Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 129. TBL. 82.ARG. FOSTUDAGUR 10. JUNI1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Dræm kjörsókn í ESB-kosningum í Mandi, Bretlandi og Hollandi Samtök ESB-andstæð- inga sigra í Danmörku KOSNINGAR til þings Evrópusambandsins (ESB) fóru fram í Dan- mörku, Hollandi, Bretlandi og írlandi í gær. Þær einkenndust af dræmri kjörsókn alls staðar nema í Danmörku þar sem hún mældist 52% eða jafn mikil og hún hefur mest orðið í fyrri ESB-kosningum. Þrátt fyrir sérstakt ákall Ruuds Lubbers forsætisráðherra neytti aðeins þriðjungur Hollendinga atkvæðisréttar og í borginni Maastricht, sem sáttmáli ESB er kenndur við, var hún enn dræmri. Úrslit kosninganna verða ekki birt fyrr en á mánudag þegar kosið hefur verið í öllum ESB löndunum 12. Reuter HOLLENSKUR framtíðarkjósandi stingur kjörseðli föður síns í kjör- kassa í ESB-kosningunum í Rotterdam í gær. Kjörsókn hefur aldrei verið dræmri í Hollandi og er það talið áfall fyrir Ruud Lubbers forsætisráðherra sem birti sérstakt ákall til þjóðarinnar um að kjósa. Spenna eykst á Kóreuskaganum Norðanmenn hóta Japönum Kíef, Istanbúl, Tókýó. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRA Norður- Kóreu, Kim Yong-nam, hótaði því í gær að Suður-Kóreu yrði gereytt ef stríð brytist út milli landanna. Þá hafa Norður-Kóreumenn hótað refsiaðgerðum gegn Japönum, gangi þeir í lið með Bandaríkjamönnum, sem ásamt fleiri þjóðum vilja beita Norður-Kóreu þvingunum. Japanir óttast að hundruð norður-kóreanskra njósnara í Japan muni heija hryðjuverk ef af þvingunum verður. Kvartað yfir síma- gjöldum á hótelum London. Reuter. BRESKU neytendasamtökin telja að gestir á nokkrum af bestu hótelum Bretlands greiði allt of háa símareikninga og að veita ætti þeim greinarbetri upp- lýsingar um símataxta hótel- anna. Fullyrða samtökin að margir gestir geri sér ekki grein fyrir hinum háu símagjöldum. Hefur samtökunum borist fjöldi kvartana og segja þau það algerlega óástættanlegt að gest- ir hafi ekki hugmynd um hvað símtöl kosti fyrr en þeir geri upp hótelreikninginn. Margföld álagning Talsmenn breska símafélags- ins kváðust í gær vita af vand- anum en sögðu hótelin setja sína eigin símataxta. Dæmi um það er Dorchester hótelið, sem rukk- ar gesti um 50 pens fyrir fyrstu símaeininguna og 25 pens fyrir viðbótareiningar. Breska síma- félagið krefur símnotendur hins vegar um 5 pens fyrir hverja einingu. Vörðu talsmenn hótels- ins hin háu símagjöld með því að þau væru hátíð miðað við gjöidin hjá sumum öðrum hótel- um. Tvenn samtök utan þings sem andvíg eru Evrópusamstarfínu, Júní- samtökin og Þjóðarhreyfingin, eru siguivegarar kosninganna í Dan- mörku, hlutu 26,1% atkvæða og fá 5 af 16 sætum Dana á þingi ESB, ef marka má niðurstöður könnunar sem byggði á svörum fólks er það kom út af kjörstað. Danskir ESB- andstæðingar höfðu fjóra menn á fráfarandi þingi. Samkvæmt könnuninni fengi íhaldsflokkur Pauls Schliiters um 15% atkvæða og þrjú~ sæti í stað tveggja, Venstre fengi um 20% at- kvæða og héldi sínum þremur mönn- um en Jafnaðarflokkur Pouls Nyrups Rasmussens forsætisráðherra tapaði miklu fylgi, fengi 17-18%, og einu sæti af fjórum. Loks fengju Radik- ale Venstre og Þjóðarflokkurinn sitt sætið hvor flokkur. Afhroð í Bretlandi Þingkosningar fara fram í Dan- mörku í desember og telja stjórn- málaskýrendur að úrslitin nú geti gefið vísbendingar um hvers sé þá að vænta. í Hollandi var kjörsókn aðeins um 30% enda þriðju kosningarnar á ár- inu og kosningaþreyta áberandi. Kosið var um 31 sæti í stað 25 síð- ast. Bentu kannanir á kjörstað til þess að Kristilegir demókratar, fiokkur Ruuds Lubbers forsætisráð- herra, fengi 32% atkvæða og héldi sínum 10 mönnum, að Verkamanna- flokkurinn tapaði fjórðungi atkvæða en héldi samt átta sætum sem hann fékk síðast en kosningabandalag fijálslyndra, D66 og VVD, fengi 10 sæti í stað fjögurra. í Bretlandi var kjörsók 35-38% og þótti stefna í afhroð íhaidsflokksins. Reuter Tann- hreinsitól Napóleons TANNHREINSITÓL Napóleons Bonaparte voru seld á uppboði í London í gær fyrir 6,3 milljónir kr. Hermaður í liði Napóleons stal tólunum; m.a. tannsköfum, töngum og gullhníf, skömmu fyr- ir eða eftir orrustuna við Wat- erloo. Ekki var nánar upplýst um hvernig þau komust í hendur upp- boðshaldara. Ihalds- menn tapa Eastleigh Eastleigh. Reuter. BRESKI íhaldsflokkurinn beið mik- inn ósigur í aukakosningum í East- leigh í Suður-Englandi í gær og eykur það á erfiðleika Johns Majors forsætisráðherra. Frambjóðandi Fijálslyndra fór með sigur af hólmi, hlaut 9.239 at- kvæðum meira en frambjóðandi Verkamannaflokksins. Meirihluti íhaldsmannsins Stephens Milligans í þingkosningunum 1992 var 17.702 atkvæði. Arftaki Milligans hafnaði í þriðja sæti og er það í fyrsta sinn í 36 ár að flokkur fellur úr efsta sæti í það þriðja í sama kjördæmi. Vorfundur utanríkisráðherra Atlantshaf sbandalagsins Rússum boðið til nánara samstarfs Kim Yong-nam sagði við Reuters að Norður-Kóreu- menn myndu halda áfram tilraunum með eidflaugar, þrátt fyrir mótmæli Suður- Kóreu. „Þeir skyldu gera sér grein fyrir því, að fylgi þeir Bandaríkjastjórn í blindni, hefja refsiaðgerðir og efna til styijaldar, þá verður Suður- Kóreu ger- eytt.“ Bandaríkjamenn hófu að ræða við fulltrúa annarra þjóða í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) um refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu, eftir að eftirlitsmönn- um SÞ var meinað að athuga hvort úrgangseldsneyti frá norður-kóre- önskum kjarnaofni hefði verið breytt svo nota mætti það í sprengju. Warr- en Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gær vera bjartsýnn á að af refsiað- gerðum gæti orðið, þrátt fyrir fréttir af andstöðu Kínverja og Japana. The New York Times greindi frá því í gær að Japanir væru andvígir þvingunum, en Christopher sagðist taka mátulega mikið mark á þeirn fregnum. í yfirlýsingu frá utanrík- isráðuneyti Norður-Kóreu í gær sagði að ef Japanir gengju í lið með Bandaríkjamönnum myndi það jafngilda stríðsyfirlýsingu, og hlytu Japanir að gjalda þess. Að sögn hátt- setts japansks embættismanns er talið að um 600 norður-kóreanskir njósnarar séu í Japan, dulbúnir sem kaupsýslumenn, og gætu þeir hafið hryðjuverk ef verður af refsiaðgerð- um gegn stjórn Norður-Kóreu. Istanbúl. Reutcr. RÚSSUM var boðið nánara samstarf við Atlantshafsbandalagið (NATO) í gær en utanríkisráðherrar NATO höfnuðu þó ýmsum kröfum þeirra urn sérstöðu. Ráðherrarnir höfnuðu ósk Rússa um sérstök formleg tengsl við NATO en sögðust vilja rækta samskipti bandalagsins við þá á gagnkvæmri virðingu og vináttu. Itrekuðu ráðherrarnir þann ásetn- ing NATO að bjóða ríkjum í Austur- Evrópu aðild að bandalaginu einhvern tímann í framtíðinni og sögðu að Rússar gætu hvorki fengið neitunar- vald í þeim efnum né öðrum málum. Rússar voru hvattir til aðildar að friðarsamstarfi NATO sem kveður á um náið samstarf á sviði varn- armála. Hafa Rússar heitið því að gerast aðilar. Ekki hefur þó verið ákveðið hvenær af því verður en 20 ríki hafa þegar gerst aðilar að friðar- samstarfi NATO. Sögðu utanríkis- ráðherrarnir að vegna sérstöðu Rússa sem stórveldis væri aukin samvinna við þá utan þeirra sviða sem friðarsamstarfið næði beinlínis til bæði áhugaverð og gagnleg. Þar kæmi til greina samráð á ýmsum sviðum, allt frá kjarnorkuvopnum til svæðisbundinna deilumála og átaka á borð við Bosníu. Kim Yong-nam

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.