urgjaldslaust frá öllum bílastæð- um að hátíðarsvæðinu á Efri-völl- um og til baka aftur. Þjóðhátíðar- gestir munu því eiga greiðan að- gang frá hátíðarsvæðinu að bíla- stæðunum allan daginn. Bílar sem koma yfir Mosfellsheiði geta lagt fyrir ofan Almannagjá og eru þau bílastæði einkum ætluð fötluðum. Síðan verða stæði fyrir 12.000 bíla við Öxarárbrú, við Tæpastíg (við innkeyrslu í þjóðgarðinn) verða stæði fyrir 4.000 og við Skógarhóla verða stæði fyrir 8.000 bíla. Þeir sem aka gegnum Grímsnes frá Suðurlandi geta lagi við Gjábakka, 800 bílar, og við þjónustumiðstöðina á Leirum verða stæði fyrir 4.000 bíla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.