Morgunblaðið - 12.06.1994, Page 22

Morgunblaðið - 12.06.1994, Page 22
22 SUNNTJDAGUR 12. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Matthías Á. Mat- hiesen formaður þjóðhátíðamefnd- ar segir frá við- horfum sínum til þjóðhátíðarinnar á Þingvöllum og undirbúningi hennar Morgunblaðið/Kristinn Matthías Á. Mathiesen. Konnim með börnin á Þingvöll ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND, f.v. Svavar Gestsson, Jón Helgason, Steinn Lárusson, Matthías Á. Mathies- en, Þuríður Pálsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Elín G. Olafsdóttir og Haraldur Bessason. eftir Guðrúnu Guðlougsdóttur Nú líður senn að því að íslenska þjóðin fagni saman fímmtíu ára lýðveldisafmæli. Þá skunda menn á Þingvöll, þann þjóðhelga stað, sem Grímur heitinn geitskór valdi fyrir margt löngu til að verða miðstöð í stjómkerfi íslands. Á Þingvöllum munu hjörtu okkar allra væntanlega slá í takt, knúin áfram af hinn sterku þjóðemistil- fínningu sem svo lengi hefur verið einkenni og yrkisefni íslendinga. Þú álfu vorrar yngsta land, vort eigið land, vort fósturland! Sem framagjams unglings höfuð hátt hefjast fjöll við ölduslátt. Þótt þjaki böl með þungum hramm. Þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram. Þannig orti Hannes Hafstein, í orðastað allra íslendinga, fyrr og síðar, fyrsti íslenski ráðherrann. Síðan hefur ís- land átt marga ráðherra, einn úr þeirra röðum er Matthías Á. Mathi- esen, er sat á Alþingi í 32 ár og gegndi á stjómmálaferli sínum ýmsum ráðherraembættum. Matt- hías er nú formaður þjóðhátíðar- nefndar, er ber hitann og þungann af skipulagningu og undirbúningi fyrirhugaðrar þjóðhátíðar sem haldin verður á Þingvöllum þann 17. júní nk. í tilefni af fímmtíu ára afmæli lýðveldisins. „Við komum saman á Þingvöll- um til þess að fagna þessum tíma- mótum í sögu lýðveldisins og jafn- framt til þess að efla samkennd þjóðarinnar fyrir framtíðina," sagði Matthías Á. Mathiesen í sam- tali sem blaðamaður Morgunblaðs- ins átti við hann um hina fyrirhug- uðu afmælishátíð lýðveldisins. „Við höfum haldið þjóðhátíð árlega þann 17. júní frá íýðveldisstofnun. Á hálfrar aldar afmæli lýðveldis- ins, þegar það skal gert með veg- legri hætti, eru Þingvellir án efa sá staður sem einn getur verið vettvangur slíkrar hátíðar. Sú var og niðurstaða ríkisstjómar og Al- þingis og í kjölfar þess skipaði Davíð Oddsson forsætisráðherra þjóðhátíðamefnd í samráði við þingflokkana. í henni eiga sæti auk mín þau Elín G. Ólafsdóttir kenn- ari, Haraldur Bessason rektor, Ing- ólfur Margeirsson rithöfundur, Jón Helgason alþingismaður, Svavar Gestsson alþingismaður og Þuríður Pálsdóttir yfírkennari. Nefndinni var faíið að gera tillögur til ríkis- stjórnarinnar um undirbúning há- tíðarhaldanna á Þingvöllum í sam- ráði við Alþingi. Við fengum níu mánuði til að starfa svo það varð að bregðast skjótt við. Samstarf nefndarmanna hefur verið mjög , gott. Steinn Lárusson, kunnur ferðamálafrömuður, var ráðinn framkvæmdastjóri þjóðhátíðar- nefndar, en á honum hefur mikið starf hvflt og því úrvalsfólki sem unnið hefur með honum að undir- búningi hátíðarinnar. í upphafí beindi ríkisstjómin þeim tilmælum til sveitarstjóma á landinu að á þeirra vegum fæm fram hátíðar- höld laugardaginn 18. júní og að náið samstarf gæti tekist milli Þjóðhátíðamefnda og lýðveldishá- tíðamefnda hinna einstöku sveitar- félaga. í samræmi við þetta fóru fram viðræður við formann og framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga, við borgarstjórann í Reykjavík og formann og fram- kvæmdastjóra Iýðveldishátíðar- nefndar Reykjavíkurborgar, auk þess voro viðræður við nokkur önnur sveitarfélög. Við undirbúning hátíðarinnar var haft að leiðarljósi að afmæli lýðveldisins skyldi minnst með sér- stakri hátíðardagskrá. Auk þess að dagskráin gerði ráð fyrir sem fjölbreytilegustu skemmtiatriðum eftir því sem við væri komið. Frá upphafí var gert ráð fyrir að Al- þingi héldi fund á Lögbergi árdeg- is 17. júní og síðdegis yrði síðan efnt til sérstakrar dagskrár austur á völlunum. Þjóðhátíðamefnd ákvað í öndverðu að hátíðin skyldi sérstaklega tileinkuð fjölskyldunni og þá einkum yngri kynslóðinni. Við leituðum samstarfs við Náms- gagnastofnun sem vann að og gaf út kennsluhugmyndir og heimild- arskrá. Skólamir nýttu sér þetta í vetur til þess að vekja sérstakan áhuga bama á lýðveldisstofnuninni og sögu landsins. Mátti víða sjá þessa merki í fjölbreyttu starfi nemenda. Bömin munu setja mjög svip sinn á þjóðhátíðina, m.a. með kórsöng nærri þúsund bama. Blásið verður til þjóðhátíðarinn- ar á Þingvöllum snemma morguns með lúðrastefi sem Jón Ásgeirsson tónskáld hefur sérstaklega samið af þessu tilefni. Nefndin gekkst fyrir samkeppni um merki hátíðar- innar og fór merki Jóns Ágústs Pálmasonar teiknara með sigur af hólmi. Einnig var efnt til sam- keppni um sérstakt þjóðhátíðarlag. Lag Valgeirs Skagfjörðs, Þetta fagra land, sigraði. Síðar ákváðum við svo að útnefna sérstakt þjóðhá- tíðarblóm, Holtasóley. Þá hug- myndi átti dr. Sturla Friðriksson. Þjóðhátíðarblómið á m.a. að minna okkur öll á að ganga vel um og vera meðvituð um að gróður þjóð- garðsins á Þingvöllum er viðkvæm- ur. Sturla stakk upp á að umrætt blóm yrði þjóðarblóm, það er ekki okkar í þjóðhátíðamefnd að ákveða slíkt, það verður þjóðin sjálf að gera. Eitthvað við allra hæfí Hátíðardagskráin stendur yfír í tvo klukkutíma að viðstöddum þjóðhöfðingjum allra Norðurlanda og fjölmörgum öðrum erlendum gestum. Síðan hefst léttari dagskrá sem stendur í tvær klukkustundir. Frá því klukkan níu um morguninn og þar til hátíðinni lýkur stendur yfir sérstök fjölsýning, „Þjóðleikur á Þingvöllum", sem skiptist í ein- stakar sýningar. Þar verður m.a. reynt að bregða upp fjölmörgu þjóðlegu í menningar- og atvinnu- lífí þjóðarinnar í 50 ár. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfí á þjóðhátíðinni á Þingvöllum. Tæplega fjögur þúsund manns munu taka þátt í dagskránni á Þingvöllum. Flutt verða atriði úr íslands- klukku Halldórs Laxness og dans- aðir þjóðdansar. Margt verður á dagskrá fjölsýningar úr íslenskum bókmenntum. Þjóðhátíðamefnd taldi ekki rétt að þessu sinni að vera með samkeppni um hátíðar- ljóð eins og gert var bæði fyrir Alþingishátíðina 1930 og Lýðveld- ishátíðina 1944. Hins vegar var ákveðið að fá Jón Nordal tónskáld til þess að semja lag við ljóð Jóns Óskars. Bókmenntir hafa sem kunnugt er skipað veglegan sess í íslenskri þjóðarvitund og skírskot- un til okkar fornbókmennta og sögu var mikill aflvaki í sjálfstæð- isbaráttunni á síðustu öld og fram á þessa öld. í hinni fímmtíu ára sögu íslenska lýðveldisins var það þýðingarmikill atburður þegar Danir skiluðu okkur fomum hand- ritum okkar sem varðveitt voro löngum í Kaupmannahöfn. Þess verður ævinlega minnst. Við erom fámenn þjóð sem öðl- aðist sjálfstæði eftir langa baráttu. Til okkar hefur því verið litið af ýmsum smáþjóðum sem átt hafa undir högg að sækja. Það var ekki síst augljóst þegar jámtjaldið féll og hinar miklu breytingar urðu í Austur-Evrópu. Þá litu mörg ríki til íslands til þess að fá stuðning sem við reyndum að veita. Við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.