Morgunblaðið - 12.06.1994, Side 42
42 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Tíumar sem verða í sviðsljósinu á HM í Bandaríkjunum
KEPPNISPEYSA númer tíu hefur verið eftirsótt og vinsæl
hjá knattspyrnumönnum allt frá því að knattspyrnukóngur-
inn Pele frá Brasilíu klæddist peysu númer 10 í heimsmeist-
arakeppninni í Svíþjóð 1958, en þá varð kappinn heims-
meistari aðeins 17 ára gamall. Margir kunnir knattspyrnu-
kappar hafa síðan leikið í peysum númertíu, eins og Frakk-
inn Michel Platini, sem var þrisvar sinnum útnefndur knatt-
spyrnumaður Evrópu þegar hann var uppá sitt besta, Ruud
Gullit, fyrrum fyrirliði Hollands, og Ásgeir Sigurvinsson, svo
einhverjir séu nefndir. Það eru yfirleitt kunnir og reyndir
kappar sem klæðast peysu nr. 10 í HM í Bandaríkjunum —
meðalaldur þeirra er 31 ár. Flestir þeirra leika með liðum
í Þýskalandi, eða fjórir. Þrír leika með ítölskum liðum og
tveir eru á Spáni.
Sigmundur Ó.
Sleinarsson
skrifar
Fyrstan má nefna Lothar Matt-
háus, fyrirliða heimsmeistara
Þjóðveija, en hann tekur nú þátt í
sinni fjórðu HM —
lék fyrst á Spáni
1982, þar sem hann
fékk silfurverðlaun.
Mattháus fékk aftur
silfurverðlaun 1986 í Mexíkó, en það
kom í hans hlut að hampa heims-
meistarastyttunni á Ítalíu 1990.
Þessi snjalli leikmaður, sem er nú
33 ára og lék frábærlega á miðjunni
hjá Þjóðveijum á Ítalíu — stjómaði
leik þýska liðsins og skoraði glæsileg
mörk — hefur nú fengið nýtt hlut-
verk. Mattháus leikur nú sem aft-
asti vamarleikmaður; hefur fetað í
fótspor Franz Beckenbauers.
Maradona og Matthaus
hafa báðir hampað HM-
styttunni
Það er annar leikmaður
sem leikur í peysu nr. 10 sem
hefur hampað heimsmeista-
rastyttunni — og á því mögu-
leika að verða fyrsti fyrirlið-
inn til að hampa styttunni
tvisvar, eins og Mattháus.
Það er enginn annar en Di-
ego Maradona, fyrirliði
Argentínumanna, sem urðu
heimsmeistarar 1986 í Mex-
íkó, með því að leggja V-
fjóðveija að velli, en síðan máttu
þeir sætta sig við tap gegn Þjóðverj-
um, 0:1, í Róm 1990. Lengi vel leit
út fyrir að Maradona léki ekki með
Diego Maradona setur HM-met í riðlakeppninni,
ef hann leikur alla þijá leiki Argentínumanna — þá
leikur hann 22. leik sinn í HM.
„Tfumar“ í HM
Þeir leikmenn sem klæðast peysu nr. 10 í HM í Bandaríkjunum,
em eftirtaldir — lönd, nöfn, félög og aldur:
Varnarleikmaður:
V-Þýskaland: Lothar Mattháus, Bayern Miinchen...............33
Miðvallarspilarar:
Argentína: Diego Maradona....................................33
Belgía: Enzo Scifo, Mónakó..................................28
Bolivía: Marco Etcheverry, Coca Cola........................24
Brasilía: Rai, París St. Germain............................29
Kólumbía: Carlos Valderrama, Atletico Junior................33
írland: John Sheridan, Sheffield Wednesday..................30
Marokkó: Mustapha E1 Haddaoui, SCO Angers...................32
Nígería: Augustine Okicha, Frankfurt........................21
Noregur: Kjetil Rekdal, Lierse..............................26
Rúmenía: Georghe Hagi, Brescia..............................29
S-Arabía. Saeed al-Irwiran, A1 Shabab.......................26
S-Kórea. Ko Jeon-woon, Ilhwa Chonma.........................28
Spánn: Jose Maria Bakero, Barcelona.........................31
Sviss: Ciriaco Storza, Kaiserslautem...................... 24
Sóknarleikmenn:
Búlgaría: Nasko Sirakov, Levski Sofia.......................32
Kamerún: Lovis Mfede, Canon Yaounde.........................29
Grikkland: Tasos Mitropoulous, AEK Aþena....................37
Ítalía: Roberto Baggio, Juventus............................27
Mexíkó: Luis Garcia, Atletico Madrid........................25
Holland: Dennis Bergkamp, Inter Mílanó......................25
Rússland: Valery Karpir, Spartak Moskva.....................25
Svíþjóð: Martin Dahlin, Mönchengladbach.....................26
Bandaríkin: Roy Wegerle, Coventry...........................30
sem aftasti varnarleikmaður.
Knattspyrnumaður Evrópu 1993,
ítalinn Roberto Baggio, sem leikur
með Juventus, mun leiða sóknarleik
ítala, sem mæta með geysilega sterkt
lið til Bandaríkjanna. Baggio, sem
er 27 ára, var í sviðsljósinu í HM
1990 á Ítalíu — hann er mjög leik-
inn, fljótur og klókur leikmaður.
Baggio hefur skorað nítján mörk í
þeim 35 landsleikjum sem hann hefur
leikið.
Belgíumaðurinn Vincenzo Scifo
— ítali, sem gerðist belgískur ríkis-
borgari — leikur í sinni þriðju heims-
meistarakeppni. Scifo er einn af
snjöllustu miðvallarspilurum heims —
hefur mikla yfirferð, gott auga fyrir
snöggum sóknaraðgerðum og skorar
mörk með skotum af löngu færi.
Scifo, sem er 28 ára, hóf að leika
með Anderlecht sextán ára, en síðan
með Inter Mílanó, Bordeaux, Aux-
erre, Tórínó og Mónakó.
Markvarðahrellirinn Dennis
Lothar Mattháus er fyrirliði heimsmeistara Þjóðveija. Hann tekur nú þátt
í sinni fjórðu'HM — lék fyrst á Spáni 1982.
Argentínumönnum í HM, en eftir að
þeir töpuðu fyrir Kólumbíu, 0:5, og
urðu að leika gegn Ástralíumönnum
tvo leiki um réttinn til að leika í
Bandaríkjunum, var kallað á Mara-
dona. Hann kom, sá og sigraði á
nýjan leik og leikur nú í sinni fjórðu
heimsmeistarakeppni eins og Matt-
háus.
Maradona mun setja HM-met í
riðlakeppninni, ef hann leikur alla
þijá leiki Argentínumanna — þá leik-
ur hann sinn 22. leik í HM, en met-
ið eiga nú Uwe Seeler, V-Þýska-
landi, og Pólveijinn Zmuda, sem
hafa leikið 21 leik.
Það er öllum ljóst að Maradona,
33 ára, er ekki eins öflugur og áður.
Hann hefur lítið leikið undanfarin
ár og er ekki samningsbundinn neinu
félagi síðan hann var látinn fara frá
Newell Old Boys, sem frægt varð.
Hans hlutverk verður að leika fyrir
aftan tvo miðheija Argentínumanna
— draga leikmenn að sér og leggja
upp færi fyrir miðheijana. Maradona
til trausts og halds verður Leonardo
Rodriguez, sem er geysilega vinnu-
samur leikmaður.
Fjórtán „tíur“ á miðjunni
Af þeim 22 leikmönnum sem klæð-
ast peysu nr. 10 í Bandaríkjunum,
eru fjórtán sem leika stór hlutverk
á miðjunni, níu sem leika í fremstu
víglínu óg eihn, Mattháus, sém léikur
Roberto Baggio, knattspyrnumað-
ur Evrópu, leikur stórt hlutverk í sókn-
arleik ítala.