Morgunblaðið - 28.10.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 17
ERLENT
Stjórn
Jeltsíns
hélt velli
RÚSSNESKA stjórnin stóðst
vantraust á þingi í gær er að-
eins 194 þingmenn af 450
greiddu vantrauststillögu at-
kvæði sitt. Andvígir tillögunni
voru 54 þingmenn, 55 sátu hjá
en 147 voru íjarstaddir. Þegar
úrslitin lágu fyrir sagði Víktor
Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra að hleypa þyrfti nýju lífi
í umbótastefnuna. Félagi úr
Bændaflokknum, sem hlynntur
er kommúnistum, tók óvænt við
embætti landbúnaðarráðherra í
gær.
Olíumengun-
in mikil
RÚSSNESKUR embættismað-
ur viðurkenndi í gær, að olíulek-
inn í Komi-sjálfstjómarlýðveld-
inu gæti valdið alvarlegum
skaða á umhverfinu. Sagði
hann, að olía hefði þó ekki bor-
ist í Petsjora-fljót, sem rennur
í Barentshaf. Alexander Shúv-
al, talsmaður rússneska um-
hverfisráðuneytisins, sagði, að
mengunin væri mjög alvarleg
en ítrekaði fullyrðingar Rússa
um, að 14.000 tonn af olíu
hefðu lekið út en ekki 272.000
tonn eins og bandarískt olíufé-
lag heldur fram.
Gíslarnir líf-
látnir?
ÁSTRÖLSK stjórnvöld kröfðust
þess í gær að morðingjar
þriggja vestrænna ferðamanna
í Kambódíu yrðu dregnir fyrir
rétt, reyndust fregnir um líflát
þeirra á rökum reistar. Rauðir
khmerar tóku mennina þijá,
Ástrala, Breta og Frakka, í gísl-
ingu 26. júlí sl. og hafa engar
fregnir af þeim borist frá 29.
ágúst. Óstaðfestar fregnir
herma að þeir hafi verið teknir
af lífí.
Olechowski
segir af sér
PÓLSKI utanríkisráðherrann
Andrzej Oleehowski sagði af sér
í gær vegna ásakana um að
hann hefði brotið lög sem banna
opinberum starfsmönnum að
þiggja laun fyrir önnur störf.
„Dómsmálaráðherrann dró
heiðarleika minn í efa og því
ákvað ég að segja af mér,“
sagði Olechowski.
Bannað að
auglýsa leik-
föng
GRÍSKA viðskiptaráðuneytið
bannaði nýlega leikfangaaug-
lýsingar í dag- og kvölddags-
skrá sjónvarpsstöðva til að
vernda veski neytenda. „Tak-
mark okkar er að vernda for-
eldra, sem mega þola sífellt
nauð barnanna um að kaupa
leikföng," sagði embættismað-
ur í ráðuneytinu. Grísk neyt-
endasamtök styðja bannið.
Stækkun
NATO flýtt?
STJÓRN Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta ráðfærir sig nú við
ráðamenn aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) um
hvernig hraða megi inntöku
nokkurra fyrrum leppríkja Sov-
étríkjanna í bandalagið.
Tillögur um róttækar breytingar á samgöngumálum
Bensínverð tvöfaldað og
minna fé til vegagerðar
London. The Daily Telegraph.
MENGUN af völdum aukinnar bíla-
og flugumferðar hefur verið mjög
til umræðu í Bretlandi og hafa tvær
nefndir þingsins, samgöngunefnd
og nefnd um mengun lagt til rót-
tækar breytingar til að draga úr
mengun. Hefur m.a. verið lagt til
að verð á bensíni verði tvöfaldað á
næstu tíu árum, að ýtt verði undir
notkun hvarfakúta, að minna fé
verði veitt til vegagerðar og að
skattar verði lagðir á eldsneyti fyr-
ir flugvélar.
Nefnd um mengun, sem skipuð
er mörgum af færustu sérfræðing-
um Bretlands, skilaði á miðvikudag
skýrslu, sem hún hefur unnið að
síðustu 2‘A ár. Hvetur hún til harka-
legri aðgerða en menn áttu vpn á.
í skýrslunni segir að breytingar
séu nauðsynlegar til að koma í veg
fyrir heilsutjón, umhverfis- og
menningarspjöll, sem óhjákvæmi-
lega fylgi tvöföldun umferðar, sem
spáð er að verði í Bretlandi á næstu
30 árum. Er hvatt til
þess að fólk fari ferða
sinna á hjóli eða gang-
andi eins og kostur sé.
Nefndin hvetur til þess
að verð á bensíni verði
tvöfaldað og að helmingi
minna fé verði varið til lagningar
nýrra vega. Segir nefndin að
Ytt verði undir
notkun
hvarfakúta
ástæða þess að að umferðarþungi
hafí aukist, sé fyrst og fremst vegna
þess hversu ódýr ferðamáti það sé
að aka í bíl.
Niðurstöðum mótmælt
Metur nefndin kostnað vegna
loftslagsbreytinga, há-
vaða, slysa og mengunar
á 10-18,3 milljarða punda
á ári. Hún leggur því til
að'því fé, sem skorið verð-
_____ ur niður af vegagerð,
verði varið til að bæta
almenningssamgöngur. Þá er hvatt
til þess að skipulag hverfa miðist
að því að sem stystar vegalengdir
séu á milli íbúðahverfa og verslana
og þjónustu.
Breska vegagerðin hefur mót-
mælt niðurstöðum nefndarinnar
harðlega, segir þær hafa slæm áhrif
á efnahag og að tillögur hennar
muni ekki skila sér í betra
umhverfí.
Það kom mönnum á
óvart hversu harkalega
nefndin réðst að flugum-
ferð, sem hún segir í
meiri aukningu en bí-
laumferð. Leggur nefndin til að
flugvélaéldsneyti verði skattlagt og
Skattar verði
lagðir á flug-
vélaeldsneyti
að reglur um útblástur verði hertar.
Samgöngunefnd breska þingsins
lýsti fyrr í vikunni yfir miklum
áhyggjum vegna hás bensólsinni-
halds blýlauss bensíns. Vakti það
hörð viðbrögð umhverfis- og sam-
gönguráðherra landsins, auk þess
sem olíufyrirtækin hafa mótmælt
þeim.
Hætta meiri en ávinningur
í skýrslu nefndarinnar segir að allt
bendi til þess að sú hætta, sem
heilsu manna séu búin vegna
arómatískra kolvatnsefna í bensíni,
sé mun meiri en sá ávinningur sem
fáist með blýlausu bensíni.
Hvetur nefndin til þess að þetta
verði rannsakað til fulls og að niður-
staðan verði gerð opinber eins fljótt
og auðið er. Sagði nefndin greinileg
merki um aukna mengun i London
á síðustu þremur árum, en John
Gummer umhverfismálaráðherra
hefur mótmælt þeirri fullyrðingu.
Þá telur nefndin að
flýta eigi fyrir því að allir
bílar séu útbúnir hvarfak-
útum, sem nú er skylda
á nýjum bílum. Það sé
hins vegar galli á kútun-
um að þeir nái ekki alltaf
að fara í gang á styttri leiðum, þar
sem bílvélin hitni ekki nægilega.
„Það kemur ekki á óvart að víðtæk
samstaða hefur skapast um Ara
Edwald sem Julltrúa ungu kynslóðar-
innar á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík“
-Guðlaugur Þár Þórðarson
Jbrmaður SUS.
„Ari Edwald er Jramtíðarþingmaður
Jyrir Reykvíkinga. “
-Ámi Sigfússon
Ariectwaljdí Z
Kosningaskrífstofa Ara Edwcdd er að Hafnarstræíi 7 oger opin alla daga
frá 10 til 22. Símar skrifstqfmmar cru: 2 40 25 og 2 40 65. Fax: 240 79