Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 15 ERLENT Reuter Andrés önd sextugur ANDRÉS önd, teiknimyndapersónan góðkunna, um saman á bílastæði skemmtigarðsins. Eftir tals- varð sextugur í gær. Af því tilefni þótti starfs- verða skipulagsvinnu höfðu þeir myndað höfuð mönnum Disneylands í Tókíó tilvalið að bregða á Andrésar. Það fylgir sögunni að bílamyndin sé 180 leik, tóku sig til og röðuðu á annað þúsund bifreið- metra breið og álíka há. Aurskriður og jarðskjálftar í S-Ameríku Afleiðingarnar verri en talið var Bogola. Reuter. STAÐFEST hefur verið að 253 manns, að minnsta kosti, hafi látist í aurskriðunni sem féll í afskekktum dal í Kólumbíu á mánudagskvöld. Enn er 71 saknað, 116 eru slasaðir og þúsundir hafa misst heimili sín. Segja yfirvöld að afleiðingar aurskriðunnar séu mun alvarlegri en talið var í fyrstu og hafa útvarpsstöðvar fullyrt að enn sé yfir 1.000 manns saknað. Aurskriðan varð í kjölfar jarð- skálfta á mánudag og á miðviku- dagskvöld varð öflugur jarðskjálfti í nágrannaríkinu Bólivíu, sem mældist á milli 7,5 og 8 stig á Richt- er. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða skemmdum í seinni skjálftanum, sem varð eins og hinn fyrri, á afskekktu svæði. Hafst við á fjöllum Björgunarmönnum gengur enn illa að komast að Paez-dalnum, sem aurskriðan gekk yfir. Hafast marg- ir íbúanna, sem eru flestir indíánar, við í fjöllunum fyrir ofan dalinn, m.a. kona sem fæddi barn skömmu eftir að skriðan féll og hefur hafst við í kuldanum þar í nokkra daga. Paez-dalurinn er þekktastur fyrir hin fornu Tierradentro-indíánagraf- hýsi. Ekki er vitað hvort aurskriðan færði þau á kaf. Austurríki 57% vilja ESB-aðild Vín. Reuter. GÓÐUR meirihluti Austurríkis- manna ætlar að segja já við aðild að Evrópusambandinu í þjóðarat- kvæðagreiðslu á sunnudag. Kemur það fram í skoðanakönnun, sem birtist í gær. í könnuninni, sem Gallup annað- ist fyrir vikuritið News, kváðust 57% styðja aðild en 28% ætluðu sennilega að segja nei. Aðeins 18% voru alveg ákveðin í að hafna aðild. í fyrri könnunum hefur komið fram, að stuðningsmenn og andstæðingar aðildar væru næstum jafn margir. tMCWOO - Lykill að alhliba tölvulausnum á sérstöku kynningarverði núna frá kr 109.000 EINAR J. SKULASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.