Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 21 LISTIR Æskuglaður hljómur TÓNUST Hallgrímskirkja SINFÓNÍUTÓNLEIKAR NÍUNDA sinfónían eftir Beethov- en, flutt af Sinfóníuhljómsveit ís- lands, Hamrahlíðarkórunum, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, einsöngvurunum Mörtu Halldórs- dóttur, Rannveigu Bragadóttur, Kolbeini Ketilssyni og Kristni Sig- mundssyni, undir stjórn Osmo Vanska. Miðvikudagurinn 8. júní 1994. Það er eins og að bera vatn í bakkafullan lækinn, að tjá sig um þá níundu, eftir Beethoven, því trú- lega hefur þegar verið sagt allt of mikið og meira en nóg um þetta meistaraverk. Frumflutningur þess markaði tímamót, það var flutt til að fagna stofnun Sameinuðu þjóð- anna og þegar það var fyrst flutt á íslandi, undir stjórn Róberts A. Ott- óssonar, markaði það tímamót í tón- listarsögu okkar íslendinga. Mikil- leiki verksins og boðskapur á erindi til alls mannkyns og er í eðli sínu eilífur' Tónvefnaður sinfóníunnar er þrunginn af mannkærleik og í þriðja kaflanum, hæga þættinum, sem er í raun hjartnæmur söngur, rís verkið hæst,- þó að tign og stórleiki þess sé mestur i kórþættinum. Það var töluverð reisn yfir söng Hamrahlíðarkóranna allra, sem stjómandi þeirra, Þorgerður Ingólfs- dóttir, hefur æft og það var stórkost- legt að heyra æskuglaðan hljóminn í átökum við þetta stórvirki tónlistar- sögunnar. Viðkvæm og fínleg tón- myndun, sem kórinn er frægur fyrir, olli því að í hljómmestu kafiana vant- aði, t.d. sópraninn, nægilega mikinn og eðlilegan kraft. Gullinn hljómur kórsins naut sín hins vegar þar sem minna var umleikis í hljómsveitinni. Kirkjan vann að nokkru á móti einsöngvurunum, auk þess sem þeir voru staðsettir fyrir aftan hljómsveit- ina. Það var í raun aðeins Kristinn Sigmundsson, sem hafði þann radd- þrótt er dugði að fullu gegn hljóm- sveitinni, og var söngur hans í upp- hafi kórþáttarins og einnig í kvartett- inum sérlega glæsilegur. Kolbeinn Ketilsson átti þungan róður gegn hljómflæði hljómsveitarinnar í gleð- iaríunni og sama má segja um söng Mörtu og Rannveigar. í mikilli óman kirkjunnar hefði verið nauðsynlegt að staðsetja einsöngvarana fyrir framan hljómsveitina, í stað þess að ætla þeim stað með kórnum. Hljómsveitin var góð en þar vinnur kirkjan aftur gegn mismunandi hljó- man hljóðfæranna. Blásturshljóðfær- in, eins t.d. i upphafi verksins, nærri yfirhljómuðu viðkvæmt upphafsstef- ið í strengjunum. Sá kafli er „hljóm- aði“ best var hægi þátturinn, sem var mjög vel leikinn. Það mátti glögglega heyra að Osmo Vánská er listamaður og mótaði margt mjög fallega í þessu margslungna skáld- verki og oft sérlega fallega í sam- spili kórs og hljómsveitar í lokakaf- lanum. Það má deila um það hvort loka- þáttur þeirrar níundu sé heppilegt viðfangsefni fyrir ungar og lítt söng- þjálfaðar raddir og hvort velja skuli aðeins raddmikla söngvara til ein- söngs í þessu verki. Þá orkar það tvímælis, að flytja svo hljómmikið verk, sem þá níundu, í Hallgríms- kirkju sem óneitanlega bergmálar því meir sem sterkara er sungið og leikið. Hjóðlíkamar hljóðfæranna eru auk þess mjög ólíkir og bergmálun þeirra því mjög mismunandi, er kem- ur fram í því að blásturshljóðfærin yfirtrompuðu oft strengina og þegar pákan bættist við rann allt saman. Þrátt fyrir augljósa annmarka, sem bæði má, er sönginn varðar, kenna mikilli hljóman kirkjunnar og stað- setningu einsöngvaranna var flutn- ingurinn í heild glæsilegur, einkum hjá hljómsveitinni sem Vánská stýrði af miklu listfengi. Jón Ásgeirsson. Sumarbókin er komin! VERÐBRÉF OG ÁHÆTTA Hvernig er best nð ávaxta peninga? I bókabúðum um land allt! i ARISTON Verð áður kr. 72.800 Tilboð kr. 59.900 Staðgreitt kr. 55.700 ■ Tekur 5 kg af þvotti ■ Stiglaus hitastillir ■ Sparnaðarrofi ■ Tromla og belgur úr ryðfríu stáli ■ 16 þvottakerfi fyrir venjulegan þvott, viðkvæman þvott og ull. Heimílisvörutíiboð: Þvottavéi AV 1247 TX mggtOb f K R l N G t U N N I KRINGLÚNNI 103 REYKJAVÍK — SÍMI 689400 Tilboð til 17. júní Adidas fótboltaskór, st. 30-33 kr. 890 Nike air fótboltaskór, st. 36-46 kr. 1.890 Adidas leður golfskór, st. 3-6 kr. 1.990 Nike, Adidas og Awia íþróttaskór frá kr. 690-4.900 Barna-jogginggallar allar stærðir, verð kr. 1.990 Fullorðins-jogginggallar allar stærðir.verð frá kr. 2.900 Russel bolir kr. 1.290 Vísir Vandaðar peysur kr. 1.990 Vesti kr. 1.700 Skartgripir á góðu verði. Full búð af nýjum sumarfatnaði á frábæru verði. M.a. sumar- kjólar kr. 3.890. Víðar buxur kr. 2.790. Gallabuxur kr. 1.990 Skyrtubolir kr. 2.495 Pólobolir, ullar. kr. 79. Afabolir kr. 490. Adidas vindjakkar kr. 3.900. Adidas húfur kr. 1.390. Línuskautar nýkomnir kr 7.990. Edinborg Vandaðar herrabuxur kr. 1.800 Golfmottur á fábæru verði. Borðdúkar, barnaföt, sængurfatnaður o.fl. Borg Urval af verkfærum á lagerverði. Nú 10% staðgreiðsluafsláttur. Aldrei meira úrval. Asbyrgi 20% afsláttur af dömublússsum. Bamaíþróttagallar (glans) kr. 2.995 Panther töfflur st. 28-45, kr. 350 Vöggur Nýkomin síð krumpupils frá kr. 1.790 Ný dömu- og herravesti kr. 2.490 Prinsessukjólar frá 2.990 o.m.fl. Grín- og kynlífsmyndabolir, verð kr. 690 (2 í pakka kr. 1.290). Geysir Lahgar slæður kr. 761 Indverskir bakpokar kr. 1.150 Handheklaðar húfur kr. 1.250 Hárspangir kr. 220 Úrval af glæsilegum antikhúsgögnum á góða verðinu. Churchill matarstell, 6 manna — 30 stk. Verð kr. 3.390 Bristol — Innfluttur, notaður tískufatnaður m.a rúskinns- og leðurjakkar Levi's gallabuxur, skyrtur, peysur, Adidas treyjur og buxur o.fl. á lægsta verðinu. ÞORPll) Borgarkringlunni Drangur Herra flauelsbuxur með belti kr. 2.800 Rúllukragabolir kr. 750 Afabolir kr. 490 o.m.fl. á frábæru verði. Nýhöfn Á börnin: Gallavesti, jakkar og buxur. Úrval af ódýrum fatnaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.