Morgunblaðið - 24.08.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 7
FRÉTTIR
Norrænn fundur um
plöntuframleiðslu
Mikil lyfti-
stöng fyrir
greinina
NORRÆN ráðstefna um skógar-
plöntuframleiðslu stendur nú yfir
á Hallormsstað en Skógrækt ríkis-
ins gerðist fyrir nokkru formlegur
aðiii að samstarfí Norðurlandanna
um þróun aðferða við ræktun skó-
garplantna. Ráðstefnur s_em þessi
eru árviss viðburður en ísland er
nú gestgjafi í fyrsta sinn. Sextíu
sérfræðingar í uppeldi skógar-
plantna sækja ráðstefnuna, þar
af 38 norrænir gestir. Aðalefni
hennar að þessu sinni er ræktun
á lerki, haustun plantna og rækt-
junarpróf.
Niðurstöður rannsóknar
kynntar
Katrín Ásgrímsdóttir, ræktun-
arstjóri á Hallormsstað, sat í und-
irbúningsnefnd ráðstefnunnar.
Hún segir að til standi að kynna
niðurstöður úr samnorrænu rann-
sóknarverkefni um uppeldi á lerki
og ástandi eftir útplöntun á ráð-
stefnunni og bíði íslendingar
spenntir eftir niðurstöðunum þar
sem lerki sé mikilvægasta trjáteg-
undin hér á landi. Að sögn Katrín-
ar snerist rannsóknin um áhrif
mismunandi daglengdar, áburðar-
gjafar og vökvunar á vöxt, hau-
stundirbúning og ástand eftir útp-
löntun.
Framleiðsla á skógarplöntum
fer fram á einni ræktunarstöð hér
á landi. Katrín segir að sakir þess
sé hún ekki sambærileg við það
sem tíðkast á Norðurlöndunum þar
sem fjöldi stöðva framleiði milljón-
ir plantna á ári. Hún segir að fyr-
ir vikið sé heimsókn þessara góðu
gesta mikil lyftistöng fyrir skógar-
plöntuframleiðslu á Islandi því af
þeim megi margt læra.
-----♦ » ♦
Aðalfundur Stéttar-
sambands bænda
Ný bændasam-
tök stofnuð
AÐALFUNDUR Stéttarsambands
bænda hefst á morgun, fimmtu-
dag, með skýrslu Hauks Halldórs-
sonar, formanns Stéttarsam-
bandsins, og ræðu Halldórs Blön-
dals, landbúnaðarráðherra. Eitt
meginmál fundarins er stofnun
nýrra samtaka bænda, en málið
hefur verið í undirbúningi lengi
og er að komast á lokastig. Fund-
inum líkur á laugardeginum með
afgreiðslu mála. Aukabúnaðar-
þing verður haldið á Flúðum sam-
hliða Stéttarsambandsfundinum
þar sem stofnun nýju samtakanna
verður til umfjöllunar.
LttTTW
Og nú er hann
tvöfaldur!
Veröur hann
90
milljónir?
|
Milljónauppskrift Emils:
1. Skundaðu á næsta
sölustað íslenskrar getspár.
2. Veldu réttu milljónatölumar
eða láttu sjálfvalið um getspekina.
3. Snaraðu út 20 krónum
fyrir hverja röð sem þú velur.
4. Sestu I þægilegasta stólinn
I stofunni á miðvikudagskvöldið
og horfðu á happatölurnar
þínar krauma I Víkingalottó-
pottinum í sjónvarpinu.
5. Hugsaðu um allt það sem
hægt er að gera fyrir 90 milljónir.
Verði ykkur að góðu!
jnttfjptiMiiSiiitk
- kjarni málsins
i
Stórlækkað útsöluverð .
l’OllPII)
miðvikudag, fimmtudaa oq föstudag.
30—50% aukalækkun frá útsöluverði.
Prútt í nokkrum verslunum.
Þorpið, Borgarkringlunni,
Borgarkringlunni