Morgunblaðið - 12.06.1994, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Draugursögunnar
Ungkratar kalla Jóhönnu draug
sögunnar og segja að sundurlynd-
isog klorningsdraugurinn hafi
skriðið fram úr skúinaskotum siig-
uimar. '| 111IIIII I' 11 >
Það hefur löngnm verið reimt við vinstri garðinn.
Morgunblaðið/Kristinn
FYRSTU síldinni landað úr Arnþóri EA á Neskaupstað í gær.
Íslandssíld landað á Neskaupstað í
fyrsta skipti í 27 ár
„Nú verður brætt
eins og druslan
dregur“
Neskaupstaður. Morgunblaðið.
ARNÞÓR EA 16 kom til Nes-
kaupstaðar í morgunsárið á
laugardag með fullfermi af ís-
landssíld. Þetta er söguleg stund
því síld úr þessum stofni hefur
ekki verið landað á íslandi í 27
ár. Skipstjórinn var hinn ánægð-
asti með aflann og kvaðst ætla
rakleiðis aftur á miðin.
Arnþór, sem er frá Arskógs-
sandi, var við veiðar u.þ.b. 210
sjómílur norðaustur af Langa-
nesi og fékk tæp 300 tonn í
tveimur köstum. Þetta er nokk-
uð austar en hafrannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson varð var við
íslandssildina. „Það er full
ástæða til að vera bjartsýnn,"
sagði Ingvar Guðmundsson skip-
stjóri. „Það er talsvert á svæðinu
þó ekki séu það stórar torfur.“
Hann hvetur báta hiklaust til að
halda á miðin því síldin sé stór
og alls ekki mögur. Þá virtist
mun minni áta vera í þessari síld
en þeirri sem Bjarni Sæmunds-
son fékk.
„Síldarævintýrið" í farteskinu
Ingvar sagðist Htið hafa velt
því fyrir sér að hann yrði fyrstur
til hafnar. „Við fórum í þeirri
trú að við fengjum eittvað.“
Hann hafði myndband með þætt-
inum „Síldarævintýrið“ í far-
teskinu og kveðst hafa sagt
áhöfninni að hún gæti horft á
það til marks um velgengnina.
Hljóðið var ekki síðra í áhöfn-
inni á Þórshamri, sem kom inn
nokkru síðar. Skipverjar kváðust
vera með um 600 tonn innanborðs
sem hefðu fengist í átta köstum.
Stærsta kastið var um 400 tonn
en að sögn sprengdu þeir annað
ennþá stærra. Börkur gerði það
ekki síður gott og lagðist að
bryggju um klukkan 10 í gær-
morgun með um 1200 tonn í lest-
inni. Stærsta kast hans var svipað
og þjá Þórshamri, um 400 tonn.
Förum alltaf aftur!
Nokkurrar eftirvæntingar
gætti á bryggjunni á Neskaup-
stað. Freysteinn Bjarnason,
verksmiðjustjóri Síldarvinnsl-
unnar, var í móttökusveitinni.
Hann var á síld á árum afla og
ævintýra og sagðist ekki geta
séð betur en þessi síld stæði fylli-
lega undir nafni sem Íslandssíld.
Hún væri í mjög góðu ástandi
miðað við árstíma en á síldarár-
unum var óvenjulegt að söltun
hæfist fyrr en í fyrsta lagi um
mánaðamótin júní-júlí. Nú væru
menn frá síldarútvegsnefnd
mættir á staðinn til að meta síld-
ina og hvort hún væri vinnslu-
hæf.
„Nú verður farið að bræða
eins og druslan dregur,“ sagði
Freysteinn eftirvæntingarfullur
og sagði þennan afla að mestu
fara í bræðslu en þó yrði sýnis-
horn tekið til söltunar. Sam-
kvæmt mælingu virtist fitustig
síldarinnar í fljótu bragði vera
um 20%.
Freysteinn sagðist vita um
marga báta sem hefðu í hyggju
að fara á síldveiðar, sérstaklega
þá sem verið hafa á rækju. Hann
kvaðst fyllilega þess sinnis að
nú væri lag fyrir sjómenn að
ráðast til atlögu við þennan nafn-
togaða sildarstofn. Bátsveijar á
Arnþóri tóku í sama streng eða
eins og einn þeirra orðaði það:
„Við förum alltaf aftur á meðan
eitthvað er að fá!“
, Morgunblaðið/Kristinn
SÍLDARMATSMENN skoða aflann. A milli þeirra eru Freysteinn Bjarnason, verksmiðjustjóri Síldar-
vinnslunnar og Ingvar Guðmundsson, skipstjóri á Arnþóri EA.
Morgunblaðið/Sveinbjörn Jónsson
Á SÍLDARMIÐUNUM 210 mílur norðaustur af Langanesi, nótin við síðuna á Þórshamri.