Morgunblaðið - 16.09.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994 9
FRÉTTIR
Páfi heimilar stúlkum að vera messuþjónar
*------------------------------i----
Islenskar
stúlkur
þjóna
JÓHANNES Páll II. veitti í vor
konum leyfi til að starfa sem
messuþjónar innan kaþólsku
kirkjunnar. I sumum kirkjum
heimsins haf;i stúlkur starfað sem
messuþjónar áður en leyfið var
veitt en í fyrsta skipti í sögu ka-
þólsku kirkjunnar á Islandi hafa
tvær stúlkur fengið þjálfun sem
slíkir og þjónuðu þær sl. sunnu-
dag í morgunmessu í Kristskirkju.
Þriðja stúlkan er í þjálfun.
„Hafa staðið sig frábærlega"
Séra Jakob Roland, prestur
kaþólska safnaðarins hér, segir
að nú hafi um 20 ungir menn hlot-
ið þjálfun sem messuþjónar og
starfi sumir þeirra sem sjálfboða-
liðar árum saman, en sá sem
lengst hafi gegnt starfi messu-
þjóns hérlendis hefur starfað í
eina tvo áratugi.
Stúlkurnar tvær, Kristín Guð-
mundsdóttir, tvítug, og Sylvía
Kristín Ólafsdóttir, þrettán ára,
hafa verið virkar í unglingastarfi
safnaðarins og segir Sylvía að
þær hafi haft áhuga á starfi
messuþjóns um tíma, en ekki átt
kost á því fyrr en í vor. „Þær
hafa reynst frábærlega og gefa
strákunum ekkert eftir,“ segir
séra Jakob.
Kristín er fædd inn í kaþólska
söfnuðinn en Sylvía tók kaþólska
trú um tíu ára aldur. Sylvía segir
að karlar innan kirkjunnar hafi
Morgunblaðið/Gunnar Lund
SÉRA Jakob Roland fær aðstoð hjá messuþjónum sínum, Krist-
ínu Guðmundsdóttur og Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur.
flestir tekið þeim vel og séu
hlynntir því að stúlkur fái að
starfa sem messuþjónar, „þótt ég
hafi heyrt að sumum finnist erfitt
að vei\jast þessari nýbreytni,"
segir Sylvía.
Hún segir þær stallsystur
gjarnan vilja starfa innan ka-
þólsku kirkjunnar framvegis, en
þó sé fátt í boði og hún hafi alls
engan áhuga á því að verða
nunna. „Það er stöðugt verið að
þræta um hlutverk kvenna innan
kaþólsku kirkjunnar, og ég held
að innan tíðar komi að því að
konur fái að vígjast til prests, en
persónulega efast ég um að þær
fái að verða biskupar eða kard-
ínálar og örugglega aldrei páfar,
segir Sylvía.
Borgarstjórn ræðir
endurbyggingu Iðnós
Endurskoðað-
ar áætlanir
ekki kynntar
Flestir þættir vanmetnir í upphafi
ENDURBYGGINGARNEFND
kynnti ekki í borgarráði eða í borg-
arstjórn endurskoðaðar kostnaðar-
áætlanir við endurbyggingu Iðnós.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri sagði að það hefði ekki verið
gert fyrr en hún hefði kallað eftir
þeim. Inga Jóna Þórðardóttir borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mót-
mælti ummælum borgarstjóra um
að framkvæmdir við Iðnó væru í
ólestri. Öllum hefði verið ljóst að
frumkostnaðaráætlunin hefði verið
pf lág.
I minnisblaði borgarlögmanns,
sem borgarstjóri las á fundi borgar-
stjórnar í gær, kemur fram að í
samningi um kaup á Iðnó hafi borg-
in tekið að sér að kosta viðgerðir á
húsinu. Fyrsta áætlun upp á 107
millj. hafi verið kynnt í borgarráði
og á fjárhagsáætlun borgarinnar
1993 voru 40 millj. til framkvæmda
og hönnunar. Eftir að framkvæmdir
hófust hafi endurbyggingarnefnd
hússins óskað eftir að byggingardeild
endurskoðaði kostnaðinn á grunni
þeirra gagna sem þá lágu fyrir.
„Endurskoðaða áætlunin sem var
Í50 millj. miðað við fyrri forsendur
var ekki lögð fyrir borgarráð' en við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins
1994 voru 40 millj. til framkvæmda
0g hönnunar við Iðnó,“ segir í-minn-
isblaðinu. „I ræðu borgarstjóra við
framlagningu fjárþagsáætlunar er
þess getið að fjárveitingin miðist við
að ljúka frágangi hússins að utan
og byrja á ýmsum verkþáttum inni.“
Hækkun vegna sviðs
Síðan segir að áætlun, sem gerð
var í febrúar 1994, hafi sýnt að
kostnaður yrði 173,3 millj. „Nefndin
óskaði samanburðar á frumkostnað-
arhugmynd og þeirri nýju,“ segir í
minnisblaðinu. „Hækkunin frá 150
millj. króna áætluninni skýrist að
hluta til með tæknibúnaði vegna
sviðs og fleira sem er í seinni áætlun-
inni en ekki þeirri fyrri.“ Endurbygg-
ingarnefndinni hafi verið ljóst að
ekki hafi verið um endanlega áætlun
að ræða þar sem hönnun var ekki
iokið. Því var ný áætlun gerð í júlí
sem gerir ráð fyrir að kostnaður
verði 183,6 millj. Þessi áætlun á að
vera nokkuð nákvæm, segir í grein-
argerð borgarlögmanns.
Flest vanmetið
Loks segir að þegar bornar eru
saman frumkostnaðarhugmyndin og
sú áætlun sem liggi fyrir komi í ljós
að flestir þættir hafi verið vanmetnir
í upphafí. Frumhugmyndin byggist
á ágiskun án úttektar á ástandi húss-
ins. Kostnaður við lagnir í húsinu
hafi hækkað um 21 milíj., frágangur
inni um 17 millj. og hönnun hafi
farið verulega fram úr áætlun.
Lækkun á
olíuverði í
Smug’unni
OLÍUFÉLÖGIN hafa samþykkt að
lækka verð á gasolíu til skipa í Smug-
unni um rúmlega 15% og hefur lækk-
unin þegar tekið gildi. Pétur Sverris-
son hjá LÍÚ sagði að lækkunin hefði
náðst með samvinnu olíufélaganna
og LIÚ og gildir hún næstu 3-4 vikur.
Pétur sagði að að þeim tíma liðn-
um yrði olíuþörf íslensku skipahna í
Smugunni metin á nýjan leik og verð-
ið endurskoðað. Hann sagði þá verð-
lækkun sem náðst hefur vera í átt-
ina, en á tímabili var olíuverð í smug-
unni 30% hærra en hér á landi.
Mörg íslensku skipanna sem stunda
veiðar í Smugunni geta keyrt á svar-
tolíu, en að sögn Péturs er ekki
hægt að afgreiða svartolíuna með
góðu móti til skipa á hafi úti, og því
stendur hún ekki til boða í Smug-
unni. Norskt olíuskip sér um að af-
greiða olíuna til íslensku skipanna.
-----» ♦ ♦----
Vígsla á
fósturreit
DUFTREITUR, sem helgaður er
fósturlátum, verður vígður í Foss-
vogskirkjugarði laugardaginn 17.
september kl. 13.30.
Safnast verður saman til kynning-
ar og helgistundar í Bænahúsinu,
en síðan haldið í duftreitinn, þar sem
vígsla og fyrsta greftrun fer fram.
Sr. Bragi Skúlason, sjúkrahúsprest-
ur Ríkisspítala, annast um vígsluna.
Framvegis er gert ráð fyrir að jarð-
sett verði mánaðarlega í reitinn.
Undirbúningsvinna að duftreit
þessum var unnin af Kirkjugörðum
Reykjavíkur og starfsfólki á Land-
spítalanum í samræmi við óskir, sem
komu fram hjá foreldrum.
Ný sending
frá Daniel D.
TESS
NeSst viS
V. Dunhaga,
A sími 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
lauqardaqa
kl. 10-14
BESTA SKOSMIÐASTOFAN I BÆNUM
opnar fimmtudaginn 22. september.
Vel unnið en ekki vélunnið!
Sveinn Jón Jónsson skósmiður
Leynimel 13
Nýsendingaf
náttfíUnaúi frá
LadyPiroIa
■/ /S/7o'
oÆy^iý sending °-i/v
sá
tilpum og útigöllum
^rrábcirt \?erö
FIORII.OIO
| Borgarkringlunni, sími 689525.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
62 milljónir
Vikuna 8. til 14. september voru
samtals 62.035.493 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
08. sept. Mamma Rósa, Kópavogi. 135.197
10. sept. Hótel Örk, Hverageröi.. 295.374
10. sept. Háspenna, Laugavegi.... 58.145
11. sept. Keisarinn............... 74.764
11. sept. Mamma Rósa, Kópavogi... 83.065
12. sept. Hanastél, Kópavogi..... 127.088
12. sept. Háspenna, Laugavegi. 70.730
14. sept. Háspenna, Hafnarstræti. 252.230
Staða Gullpottsins 15. september, kl. 13:00
var 3.746.674 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf 150.000 kr. og Gulipottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.