Morgunblaðið - 28.10.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 27
tnenn
tta
unartöku í málinu. Það að ætla starfs-
mönnum að flytja á milli landshluta
en tapa ella starfí bótalaust samræm-
ist ekki jafnræðisreglu sömu laga. Þá
sé ákvörðunin óeðlilega íþyngjandi
fyrir starfsmenn sem gangi á svig við
meðalhófsreglu laganna.
Eiga stjórnsýslulög’in við?
Um það hvort hann teldi að undir-
búningur og kynning málsins hefði
verið í samræmi við ákvæði laganna,
sagði umhverfísráðherra að málið
hefði verið skoðað með þetta í huga.
„Það var mín niðurstaða að þessi
ákvörðun heyri ekki undir stjómsýslu-
lögin; þau gilda fyrst og fremst um
samskipti almennings við stjómvöid
en ekki um innri málefni stjómsýsl-
unnar, t.d. samningu reglugerða.
Þama var um að ræða pólitíska
ákvörðun um það hvort stofnun sé
lögð niður eða flutt og ég tel að hún
falli því ekki undir stjómsýslulögin.
Þegar ákvörðun hefur hins vegar ver-
ið tekin þá tel ég að stjómsýslulögin
taki gildi þegar um er að ræða bein
réttindi starfsmanna og nauðsynlegt
sé að gæta þess að hvorki laun né
réttindi séu skert."
Byggðapólitískt mál
Ráðherra var spurður um það hvaða
ávinningur væri að því að flytja emb-
ættið til Akureyrar þegar fyrir lægi
að þegar þangað væri komið yrði það
starfsmannalaust þar sem starfsfólkið
vildi ekki flytja og sagði hann að þetta
væri fyrst og fremst byggðapólitískt
mál sem væri í samræmi við stefnuyf-
irlýsingu ríkisstjómarinnar um flutn-
ing opinberra stofnana til landsbyggð-
arinnar.
„Auk þess emm við í ráðuneytinu
að móta rannsóknastefnu, sem lýtur
m.a. að rannsóknum á spendýmm og
fuglum sem er nauðsynlegt vegna
þess að það verksvið veiðistjóra og
Náttúmfræðistofnunar skarast. Þessi
flutningur gerir auðveldara að koma
fram ákveðnum breytingum sem ég
tel nauðsynlegar á viðfangi og rann-
sóknaráherslum veiðistjóraembættis-
ins. Ég er þeirrar skoðunar að það
eigi að flytja atgervi stofnunarinnar
frá ref og yfír í rannsóknir á mink,
sem ég tel vera hinn raunverulega
skaðvald í lífríkinu," sagði Össur.
Valdníðsla?
„Það er okkar skoðun að ef stofnun
er flutt út á land og starfsmenn vilja
ekki sæta þeim breytingum þá feli það
í sér lögmætar ástæður til þess að
veita þeim lausn frá störfum. í kjara-
samningum stéttarfélaga innan BSRB
og BHMR er ekki að finna ákvæði
sem varða búferlaflutning. En ég tel
eðlilegt að þegar stofnun er flutt reyni
hún að koma til móts við starfsmenn."
I greinargerð þingsályktunartillög-
unnar segja flutningsmennimir, Hjör-
leifur Guttormsson, Finnur Ingólfs-
son, Jón Helgason, Kristín Ástgeirs-
dóttir, Kristín Einarsdóttir og Svavar
Gestsson, ekki fá betur séð en að ráð-
herra hafi í málafylgju sinni gagnvart
starfsmönnum beitt valdníðslu, auk
þess að bijóta gegn óskrifuðum lögum
um mannleg samskipti. Hætt sé við
að vinnubrögð hans vinni gegn al-
mennuin markmiðum um flutning rík-
isstofnana.
„Ég tel að hér sé ekki um nokkra
einustu valdníðslu að ræða. Ég tók
ákvörðun og kynnti hana þannig að
menn höfðu heilt ár til að aðlaga sig
að nýjum aðstæðum. Það er fráleitt
að kalla það valdníðslu og það er frá-
leitt að það að flytja stofnun út á land
vinni gegn því að aðrar stofnanir verði
fluttar út á land. Ákvörðunin um að
flytja embætti veiðistjóra til Akur-
eyrar hefur hlotið lof sveitarstjómar-
manna sem hafa samþykkt ályktanir
þar að lútandi þannig að þetta er frá-
leitt eins og flest annað í þessari grein-
argerð sem úir og grúir af rangfærsl-
um,“ sagði Össur Skarphéðinsson,
umhverfisráðherra.
Efnahagskreppa í Serbíu vegna viðskiptabanns
Reuter
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR efna til mótmæla gegn Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, í Belgrad. Milosevic nýtur þó enn mikilla vinsælda
og honum stafar ekki hætta af neinum stjórnmálamanni ef marka má skoðanakannanir.
Þj óðerniseldmóður
Serba er horfinn
Eldmóður þjóðemissinna í Serbíu er horfínn
og lífsiq’örin hafa snarversnað, einkum vegna
viðskiptabanns Sameinuðu þjóðanna. Meðal-
tekjumar þar em orðnar lægri en í Albaníu.
FYRIR ári var Belgrad nokk-
urs konar helgidómur
Stór-Serbíu. Hvarvetna
voru sölumenn að græða
á þjóðlegum listmunum á götuhorn-
um og þrekvaxnir söngvarar sungu
serbnesk þjóðlög í gjallandi hátal-
ara. Serbar höfðu einangrast frá
umheiminum og gjaldmiðill þeirra
var nær einskis virði vegna gengis-
hruns en eining þjóðarinnar og stolt
hennar bættu það upp.
Serbar réðu yfir landsvæðum frá
Dóná í austri og langleiðina til
Adríahafs í vestri. Landvinninga-
stefna þeirra hafði borið árangur;
þeir höfðu náð um 70% landsvæð-
anna í Bosníu á sitt vald og þriðj-
ungnum af Króatíu. „Hver segir að
Serbía sé lítil,“ var viðlag eins af
vinsælustu söngvunum.
Serbar halda enn landsvæðunum
en þjóðemislegi eldmóðurinn er
horfinn. Þegar gengið er
niður aðalgöturnar í
Belgrad sést að borgin er
lítt frábrugðin höfuðborg-
um annarra Austur-Evr-
ópuríkja, sem reyna nú
að losna við arfleifð kommúnismans
og auka tengslin við Vestur-Evrópu.
Inn á milli drungalegra ríkisversl-
ana eru verslanir í einkaeigu sem
selja nýjan tískuvarning.
hann til að slakað yrði á refsiaðgerð-
um Sameinuðu þjóðanna.
Á meðal þeirra sem Milosevic
sneri baki við eru Serbar í Bosníu
og forsetinn rauf öll tengsl við þá
í ágúst. Serbneskir stjórnmálamenn
í Bosníu geta nú hvorki farið yfír
landamærin til „föðurlandsins“ né
hringt þangað. Aðeins er heimilt að
flytja nauðsynjavaming yfir landa-
mærin til Bosníu.
Milosevic veitti þjóðemissinnun-
um mikinn stuðning í stríðsrekstri
þeirra í Króatíu og Bosníu og hann
er nú sakaður um að hafa svikið
þá. „Þetta er ekki réttlátt,“ sagði
kaupsýslumaður í Belgrad. „Jafnvel
Sameinuðu þjóðirnar létu vera að
ijúfa símasambandið þegar þær
gripu til refsiaðgerðanna."
Vlado, serbneskur flóttamaður
frá Bosníu, hefur einnig áhyggjur
af ákvörðun forsetans. „Við kunn-
um enn að meta Mi-
losevic, en við verðum að
styðja Bosníu-Serba. Við
viljum ekki að múslimar
stofni eigið ríkið.“
Mira, 55 ára verkamað-
ur í vefnaðariðnaði, var ef til vill
raunsærri í mati sínu á Milosevic:
„Hann er að svíkja þjóð sína til að
bjarga eigin skinni.“
Fátækari en Albanir
47% Serba
myndu kjósa
Milosevic
Slobodan
Milosevic
þeir heyrðu undir Júgó-
slavíu en meðaltekjur
þeirra eru nú lægri en
Albana.
Stjórnin vann bug á
óðaverðbólgunni með
ströngum aðhaldsað-
gerðum í byijun ársins
og kom á stöðugleika í
efnahagnum, en ýmis
teikn era nú á lofti.
Gengi dínarsins er að
lækka og verðlagið fer
aftur hækkandi.
Stefnubreytingin
hefur þó borið nokkum
árangur. Ráðamenn á
Vesturlöndum ræða
ekki lengur um hvort
herða eigi refsiaðgerðirnar gegn
Serbíu. Nú er aðeins rætt hvenær
og hvemig slaka eigi á þeim.
Milosevic er alvara
Flestir fréttaskýrendur telja að
Milosevic, sem komst til metorða
innan kommúnistaflokksins, sé al-
vara með viðskipta- og samskipta-
banninu á Bosníu-Serba. „Þetta er
spuming um völd og honum er allt-
af alvara þegar völdin eru í veði,“
sagði Stojan Gerovic, stjórnmála-
blaðamaður vikublaðsins Vreme.
Predrag Simic, fram- -----------
kvæmdastjóri serbneskrar
stofnunar sem fjallar um
alþjóðleg samskipti, er á
sama máli. „Milosevic _____________
komst að raun um að hann
varð að semja við Sameinuðu þjóð-
irnar þegar hætta var á að stríðið
breiddist út til Serbíu eftir blóðsút-
hellingarnar á útimarkaði i Sarajevo
og blóðugt umsátur um Gorazde."
Litið á
Karadzic sem
frelsishetju
sem serbneska forset-
anum stafar^ einhver
hætta af. „í augum
venjulegra Serba er
Karadzic nokkurs kon-
ar frelsishetja," sagði
Simic. „Hann er Davíð
sem barðist við Golíat
vestursins. Hann hefur
mikla persónutöfra,
höfðar sterkt til al-
mennings, er and-
kommúnisti og trf#í&
fólk lítur á hann sem
mikinn rétttrúnaðar-
mann.“
Þótt merkilegt sé
virðast vinsældir forset-
ans þó ekki hafa minnk-
að að ráði. Samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun myndu 47% Serba kjósa
Milosevic í forsetakosningum. Sá
sem kemur næst honum fengi að-
eins tíunda hluta þess fylgis.
Milosevic ræður enn yfír fjölmiðl-
um landsins, sem sniðganga nú
stríðið í Bosníu að mestu. Sjónvarps-
stöðvarnar sýna nú þess í stað frá
tónleikum og gamlar kvikmyndir frá
valdatíma kommúnista. r„»
Cerovic telur að Milosevic sé fyrst
og fremst hentistefnumaður, sem
kunni að taka málstað þjóðernis-
sinna síðar, en hann telur
ólíklegt að forsetinn
gangi svo langt að styðja
stríðsrekstur Bosníu-
Serba að nýju. „Hann er
líklegri til að höfða til
eðlislægrar eigingirni fólksins og
segja: „Við höfum fært fómir fyrir
Serba í Króatíu og Bosníu en núna
verðum við að hugsa um okkar eig-
in hag.““
Sakaður um svik
Þessi breyting er þó ekki afleiðing
markaðsaflanna, heldur stefnu-
breytingar af hálfu forseta Serbíu.
Slobodan Milosevic hefur sagt skilið
við þjóðrembuöflin og þá sem vilja
stofna Stór-Serbíu og það gerði
Öllum er ljóst hvað fékk Mi-
losevic til að snúa baki við leiðtogum
Bosníu-Serba. Refsiaðgerðirnar og
kostnaðurinn við að fjármagna
stríðsrekstur Serba í Bosníu og
Króatíu hafa stórskaðað efnahag
Serbíu. Lifskjör Serba vora með
þeim bestu í Austur-Evrópu þegar
Karadzic álitinn
frelsishetja
Klofningurinn' meðal Serba er
ekki hættulaus. Radovan Karadzic,
leiðtogi Bosníu-Serba, nýtur meiri
stuðnings í Serbíu en Milosevic í
Bosníu. Karadzic er þannig sá eini
Blaz Cerobic, sjötugur Serbi sem
barðist í heimsstyijöldinni síðari,
hefur þegar komist að þessari niður-
stöðu. „Serbar í Bosníu hafa náð
nógu langt. Við í Serbíu höfum stutt
þá þar til nú, en stríðinu verður að
ljúka.“
Heimild: The Daily Telegraph.