Morgunblaðið - 12.06.1994, Page 36

Morgunblaðið - 12.06.1994, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 SUNNÍÍDAGUR12. JÚNI 1994 p. * FLOGIÐ MEÐ FLUGLEIÐUM FJÓRUM SINNUM ÍVIKU ÁTÍMABILINU 6.JÚNÍ-5. SEPTEMBER 1994 FLUG AÐEINS KR. IfKIKMr FLUG OG HÓTEL FRÁ KR. 30.600 stgr pr. mann í tveggja manna herbergi á 2ja stjörnu hóteli í eina viku. FLUG OG BÍLL FRÁ KR. 20.900*stg, pr. mann miðað við tvo í bíl í A flokki í eina viku. *VIÐ BÆTIST FLUGVALLASKATTUR KR. 1.560,- FERÐAMIÐSTÖÐ AUSTURLANDS HF - SKÓGARLÖND 3,700 EGILSSTAÐIR, SÍMI 97-12000 - * Verðfall á nokkrum HP Laser Jet 4 geislaprenturum: fimmti Já, það er engin prentvilla á ferðinni! Við kynnum hreint ótrúlegt verðfall á nokkrum HP LaserJet 4 prenturum um þessar mundir. Hraðvirkum prentara sem hentar vel stærri fyrirtækjum og stofnunum sem krefjast gæðaprentunar. i í. N iV h u (/ HP Laserjet 4: Áður kr. staðgreitt m/vsk. Nú aðeins kr. 155.900,- staðgreitt m/vsk. 'tffigP sleginn þvi verdi áður var! i ÖRTÖLVUTÆKNI W Á 1 wféi Skeifunni 17 - Sími 811111 - Fax 687322 ÍDAG SKÁK llmsjón Marjeir Pétursson ÞESSI STUTTA skák var tefld á stóra opna mótinu í New York um páskana. Þýski stórmeistarinn Eric Lobron (2.570) var með hvítt en Svíinn Pontus Sjödahl (2.385) hafði svart. Byrjunin er drottningar- bragð. 1. c4 — e6, 2. Rc3 — d5, 3. d4 - Rf6, 4. Bg5 - Be7, 5. e3 - Rbd7, 6. Hcl - 0-0, 7. Rf3 - a6, 8. cxd5 - exd5, 9. Bd3 - c6, 10. Dc2 - He8, 11. 0-0 - Rf8, (11. - h6, 12. Bh4 - Rh5?, 13. Rxd5! er skemmtileg gildra sem margir hafa fallið 0 12. h3 - g6, 13. Hfel - Re6, 14. Bh6 - Rg7, 15. Db3 - Rd7, 16. e4 - dxe4, 17..Hxe4 - Rf5?? Þessi Ijóti afleikur Svíans gaf Lobron kost á glæsileg- um lokum: 18. Dxf7+! og svartur gafst upp, því hann er mát eftir 18. — Kxf7, 19. Bc4+ - Kf6, 20. He6+ - Kf7, 21. Hd6. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ferðaskrifstofa Reykjavíkur Við, nokkrir ferðafélagar, viljum þakka ferðaskrif- stofunni mjög góða þjón- ustu í skíðaferð síðustu páska. Fyrir hönd Sviss- klúbbsins, Inga Odds Tapað/fundið Hjól tapaðist BLEIKT og svart Wint- her- kvenreiðhjól hvarf frá Hraunteigi 12 á hjóladegi fjölskyldunnar. Það er með hvítum bamastól aft- an á. Hafi einhver orðið var við hjólið er hann vin- samlega beðinn að láta vita í síma 679412. Hringur tapaðist SILFURHRINGUR með bláum steini í miðju og glærum steinum utan um tapaðist í Breiðholti, lík- lega í kringum Vestur- berg, Áltahóla eða Ara- hóla. Finnandi vinsamlega hringi í síma 677901. Lilja. Fundarlaun. Hjól tapaðist BLÁTT Ice Fox 18 gíra fjallahjól, framleiðslunúm- er er RS9101472, tapaðist frá Kögurseli 16 aðfara- nótt 2. júní sl. Hafi ein- hver orðið var við hjólið er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 78563. Eyrnaskjól tapaðist EYRNASKJÓL úr kanínu- skinni með „diskum“ inn- an í tapaðist á Brekkugötu í Hafnarfírði eða við Flensborg. Finnandi vin- samlega hringi í síma 54848. Útigalli tapaðist SKÍÐAGALLI með mynd- um af skíðamönnum á brjósti tapaðist fyrir nokkru. Gallinn er merkt- ur Hauki Kristjánssyni. Á öðm hnénu var gat. Viti einhver hvar gallinn er niðurkominn er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 687393. Gæludýr Kettlingar SJÖ sætir kassavanir kettlingar, sjö vikna, fást gefins á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 623631. Kettlingar FJÓRA fallega og bráð- hressa 12 vikna kettlingar vantar góð heimili strax. Upplýsingar í síma 653672. Kanínubúr og páfagaukur ÞARF að losna við frekar stórt kanínubúr. Á sama stað er óskað eftir páfa- gauk gefíns. Upplýsingar í síma 612326. COSPER Ég hef mjög gaman af því að mála, en það er því miður alltaf komið myrkur þegar ég er búinn í vinn- unni og get snúið mér að listinni. Pennavinir SAUTJÁN ára þýsk stúlka með áhuga á tennis, sundi og bréfaskriftum: Caroline Weber, Brunngrabenweg 1, 97753 Karlstadt-Laud- enbach, Germany. FRÖNSK stúlka með margavísleg áhugamál: Patricia Rommelaere, BP 93, 06271 Villeneuve-Lou- bet cedex, France. SEXTÁN ára japönsk stúlka með áhuga tónlist og íþróttum en auk þess safnar hún frímerkjum og póst- kortum: Katsuko Kanno, 5-19-2 Futabadai, Mito-shi Ibaraki, 311-41 Japan. ÁTJÁN ára þýsk stúlka með áhuga á hestum, tónfist, söng, fimleikum, leikhúsi o.fl.: Julia Fischer, Walterhöferstr. 36, 14165 Berlin, Germany. ÍTALSKUR 26 ára karl- maður með mikinn ís- landsáhuga: Barone Giovanni, Fr. Cappellazzo 74, 12062 Cherasco (CN), Italy. Víkveiji skrifar... að hefur verið fátt um fengsæl mið í íslenzku atvinnulífi und- anfarin samdráttarár. Ein skemmti- leg undantekning fínnst þó. Ferða- þjónustan, sem vaxið hefur og dafn- ar mitt í kreppunni. Þetta er vinnuaflsfrek atvinnu- grein. Hún vinnur því vel gegn at- vinnuleysi. Hún er og gjaldeyrisgef- andi. Ekki veitir af í baráttunni gegn halla í viðskiptum við umheim- inn, en sú barátta hefur reyndar skilað góðum árangri undanfarið. Hannes G. Sigurðsson hagfræð- ingur víkur að þessari jákvæðu undantekningu, ferðaþjónustunni, í grein í Fréttabréfí VSÍ og segir m.a.: „En greinin er viðkvæm og þarf ekki mikið út af að bera til að sá árangur [sem náðst hefur] verði að engu. Erlendar ferðaskrifstofur myndu fljótlega hætta að fjalla um landið í kynningarbæklingum sín- um ef þær lentu í því að ekki væri hægt að komast til landsins á þeim tíma sem þær hefðu lofað eða ef viðskiptavinirnir lokuðust inni í landinu. Þetta er sú ógnun sem stöðugt vofir yfir ferðaþjónustunni ár hvert. Knýjandi þörf er því að endurskoða hina hálfsextugu vinnu- markaðslöggjöf hér á landi, m.a. með það að markmiði að draga úr of miklum áhrifum ýmissa smá- hópá:H ' *ti\i fct&aiubi Hannes G. Sigurðsson segir í grein sinni að 141 þúsund manns séu í vinnu hér á landi um þessar mundir. Þetta er svipaður fjöldi vinnandi og var fyrir tveimur árum, þrátt fyrir þá staðreynd að fólki á vinnualdri hefur fjölgað um 3.500 manns á þessum árum. Vinnumarkaðurinn breytist samt sem áður ár hvert, þótt upplýsingar um töpuð og sköpuð störf séu af skomum skammti. Hannes segir í grein sinni: „Slíkar upplýsingar liggja hins vegar fyrir í ýmsum öðrum löndum og sýna að heildarfjöldi nýrra starfa og horfínna starfa er miklu meiri en nettóbreyting atvinnustigs. Um- rædd gögn frá ýmsum löndum sýna að algengt er að tíunda hvert starf hverfi á hveiju fimm ára tímabili og ný störf verði til í svipuðum mæli. Ef sama gilti hér á landi sam- svarar það því að 14 þúsund störf hverfí hér á landi á hverjum fimm árum eða tæplega þrjú þúsund ár- lega og samsvarandi fjölgun eigi sér stað. Þannig gjörbreytist vinnu- markaðurinn á örfáum áratugum og verður óþekkjanlegur." xxx að er og áhjákvæmilegt, skrif- andi um vinnumarkaðsmál, að staldra við tölu vinnandi íslend- ■ inga: 141.000 manns. Trúlega eru til ófáar götur erlendra stórborga með hliðstæða íbúatölu. Þessar 140 þúsundir eiga síðan að standa und- ir opinberum framkvæmdum og opinberri þjónustu í landi okkar, með skattpeningum sínum, sem sóttir eru til þeirra bæði í vöruverði (vaskurinn, benzíngjald o.s.frv.) og tekjusköttum. Og kröfurnar um framkvæmdir og þjónustu eru ekki skornar við nögl í kotríki okkar. Viðmiðun gjarnan gerð við tugmilljónaþjóðir. Það gleymist hins vegar á stundum að kröfurnar til hins opinbera eru, þegar grannt er gáð, gerðar tií okkar sem skattana greiðum, virðis- aukann í vöruverðinu, tekjuskattinn og útsvarið! xxx Víkverji minnir á þá staðreynd, sem enginn kemst fram hjá, að kostnaðarleg undirstaða opin- berra framkvæmda og þjónustu hvers konar, eru þau verðmæti sem verða til í atvinnulífmu. Þangað sækjum við vinnu okkar, laun okkar og önnur verðmæti, sem mynda skattstofna ríkis og sveitarfélaga. Kjami þjóðmála okkar er að skapa atvinnulífínu skilyrði til að blómstra, þá gefst okkur allt hitt að auki. Það er að segja ef við sníðum okkur opinberan stakk eftir vexti, það er greiðslugetu okkar sjálfra!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.