Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ 48 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR / NBA Við vorum allir stirdir - sagði Hakeem Olajuwon, miðherji Houston, eftir sigurinn á New York HOUSTON sigraði New York í fyrsta leiknum í úrslitum NBA- deildarinnar ífyrrinótt, með 85 stigum gegn 78. Hakeem Olajuwon, miðherji Houston, sr^gðist vera hálf stirður eftir aS hafa beðið í viku eftir úr- slitaleiknum, en hann var engu að síðust stigahæsti maður leiksins með 28 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Eg átti í baráttu allan leikinn við að ná upp rétta taktinum," sagði Olajuwon. „Við vorum allir stirðir eftir þessa bið,“ sagði Olajuwon. Houston náði tólf stiga forskoti í fjórða leikhluta, og var það mesti munurinn á liðunum í leiknum. New York tók þá góðan sprett, skoraði tíu stig á móti tveimur og breytti stöðunni í 79:76, þegar rúm- j^jvær mínútur voru eftir. Houston hélt hins vegar haus og sigraði eins og áður sagði. Pat Riley þjálfari New York sagði að léleg skotnýting hefði ver- ið vandamálið hjá þeim, en New York skoraði aðeins úr 31 skoti af 91 utan af velli, sem er 34 prósent nýting. Nýtingin hjá Houston var hins vegar 42 prósent utan af velli. „Ef við hefðum klárað þessi skot betur hefðum við rúllað þeim upp,“ sagði Riley. Það var mál manna a& leikurinn hefði þróast alveg í takt við það sem New York vildi, nema að einu leyti. Leikmönnum New York tókst að þreyta Olajuw- on þegar á leið, enda gerði hann ekki nema níu stig í seinni hálfleik miðað við 19 í þeim fyrri. Það sem klikkaði var hins vegar skotnýting- in, einkum hjá bakvörðunum, en John Starks, sem er lykilmaður hjá New York, hitti aðeins úr þremur skotum af átján utan af velli. Þjálfari Houston, Rudy Tomj- anovich, sagði að góður varnarleik- Reuter Hakeem Olajuwon og New York maðurinn Charles Oakley beijast um boltann undir körfunni eftir skot frá Oakley, í leiknum í fyrrinótt. ur hefði verið lykilinn að sigrinum. „Það er mikiíl léttir að hafa sigr- að í fyrsta leiknum," sagði Otis Thorpe, sem tók sextán fráköst og var næst stigahæstur hjá Houston með 14 stig. „Hakeem gerir mikið fyrir liðið en við værum ekki komn- ir þetta langt án hinna strákanna í liðinu,“ sagði Thorpe. Ewing var stigahæstur New York manna með 23 stig og níu fráköst. Charles Oakley gerði ijór- tán stig og tók 12 fráköst. „Við fengum fullt af góðum skotum en klúðruðum þeim. Það er ekki hægt að afsaka það,“ sagði Oakley eftir leikinn. KNATTSPYRNA / 2. DEILDKARLA Grindvfkingar í NÁGRANNASLAGUR! Vikingur - Þróttur, Rvik íkvöld kl. 20.00 íVíkinni, Traðarlandi 1. KAUPÞING HF GRINDVÍKINGAR gerðu árang- ursríka ferð til Akureyrar er þeir lögðu KA-menn að velli 2:1 12. deild í gærkvöldi. Með sigr- inum uppskáru þeir þrjú dýr- mæt stig og eru nú efstir í deildinni. Leikurinn var nokkuð fjörgur í fyrri hálfleik og áttu Grindvík- ingar gott færi strax á fimmtu mínútu, en fyrra markið þeirra kom á 11. mínútu. Þar var Þórarinn Ólafsson að verki — skoraði af stuttu færi. KA-menn gerðust nokkuð atkvæðameiri eftir markið og á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn Reynir Eiríksson skrífar er ívar Bjarklind skoraði úr víta- spyrnu af miklu öryggi í blá horn- ið. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks fengu KA-menn tækifæri á að kom- ast yfir er ívar Bjarklind skaut í stöng úr góðu færi. Síðari hálfleikur var mun daufari en sá fyrri og gerðist fátt markvert utan sigurmarks Grindvíkinga sem kom á 75. mínútu. Þar var að verki Ólafur Ingólfsson, fyrirliði, sem skoraði mjög fallega mark úr þröngu færi. Ólafur Ingólfsson var besti leik- maður Grindvíkinga og hjá KA var Bjami Jónsson öruggur að venju og einnig var kraftur í framlínu- mönnum KA. LAUGARDALSVÖLLUR í KVÖLD KL 20.00 VALUR-ÍA GOLF Þórður efstur Örn Ævar setti vallarmet í Leirunni órður Ólafsson frá Akranesi hefur nokkuð örugga for- ystu í stigakeppni til unginga- landsliðsins, 19-21 árs. EFtir tvö mót af þremur hefur hann hlotið 101 stig en Sigurpáll Sveinsson frá Akureyri er næstur með 71 stig og félagi hans hjá GA, Örn Amarsson hefur 69 stig í þriðja sæti. Þriðja og síðasta stigamóti verður hjá GR um helgina og þar er að miklu að keppa fyrir pilt- ana, sæti í unglingalandsliðinu sem fer á Evrópumót landsliða 19-21 árs í Danmörku 6.-10. júlí. Baráttan er hörð hjá piltunum því Helgi Þórisson úr GS er með 63 stig og Tómas Jónsson, GKj, hef- ur 61 stig. En það eru fleiri kylfingar að Ieika vel því hinn 16 ára gamli Öm Ævar Hjaltason úr GS setti á þriðjudaginn vallarmet í Leir- unni þegar hann lék á 66 högg- um. Hannátti sjálfur gamla metið sem var 68 högg, sem reyndar var aðeins tveggja daga gamallt. Örn Ævar lék Leiruna á 68 höggum í móti á sunnudaginn og setti vallarmet. Á mánudaginn brá hann sér í golf með félögum sínum og lék á 66 höggum en það var ekki tekið gilt sem met þannig að piltur fór í mót á þriðjudeginum og endurtók leikinn. Hann lék því Leiruna á 16 undir pari á þremur dögum. Glæsilegur árangur hjá honum. ÚRSLIT KR-FH 0:1 KR-völlur, íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild karla, fimmtudaginn 9. júní 1994. Aðstæður: Sterk gola og ögn svalt, rigning í síðari hálfleik. Mörk FH: Atli Einarsson (88.). Gult spjald: Ólafur H. Kristjánsson FH, (62. - brot), Stefán Arnarson FH, (75. - fyrir að tefja). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Jón Siguijónsson, hafði ekki góð tök á leiknum. Línuverðir: Ari Þórðarson og Gisli Björg- vinsson. Áhorfendur: 955. KR: Kristján Finnbogason - Þormóður Eg- ilsson, Heimir Guðjónsson, Izudin Daði Dervic - Hilmar Bjömsson, Rúnar Kristins- son, James Bett, Salih Heimir Porca, Einar Þór Daníelsson - Tryggvi Guðmundsson, Tómas Ingi Tómasson. FH: Stefán Arnarsson - Ólafur H. Kristjáns- son, Petr Mrazek, Auðun Helgason, Jón Þ. Sveinsson (Þórhallur Víkingsson 82.) - Þorsteinn Jónsson, Jón Erling Ragnarsson, Þorsteinn Halldórsson, Andri Marteinsson, Hallstein Amarson - Hörður Magnússon (Atli Einarsson 56.). Breiðablik - Fram 2:2 Kópavogsvöllur: Aðstæður: Suðvestan strekkingur og rign- ing í síðari hálfleik. Völlur ósléttur. Mörk Breiðabliks: Kristófer Sigurgeirsson /15.), Hákon Sverrisson (44.) Mörk Fram: Ríkharður Daðason (25.), Gauti Laxdal (45.) Gult spjald: Ásgeir Halldórsson, Breiðabliki (73. brot), Vilhjálmur Haraldsson, Breiða- bliki (82. brot). Gauti Laxdal, Fram (14. brot), Helgi Björgvinsson, Fram (50. brot), Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram (80. brot.) Rautt spjald: Enginn Dómari: Sæmundur Víglundsson Línuverðir: Gunnar Ingvarsson og Sigurð- ur Friðjónsson Áhorfendur: 575. Breiðablik: Guðmundur Hreiðarsson - Ás- geir Haraldsson, Gústav Ómarsson, Einar Páil Tómasson, Hákon Sveinsson - Kristó- fer Sigurgeirsson, Vilhjálmur Haraldsson, Amar Grétarsson, Tryggvi Valsson - Rast- islav Lazorik, Guðmundur Guðmundsson. Fram: Birkir Kristinsson - Helgi Björgvins- son, Ágúst Ólafsson, Pétur Marteinsson, Ómar Sigtryggsson (Þorbjörn A. Sveinsson 78.) - Hólmsteinn Jónasson, Gauti Laxdal, Steinar Guðgeirsson, Kristinn Hafliðason - Helgi Sigurðsson, Rikharður Daðason. ÍBK-IBV 0:0 Keflavík: Aðstæður: Vindur nánast þvert á völlinn, kalt og rigning. Gult spjald: Friðrik Sæbjörnsson, ÍBV (33. - brot), Nökkvi Sveinsson, ÍBV (63. - brot), Jóhann B. Magnússon, IÉK (65. - brot). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Gísli Guðmundsson. Línuverðir: Kristinn Jakobsson og Gunnar Gylfason. Áhorfendur: Um 500. ÍBK: Ólafur Gottskálksson - Sigurður Björgvinsson, Jakob Már Jónharðsson, (Ragnar Steinarsson 71.), Kristinn Guð- brandsson, Jóhann B. Magnússon - Róbert Sigurðsson (Georg Birgisson 66.), Ragnar Margeirsson, Gunnar Oddsson, Marko Tanacik - Kjartan Einarsson, Óli Þór Magn- ússon. ÍBV: Friðrik Friðriksson - Friðrik Örn Sæ- bjömsson, Jón Bragi Amarsson, Dragan Manojlovic - Bjamólfur Lárusson, Nökkvi Sveinsson, Zoran Ljubicic (Þórir Ólafsson 71.), Hermann Hreiðarsson, Heimir Hall- grímsson (Magnús Sigurðsson 79.) - Sumar- liði Ámason, Steingrimur Jóhannesson. Stefán Amarson, FH. Heimir Guðjónsson KR. Vilhjálmur Haraldsson, Tryggvi Valsson og Hákon Sverrisson, Breiðabliki. Helgi Sig- urðsson, Ríkharður Daðason og Steinar Guðgeirsson, Fram. Ólafur Gottskálksson, Marco Tanasic, Kjartan Einarsson, ÍBK. Friðrik Friðriksson, Heimir Hallgrímsson, Steingrimur Jóhannesson, ÍBV. Þormóður Egilsson, Rúnar Kristinsson, Kristján Finn- bogason, Tryggvi Guðmundsson, Tómas Ingi Tómasson, KR. Ólafur II, Kristjáns- son, Petr Mrazek, Auðun Helgason, Jón Þ. Sveinsson, Þorsteinn Jónsson, Andri Marteinsson, Atli Einarsson, FH. Fj. leikja U J T Mörk Stig ÍA 4 3 1 0 7: 2 10 FH 5 3 1 1 3: 1 10 KR 5 2 1 2 8: 3 7 ÍBK 5 1 4 0 8: 4 7 FRAM 5 1 3 1 9: 7 6 ÍBV 5 1 3 1 2: 3 6 VALUR 4 1 2 1 3: 5 5 BREIÐABL. 5 1 1 3 4: 12 4 ÞÓR 4 0 2 2 4: 6 2 STJARNAN 4 0 2 2 1: 6 2 2. deild karla: KA - Grindavík......................1:2 Ivar Bjarklind (31.) - Þórarinn Ólafsson (11), Ólafur Ingólfsson (75.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.